Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 17

Morgunblaðið - 15.07.1981, Síða 17
16 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1981 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 1981 17 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjald 80 kr. á mánuði innanlands. í lausasölu 4 kr. eintakiö. Hvers vegna þessi leynd? Iyfirlýsingu um súrálsmálið, sem Hjörleifur Guttormsson gaf hér í blaðinu 19. desember 1980, sagði orðrétt: . ég tel, að rík upplýsingaskylda hvíli á -stjórnvöldum í máli sem hér er á ferðinni ... og að mínu mati er óeðlilegt, að gerð sé tiiraun til að leyna efnisatriðum og standa að samningum að tjaldabaki um jafn þýðingarmikið mál.“ Því er þetta rifjað upp nú, uð fjölmiðlum hefur verið meinaður aðgangur að þeirri skýrslu, sem breska endurskoðendafyrirtækið Coopers og Lybrand hefur skilað til iðnaðarráðherra um málið og hann lagði fram í ríkisstjórninni 13. júlí síðastliðinn. Enn verða blöð að láta sér nægja að birta óljósar og óstaðfestar fréttir af þessu máli. Hér í blaðinu í gær var sagt frá því, að svonefnd hækkun í hafi sé meira en helmingi minni en iðnaðarráðherra og sérfræðingar hans fullyrtu á sínum tíma. Sé það reiknað í dollurum er það í kringum 22 milljónir dollara. Hins vegar var talan 47,5 milljónir dollara nefnd í fréttatilkynningu iðnaðar- ráðuneytisins frá 16. desember 1980, þegar rætt var um hækkun í hafi frá því í janúar 1974 til júní 1980. Tíminn segir í gær, að Isal hafi á undanförnum fimm árum greitt 16 milljónum dollara of mikið fyrir súrálið. Vísir segist hins vegar í gær hafa það eftir óyggjandi heimildum, að hækkunin hafi numið 22 til 25 milljónum dollara frá 1974. Enn skal spurt, hvers vegna kýs iðnaðarráðherra að láta leynd hvíla yfir þessu máli? Hvaða tilgangi þjónar að láta fjölmiðla vera með getsakir um hina raunverulegu niðurstöðu? Hvers vegna er ekki skilmerkilega skýrt frá því af hálfu iðnaðarráðherra, að Isal greiði 16 milljón dollurum hærra verð fyrir súrál frá Alusuisse en tíðkast í viðskiptum milli óskyldra aðila, ef þetta stendur í skýrslu Coopers og Lybrand? Sérstaklega, ef Coopers og Lybrand segja, að af þessum sökum séu ásakanir iðnaðarráðherra um of hátt verð á súráli réttlætanlegar. Þá væri einnig fróðlegt, að fá skýringar iðnaðarráðherra á því, hvers vegna hann rýmkaði ekki umboð Coopers og Lybrand, ef þeir töldu umboðsskort hindra leitina að hinni réttu niðurstöðu. Telji iðnaðarráðherra sig hafa borðleggjandi kröfur á hendur Alusuisse, er það skylda hans að gera opinberlega grein fyrir þeim. Hann hikaði ekki við að flytja ákæruatriðin í smáatriðum í desember. I forystugrein Morgunblaðsins 18. desember 1980 sagði: „I samningunum, sem gerðir voru á viðreisnarárunum um byggingu álbræðslunnar í Straumsvík, eru ákvæði, sem heimila íslenskum stjórnvöldum eftirlit m.a. með súrálsverð- inu til Isal. Þessi heimild var notuð 1973 og 1974 og var ekkert talið athugavert við súrálsverðið á árinu 1973. Hins vegar var talið, að árið 1974 hafi súrálsverðið verið of hátt. í kjölfar þessara athugana voru gerðir samningar við Svissneska álfélagið um hækkað orkuverð til ísal. Slíkar athuganir hafa ekki verið framkvæmdar frá árinu 1974 þrátt fyrir heimild í samningunum til þess. Við Islendingar eigum að halda Svissneska álfélaginu fast við þá samninga, sem