Morgunblaðið - 06.06.1981, Page 44
Síminn á afgretóslunni er
83033
LAUGARDAGUR 6. JÚNÍ 1981
Einstæð
hjónavígsla
Brúðhjónin ásamt foreldrum sínum. F.v. Þórður Örn Sigurðsson,
Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir, Sr. Dalla bórðardóttir, Agnar Gunn-
arsson cand, theol. Helga Guðmundsdóttir og Gunnar Halldórsson.
í GÆR voru gefin saman í Kópavogskirkju brúðhjónin
Dalla Þórðardóttir prestur og Agnar Gunnarsson, cand.
theoi. Hjónavígsluna framkvæmdi móðir brúðarinnar, sr.
Auður Eir Vilhjálmsdóttir, en hún er, sem kunnugt er,
fyrsta kona er vígð hefur verið til prestsstarfa á íslandi.
en Dalla önnur. Það er því einstæður atburður á íslandi að
kvenprestur framkvæmi hjónavigslu dóttur sinnar, sem
einnig er prestur og brúðguminn reyndar guðfræðingur.
Séra Auður Eir þjónar nú Kirkjuhvolsprestakalli, en
brúðhjónin Dalla og Agnar munu innan tíðar setjast að á
Bíldudal þar sem sr. Dalla er settur prestur frá 1. júní sl.
í ræðu sinni yfir brúðhjónunum vitnaði sr. Auður Eir
m.a. í hiblíuna þar sem segir að i hjónabandi beri báðum
að hlýða og báðum að stjórna.
Fiskverð hækkaði um 8% að meðaltali:
Útgerðin rekin með 1,9%
hagnaður af vinnslunni í
NÝTT fiskverð var ákveðið á fundi yfirnefndar Verðlagsráðs
sjávarútvegsins í gær. Felur hækkunin í sér 8% meðalhækkun frá því
verði, sem gilti til maíloka. Verðið var ákveðið af oddamanni og
fulltrúum seljenda gegn atkvæðum kaupenda.
Eftir þessa fiskverðshækkun er
frystingin rekin með tæplega 1%
halla miðað við gengi dollarans í
gær. Arni Benediktsson annar
fulltrúi seljenda sagði í samtali
við Mbl. í gærkvöldi, að gengi
dollarans væri mikill óvissuþáttur
og stöðu dollara bæri að túlka með
meiri varfærni en gert hefði verið.
Því hefði hann verið andvígur
þessari ákvörðun fiskverðs. Hann
sagði, að í raun væri staða fryst-
ingar verri heldur en útreikningar
segðu til um, þar sem framundan
væri á næstu mánuðum mikil
framleiðsla á óarðbærari tegund-
um.
Þó frystingin sé rekin með
nokkrum halla þá er hins vegar
nokkur afgangur á fiskvinnslunni
í heild. Saltfiskverkun stendur
bezt skv. upplýsingum, sem Mbl.
hefur aflað sér, en nokkur óvissa
er um stöðu skreiðarverkunar, þar
sem Nígeríumenn hafa ekki enn
tilkynnt um hvert verður há-
marksverð á skreið, sem þeir
kaupa í ár.
halla.
heild
Hafnarfjarðarvegsdeilan í Garðabæ:
Lögbannskröfu
íbúanna hafnað
B/EJARFÓGETI Garðakaupstaðar, Einar Ingimundarson, kvað í gær
upp úrskurð í lögbannskröfumáli 71 Garðbæings, sem varðar
framkvæmdir Vegagerðar rikisins við breikkun Hafnarfjarðarvegar-
ins neðan Silfurtúns. Lögbanni var hafnað í úrskurðinum og kveðið á
um að málskostnaöur falli niður. íbúarnir, sem kröfðust lögbannsins
voru ekki taldir hafa fært sönnur á að rétti þeirra hefði verið raskað
með framkvæmdum Vegagerðarinnar við breikkun vegarins.
Einar Ingimundarson bæjarfóg-
eti sagði í samtali við Mbl. í gær,
að viðstaddir uppkvaðningu úr-
skurðarins hefðu verið þrír fuli-
trúar þeirra sem skrifuðu undir
kröfuna, en það voru 71 Garðbæ-
ingur. Þá hefðu bæjarstjóri og
bæjarritari Garðakaupstaðar ver-
ið á staðnum, einnig Snæbjörn
Jónasson vegamálastjóri og full-
trúi hans.
Jón Baldur Sigurðsson forsvars-
maður íbúanna sagði í samtali við
Mbl. í gær, að ekki væri enn ljóst
hvort um framhaldsaðgerðir yrði
að ræða né hvort úrskurðinum
yrði áfrýjað til Hæstaréttar.
Kristján Ragnarsson formaður
LÍÚ sagði í gærkvöldi, að eftir
þessa fiskverðshækkun væri út-
gerðin rekin með 0,9% halla að
meðaltali samkvæmt útreikning-
um Þjóðhagsstofnunar. Bátar
(ekki loðnuskip) væru reknir með
3,2% hagnaði, minni togarar með
1,9% halla og stærri skuttogarar
með 10,8% halla. Sagði Kristján,
að staða margra togaranna væri
ískyggileg.
