Morgunblaðið - 15.07.1981, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ1981
Blóðgjafafélagið
- félag blóðgjafa og
áhugafólks stofnað
annað kvöld
Rætt við Olaf Jensson
forstöðumann Blóðbankans
Blóðgjafafélag, fyrsta félag sinnar tegundar, verður
stofnað í Domus Medica annað kvöld, fimmtudagskvöld.
Tilgangur félagsins verður að efla tengsl íslenzkra
blóðgjafa og almennings við Blóðbankann, fræða
blóð«jafa, almenning og stjórnvöld um mikilvægi blóðs
til lækninga. Einnig að veita starfsemi Bióðbankans
stoð á svipaðan hátt og mortí líknar- og styrktarfélög
veita hinum ýmsu stofnunum heilbrigðiskerfisins.
í tilefni þessa ræddi Mbl. við óiaf Jensson forstöðu-
mann Blóðbankans og kynnti hann blaðamanni starf-
semi Blóðbankans við EiríksKötu í Reykjavík. Miklar
endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði bankans og
aðstaða blóðgjafa og starfsfólks verið bætt til muna.
Með sanni má segja að
meginstarfsemi Blóðbankans
felist í söfnun og úthlutun
blóðs og er bankinn eina stofn-
unin hérlendis sem annast
slíka þjónustu. Sagði Ólafur að
sökum smæðar þjóðfélagsins
væri það hentugasta fyrirkom-
ulagið, en bankinn er með eitt
útibú, í Borgarspítalanum í
Reykjavík. Fyrir utan þennan
meginþátt starfseminnar fer
þar fram annað og yfirgrips-
mikið starf, sem ekki lætur
mikið yfir sér út á við. Er það
vinnsla blóðhluta og blóðþátta
og síðast en ekki sízt er þar
unnið að veigamiklum rann-
sóknum á blóðefnum, erfða-
þáttum blóðsins og einnig á
sviði blóðónæmisfræði og
ónæmiserfðafræði.
Ólafur sagði að allt frá
stofnun Blóðbankans árið 1953
hefði verið haldin nákvæm
skrá yfir alla blóðgjafa, sjúkl-
inga og vanfærar konur. Nú
væri fyrirhugað að koma þess-
ari skrá inn í nýtt tölvukerfi
sem yrði sameiginlegt fyrir
allar deildir Landspítalans.
Rannsóknir á sviði blóðflokka
vörðuðu erfðagengni, tíðni
sjúkdóma o.fl. Þá væri blóð-
flokkarannsókn stór þáttur í
mæðravernd. Þá hafa farið
fram kannanir á blóðflokkum
stórra fjölskyldna og eru
niðurstöður þeirra rannsókna
ómæld aðstoð í könnun erfða-
sjúkdóma og erfðagengni.
Það kom fram í samtalinu
við Ólaf að miklar framfarir
hafa orðið á síðustu árum hvað
varðar þennan þátt heilbrigð-
isgeirans sem aðra. Hann
sagði að nú væri til að mynda
mun betri aðstaða til að geyma
blóð. Blóð til beinnar yfir-
færslu milli manna geymist í
þrjár vikur, en að loknu því
tímabili er nú unnt að vinna úr
blóðinu „plasma", sem að hluta
til er notað hérlendis til að
vinna úr, en einnig er það selt
til útlanda og þess í stað keypt
inn til landsins storknunarefni
og fleira sem til starfseminnar
þarf.
Ólafur sagði að blóðgjöfum
hefði fjölgað ár frá ári í
bankanum og einnig í ferðum
bifreiða Rauða kross Islands.
Sem dæmi nefndi hann að árið
1976 hafi blóðgjafir verið alls
8.440 en á síðasta ári um
12.000. Um 3.000 nýir blóðgjaf-
ar hefðu bæst í hópinn á
Ilúsnæði Blóðbankans hefur ver-
ið endurbætt og fer blóðtaka nú
fram i stórri, bjartri stofu, sem
rúmar sex bekki. Áður voru
aðeins þrir bekkir i bankanum.
Ólafur Jensson forstöðumaður er
lenjjst til vinstri á myndinni.
Ljósm. Mbl. Gudjón
Þá hefur biðstofa einnig verið
stækkuð og spjaldskrá og skrif-
stofuaðstaða er nú mun þægi-
legri. Bióðgjafi biður hér cftir að
starfsstúlka Blóðbankans finni
spjaldið hans, en i skjalaskápun-
um tveimur er fullkomin skrá
yfir alla blóðgjafa.
síðasta ári, fastir gefendur
væru um 2.000 og margir
þeirra gæfu blóð fjórum si-
nnum á ári, en það er sú tíðni,
sem talin er heilbrigðust fyrir
mannslíkamann. Aðstaða til
geymslu blóðsins er góð, en
einnig sagði Ólafur, að bank-
inn hefði stöðugan aðgang að
mönnum í sjaldgæfum blóð-
flokkum, þegar mikið lægi við.
Væri þar um að ræða menn úr
öllum stéttum þjóðfélagsins og
brygðust þeir ætíð vel við
þegar á þyrfti að halda. Þar
sem blóð geymdist ekki nema í
um þrjár vikur ylti á miklu að
hafa haldgóðar skrár og góða
aðila til að leita til í slíkum
tilfellum.
