Morgunblaðið - 06.09.1981, Blaðsíða 6
54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981
Inntaksmannvirki, stálpípur og stöövarhús. Fallhæðin er um 88 m.
Hver fallpípa er 272 m löng, 4,8 m víð og flytur vatn aö 70 MW
aflvél. Brátt mun hún Tungnaá koma þarna í gegn og út í
frárennslisskuröinn fyrir neöan húsið.
Hrauneyjafossvirkjun er að ljúka. Fram-
kvæmdir á síðasta snúningi. A þessum síðsum-
ardögum keppast 550 manns uppi á hálendinu
við að reka endahnútinn á alla verkþætti, svo að
fyrsta vélin geti byrjað að senda rafmagn inn á
orkukerfið 1. nóvember, Hrauneyjafossvirkjun
er á ýmsan hátt merkilegur áfangi í virkjunar-
sögu á Islandi.
Þetta er fyrsta stórvirkjunin,
sem standast mun fullkomlega
upphaflega tímaáætlun. Sigöldu-
virkjun og Búrfellsvirkjun seink-
aði báðum um 9 mánuði þar sem
tafir urðu á ákveðnum verkþátt-
um. Seinkunarmánuðir hefðu orð-
ið dýrir nú, því rafmagnskerfið er
fullásett, og hefði án Hrauneyja-
fossvirkjunar mátt búast við raf-
magnsskorti á hörðum vetri eða
vatnslitlum. Með henni er því
bjargað um sinn, enda kemur
önnur aflvélin í gagnið í vetur, og
síðan sú þriðja í kjöifarið.
Aflvélarnar þrjár við Hrauneyja-
foss framleiða jafnmikið rafmagn
og sex vélar við Búrfell eða 240
megavött. Það er hinn stóri mark-
aður sem nú gerir fært að taka svo
stóra áfanga, sem er mun drýgra,
að sögn Páls Ólafssonar, staðar-
verkfræðings.
í þriðja lagi var við Hrauneyja-
fossvirkjun farið inn á þá nýju
braut hjá Landsvirkjun, að gera
íslenzkum verktökum fært að ráða
við framkvæmdir með því að
brjóta þær niður í 9 verkhluta,
kaupa stórvirk sérhæfð vinnutæki
og leigja þeim þau, reka steypu-
stöð og leggja alfarið til vinnubúð-
ir, svo hægt væri að hefja verkið
strax og það var fengið, án þess að
þurfa að eyða löngum tíma og
dýrmætum í undirbúning á að-
stöðu. Auk þess sem ráðgjafaþjón-
ustan er nú, eins og í Sigölduvirkj-
un, komin að hálfu í hendur
íslenzkra aðila. Semsagt stór
I áfangi í að færa framkvæmdir við
virkjanir inn í landið.
Útilegu menn hinir nýju
Um leið og Hrauneyjafossvirkj-
un tekur að senda raforku frá
aflvélunum þremur, hverfur um-
fangsmikið mannlíf misfjölmennt
að vísu, sem blómstrað hefur þar
efra síðan 1978, með einu hléi
veturinn 1979, og enginn verður
eftir, því rafstöðinni verður fjar-
stýrt. Á lokasprettinum er þar
nú 550 manna byggðarlag með
íbúðahúsaþyrpingum, sex mötu-
neytum, kvikmyndahúsi, slökkvi-
stöð, sjúkraþjónustu með sjúkra-
bíl og hjúkrunarstöð o.s.frv. Þarna
er samfélag fólks, sem vinnur
margvísleg störf myrkranna á
milli alla virka daga. Hverfur að
vísu að mestu um helgar, því nú
fara menn heim um hverja helgi,
en ekki aðra hverja eins og fyrri
virkjanir. Aðra helgina í stutt frí
frá föstudagskvöldi til mánu-
dagsmorguns, hina frá fimmtu-
dagskvöldi fram á mánudags-
kvöld.
Þarna eru komnir „Útilegu-
menn hinir nýju“ eins og þeir eru
kallaðir. Önnur tegund en þeir
fyrri, sem rændu fé og voru til
óþurftar fyrir byggðamenn, eins
og Páll Ólafsson orðaði það. — En
þessir útilegumenn á fjöllum færa
þeim rafmagn, vegi og ýmiskonar
þægindi. — Oddvitar í sveitunum
eru boðnir hingað í ágæta sam-
komu einu sinni á ári, og kemur þá
oftast í ljós að við þurfum að bæta
fleiri ærgildi en fyrr, segir Páll.
Virkjunarsvæðið hefur þurft að
girða af, frá Tungná í Köldukvísl,
enda þarf Þóristungusvæðið að
Fyrsta stórvirkjunarframkvæmdin
sem stenst fyllstu tímaáætlanir
Staðarverkfræðingurinn Páll Olafsson og aðstoðarstaðarverkfræðingurinn Sigurður Þórðarson fyrir
framan skrifstofu og teiknistofubygginguna við Hrauneyjafoss, en þar er skálaeiningum hlaðið
saman eins og legokubbum.
Útilegumenn hinir
nýju að Ijúka Hraun-
eyjafossvirkjun
Ekki er alveg kvenmannslaust viö Hreuneyjafoss. í einu af sex mötuneytunum elda þær Ragnheiöur
Egilsdóttir, Þórdís Siguröardóttir, Ólafía Eiríksdóttir, Magnhildur Ólafsdóttir, Sigrún Haraldsdóttir og
Stella Björk Georgsdóttir.
í aðrennslisskurðinum er nú keppst við aö sprauta steypulagi á veggi og botn, áöur en vatninu er
hleypt á.