Morgunblaðið - 06.06.1981, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ1981
„ÉG VARÐ t>RlOarI.,,,
að dreyma
hvort annaö.
TM Rea U.S Pit. Off --iM riflhts rwerved
© 1981 Los Angeles Times Syndicate
Konan mín misskilur min ok nú
þjóninn!
HÖGNI HREKKVÍSI
/AJTI HÖ6NA-MARAþONIÐ lí\Ð HÍR UM?"
Svo ein-
falt er það
Hr. Flinkur skrifar:
„Elsku besta Valgerður.
Ég var að enda við að lesa bréf
þitt í Velvakanda 24. maí sl. í
fyrsta lagi hef ég aldrei haldið því
fram að ég væri einn í heiminum,
og heldur ekki hinir sem hafa
beðið um endursýningu þáttarins
með Bay City Rollers. Varðandi
stöðnunina í tónlist BCR, og hina
öru þróun hjá Bítlunum vil ég
benda þér og fleirum á að hlusta
annars vegar á Bítlalögin, „She
loves you“ ('64) og „0 bla di o bla
da“ (’69) og hins vegar á Rollers
lögin „Shang a lang“ (’74) og
„Stoned houses (parts 1&2)“ (’79),
og þá máttu fara að tala um
stöðnun — þ.e.a.s. hjá Bítlunum.
Ég styð eindregið þá tillögu þína
um að sjónvarpið keypti nýja
poppþætti, því þá gæti maður
kannski séð í það minnsta nýlegan
þátt með The Rollers (Þýska
sjónvarpið á áreiðanlega ein-
hverja þætti með þeim í fórum
sínum). Þetta með að setja
BCR-þáttinn á undan Barbapabba
var heldur slæmur brandari hjá
þér. Mér er nákvæmlega sama
hvort Rory Gallagherþátturinn
verði endursýndur, en samt sem
áður held ég því statt og stöðugt
fram að erfiðara sé að setja saman
létta og gripandi laglínu heldur en
langdregin og, að mínu mati,
leiðinleg gítarsóló.
Og að lokum langar mig að
beina orðum mínum til Valgerðar,
Senor Zýkúrta (æðislega þróað
dulnefni) og fleira fólks, sem er
mér ósammála: Við erum ekki
skoðanasystkin, og verðum það
líklega aldrei, svo ég held að það
sé óþarfi að halda þessu þrasi
áfram. En ef þið viljið halda
áfram þá held ég fúslega líka
áfram. Én satt best að segja er ég
orðinn þreyttur á þessu. Það eina
sem ég bað um í upphafi var að
sjónvarpið endursýndi þáttinn
með Bay City Rollers, sem ég vona
að verði, sumir hafa greinilega
verið sammála mér en aðrir hins-
vegar ekki. Svo einfalt er það.“
Frestur er á
illu bestur
Göngu-IIrólfur skrifar:
„Það urðu margir furðu lostnir,
þegar þeir fréttu að Alþingi hefði
samþykkt hið stórgallaða frum-
varp dómsmálaráðherra um
breytingar á umferðarlögunum.
Einkum voru það 2 greinar, sem
gagnrýndar voru, og var önnur
þeirra um að hjólreiðar skyldu
leyfðar á gangstéttum. Dylst víst
fáum, að hér er farið inn á mjög
varhugaverða braut, svo ekki sé
dýpra tekið í árinni.
Lausn fundin
Undirritaður var einn þeirra
mörgu, sem bjóst við að þessi
grein laganna yrði felld í þinginu,
en því miður virðast þingmenn
ekki hafa haft tíma til að hugsa
þetta mál í ró og næði, enda mikið
að gera síðustu daga fyrir þingslit,
eins og títt er á því heimili.
Eftir að hafa hugsað rækilega
um þetta mál, datt mér þó í hug
lausn sú, sem kemur fram í
eftirfarandi línum:
Gangstéttirnar glatast senn,
gatan ætluð bílum einum.
Geta nú allir göngumenn
Gengið í rennusteinum.
