Morgunblaðið - 06.06.1981, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ1981
39
ÞÖRSiCAFE
Lokað i kvöld
og annan í hvítasunnu.
£iúblm
Opiö 9—11.30.
Hljómsveitin
HAFRÓT verður
meó fjörið hjá okkur á 4. hæóinni
í kvöid. Pétur Steinn og Baldur
sjá um aó snúa plötunum rétt og
þetta ætti aö vera nóg til þess aó
allir mæti
í Klúbbinn í kvöld .. .I
Annan í hvítasunnu
opiö 9—1.
K
Englendingarnir
BOBBY HARRISSON
og
GUS ISADORE
koma í heimsókn og leika
rokk, reagge og blues ásamt
Gunnari Hrafnssyni og Ein-
ari Jónssyni
Opiö í hádeginu frá 12—14.20
og í kvöld frá 18—23.30.
OÐAL
í hjarta borgarinnar
Óöal óskar öllum landsmönn-
um gleöilegrar hátíöar og
veöurblíöu um helgina.
Sjáumst heil.
OÐAL
Helgarvinnubann
Helgarvinnubann í hafnarvinnu og viö alla fiskverkun
veröur í sumar frá og meö 13. júní — 1. sqpt. n.k.
Verkamannafélagið Dagsbrún,
Verkakvennafélagið Framsókn,
Verkakvennafélagið Framtíöin,
Verkamannafélagiö Hlíf.
Námskeið fyrir afgreiðslufólk kynnt. F.v. Magnús E. Finnsson. framkvæmdastjóri Kaupmannasamtaka
íslands, Gunnar Snorrason, formaður samtakanna, Þorvarður Elíasson. skólastjóri Verzlunarskóla
íslands, og Guðni Þorgeirsson, starfsmaður Kaupmannasamtakanna. og formaður nefndar, sem undirbjó
námskeiðin. , Ljósmynd Mbl. Kristján.
Þriggja vikna námskeið fyrir afgreiðslufólk verzlana að hef jast:
Gef a viðkomandi eins
launaflokks hækkun
VIÐ síðustu kjarasamninga verzl-
unarfólks var gefin yfirlýsing
þess efnis, að afgreiðslufólki yrði
gefinn kostur á þvi að sækja
námskeið i ýmsum verzlunarfræð-
um, sem samtök vinnuveitenda
myndu standa fyrir og ákveða
námsefnið á. Eftir setu á slíku
námskeiði skyldi afgreiðslufólkið
fá eins launaflokks hækkun. Á
vegum Kaupmannasamtaka ts-
lands og Verzlunarskóla íslands
hefur verið unnið að þessu máli
undanfarna mánuði og verður
fyrsta námskeiðið haldiö 22. júni
til 10. júlí nk. í húsakynnum
Verzlunarskólans. Mbl. hitti fyrir
skömmu þá Gunnar Snorrason,
formann Kaupmannasamtak-
anna. Magnús E. Finnsson. fram-
kvæmdastjóra þeirra, Guðna
Þorgeirsson, starfsmann Kaup-
mannasamtakanna, sem jafn-
framt var formaður nefndar
vegna námskeiðanna, og Þorvarð
Elíasson, skólastjóra Verzlun-
NÚ ERÚ 10 ár siðan hjónin Lísa
Wium og Gunnar Jónsson stofn-
uðu Keramikhúsið hf., og ráku
fyrst i Keflavík en frá 1974 að
Reykjavikurvegi 68 í Hafnar-
firði. Laugardaginn 30. mai sl.
flutti Keramikhúsið til Reykja-
vikur og opnaði að Sigtúni 3.
I frétt frá Keramikhúsinu segir,
arskólans. Fyrsta spurningin var
hvort þeir teldu svona námskeið
eiga rétt á sér.