við það voru gerðir á sínum tíma og nýta til fullnustu þær heimildir í samningunum, sem tryggja okkur eftirlit með því að svo verði. Við getum ekki búist við því, að aðrir gæti hagsmuna okkar í þessum efnum en við sjálfir. Þegar í ljós kemur, að heimildin til þess að fylgjast með súrálsverðinu hefur ekki verið notuð í 5—6 ár, vaknar sú spurning, hvernig á því standi. Þeirri spurningu verða þeir tveir iðnaðarráðherrar að svara, sem aðallega hafa gegnt þessu embætti þessi ár, en það eru þeir Gunnar Thoroddsen og Hjörleifur Guttormsson." Þessi orð Morgunblaðsins eru enn í fullu gildi. Meginniður- staða Coopers og Lybrand er sú, að taka beri upp samninga milli ríkisstjórnarinnar, Alusuisse og Isal innan ramma aðalsamningsins frá 1966. Undir þá niðurstöðu tekur Morgun- blaðið, því að með öðrum hætti verður þræta þessi ekki leyst og við Svisslendinga á að ræða bæði um skatta og raforkuverð. En í viðræðum við Alusuisse á ekki að láta hér staðar numið heldur stefna að frekari uppbyggingu í samvinnu við fyrirtækið á þeim grunni, sem myndast hefur við áralangt samstarf. Iðnaðarráðherra getur ekki leynt þjóðina viðhorfum sínum að þessu leyti, en menn minnast þess að vísu, að hann hóf aðförina að álverinu með þeirri yfirlýsingu á Alþingi 4. desember 1980, að „hagkvæmasti virkjunarkosturinn" væri að loka álverinu og útvega 600 starfsmönnum þar „þjóðhagslega heppilegri" störf. Yfir þeirri yfirlýsingu hvílir engin leynd. Fyrr í sumar voru hér á ferðinni kvikmyndagerðarmenn frá „Canadian Film Board“. sem stóð að iferð kvikmyndar um skák i heiminum. Var þá taflmönnunum stillt upp við Kjarvalsstaði og verður ekki annað séð en að þeir hafi farið vel þar. Litla myndin. „Þetta hefur verið skemmtileirt verkefni,“ sagði Jón Gunnar Árnason um Kerð taflmannanna, en hann er hér með drottninKuna i fanKÍnu. Jón Gunnar Árnason, myndhöggvari: Umíjöllim um Torfumál frestað í Borgarráði Framkvæmdum haldið áfram á meðan „ÞVÍ VAR frestað til næsta fundar að fjalla um þennan lið fundargerðar Bygginganefnd- ar og á meðan verður haldið áfram með framkvæmdirnar.“ sagði borgarverkfræðingur, Þórður Þorbjarnarson. er hann var inntur eftir því hverja umfjöllun málefni Bernhöfts- torfunnar hefðu fengið á borg- arráðsfundi i gær. Eins og fram hefur komið í fréttum stóð til að fjallað yrði um framkvæmdir á Torfunni í ljósi breytingatillagna, sem Bygginganefnd hefur gert á borgarráðsfundi i gær. Borgar- verkfræðingur vildi ekkert segja um endanlegan kostnað við verk- ið. „Fyrir lá rammafjárveiting byggð á áætlun um gerð svipaðs mannvirkis og hér ræðir um, að upphæð 30 millj. gkr.,“ sagði hann. „En það er ljóst að sú upphæð hefur tekið nokkrum breytingum, væntanlega í átt til kostnaðarhækkunar." Samkvæmt teikningum af fyrirhugðum mannvirkjum á Bernhöftstorfu reiknaðist borg- arverkfræðingi svo til að um 18% svæðisins, þ.e. um 400 mz fari undir steypu, ef svo heldur áfram sem horfir. „Það gras sem þarna var þoldi ekki þá umferð sem er um þetta svæði og þarna er einfaldlega um nauðsynlega garðhönnun að ræða,“ sagði hann. „En það er kannski rétt, sem karlinn í Þingeyjarsýslunni sagði, að allar breytingar væru til ills, líka þær sem væru til góðs.