Olafur Davíðsson, fortstjóri
Þjóðhagsstofnunar og oddamaður
í yfirnefndinni, sagði aðspurður í
gærkvöldi, að ekki væri um neinar
yfirlýsingar eða aðgerðir að ræða
af hálfu stjórnvalda vegna þessar-
ar fiskverðsákvörðunar. Fundur
hefur ekki verið haldinn í stjórn
Verðjöfnunarsjóðs fiskiðnaðarins,
en búist er við, að viðmiðunarverð
verði sett jöfn markaðsverðum.
Fiskverðið gildir frá 1. júní sl.
til 30. september og í frétt frá
Verðlagsráði sjávarútvegsins seg-
ir m.a: „Þorskur og ufsi hækka um
9,1%, grálúða hækkar um 3%,
verð á ýsu verður óbreytt og aðrar
fisktegundir hækka um 8%. Gert
er ráð fyrir að greidd verði uppbót
úr verðjöfnunardeild Aflatrygg-
ingasjóðs, er nemi 25%, á verð
karfa og ufsa og 15% á verð
skarkola, þykkvalúru og grálúðu."
Fulltrúar kaupenda gerðu ekki
bókun við ákvörðun fiskverðs.
Einar Ingimundarson bæjarfógeti Garðakaupstaðar les upp úrskurð-
inn i gær. Ljósm. Mbl. Guðjón
Fá ekki
rækju ofan
á brauðið
VEIÐAR á rækju við miðlinu
milli íslands og Grænlands hafa
gengið illa það sem af er sumri
og höfðu sjómenn á orði, að þeir
fengju varla ofan á brauð — hvað
þá í salatið. Úti fyrir Norður-
landi munu veiðarnar hafa geng-
ið skár.
27 skip hafa fengið leyfi til
djúprækjuveiða í sumar og þeirra
á meðal er skuttogarinn Arsæll
Sigurðsson frá Hafnarfirði. Tvö
loðnuskip hafa fengið leyfi til
þessara veiða, Bjarni Ólafsson og
Arsæll. Minnstu bátarnir, sem
fengið hafa leyfi til veiðanna, eru
um 30 rúmlestir að stærð og eru
margir þeirra frá Vestfjörðum og
vestanverðu Norðurlandi.
64 laxar í
Norðurá
LAXVEIÐIN í Norðurá hefur
gengið sæmilega það sem af
er sumri. en veiðitimabilið
þar hófst þann 1. júní. Um
miðjan dag í gær voru komn-
ir (54 laxar upp úr ánni, en
flestir fiskar veiddust fyrsta
daginn. Siðustu daga hefur
Norðurá verið fremur köld,
enda kalt veður, en í gær
rofaði til og hlýnaði. í Norð-
urá er veitt á 12 stengur.
Af þeim 64 löxum sem
fengist hafa, hafa 51 veiðst á
maðk, en 13 fiskar hafa tekið
fluguna. Samkvæmt upplýs-
ingum sem Morgunblaðið fékk
í veiðihúsinu munu flestir
flugufiskarnir hafa tekið á
flugu sem heitir „Þingeying-
ur“.
Tjöld bönnuð
á flestum úti-
vistarsvæðum
í Rangárvallasýslu er mikill
viðbúnaður af hálfu lögreglu-
yfirvalda vegna hvítasunnuhelg-
arinnar. Búist er við f jölda fólks i
Þórsmörk þar sem á ÞingvöIIum,
Laugarvatni, Þrastaskógi og í
Þjórsárdal er hannað að tjalda
þessa helgi vegna þess hve gróð-
ur er kominn stutt á veg.
Sérstök slysa og gæsluþjónusta
verður í Þórsmörk og verður gjald
innheimt við hliðið en það mun
vera 20 krónur. Lögreglan á
Hvolsvelli vill vara fólk við
Krossá, því á árstíma sem þessum
er mikið vatn í ánni. Fólk er
eindregið hvatt til að sýna að-
gæzlu þegar það fer yfir Krossá og
tefla ekki í tvísýnu.
MIKILL bílastraumur var úr höf-
uðborginni í gærkvöldi. Umferð
var mikil jafnt á Vesturlands- og
Suðurlandsvegi. Lögreglan á Sel-
fossi taldi að straumurinn lægi til
Þórsmerkur. Þá var einnig mikil
umferð um Akranes og fóru fjöl-
margir vestur á bóginn með Akrá-
borg í gær. Bað lögreglan menn að
aka Akranesafleggjara með full-
um ljósum í dag, því mikill
rykmekkur hefur verið yfir vegin-
um. Á það sama áreiðanlega við
um fleiri þjóðvegi.
Vitað var um eitt slys í gær-
kvöldi. Bifreið fór út af Þingvalla-
vegi. Einn maður var í bílnum en
hann mun ekki hafa slasast alvar-
lega.