Morgunblaðið - 08.11.1981, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
55
„Óeðlilega miklum tfma ráðuneytisins
er sóað í þessa kjökrandi Júðan,
SÆLUDAGAR
Hin hliðin
á Hawaii
Straumur japanskra ferða-
manna til Hawaii-eyja hefur farið
sívaxandi á undanförnum árum,
og þykir víst, að þeir séu þar á
höttum eftir ýmsu í viðbót við sól
og sjó, að minnsta kosti leggja
ýmsir verzlunareigendur í Hono-
lulu fyrir þá snörur af mörgum
gerðum, eins og sjá má á auglýs-
ingaspjöldum þeirra, sem ýmist
eru á ensku eða japönsku.
Verzlanirnar hafa eitthvað
við allra hæfi. Þær eru í
hrönnum á fögrum breiðstræt-
um Honolulu, aðeins nokkurra
mínútna gang frá Waikiki-
ströndinni og auglýsa vörur
sínar með ýmsum hætti. A
enskum auglýsingaskiltum
stendur gjarnan: — Myndbönd
fyrir fullorðna. Hins vegar eru
þau japönsku öllu berorðari og
gætu jafnvel boðið upp á —
Launhelgustu staðir á ljóskum.
Og margir japanskir karlar
bíta á agnið. Þeir eru nefnilega
ekki vanir slíkum tilboðum
Launhelgustu staðir á Ijóskum
heima hjá sér. í Japan eru
nektarblöð, nektarkvikmyndir
og myndbönd stranglega bönn-
uð, enda liggur þar blátt baún
við að sýna nakinn mannslík-
ama. Og það forboðna er jafn-
an spennandi. Fyrir þremur ár-
um komu 460.000 japanskir
ferðamenn til Hawaii, en síð-
asta ár var fjöldi þeirra kom-
inn upp í 568.000. Þar með eru
Hawaii-eyjar orðnar næstvin-
sælasti ferðamannastaður Jap-
ana. Taiwan er í fyrsta sæti.
Þessi vaxandi fjöldi ferða-
manna til Hawaii þykir mikl-
um tíðindum sæta, þarsem
ódýrasta ferðin þangað frá
Japan kostar rúmlega 3.500
krónur, þ.e. helmingi meira en
samsvarandi ferðir til Taiwan
og Suður-Kóreu.
Ferðaskrifstofur þær, sem
skipuleggja ferðir til Hawaii
auglýsa ekki „kynlífsferðir",
þ.e. ferð þar sem allt er í einum
pakka, gisting, gleðikonur,
o.þ.h. en slík tilboð lokka
marga japanska karlmenn til
annarra Asíulanda. Það eru
hins vegar eigendur porno-
verzlana í Honolulu sem sjá til
þess að japönsku ferðamönn-
unum sé sýnd hin ýtrasta
gestrisni.
Porno-kaupmennirnir láta
ekki hér við sitja heldur leið-
beina þeir Japönunum við að
smygla heim til sín kvikmynd-
um og myndböndum, sem þeir
hafa keypt en mega ekki fara
með til Japans. Þeim er ráðlagt
að kaupa konfektöskju, tæma
hana og setja myndböndin, þar
sem neðsta lagið var. Síðan eru
efri lögin látin aftur ofan í
öskjuna, og henni lokað. Þegar
hún hefur verið látin í umbúðir
og lítillega verið ýtt ofan á
hana, grunar engan neitt og
allra sízt nánasarlega tollþjóna
í Japan.
„Við sýnum hvernig unnt er
að fara með minjagripi heim,“
segir á auglýsingaspjaldi einn-
ar porno-verzlunarinnar í
Honolulu. Þessi verzlun selur
jafnframt sælgæti og þar kost-
ar „sérhannaður" konfektkass-
inn helmingi meira en annars
staðar. Myndbandið kostar um
það bil þúsund krónur.
Hingað til hafa þessar að-
ferðir reynzt algerlega pott-
þéttar. Tollyfirvöld í Japan ha-
fa ekki skýrt frá því að sælgæt-
iskassar með klámmyndaspól-
um hafi verið gerðir upptækir.