“ Borgarverkfræðingur sagðist ætla að vinna við Torf- una tæki tvo til þrjá mánuði til viðbótar. Næsti fundur í Borg- arráði er á þriðjudaginn kemur. „Endanlegar vinnutillögur lágu fyrir í janúar 1980u „ÉG HÓF að vinna að útfærslu hugmyndarinnar um útitaflió fyrir tæpum tveimur árum. með það fyrir augum að það yrði staðsett á Lækjartorgi,“ sagði Jón Gunnar Árnason, mynd- hoggvari, blaðamanni Mbl. „í bréfi. sem ég sendi borgaryfir * voldum í janúar 1980 var um endanlegar vinnutillögur að ra-ða. M.a. útlitsteikning af ollum monnum í fullri stærð. sem sýndi líka reiti taflborðsins i fullri stærð. Þannig að borgaryfirvöld- um hefur verið kunnugt um þessar staðreyndir frá upphafi. Þyngd mannanna er frá 8 kg. upp í 17 kg. og er það kóngurinn, sem þyngst vegur. Taflflöturinn sjálfur er 31 fm og hver reitur 70 fersentimetrar, en reitirnir voru minnkaðir um ca. 5 fersentimetra og var það ákveðið í samvinnu við Skáksambandið. Ég kannast hins vegar ekki við það sem Sigurjón Pétursson segir um að orðið hafi að stækka reitina eða aðrar breyt- ingar,“ sagði Jón Gunnar. Mennirnir eru úr afselía-viði, klæddir ryðfríu stáli að utan. Afselía-viður þykir henta mjög vel til nota í hvers kyns útimannvirki. Taflmennirnir voru unnir á tré- smíðaverkstæði Reykjavíkurborg- ar. Taflið sjálft er aöeins 31 fm að flatarmáli, þannig að það tekur aðeins yfir lítinn hluta þess svæð- is á Torfunni, sem stefnt er að að hverfi undir hellulögn. En það munu, að sögn borgarverkfræð- ings, vera um 400 fm. Einar S. Einarsson um hugmyndir SI: Vildum að taflið yrði sett upp á Lækjartorgi IIUGMYND okkar var ætíð sú. að útitaflið yrði staðsett í hjarta borgarinnar og helzt á La'kjartorgi eða í Austurstræti og töldum það ekki að öllu leyti ná tilgangi sínum yrði það sett niður í brekkunni við Bern- höftstorfuna, sagði Einar S. Einarsson. en hann var forseti Skáksambands íslands þegar hugmynd um útitafl var kynnt með bréfi SÍ til borgarráðs í júlí 1979. Einar S. Einarsson sagði borgarráð hafa vísað hugmynd- inni til meðferðar í umhverfis- málaráði og síðar samþykkti borgarráð að Jóni Gunnari Árnasyni sé falið að hefja hönn- un við taflborð og menn. Þá var hugmyndin að staðsetja taflið sunnan undir húsi Útvegsbank- ans við Lækjartorg og Skáksam- bandið ítrekaði þá skoðun sína við borgaryfirvöld. Það er ekki fyrr en síðar að hugmyndin er uppi um Bernhöftstorfuna og mun hún frá borgarskipulagi komin. Ég er sammála því að ein- hverja andlitslyftingu þarf að framkvæma við Bernhöftstorf- una, en mér finnst öll þessi hellulögn kringum útitaflið yfir- gengileg og kemur taflinu hreint ekkert við, sagði Einar S. Einarsson að lokum. 11 4 | Sá hluti mannvirKja vio ijornina. sem lynrhugaö vatnsfletinum verður 30 og 60 cm. VONARSTRÆTI er að reisa á næstunni. Gert er ráð fyrir litlum tjörnum fyrir innan pallana meðfram Vonarstræti, bekkjum og gróðri. Hæð pallanna yfir að reisa mikil mannvirki í Tjörninni Aformað „Þetta er mikið mannvirki, sem þarna er fyrirhugað,“ sagði borg- arverkfræðingur, Þórður Þor- bjarnarson, er hann var inntur eftir því hvaða framkvæmdir stæðu til í Tjörninni. Fyrir u.þ.b. ári voru kynntar hugmyndir um að hefja einhvers konar brúargerð á Tjörninni í Reykjavík. Síðan hefur lítið af málinu spurst en vegfarendur hafa rekið augun í stólpa, sem reistir hafa verið í norðurenda Tjarnar- innar. „Stólparnir voru reknir niður í vetur til að athuga hve langt væri niður á burðarhæfan botn,“ sagði Þórður, „og það er til fjárveiting fyrir þessu á fjárhags- áætlun, að upphæð 45 millj. gkr.