Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981 Þessi eini nektardans, sem þú hef- Innan 10 daga veikist þú af rau<V ur látið mig fá, er hallærisrulla, um hundum ... skal ég segja þér! HÖGNI HREKKVÍSI /SJDM/AS æ/64 //ÓD///I r’ ///?/? /V£DA/? '/ 6>d 'rc///A/S. ■ ■ Dans á rósum: Þórhallur Sigurðsson, Saga Jónsdóttir og Helgi Skúlason í hlutverkum sínum. Vanti mannlegan skilning eru góðar bókmenntir lokaður fjársjóður H. Kr. skrifar: „Það var verið að tala um leik- ritið Dans á rósum í útvarpinu. Bókmenntafræðingur rakti efni þess og sagði sitt álit. Hér verður ekki rætt um það í heild, en eitt einstakt atriði tekið út úr. Bók- menntafræðingurinn var að tala um vandamál persónanna í leikn- um, vandamál Harðar væri ekki drykkjuskapurinn, þar sem hann bryti ekkert og berði ekki fólk sitt þó að hann væri drukkinn. Vanda- mál hans var magasárið. Sem sagt: ölvunin sjálf er ekk- ert vandamál. Brjóti menn engin verðmæti, misþyrmi ekki fólki sínu og séu ekki með blæðandi magasár þegar af þeim rennur, þá er allt í lagi og ekki um neitt vandamál að ræða. Þá höfum við það. Hins vegar rifjar dóttirin það upp að þegar hún var barn hlakk- aði hún oft til þess sem í vændum var hjá fjölskyldunni og urðu það mikil vonbrigði þegar það gat ekki orðið vegna þess að fjölskyldufað- irinn var ofurölvi þegar til átti að taka. Þessi vonbrigði urðu svo mikil og sár að þau ollu varanlegu meini í barnssálinni. En það þýðir ekkert að segja bókmenntafræð- ingnum þetta. Þar er komið að lokuðum dyrum. Manneskjunni er ekki gefið að skilja þetta. Og þar við situr. Lífið er nú samt þannig, að oft er ætlast til þess af okkur að við séum algáð og ábyrg og það getur haft slæm og varanleg áhrif ef það bregst, jafnvel þó að ekkert sé brotið og enginn barinn. Það er hægt að særa fólk án þess að á því sjái hið ytra. Fram kom í þessu umtali undr- un og vanþóknun á því að hús- freyjan „var í tíma og ótima að strjúka lín“. Konan vann fullan vinnudag utan heimilis og varð því að vinna heimilisverkin eftir vinnutíma. Og þó að bókmennta- fræðingur finni ekki að drykkju- skapur sé neitt vandamál gat hann leitt til þess að skipta þyrfti um sængurföt fyrr en ella. Þar fyrir utan mun margur kannast við það af eigin reynd, að þegar að herðir hugstríð sem erfitt er um að ræða getur verið léttir og fró að hafa eitthvað handa milli og sinna verki. Auðvitað dugar engin bókmenntafræði til að skilja þetta, þegar mannlegan skilning brestur — skilning á fólki. Góðar bókmenntir snerta fólk, — eru um menn og vegna manna, — án skilnings á manneskjum eru þær lokaður fjársjóður. Vanti mannlegan skilning í bókmenntafræðinginn er honum ekki við bjargandi meðan svo er.“ Fullkomlega boðleg útflutningsvara Böðvar skrifar: „Velvakandi. Góðfúslega birtið eftirfarandi bréfkorn í dálki yðar: Kvikmyndagerð á íslandi hefir að mínu mati átt frekar erfitt uppdráttar þar til nú hin allra síð- ustu ár að fjörkippur hefur færzt í greinina. Að sjálfsögðu eru verkin jafn misjöfn og þau eru mörg en nú virðist loks sem íslendingar séu að ná tökum á kvikmyndagerð, og á ég þar við kvikmyndina Út- laginn, sem frumsýnd var fyrir nokkrum dögum. Útlaginn er tvímælalaust bezta og vandaðasta verk okkar á kvikmyndasviðinu hingað til og fullkomlega boðleg útflutnings- vara, það roðnar enginn kvik- myndahúsgestur við tilhugsunina um að bjóða útlendingum upp á slíka landkynningu, eins og því miður vill oft verða. Þótt Útlaginn fjalli um utangarðsfólk í þjóðlífi sögualdar, þá vona ég í lengstu lög að handbrögð við gerð hennar megi haldast innanstokks í kvik- myndagerð tuttugustu aldar. Framleiðendur hennar eiga heiður skilið fyrir að sanna mátt ís- lenzkra kvikmyndagerðamanna, þeir eru að lyfta greininni á æðra plan. Með þökk fyrir birtinguna." Úr Útlaganum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.