Blóðbankinn er í ágætri
samvinnu við sambærilegar
stofnanir í nágrannalöndunum
og nefndi Ólafur sem dæmi að
10.—12. júlí sl. hefði verið
haldið í Reykjavík þing nor-
rænna blóðbankastjóra, en þau
eru haldin til skiptis á Norður-
löndunum á þriggja ára fresti.
Þá hefur Blóðbankinn nána
samvinnu við Evrópublóð-
bankann, sem staðsettur er í
Amsterdam. Sá, banki er hinn
stærsti og fullkomnasti í Evr-
ópu og þjónar Evrópulöndun-
um hvað varðar sjaldgæfar
tegundir blóðs og efnasam-
banda, sem of kostnaðarsamt
og erfitt er að vinna sérstak-
lega í hverju landi fyrir sig.
Um hugmyndina að stofnun
félagsins annað kvöld og til-
gang þess sagði Ólafur: „Marg-
ar stofnanir og þættir heil-
brigðiskerfisins njóta stoðfé-
laga, svo sem Krabbameinsfé-
lagið og sykursýkisfélag svo
dæmi séu nefnd. Þessi félög
tengjast starfi á ríkisspítölun-
um og hafa reynzt starfsemi
þeirra ómetanleg stoð. Fjár-
veitingarammi hins opinbera
hefur reynzt mörgum stofnun-
um óþægur ljár í þúfu og hafa
stoðfélög oft tekið til höndum
hvað tækjabúnað snertir.
Þá er annar þáttur og ekki
veigaminni sem þetta félag á
að geta sinnt, en það er
82455 — 82330 ]
Efra Breiðholt — 4ra herb.
falleg íbúð á 3. hæö. Ákveðin í sölu. Verð 530 þús.
Kríunes — Einbýli
Fokhelt hús á 1 hæð með tvöföldum bílskúr. Til afhendingar nú
þegar. Verð 720 þús.
Vesturberg — Raðhús
á einni hæð auk rýmis í kjallara. Bílskúrsréttur. Verö 900—950 þús.
Nýbýlavegur — Einbýli
Húsið er alls 250 fm auk bílskúrs. 4 svefnherb., baöstofuloft, 2ja
herb. íbúð að auki sem getur verið sér. Stór ræktuð lóö.
Bergstaðastræti — 2ja herb.
íbúð á jarðhæð. Hagstætt verð. Laus nú þegar.
Langholtsvegur — 3ja herb.
stór samþykkt kjallaraíbúð Sér inngangur og sér hiti. Verð 380
þús.
2ja—4ra herb. óskast
Höfum fjölda kaupenda að 2ja—4ra herb. íbúöum. Oft eru í boði
verulega háar greiðslur fyrir réttar eignir.
Skipti
Hjá okkur eru margvíslegir skiptamöguleikar. Látið skrá eignir yöar
til skipta.
riGNAVER sr
Suðurlandsbraut 20, símar 82455 — 82330. ^
Allir þurfa híbýli
★ Einbýlishús — Seljahverfi
Fokhelt einbýlishús, 2 hæðir og ris. Innbyggöur tvöfaldur bílskúr.
Fallegt hús.
★ 3ja herb. íb. — Kópavogur
3ja herb. íbúö á jaröhæö í tvíbýlishúsi. 1 stofa, 2 svefnherb., eldhús
og bað. Sér inngangur.
★ .3ja herb. íb. — Bergstaðastræti
3ja herb. íbúð á 1. hæö. íbúöin er laus.
★ 4ra herb. íb. — Sólvallagata
4ra herb. íbúö á 2. hæð. Nýlegar innréttingar.
★ 5 herb. íb. — Hraunbær
íbúðin er 1 stofa, 4 svefnherb.. eldhús, bað, sér þvottahús, búr.
Fallegar innréttingar.
★ Einbýlishús — Vogahverfi (sænskt timburhús)
1. hæð; 2 stofur, húsbóndaherb., eldhús, bað. Jaröhæö; 3
svefnherb., sjónvarpsskáli, bað og þvottahús.
★ íbúðir óskast
Vegna mikillar sötu undanfariö vantar okkur á söluskrá allar
stærðir íbúða.
Höfum fjársterka kaupendur
að öllum stærðum íbúða.
HÍBÝLI & SKIP
Garðastræti 38 Simi 26277
43466
Dalbrekka — 2 herb.
jaröhæð með sér inngangi.
Laugavegur — 3ja herb.
ofan viö Hlemm. Ný standsett
íbúð. ,
Engíhjalli — 3 herb.
80 fm á 4. hæö. Laus í ágúst.
Digranesvegur — Hæð
4ra herb. neðrl hæð f tvíbýli.
Suöursvalir.
Garðabær — Einbýli
138 fm á einni hæð í Lundun-
um. Tvöfaldur bílskúr. Falleg
lóð. Eign í sérflokki.
Arnarnes — Einbýli
Fokhelt 150 fm hús á einni hæð.
Plast í gluggum. Grófjöfnuð lóð.
Tvöfaldur bílskúr. Til afhend-
ingar strax.
Úti á landi
Sauðárkrókur
3ja herb. íbúð á 2. hæð. Stórar
suður svalir.
E
Fasteignasalan
EIGNABORG sf
H«r~<oo<g ' 7« kowvogur W434áé4«J80i
iðkirn Vithtátmur f msræon Stgrúrt KrðySr Lðgm
Ólafur Thoroddsen