“ „Borgarskipulag Reykjavíkur- borgar hefur unnið að þessu verk- efni á vegum Umhverfismálaráðs, sem fór fram á tillögur frá okkur um einhvers konar brúargerð við Tjörnina," sagði Guðrún Jónsdóttir arkitekt, forstöðumaður Borgar- skipulags, er Mbl. sneri sér til hennar. Það eru arkitektarnir Guðmund- ur Kr. Kristinsson og Stan Stanis- las, franskur garðarkitekt, sem starfar hjá Borgarskipulaginu, sem hafa unnið að hönnun þessara mannvirkja. Ýmsar hugmyndir hafa verið uppi um útlit og stærð brúa, eða trépalla, og aðeins er búið að samþykkja þann hluta, sem næstur er Vonarstræti. Verkið hefur ekki enn verið lagt fyrir Bygginganefnd. „Vatnsflöturinn hefur visst að- dráttarafl," sagði Guðrún. „Og með þessu er verið að gera fólki kleift að hafa meiri ánægju af Tjörninni, bæði á sumrum og vetrum, þegar skautasvell er á henni. Hæð pall- anna yfir vatnsborðinu verður 30 og 60 cm og gert er ráð fyrir bekkjum og einhverjum gróðri meðfram götunni. Þá verða tjarnir inn á milli brúnna." Vigdís Finnbogadóttir heilsar Helga Hallvarðssyni. skipherra á Tý. sem flutti hana til Grimseyjar. Forsetinn á Möðru- völlum og Fagraskógi Akureyri. 14. júlí. FORSETI Íslands ásamt föru- neyti kom að Möðruvöllum í Ilörgárdal i bliðskaparveðri klukkan rúmlega níu i morgun. Prestshjónin á staðnum. Þóra Steinunn Gisladóttir og séra Þórhallur Höskuldsson, tóku á móti forseta. Mikill fjöldi fólks úr sveitinni var samankominn við kirkjuna til þess að fagna gestunum. Gengið var í kirkju þar sem séra Þórhallur rakti sögu kirkju pg staðar og afhenti forseta íslenskar þjóðsögur Ólafs Dav- íðssonar að gjöf frá söfnuðinum. Forsetinn ávarpaði viðstadda og þakkaði gjöfina. Eftir það var gengið í kirkjugarð og forseti staidraði meðal annars við hjá leiðum Ólafs Davíðssonar, Dav- íðs Stefánssonar frá Fagraskógi og amtmannanna sem hvíla í kirkjugarðinum, þeirra Stefáns Þórarinssonar, Bjarna Thor- arensen, Gríms Jónssonar og Péturs Havsteen. Frá Möðruvöllum var ekið að Fagraskógi og komið að styttu Davíðs Stefánssonar, en því næst þágu gestirnir veitingar á heimili hreppstjórahjónanna, Auðar Björnsdóttur og Magnús- ar Stefánssonar í Fagraskógi. Sv.P. Vigdísi flutt ljóð og gjafir gefnar á Dalvík Dalvik. 14. júli. í norðangolu og með þoku niður í miðjar fjallshlíðar ferðað- ist forseti íslands. Vigdis Finn- bogadóttir, að morgni þriðjudags um Svarfaðardal undir leiðsögn Iljartar Þórarinssonar bonda að Tjörn og um klukkan 12.30 kom forseti ásamt fylgdarliði til Dal- víkur. í föruneyti forseta var auk Hjartar og frúar sýslumaður Eyjafjarðarsýslu. Elias Elíasson, og frú og Vigdis Bjarnadóttir forsetaritari og eiginmaður henn- ar. Við Árgerði var bæjarstjórn Dalvíkur mætt og tók þar á móti frú Vigdísi, þar sem forseti bæjar- stjórnar bauð hana velkomna. Þaðan var svo ekið sem leið lá til Dalvíkur þar sem snæddur var hádegisverður í boði bæjarstjórn- ar. Um klukkan 14.30 var haldin útisamkoma við Dalbæ, dvalar- heimili aldraðra, til heiðurs for- seta íslands en þar var saman- kominn fjöldi fólks. Samkoman hófst með því að forseti bæjar- stjórnar, Rafn Arnbjörnsson, ávarpaði forseta. Því næst söng karlakór Dalvíkur tvö lög undir stjórn Kára Gestssonar. I tilefni af komu forseta íslands orti Har- aldur Sófaníasson