Hins vegar tekst tollþjónum
iðulega að hafa upp á ólögleg-
um tímaritum og spólum, sem
ferðamenn hafa falið í fatnaði
sínum ofan í ferðatöskum.
— DONALD KIRK.
HELFÖRIN
Kerfið tók ekki
mark á neyðar-
ópum Gyðinga
„Það er ekki andskotalaust hvað
nýi nýlendumálaráðherrann okkar
er meira en fús til að taka harma-
grátinn í gyöingasamtökunum
bókstaflega."
J.S. Bennett heitir hann, sem
þetta sagði, háttsettur embættis-
maður í nýlendumálaráðuneytinu
breska, þeirri deild, sem hafði með
innflytjendur af gyðingaættum aö
gera, og tilefnið var það, aö í des-
ember 1942 hafði Winston Churchill
loksins getað talið Bandamenn á aö
sameinast um að fordæma þá
„kaldrifjuðu og viöbjóðslegu útrým-
ingarherferð“, sem nasistar fóru
með á hendur gyöingum.
Þegar Bennett, embættismaðurinn
umræddi, las skýrslur vitna, sem
sögöu frá því, sem fram fór i útrým-
ingarbúöunum, skrifaði hann þetta
hjá sér: „Allt er þetta gamalkunnugt
Gyðingar hafa ekki gert annað en aö
spilla fyrir sér með því að vera aö
klifa á þessu árum saman.“
Á þeim tíma þegar Bennett var að
hripa niður þessar athugasemdir sín-
ar, hafði nærri fimm milljónum gyð-
inga og álíka mörgum Pólverjum,
Sígaunum, rússneskum stríösföng-
um og kynvillingum verið slátrað
með vísindalegri nákvæmni í útrým-
ingarbúðum nasista. Þegar hér var
komið, voru nasistar aö veröa uppi-
skroppa með fólk í gasklefana og
líkbrennsluofnana og eina ástæöan
fyrir því aö þeir voru starfræktir
áfram, allt til ársloka 1944, var sú, að
fundist hafði ný eldsneytislind fyrir
morðmaskínurnar, gyðingarnir í Ung-
verjalandi.
„Óeðlilega miklum tíma ráðuneyt-
isins er sóað í þessa kjökrandi júöa,“
var athugasemd, sem höfð var eftir
A.R. Dew, háttsettum starfsmanni
breska utanríkisráöuneytisins, á
stríðsárunum.
Roosevelt Bandaríkjaforseti hafði
fallist á tillögu þess efnis, aö Banda-
menn reyndu að bjarga gyöingum
meö því aö gjalda nasistum fé fyrir
þá, en breska utanríkisráöuneytinu
tókst að koma þeirri áætlun fyrir
kattarnef. Churchill hryllti hins vegar
við manndrápunum og reyndi hvað
hann gat til að gera eitthvaö í málinu.
Þegar lagt var til, aö sprengjuflugvél-
ar Bandamanna eyöilegöu járnbraut-
arlínur, sem lægju að útrýmingar-
búðunum, skrifaði Churchill strax til
Anthony Edens, utanríkisráðherra
síns: „Fáðu þá aðstoö hjá flughern-
um, sem þú getur, og kallaöu á mig
et með þarf.“
Embættismenn breska utanríkis-
ráöuneytisins og flughersins voru hér
á öndverðum meiði við Churchill og
með góðri aðstoö John J. McCloys,
aðstoðarhermálaráöherra Bandaríkj-
anna, tókst þeim aö telja Churchill
hughvarf. Flugvélar Bandamanna
gerðu reyndar árásir á verksmiðjur,
Nasistar voru að verða uppi-
skroppa með fólk í gasklefana
þegar þeir fundu nýja „eldsneyt-
islind“.
sem framleiddu gervibensín, skammt
frá Auschwitz og vörpuðu stundum
af misgáningi sprengjum á útrým-
ingarbúðirnar, en þrátt fyrir það hélt
flugherinn því fram, að árásir á að-
dráttarleiöir búöanna myndu valda
„tilgangslausum flugvélamissi og
dauöa breskra flugmanna".
