Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981 65 Jón Óskar gangstéttir í rigningu imm salinn gustmikiil eins og honum lægi lífið á. Hann sveiflaðist einhvernveginn svo kynlega til eins og hann héldi ilia jafnvægi af æsingi og ákefð. Hann var gífurlega málhress og sagði „Heyrðu" á þann hátt sem hann væri alltaf að uppgötva eitthvað stórkostlegt. Og raunar var hann að upp- götva eitthvað. Hann hafði tekið við því hlutverki sem Hannes Sigfússon hafði rækt af svo mikilli elju á sínum tíma, að uppgötva ný skáld. Hann var sífellt að viða að sér efni í Lífog list sem var gefið út með nokkrum æsiblaðastil á stundum og flutti yfirleitt ekkert varðandi bókmenntir og listir sem kom okkur atómskáldunum á óvart nema það sem birtist eftir nýja höf- unda. Og reyndar kom það lítið á óvart, nema helst Ásta Sigurðardóttir. Atóm- kveðskapurinn var þá nýjasta fyrirbærið í íslenskum bókmenntum og um hann stóð slagurinn, en ritið Líf og list sinnti honum varla nema í spotti og hálfkæringi, þótt stundum þætti ritstjóranum gott að birta eftir okkur kumpána eitt og eitt ljóð, svona eins og til að sýna hvernig við vær- um. Helsta tromp Steingríms Sigurðssonar í Lífi og list var ung stúlka að nafni Ásta Sigurðardóttir. Hún var jafnan í dimmu kaffistofunni við Laugaveginn. Þar kynnt- ist ég henni og við urðum góðir kunningj- ar. Hún vakti mikla athygli með sögum sínum í Lífi og list. Þær voru grófar, en ófalskar. Hún vakti líka athygli með lífi sínu sem var eins óheflað og sögur hennar. Og hún vakti athygli með því að vera öðru- vísi ásýndum en annað fólk. Sérkennilegur fríðleiki var yfir andliti hennar, en annars ekki gott að átta sig á svipmótinu, sem var að hluta tilbúið með óvenjulega mikilli förðun. Augnabrúnir voru málaðar kol- svartar og framlengdar út og upp, varirn- ar sterkrauðar, andlitið mjög hvítt af púðri, en hárið hrafnsvart. Með slíkt yfir- bragð varð hún mjög óíslensk eða ónorræn álitum, en einkennilegast þó, að það var sem rödd hennar kæmi einhversstaðar neðan að, undarlega dimm rödd sem var í fullu samræmi við svartar augnabrúnir og svart hár, svört augnahár og dökk augu, ef ekki svört. í þessu var svo mikið samræmi að manni kom ekki til hugar að einungis dimma röddin og dökku augun væru ósvik- in, en hitt málning. Ég var búinn að þekkja Ástu lengi, þegar ég frétti að nátt- úrlegur háralitur hennar væri rauður, og það var engin Gróa á Leiti sem sagði mér, en svo ósennilegt þótti mér þetta að ég hef ekki þann dag í dag getað séð Ástu í því nýja ljósi ... Þá voru menn, sem verið höfðu við nám í útlöndum frá stríðslokum, farnir að koma heim til landsins. Einn þeirra var Geir, þ.e.a.s. Geir Kristjánsson. Annar var Thor Vilhjálmsson. Hár hans hafði vaxið og jafnvel komið á hann töluvert skegg. En var hann í rauninni alkominn til landsins sjálfur, eða var þetta aðeins svipur hans á reiki í dimmunni að Laugavegi 11, hár hans og skegg og fjarlægðarfull augu eins og þau horfðu frá útlöndum? Nú ætlaði hann að fara að gefa út bók, fyrstu bók höfundar. Hún átti að heita Madurinn er alltaf einn. Frá því var sagt í Lífi og list með miklu viðtali og teikningu af skáldinu eftir vin skáldsins, en kunningi höfundar- ins var bróðir Steingrrhs, ritstjóra Lífs og listar, það vildi svo vel til. Þá var og birtur skáldskapur eftir Thor ásamt rómantískri ljósmynd af honum sem líkt og sagði: Svona eiga skáld að vera. En hver var Geir? Hann var einnig rit- höfundur upprennandi og einnig sérkenni- legur. Ég kynntist