Morgunblaðið - 06.09.1981, Síða 10

Morgunblaðið - 06.09.1981, Síða 10
58 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. SEPTEMBER 1981 VBRiLD FANGELSANIRI Stjórnvöld í Sovét eru steinhætt að sýnast Yfirvöld í Sovétríkjunum hafa nú um margra vikna og mánaða • skeið gengið hart fram í því að handtaka og dæma þá menn, sem gerst hafa svo djarfir að mótmæla stjórnarfarinu í landinu, þá menn, sem á Vesturlöndum eru gjarna kallaðir andófsmenn. Breskir sér- fræðingar, sem fylgst hafa með örlögum þessara manna, segja, að þrír eða fjórir að jafnaði séu handteknir eða dæmdir í viku hverri. Ógjörningur er að afla sér nákvæmra upplýsinga frá yfir- völdum í Rússlandi og andófs- menn, sem enn ganga lausir, geta heldur ekki gefið fullnægjandi svör, en þessir sérfræðingar telja sig þó hafa vissu fyrir því, að um 250 manns hafi verið dæmdir í þunga fangelsisvist það sem af er þessu ári. Á þessu og síðasta ári hafa því 500 manns verið fangels- aðir í þessari umfangsmestu til- raun yfirvalda til að bæla niður starfsemi andófsmanna, en allt frá því á sjöunda áratugnum hafa þeir haft með sér skipuleg samtök og ekki reynt að fara með það í felur. Sérfræðingar á Vesturlöndum héldu í fyrstu, að handtökurnar væru eins konar varúðarráðstaf- anir af hálfu yfirvalda til að koma í veg fyrir uppistand á Ólympíu- leikunum á síðasta sumri, en nú eru þeir komnir á aðra skoðun. Stanslausar handtökur síðustu tólf mánuðina hafa fullvissað þá um, að hér er um að ræða stefnumarkandi framkvæmd, trú- lega samþykkt af stjórnmálaráð- inu 1979, sem felur í sér, að öll andófsstarfsemi skuli upprætt í eitt skipti fyrir öll. Ofsóknir KGB, sovésku leyni- lögreglunnar, hafa lamað starf allra helstu andófshreyfinganna og sú þeirra, sem nú síðast missti alla leiðtoga sína bak við lás og slá, var hópur mjög ötulla og einbeittra manna, sem gert hafa ráðamönnum í Rússlandi lífið leitt með því að koma á framfæri á Vesturlöndum upplýsingum um misbeitingu geðlækninga í heima- landi sínu. í júlí sl. var sá síðasti úr hópnum dæmdur í fjögurra ára þrælabúðavinnu og í fimm ára útlegð innanlands að henni lok- inni. Álíka þunga fangelsisdóma hafa fengið leiðtogar tveggja annarra samtaka, þeirra, sem einn sovésk- ur fræðimaður kallaði „tauga- miðstöðvar andófsins", þ.e. Hels- inki-nefndarinnar, sem var stofn- uð 1975 til að fylgjast með mann- réttindabrotum í Sovétríkjunum, og Kristilegu nefndarinnar til varnar trúfrelsi. Ofsóknirnar á hendur andófs- mönnum hafa einnig gert öðrum hópum mjög erfitt um vik. Leið- togar kvenréttindahreyfingarinn- stofnunar sem fylgist með trúar- lífi í ríkjum kommúnismans, hafa um 100 baptistar verið fangelsaðir af þessum sökum á síðustu tveim- ur árum. Þrátt fyrir þessar ofsóknir koma enn út neðanjarðartímarit í Sovétríkjunum. Þar ber fyrst að nefna „Annál vorra tíma“, sem kemur út á þriggja til fjögurra mánaða fresti og segir frá örlög- um andófsmanna í Sovétríkjun- um. SMOT-hreyfingin, sem berst fyrir frjálsum verkalýðsfélögum, gefur enn út fréttabréf og í síðustu eintökum þess var t.d. sagt frá þremur verkföllum í Úkraínu og mótmælum gegn matarskorti. Ráðamenn í Sovétríkjunum láta sig nú orðið engu skipta mótmæli á Vesturlöndum og sem dæmi um það má nefna, að þegar Helsinki- ráðstefnan var haldin í Madrid fyrr á þessu ári héldu handtök- urnar og réttarhöldin áfram eins Baptistar hafa orðið hvað harðast úti. Hér situr baptistafjölskylda í rústum heimilis síns, sem útsendarar yfirvalda eyðilögðu