„Þessi ummæli eru vissulega öm-
urleg. Kannski aöallega vegna þess,
aö maöur er ekki vanur oröbragöi
embættismannanna og þvi tilfinn-
ingaleysi, sem einkennir röksemda-
færslu þeirra,“ segir Martin Gilbert,
höfundur nýútkominnar bókar,
„Auschwitz og afskipti Banda-
manna“, þar sem mjög ítarleg úttekt
er gerð á þessum málum. „Fólk áttar
sig ekki á þvi hvers konar bylting
varð með 30 ára reglunni, sem Har-
old Wilson stóð fyrir. Áður urðu
sagnfræöingar aö bíöa í 50 ár eftir
opinberum gögnum, sem þýddi
oftast þaö, að samtímasagan var
meira eða minna málum blandin,
byggð á ritskoðuöum heimildum."
Martin Gilbert er best þekktur sem
hinn opinberi ævisöguritari Winston
Churchills og ritstjóri 12 binda verks
með skjölum Churchills. Gilbert er af
rússneskum gyöingaættum. Afar
hans og ömmur ólust upp á keisara-
tímanum, en flúðu seinna öll til Eng-
lands. Ef þau hefðu ekki gert þaö,
hefðu þau vafalaust hlotiö sömu ör-
lög og aðrir trúbræður þeirra.
Gilbert byrjaði aö skrifa bókina
„Auschwitz og afskipti Bandamanna"
þegar hann rakst á minnisseðil, sem
Churchill hafði stílað til Edens áriö
1944, með þessum orðum: „Fáðu þá
aöstoö hjá flughernum, sem þú get-
ur.“ Þessi bók er enginn skemmti-
lestur í venjulegum skilningi. Þegar
staðið er upp frá lestri hennar eru
menn uppfullir af hneykslan og rétt-
látri reiöi. _ MARTIN WALKER
ÓFREMDARÁSTAND
Trjánum fórnað
fyrir tóbakið
Víða í Afríku eru nú heilu skógarnir
höggnir í spaú ng brenndir til ösku í
hlöðum. Með þessu móti er tóbak
þurrkað, þannig að það henti til sígar
ettuframh'iðslu. I’etta gríðarlega skóg-
arhögg fvrir sígarettuframleiðslu þykir
skjóta skökku við á tímum orkukreppu.
Skógum fækkar, viður verður fyrir
bragðið torfengnari og dýrari og enn-
fremur veldur þetta háttalag uppblæstri
lands.
Árlega eru höggnir niður um 2000
hektarar af skógi í Kenya fyrir til-
stilli tóbaksframleiðenda. Þar hefur
tögl og hagldir risafyrirtækið British
American Tobacco Company.
Mikið skógarhögg í Kenya leiðir af
sér háskalegt ástand í umhverfism'ál-
um. Umhverfisverndarmenn í land-
inu segja að raunar þjóni skógar-
höggið einkum þeim tilgangi að afla
fólki eldsneytis til matargerðar. En
háttalag tóbaksiðnaðarins bæti hér
gráu ofan á svart, og ekki megi við
svo búið standa. Telja náttúruvernd-
arsamtök í Kenya, að með áfram-
haldandi skógarhöggi verði allur
skógur í landinu uppurinn um næstu
aldamót.
Að undanförnu haf'a átt sér stað
miklar deilur í Kenya vegna skógar-
brennslu til tóbaksþurrkunar. Er
ýmsum heitt í hamsi vegna þess
hversu gífurlega mikið timbur þarf
að brenna til að þurrka tiltölulega
lítið af tóbaki. >að þarf að fella heila
ekru skógar, u.þ.b. 300 tré, til þess að
þurrka eina ekru af tóbaki. Stórt
skógartré er fellt til þess eins að
hægt sé að þurrka tóbak er nægir í
300 sígarettur.
Helztu tóbaksræktunarsvæðin í
Kenya eru skammt suður af mesta
eyðimerkurbelti Afríku. Eru menn
því eðlilega uggandi um að frekari
eyðing skóga valdi því að eyðimörkin
teygi úr sér í suðurátt.