Það má kannski segja, að frest-
ur sé á illu bestur, því að lögin
koma ekki til framkvæmda fyrr en
1. október nk.“
Um skrefatalningu innanbæjarsimtala:
Eðlilegt að bíða eftir
svari samgönguráðherra
Friðrik Sophusson alþingis-
maður skrifar:
„Sl. sunnudag 31. maí skrifaði
Jón Ögmundur Þormóðsson lög-
fræðingur í dálk Velvakanda og
beindi þá þremur spurningum til
símamálaráðherra um svokall-
aða skrefatalningu innanbæjar-
símtala.
Valkostir verði kynntir
bingmonmim Reykvíkinga
Eins og fram hefur komið í
fréttum sendu 12 þingmenn
Reykvíkinga símamálaráðherra
bréf 30. marz, þar sem óskað var
eftir svörum við nokkrum spurn-
ingum, er varða skrefatalning-
una. I lok bréfsins sagði orðrétt:
„Við fyrirhugaða breytingu
sem hefur í för með sér aukinn
kostnað fyrir símnotendur höf-
uðborgarsvæðisins, verður að
gera þá kröfu, að fyrir liggi
upplýsingar um alla þá kosti
sem fyrir hendi er við fram-
kvæmdina.
Hér með er óskað eftir að þeir
valkostir verði kynntir þing-
mönnum Reykvíkinga og fullt
samráð verði haft við þá um alla
framkvæmd málsins, áður en
endanleg ákvörðun verður tek-
in.“
Alfarið vísað til bréfs
póst- og símamálastjóra
Hinn 6. maí barst síðan svar
frá samgönguráðuneytinu, þar
sem alfarið var vísað til bréfs
póst- og símamálastjóra til sam-
gönguráðuneytisins, en það var
dags. 27. apríl. Bréf póst- og
símamálastjóra til samgöngu-
ráðuneytis er til í fórum allra
þingmanna Reykjavíkur. Ýmsar
tæknilegar upplýsingar eru í því
bréfi, en það svarar hins vegar
ekki spurningum Jóns Ögmund-
ar Þormóðssonar lögfræðings og
er því eðlilegt að bíða svars
samgönguráðherra við spurning-
um Jóns, áður en rætt verður
frekar um málið á opinberum
vettvangi, enda hafa þingmenn
Reykjavíkur óskað eftir að fullt
samráð verði haft við þá áður en
endanleg ákvörðun verður tekin.
Ófullnægjandi
upplýsinKar
Að höfðu samráði við Guð-
mund G. Þórarinsson, Ólaf
Ragnar Grímsson og undirritað-
an sendi Jóhanna Sigurðardóttir
samgönguráðherra nýlega bréf,
sem mér finnst eðlilegt að birta
af þessu tilefni:
„29. maí 1981
Samgönguráðuneytið
Steingrímur Hermannsson
Arnarhvoli.
Sem svar við bréfi þingmanna
Reykjavíkur dags. 30. marz hef-
ur borist bréf frá samgöngu-
ráðuneytinu dags. 6. maí, en með
því bréfi fylgdi í myndriti svar
póst- og símamálastjóra dags.
27. apríl til samgönguráðuneyt-
isins.
I bréfi samgönguráðuneytisins
kemur fram, að upplýsingar þær
sem fram koma í bréfi póst- og
símamálastjóra séu svar við téðu
bréfi þingmanna Reykjavíkur.
Sem fyrr er hér um alls
ófullnægjandi upplýsingar að
ræða, enda einstök atriði, sem
upplýsinga hefur verið óskað
um, ákvörðunaratriði samgöngu-
ráðherra en ekki póst- og síma-
málastjóra.
Ekki kemur heldur fram í
bréfi ráðuneytisins hvort það
hafi tekið afstöðu til ýmissa
efnisatriða í tillögum póst- og
símamálastjóra. Má í því sam-
bandi t.d. benda á eftirfarandi:
a) Hver verður skrefalengdin?
b) Hvaða fyrirkomulag verði
látið gilda gagnvart elli- og
örorkulífeyrisþegum
c) Hvort tekjuaukningunni
verði dreift á öll langlínusamtöl
d) Hvort skrefagjaldinu verði
breytt.
I bréfi þingmanna Reykvík-
inga eru óskir þessar enn á ný
ítrekaðar við samgönguráðherra
og óskað eftir svari hans og
ákvörðun um hvað fyrirhugað er
varðandi einstök framkvæmda-
atriði þessa máls.
Virðingarfyllst
Jóhanna Sigurðardóttir.““