eftir að uppvist varð um bænasamkomu sem þarna hafði verið efnt til í heimildarleysi. Myndin er úr bókinni „Prisons and concentration camps of the Soviet Union“, sem gefin var út í Bretlandi. ar, baráttumenn fyrir rétti fatl- aðra og þeir, sem vinna að stofnun frjálsra verkalýðsfélaga, hafa allir verið handteknir. Fólk, sem er mótmælendatrúar, hefur sætt ótal kárínum og einkum þó þeir 100.000 baptistar, sem neitað hafa að ganga í hina opinberu baptista- kirkju, sem yfirvöld leyfa tak- markaða starfsemi. Að dómi fræðimanna við Keston College, og ekkert hefði í skorist. Það gerðist þó ekki þegar hún var haldin í Belgrad. Nú þegar engar viðræður við Bandaríkjamenn eru fyrirsjáan- legar virðist sem sovéskum leið- togum finnist sem þeir hafi engu að tapa þó að illa sé talað um KGB og virðingarleysi þeirra fyrir mannréttindum þegnanna. - MARK FRANKLAND ASTARLEIKIR Veiklaðir fari varlega í sakirnar Breskur sjúkdómafræðingur, sem starfar fyrir innanríkis- ráðuneytið þar í landi, hefur kveðið upp þann úrskurð, að ástarleikir seú lífshættulegir fyrir miðaldra menn, sem veilir eru fyrir hjarta, og að þeir eigi það á hættu að kveðja þennan heim fyrirvaralaust undir þeim kringumstæðum. Alan Usher, sérfræðingurinn sem hér um i ræðir, segir, að samförum fylgi nefnilega þvílík áreynsla, andleg og líkamleg, að ekki sé á leggj- andi nema sæmilega hrawst fólk. „Ég hef oft verið kallaður á vettvang vegna fólks, sem dáið hefur skyndilega af einhverjum ástæðum. Ósjaldan er bana- meinið hjartasjúkdómur, sem hvorki hinn látni né aðrir höfðu haft hugmynd um. Ég er ansi hræddur um, að samfarir séu ekki versta aðferðin til að leiða í ljós þennan Akkillesarhæl,“ sagði Usher í samtali við fréttamann nú fyrir skemmstu. Usher hefur birt skýrslu um rannsóknir sínar í tímariti breskra heimilislækna og á þingi sjúkdómafræðinga í London nú nýlega sagði hann kollegum sín- um frá forstjóranum, sem fannst látinn í baksæti bifreiðar sinnar af völdum hjartaslags. „Staða líksins var dæmigerð fyrir tilfelli af þessu tagi og benti eindregið til, að maðurinn hefði látist í miðjum samförum," sagði Usher. Að hans sögn kom einnig í ljós, að maðurinn, sem Áreynsla — andleg og likamleg að sjálfsögðu var ekki nafn- greindur, hafði verið að gamna sér með einkaritara sínum þegar dauðann bar að höndum. Usher segir, að oft sé tilkynnt, að þessi eða hinn maðurinn hafi kvatt þennan heim í svefni á heimili sínu og að við rannsókn hafi komið í ljós að banameinið hafi verið hjartaslag. „Það fer ekki á milli mála, að áreynslan, sem fylgir samförum, er oft ástæðan fyrir þessum skyndilegu dauðs- föllum, þó að makinn veigri sér yfirleitt við að skýra frá því,“ segir Usher, sem telur að aðeins í einu af hverjum tíu tilfellum sé ekki reynt að fela hina raun- verulegu ástæðu. Kvenfólk á miklu minna á hættu af völdum kynlífsins en karlmenn og segir Usher, að það sé fyrst og fremst vegna þess, að kynlífið sé miklu áreynsluminna fyrir konurnar en karlana og auk þess séu hjartasjúkdómar algengari í karlmönnum. Usher segir, að kynlífið sé bara einn þáttur af mörgum, sem geti reynst hjartasjúkling- um hættulegir, og t.d. sé það ekkert hættulegra en að taka á rás eftir strætisvagninum eða að rjúka upp á nef sér í stundar- bræði. Hann tekur það líka skýrt fram, að hann hafi ekkert á móti kynlífsæfingum hvers konar því að „fyrir hraust fólk er það hin ágætasta líkamsæfing“. - ANDREW WARSHAW Svona á að skjóta fólk, sjáðu til Tímarit fyrir