honum fljótlega, og þá var mér sögð þessi saga af honum. Hann var að koma til útlanda í fyrsta sinn. JÖN OSKAR Skólabræður hans höfðu safnast saman á Kastrupflugvelli til að taka á móti honum. En þegar Geir kom út úr flugvélinni og sá hópinn, gekk hann í áttina að hópnum, tók upp sígarettu á leiðinni, hélt henni milli fingra sér upp að vörunum og sagði: Eigiði eld, strákar? . Geir var mjög hæglátur í fasi, dimm- raddaður, hafði lagt stund á rússnesku, sem var nýlunda í þá daga, áður en Islend- ingar með siðferðisvottorð frá hinum eina sanna flokki fóru að geta veitt sér þann munað að láta Rússa mennta börn sín. Geir hafði aldrei komið til Rússlands. Hann hafði lært rússneskuna í Svíþjóð. Hann var hár og grannur og gekk svo hægt að menn hlutu að veita honum athygli á götum Reykjavíkur meðan miðbærinn kringum Austurstræti var ennþá mann- legur, þegar enn hafði ekki tekist að gera hann að bílarúnti fáviskunnar og ekki enn tekin upp sú stefna að steypa alla i sama mótið, eða hafi hún verið upp tekin, þá að minnsta kosti ekki komin lengra í fram- kvæmd en að smala sérkennilegasta fólk- inu af götum Reykjavíkur og loka það inni á hæium þar sem líf þess fjaraði út. Geir hafði á sér það orð að hann væri gáfaður, og eftir að ég hafði kynnst honum, þótti mér ekki ástæða til að rengja það. — Kynslóð Kalda stríðsins 1975 — Kringum 1955 og síðar á þeim áratug komu fram nokkur ný skáld í Reykjavík. Fögnuður manna, sem illa eða ekki þoldu nýjungar „atómskáldanna", varð svo mik- ill við tilkomu Hannesar Péturssonar að einn lýsti því á prenti, svo sem lesa má í Öldinni okkar, nýjustu útgáfu, hvernig hann gat með naumindum aftrað sjálfum sér frá að hlaupa niður á Lækjartorg, stíga þar upp á kassa og hrópa þennan hrífandi boðskap tii lýðsins: „Fögnum, bræður og systur. Stórskáld er upp risið meðal vor.“ Ástæðan fyrir þessum gífurlega fögnuði var sú, að menn vantaði einhvern ungan mann sem væri nógu þjóðlegur og trúr ljóðstafasetningu fyrri alda, og mætti þó segja að hann tilheyrði nútímanum, færi til dæmis einstaka sinnum út fyrir ströng- ustu reglur forfeðranna. Þarna kom einn sem fullnægði þessum skilyrðum: Hann orti vel, hann var kornungur. Það fór ekkert á milli mála, að unga skáldinu, Hannesi Péturssyni, var ætlað að vera fyrirmynd um það hvernig yrkja skyldi og vörn gegn áhrifum okkar „atóm- skáldanna“. Áberandi verður þó við nánari athugun þáttur menntamannanna, sam- staða þeirra gegn þeim sem ekki höfðu prófblað í vasanum, vottorð um stúd- entspróf að minnsta kosti. Þessar niður- stöður eru ekki fengnar við skyndiathug- un, heldur hafa árin smám saman fært mér heim sanninn um ýmisleg fyrirbæri sem áður voru mér hulin eða ég hugði til- heyra liðnum öldum. Síðan hefur bilið orð- ið enn skarpara milli prófblaðafólks og hins „ólærða", að ég ekki segi „óæðra“ samkvæmt hugarfari prófblaðaeigenda ... Og þegar mesta herferðin var gerð gegn atómskáldunum 1952, þá voru það mennta- menn sem stóðu fyrir henni. Það segir sína sögu, að á fyrri fundinum sem haldinn var gegn okkur, fengu engir að vera nema þeir ættu sitt prófblað, þ.e. hefðu stúdentspróf, og þurftu fundarmenn því ekki að óttast að „atómskáldin" reyndu að bera af sér höggin. Þau höfðu engin prófskírteini, nema Sigfús Daðason, sem var við nám erlendis. Jóhannesi úr Kötlum var að vísu boðið að halda framsöguræðu á þessum lokaða fundi, þó hann hefði kennarapróf, en ekki stúdentspróf, en hvað var það ann- að en sýndarmennska? Hann mun ekki hafa áttað sig á hvað