Það eru ekki einungis Kenyabúar,
sem óttast afdrif skóga sinna. I Tanz-
aníu og Malawi hefur skógarhögg í
þágu tóbaksiðnaðarins valdið um-
hverfisspjöllum og áhyggjum. Til-
raunir hafa verið gerðar til að beizla
sólarorkuna til að þurrka tóbak og
hagnýta þar með hina sterku Afríku-
sól til þess arna. Hins vegar hafa þær
lítinn árangur borið. Talsmaður
fyrirtækisins British American To-
bacco skýrði frá því í viðtali, að fyrir-
tækið hefði gert slíkar tilraunir en
án árangurs. Kvað hann hér vera um
að ræða tæknileg vandamál, sem
ekki hefði enn tekizt að leysa.
— JOHN MADELEY
dCdDIR
BROTTFARARDAGAR:
30. JANÚAR (HEIMKOMA 14. FEBRÚAR)
16 DAGAR
13. FEBRÚAR (HEIMKOMA 28. FEBRÚAR) 16
DAGAR.
VERÐ FRÁ 6.390 KR
INNIFALAÐ:
FLUG KEFLAVÍK - LUXEMBURG - AGADIR -
LUXEMBURG - REYKJAVÍK
FLUTNINGUR TILOG FRÁ FLUGVELLI
ERLENDIS, GISTING í AGADIR OG EINNAR
NÆTUR GISTING í LUXEMBURG
HELGARFERÐIR - VIKUFERÐIR
NOTFÆRIÐ YKKUR LÁGU TILBOÐIN Á
VIKUFERÐUNUM TIL AD SKOÐA
VÖRUSÝNINGAR ILONDON OG
BIRMINGHAM SJÁ LISTA HÉR AÐ NEÐAN
YFIR VÖRUSÝNINGAR.
VIKUFERÐ - 7 NÆTUR
VERÐFRÁ 3.450 KR.
HELGARFERÐ - 3 NÆTUR
VERÐ FRÁ 3.232 KR
DES. VERÐ FRÁ: 6.900 KR
HELGARFERÐIR - VIKUFERÐIR
2JA VIKNAFERÐIR
BROTTFARIR ALLA FÖSTUDAGA
VERÐ FRÁ 4.390 KR.
INNIFALIÐ:
FLUG KEFLAVlK - LUXEMBURG - RÓM -
LUXEMBURG - KEFLAVÍK,
GISTING MEÐ MORGUNVERÐI
ST. PETERSBURG - TREASURE ISLAND
3JA VIKNA FERÐIR FRÁ 7.700 KR
MIAMI - 3JA VIKNA FERÐIR.
BROTTFARIR 14/11 OG 18/11
JÓLAFERÐ 19. DES. VERÐ FRÁ 9.713 KR.
HELGARFERÐIR - FLUG OG BÍLL.
VERÐ 2.750 KR.
VIKUFERÐIR - FLUG OG BÍLL
VERÐ 2.960 KR.
HELGARFERÐIR - FLUG OG GISTING
VERÐ 2.466 KR.
SKÍÐA
FERÐIR
AUSTURRÍKI - 2VIKUR
FLOGIÐ BEINTTIL MUNCHEN.
BROTTFARIR: 19/12, 81-3/1 '82 - 17/1 -
31/1,14/2-28/2
FERÐIR FYRIR SKÍÐAFÓLK OG EINNIG ÞÁ
SEM VILJA HVÍLAST OG FARA I
GÖNGUFERÐIR í HEILNÆMU
FJALLALOFTINU
FIE 17—20/11 Olympla, London.
Alþjóöleg matvælasýning.
GIFTS FAIR
29/11—3/12 Mount Royal Hotel,
London. Gjafavörusýning.
INTERBUILD
29/11—5/12 Birmingham.
Alþjóöleg byggingarvörusýning.
SICAP 7—11/12 Paris.
Alþjóöleg snyrtivörusýning.
ROYAL SMITHFIELD SHOW
6— 11/12 Earls Court. London.
Landbunaöarsýning.
[jfjjjFEROA
IEJIIMIDSTOÐIIM
AÐALSTRÆTI9 S 28133