frá Barði ljóð sem Halla Árnadóttir flutti. Að flutningi loknum afhenti höfundur frú Vigdísi ljóðið skrautritað. Þá færði bæjarstjóri, Valdimar Bragason, forseta Islands gjafir frá Dalvíkurbæ, fyrsta bindi Sögu Dalvíkur tölusett og áritað af höfundi, Kristmundi Bjarnasyni, fræðimanni á Sjávarborg. Bæjar- stjóri gat þess jafnframt að for- seta yrði sent annað bindi sögunn- ar sem væntanlegt er innan tíðar. Þá afhenti bæjarstjóri forseta rokk, smíðaðan úr kopar af Jóni Björnssyni hagleiksmanni á Dal- vík. Að því loknu tók forseti íslands til máls. Flutti hún skörulega ræðu og þakkaði að lokum gjafir og góðan viðurgerning. Að lokinni ræðu forseta gaf hún Dalbæ þrjár íslenskar birkiplöntur sem hún jafnframt gróðursetti á staðnum. Að öllu þessu loknu var forseta og fylgdarliði boðið að ganga um húsakynni Dalbæjar þar sem hún þáði kaffiveitingar ásamt per- sónulegum gjöfum frá íbúum heimilisins. Um klukkan 16.15 var haldið sem leið lá áleiðis til Olafsfjarðar en staðnæmst var við Karlsá þar sem minnismerkið um Duggu-Eyvind var skoðað. Þar kvaddi bæjarstjórn forseta ís- lands, frú Vigdísi, en hún ásamt fylgdarliði hélt áfram för sinni í norðurátt fyrir Ólafsfjarðarmúla. Fréttaritarar 300 manns fagna forset- anum og öllum boðið í kaffi Ólafslirúi. 14. )úli. KLUKKAN 16.30 í dag tók Barði Þórhallsson ba'jarfógeti á Ólafs- firði og ba'jarstjórn ólafsfjarðar á móti forseta íslands Vigdísi Finnbogadóttur i svokölluðu Flagi, en þar er vegurinn fyrir Ólafsfjarðarmúla hæstur. Þar kvaddi forsetinn sýslumann Eyja- fjarðarsýslu og bæjarfulltrúana frá Dalvik. en þeir höfðu fylgt forsetanum áleiðis. Veður var heldur drungalegt, norðankaldi og þoka. Ekið var til Ólafsfjarðar og haldið að félags- heimilinu Tjarnarborg. Þar bauð bæjarstjórn Ólafsfjarðar öllum viðstöddum til kaffidrykkju en í félagsheimilinu höfðu safnast saman um 300 manns til að fagna forsetanum. Bæjarfógetinn bauð forsetann velkominn til Ólafs- fjarðar. Forseti bæjarstjórnar, Ármann Þórðarson, flutti ræðu en síðan söng Sigrún Gestsdóttir nokkur lög við undirleik Sigur- sveins Magnússonar. Þá var Vig- dísi færður að gjöf frá bæjar- stjórninni rekaviðarbútur skreytt- an og málaðan andlitsmyndum en bútur þessi er gerður af Ingi- björgu Einarsdóttur listamanni. í kvöld situr forseti kvöldverð- arboð er bæjarstjórn stendur fyrir á Hótel Ólafsfirði. Að því loknu ekur Vigdís og fylgdarlið til Akur- eyrar þar sem gist verður um nóttina. Jakoh Ágústsson fréttarit- ari Mbl. á Ólafsfirði. í DAG fer Vigdís og fylgdarlið fram Eyjafjörð undir leiðsögn séra Bjartmars Kristjánssonar. Staldrað verður við í Freyvangi, Saurbæjarkirkju, Grund og á Kristneshæli. Þá verður komið aftur til Akureyrar og hádegis- verður snæddur að Hótel KEA. Eftir borðhald verður Amtbóka- safnið skoðað, Slippstöðin, Elli- heimilið og Fjórðungssjúkrahúsið. Þá verður samkoma í Lystigarði Akureyrar og svo kvöldverður í boði bæjarstjórnar á Hótel KEA. - O — Þá láðist að geta þess í Morgun- blaðinu í gær að fréttir af heim- sókn Vigdísar Finnbogadóttur for- seta til Raufarhafnar og Húsavík- ur voru skrifaðar af fréttariturum Morgunblaðsins á stöðunum. Sig- urði P. Björnssyni á Húsavík en hann tók einnig myndirnar þaðan og Helga Ólafssyni á Raufarhöfn og tók hann líka myndir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.