til stóð. Að sjálf- sögðu komust þeir ekki upp með þessar aðfarir sínar og neyddust til að halda ann- an fund, þar sem almenningur fékk aðgang (einnig ólærð „atómskáld"), en það er at- hyglisvert að á þeim fundi héldu uppi árásum þrír menntamenn, en enginn stúd- entslærður maður tók upp hanskann fyrir ungu skáldin. Leiðinlegast var að sjá í fjandaflokknum Reykjavíkurskáldið Tóm- as Guðmundsson sem við allir dáðum. Ég minnist þess, að einu sinni á stríðsár- unum birtist langt kvæði eftir Tómas í tímaritinu Helgafelli. Heftinu var stillt út í glugga í Austurstræti og haft opið þar sem kvæði Tómasar var prentað. Þetta var um helgi. Hannes Sigfússon kom til mín og sgaði, að nú væri nýju hefti af Helgafelli útstillt niðri í Austurstræti með nýju kvæði eftir Tómas. Við létum okkur ekki nægja að fara að glugganum og lesa kvæð- ið, heldur hafði ég stílabók með mér niður í Austurstræti og skrifaði allt kvæðið í hana þar við gluggann ... Kristinn E. Andrésson yfirbauð Ragnar í Smára til að fá að gefa út Kvœðabók Hannesar Péturssonar, og var Ragnar þó talinn gera betur við höfunda en allir aðrir útgefendur. Hversvegna var Kristni svo mikið í mun að ná í þennan höfund? Hann var þó enginn byltingarsinni, jafnvel fremur talinn íhaldssamur. Var það kannski af því að hann hafði sitt prófblað? Svo mikið er víst, að við róttæku en óskólagengnu alþýðusynirnir fengum ekki útgefið hjá Máli og menningu eða Heims- kringlu nema þá að nafninu til. Jafnvel smásagnasafn mitt, sem Kristinn sagði þó í mín eyru að væri gott safn, komst ekki að hjá honum nema í gustukaskyni. Og ekki hélt Kristinn höfundinum, Hannesi Pét- urssyni, því næsta bók hans kom út hjá öðru forlagi. — Borg drauma minna 1977 — Þegar atburðirnir í Ungverjalandi voru á döfinni og meðan enn var ekki búið að setja Janos Kadar á valdastól, átti ég einu sinni sem oftar leið til Ólafs Jóhanns Sig- urðssonar, fornvinar míns, sem bjó við Suðurgötu, en þangað þótti mér jafnan gott að koma og þiggja góðgerðir hjá Önnu og rabba við Olaf eða þau bæði ... Hann hafði ekki fyrr lokið upp hurðinni og séð hver kominn var en hann sagði, eftir að hafa kastað á mig kveðju: Þú kemur eins og kallaður. Ekki vissi ég gerla hverju þetta sætti, en meðan ég var að fara úr yfirhöfninni, sagði hann, að hann væri búinn að stefna til sín nokkrum mönnum í því skyni að ræða síðustu atburði í heimsmálunum, hann ætti von á þeim á hverri stundu. Nú væri gott að hafa mig líka. Það voru að vísu ekki nema tveir menn sem komu, en þeir voru líka einhverjir helstu forustu- menn sósíalista á íslandi um þær mundir, Brynjólfur Bjarnason og Magnús Kjart- ansson. Ef Einar Olgeirsson og Sigfús Sig- urhjartarson hefðu verið þarna líka, hefði í stofunni hjá Ólafi verið saman kominn helsti baráttukjarni íslenskra sósíalista á opinberum vettvangi (fyrir utan Kristin E. Andrésson sem reri á mið menningarinn- ar). Hverja Ólafur kallaði á fyrir utan þessa tvo, sem komu, veit ég ekki. Hann var þá 38 ára gamall, en ég þremur árum yngri. Skyldi nú á dögum vera til rithöf- undur sem geti á þennan hátt kallað til sín forustumenn í stjórnmálum og reynt að koma fyrir þá vitinu? Vel má það vera, þó ég hafi ekki haft spurnir af því. Ég skal taka það fram undireins, að tilraun Ólafs var gagnslaus. Það hefur aldrei verið hátt- ur stjórnmálamanna að meta rithöfunda nema í hlutfalli við fylgispekt þeirra. Við fundum það báðir mjög fljótt, að við töluð- um fyrir daufum eyrum. Flest af þeim orðum, sem þarna voru sögð, héfur