málaliða, þá, sem eiga þá hugsjón æðsta að bjarga eigin skinni hvað sem öðru fólki líður, ævintýramenn hvers konar og draumóramenn, renna nú út eins og heitar lummur vestur í Bandaríkjunum, að sögn útgef- enda þeirra, og stöðugt líta fleiri tímarit af þessu tagi dagsins ljós. „Ævintýramaðurinn" heitir eitt þessara rita, „tímarit fyrir þá, sem hafa ævintýramennsku að atvinnu", og segja útgefendurnir, að upplagið hafi aukist um 50.000 eintök á síðustu tólf mánuðum og seljist það nú í 200.000 eintökum á mánuði. Gung-Ho, tímarit, sem kennir byssumönnúm hvernig þeir eigi að bera sig að í skotbar- daga, og Örninn komu fyrst út í janúar sl. en eru nú þegar komin í 100.000 eintök á mánuði og í haust er enn von á fjórum nýjum tímaritum, „Málaliðanum", „Bú- inn til bardaga", „Strandhöggið" og „Að bera hærri hlut“. „Hér er um alveg nýtt fyrir- brigði að ræða, annars eðlis en þessi venjulegu tímrit fyrir skot- menn,“ segir Daniel David, fram- kvæmdastjóri útgáfufyrirtækis í New York, sem sérhæfir sig í bókum um hermennsku og vopna- burð. „Venjuleg byssutímarit hafa verið fyrir skotmenn og byssu- safnara, en þessi kenna mönnum að skjóta fólk.“ í sumum þessara tímarita er talað um manndráp eins og þau væru til merkis um ást á föður- landinu, önnur líta á þau sem hverja aðra atvinnugrein og enn önnur telja þau nauðsynlega skyldu til að verja fjölskyldu og eignir á viðsjárverðum tímum. Ritstjóri eins tímaritsins segir, að hér sé ekki um annað að ræða en að fólk fái með lestri tímaritanna saklausa útrás fyrir innibyrgða óánægju, en gagnrýnendurnir eru þar á öðru máli. Þeir segja, að þau séu stórhættuleg því að í þeim sé ofbeldið lofsungið og talið sjálf- sagður hlutur. „Þessi tímarit eru táknræn fyrir tímana sem við lifum á,“ segir Edward Konick, fram- kvæmdastjóri útgáfunnar, sem gefur út Gung-Ho. „Fleira og fleira fólk hugsar nú ekki aðeins um það að verja hendur sínar, heldur að verða fyrri til að skjóta þann, sem ætlar að skjóta það.“ Robert L. Brown, ritstjóri „Ævintýramannsins", segir, að vinsældir tímaritsins megi að nokkru rekja til hægrisveiflunnar í Bandaríkjunum og til ákveðnari pólitískrar afstöðu í skrifunum sjálfum. Tímaritið birtir auglýs- ingar þar sem falast er eftir raunverulegum málaliðum, sem ritstjórinn telur að séu þó ekki nema nokkur hundruð manns af öllum lesendahópnum. „Hér kem- ur það, tækifæri lífs þíns — að skjóta á ívan (Rússan) sjálfan," segir í nýlegri grein í „Ævintýra- ormA 1 = m wwwri / wwi „Útrás fyrir innibyrgða óánægju.“ manninum". „Það, sem þú þarft að vita ef þú ætlar til Afganist- an.“ Tom Mcmullen, útgefandi eins þessara tímarita, sem hefur sama boðskap að færa lesendum sínum, þ.e. að verða fyrri til að skjóta náungann, segir að fyrsta eintak- ið hafi komið út í janúar sl. en nú sé upplagið orðið 100.000 á mán- uði. „Við erum vissir um, að ef ný kreppa skylli yfir stæði fólk ekki í biðröðum eftir súpudiskinum sín- um eins og í þeirri fyrri — það yrðu óeirðir og upplausn og hver og einn reyndi að bjarga sjálfum sér,“ sagði Macmullen. Jim Shults, ritstjóri Gung-Hos, segir með stolti að ritið sitt sé fyrir „harðsvíraða atvinnumenn" og í nýlegu hefti „Ævintýramannsins" er heilsíðuauglýsing þar sem segir að fyrir 100 dollara geti fólk orðið sér úti um „Handbók hermanns- ins“, sem kennir m.a. að „berjast, verjast og drepa, koma fyrir sprengjum og koma öllu í bál og brand". „Þessi tímarit hvetja raunveru-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.