Það var samdóma álit þeirra, að
svona námskeið ættu tvímælalaust
rétt á sér enda væru menntunar-
mál afgreiðslufólks í algjörum
ólestri. Með námskeiði eins og
þessu væri hægt að bæta úr mesta
þekkingarskortinum. Á námskeið-
inu verða kennd undirstöðuatriði í
greinum eins og verzlunarrekstri,
verzlunarrétti, vörufræðum, með-
ferð reiknivéla og hvernig verðút-
reikningar eru gerðir og síðast en
ekki sízt verður fólki kennd tján-
ing og framkoma.
I sambandi við tjáningu og
framkomu gat Þorvarður Elíasson
þess, að byrjað yrði á þeim þætti
með aðstoð sjónvarps og segul-
banda. „Það fær því hver nemandi
að sjá sig í réttu ljósi og getur því
bætt um betur í samræmi við það,“
sagði Þorvarður ennfremur.
Kennarar á námskeiðinu verða
að nú þegar fyrirtækið opnar í
nýju húánæði í Reykjavík, muni
það auka umsvif sín, bæta við
leirbrennsluofnum og hafa til sölu
litla slíka til heimila og skóla,
rennibekki, verkfæri fyrir þá sem
stunda leirmunagerð, glerunga og
undirliti, pensla og hvaðeina til
gagns við leirmunagerð.
ýmist frá Verzlunarskólanum, eða
þá ýmsir sérfræðingar úr röðum
kaupmanna. Námskeiðið verður
haldið að einum þriðja hluta í
vinnutíma starfsfólksins og tveim-
ur þriðju hlutum í eigin tíma, en
hvert námskeið mun standa í um
45 klukkutíma, fyrir utan heima-
nám, sem verður talsvert. Kennsla
hefst klukkan 08.00 á morgnana og
stendur til klukkan 10.20, frá
mánudegi til föstudags. Áætlað er,
að í hópnum verði 25 manns, en
Þorvarður skaut því að, að hægt
væri að hafa þrjá hópa í gangi í
einu, þannig að alls gætu 75 manns
tekið þátt í námskeiðinu.
Varðandi framhaldið kom það
fram, að þetta er einungis byrjun-
in á námskeiðahaldi sem þessu.
Þörfin væri augljóslega mikil.
Rétt til að sækja námskeið, sem
þetta, hefur allt afgreiðslufólk í
verzlunum, hvar sem er á landinu,
en það kom fram, að hugmyndin
væri að fara síðar meir með
námskeiðin út á landsbyggðina.
Kostnaðurinn vegna þátttöku
verður 700 krónur og greiða verzl-
anirnar hann eins og sagði í
upphafi.
I nefnd Kaupmannasamtakanna
vegna málsins sátu, auk Guðna
Þorgeirssonar, Arndís Björnsdótt-
ir og Jóhannes Jónsson. Af hálfu
Verzlunarskólans tók þátt í þessu
samstarfi Þorvarður Elíasson,
skólastjóri.
„Berjist
trúarinnar
góðu baráttu“
VOTTAR Jehóva á íslandi halda
nú um helgina mót að Laugar-
borg i Ilrafnagilshreppi. skammt
frá Akureyri. Mótið. sem hófst
5.6. ber heitið „Berjist trúarinn-
ar góðu baráttu**.
Mót af þessu tagi eru haldin
þrisvar á ári en hafa ekki verið
haldin utan Reykjavíkur um all-
langt skeið. Vottar Jehóva vilja
því sérstaklega bjóða Akureyring-
um að sækja mótið og munu
heimsækja þá fyrir hádegi í dag í
því skyni. Um eitt hundrað manns
af Reykjavíkursvæðinu munu taka
þátt í mótinu.
Dagskráin fer fram í formi
erinda, viðtalsþátta og umræðna.
Aðalræðu mótsins flytur Bjarni
Jónsson og nefnist hún „Horfum
til framtíðarinnar með trú og
hugrekki".
Mótið er opið öllu áhugafólki
um Biblíuna og aðgangur er
ókeypis.
Lísa Wium og Gunnar Jónsson í nýju húsnæði Keramikhússins í
Reykjavik.
Keramikhúsið opn-
ar í Reykjavík