tíminn máð út, en þó hefur mér orðið það sérlega minnisstætt að sá mað- ur, sem þá var álitinn helsti leiðtogi sósíal- ista á Islandi og meginhugsuður, Brynjólf- ur Bjarnason, réttlætti atburðina í Ung- verjalandi og um leið það sem hafði gerst í Rússlandi með því að vitna í frönsku bylt- inguna (menn kannast ef til vill við fras- ana: Imyndið ykkur ekki að bylting gangi þegjandi og hljóðalaust fyrir sig, að hægt sé að búa til eggjaköku án þess að brjóta egg). Þá þótti mér langt gengið og gat ekki orða bundist. Það var svo fáránlegt að bera saman ógnarástand frönsku bylt- ingarinnar, sem hafði staðið í fjögur ár, frá 1789 til 1793, og þá atburði sem nú voru að gerast þrjátíu árum eftir byltinguna í Rússlandi. En þegar ég benti Brynjólfi á, að hann væri þarna að bera saman hluti sem væru ekki sambærilegir, lét hann það sem vind um eyru þjóta. Hann vildi greini- lega ekki hlusta á nein gagnrök: hann einn vissi. Eitt var öllu mikilvægara í viðhorfi okkar Ólafs, atriði sem við vorum báðir hjartanlega sammála um: að gagnrýna al- ræði öreiganna. Ég heyri enn þungann í rödd Ólafs, þegar hann sagði: Það verður að endurskoða kenninguna um alræði öreiganna. Þeir, sem þekktu fræðikenninguna, hlutu að sjá, að þarna var um meginatriði að ræða sem nauðsynlegt var að hafa á hreinu, enda gerðu kommúnistaflokkarnir úti í Evrópu sér grein fyrir því síðar meir (samanber Evrópu-kommúnisminn með Berlinguer hinn ítalska í broddi fylk- ingar). En það er skemmst frá því að segja, að viðhorf okkar Ólafs til þessa máls 1956 fékk engan hljómgrunn hjá stjórnmálamönnunum. Ólafur hafði hugs- að sér, að þeir Brynjólfur og Einar, sem þá voru helstu forustumenn sósíalista á Is- H€RN7ÍMS7lR7l SK7ÍLD landi, gæfu út sameiginlega yfirlýsingu vegna Ungverjalandsmálanna, en þegar hann orðaði það, vísaði Brynjólfur slíkri uppástungu algerlega á bug og taldi hana hlægilega. Slík var dómgreind hans um atburði þá sem voru að gerast og höfðu áhrif um heim allan. Eftir þetta hafði ég engan hug á því að kjósa Brynjólf Bjarnason á þing eða styðja sósíalistaflokkinn á Islandi. Og þó sneri ég ekki baki við sósíalistum þá þegar, því nú var Alþýðubandalagið stofnað með nýjar kosningar framundan. Enn var það maður frá Alþýðuflokknum sem kom með sitt lið til samstarfs við kommúnista, eins og Héð- inn forðum. Nú var það Hannibal Valdi- marsson, og hafði marga fylgismenn að baki sér. Auðvitað var hér aðeins verið að skipta um nafn á sósíalistaflokknum sem nú var í hættu vegna Ungverjalandsmál- anna, en með Hannibal voru efstu sæti listans stokkuð upp, svo aðgengilegra væri fyrir vafagemlinga að kjósa flokkinn sem nú hét Alþýðubandalag. Það var ekki hægt að fá forustumenn flokksins til að endur- skoða neitt eða breyta afstöðu sinni í ljósi reynslunnar, en þeir gátu staðið að ein- hverri sambræðslu við aðra á þeim for- sendum að hægt væri að sameinast um ákveðin málefni sem þeir vissu að til dæm- is rithöfundar eins og Ólafur Jóhann, ég og fleiri gátu fylgt þeim í og vildu að næðu fram að ganga, eins og herstöðvamálið, en þeir höfðu ekki skipt um skoðun gagnvart neinu, ekki heldur gagnvart kenningunni um alræði öreiganna. Ég hafði haldið, eftir lestur margra bóka, að sú kenning væri vel hugsuð, en eftir 20. flokksþing kommún- istaflokksins í Moskvu og eftir atburðina í Ungverjalandi var mér orðið ljóst, að svo var ekki. Kenningin um alræði öreiganna var falskenning. — Týndir snillingar 1979 —

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.