Morgunblaðið - 08.11.1981, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. NÓVEMBER 1981
77
_
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
Um blóðgjöf
Erling B. Snorrason prestur og
Snorri Olalsson læknir skrifa.
„Undanfarið hafa fjölmiðlar
fjallað mikið um blóðgjöf í æð og
afstöðu kristinna manna til
hennar. Þessi afstaða þeirra
hlýtur að byggjast á Biblíunni og
þess vegna viljum við líta nánar
á hvað hún hefur um þetta mál
að segja.
í 3. Mósebók 3,17 stendur:
„Skal það vera ævinlegt lögmál
hjá yður frá kyni til kyns í öllum
bústöðum yðar: Þér skuluð eng-
an mör og ekkert blóð eta.“
Ennfremur lesum við í 3. Mós.
7,26.27: „Eigi skuluð þér heldur
nokkurs blóðs neyta í neinum af
bústöðum yðar, hvorki úr fugl-
um né fénaði. Hver sá, er nokk-
urs blóðs neytir, hann skal upp-
rættur verða úr þjóð sinni." Það
fer því ekki á milli mála að Biblí-
an bannar neyslu blóðs og mörs.
Þetta bann var ekki einskorðað
við gyðinga heldur kemur greini-
lega fram í Nýja testamentinu
að það skyldi einnig gilda um
kristna menn. Á postulafundin-
um í Jerúsalem var meðal ann-
ars gefin út svohljóðandi yfirlýs-
ing: „Það er ályktun heilags
anda og vor að leggja ekki frek-
ari byrðar á yður en þetta, sem
nauðsynlegt er, að þér haldið yð-
ur frá kjöti fórnuðu skurðgoðum,
blóði, kjöti af köfnuðum dýrum
og saurlifnaði. Ef þér varist
þetta, gjörið þér vel. Verið sæl-
ir.“ Post. 15,28.29.
Hvers vegna skyldi Guð hafa
bannað neyslu blóðs? Okkur er
ekki kunnugt um sannanir á því
að neysla blóðs sé óholl né held-
ur að gildi þess að halda sér frá
blóðneyslu sé afsannað. Þó er
vitað að í blóðinu eru ótal mörg
efni, m.a. örvandi efni, hormón
og ýmis úrgangsefni líkamans.
Það er athyglisvert að í sama
Þessir hringdu . . .
-o' J((cM
Hver velur
danslögin
á laugar-
dagskvöldum?
Nátthrafn hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Mig langar til
þess að beina fyrirspurn til tón-
listardeildar Ríkisútvarpsins:
Hver velur danslögin sem útvarp-
að er á laugardagskvöldum? Allt
virðist þar sniðið fyrir smekk ungs
fólks, en önnur sjónarmið látin
lönd og leið. Þó er það vitað, að
það er ekki unga fólkið sem situr
heima þessi kvöld, heldur full-
orðna fólkið. Og það bíður eftir
lögum við sitt hæfi, t.d. harmo-
nikkulögum. Stundum koma þau
og stundum ekki. Er ekki einhver
öfugsnúningur í þessu?
Fyrirspurn
til Vega-
gerðarinnar
Ragnhildur Kristjánsdóttir, Eski-
firði, hringdi og hafði eftirfarandi
að segja: — Ég er hérna með fyrir-
versinu (3. Mós. 3,17) og blóð-
neysla er bönnuð er einnig bann-
að að borða mör. Mör er gott
dæmi um mettaða fitu sem flest-
ir vísindamenn telja að stuðli að
kransæðastíflu og öðrum æða-
kölkunarsjúkdómum. Raunar er
orðið mör þýtt með orðinu fita í
helstu erlendum biblíuþýðing-
um. Það er því vel hugsanlegt að
það eigi eftir að koma í ljós að
blóð ekki síður en fita sé óhollt
heilsu okkar. Skapari okkar hef-
ur séð okkur fyrir nægum öðrum
fæðutegundum en blóði og
neysla þess er því engan veginn
nauðsyn góðri heilsu við venju-
legar kringumstæður.
En hvað þá með blóðgjöf? Líta
má á blóðgjöf í æð sem ákveðið
form lyfja en öll lyf má yfirleitt
bæði nota og misnota. Mjög oft
má bæta heilsu manna og jafn-
vel bjarga lífi þeirra með því að
gefa þeim blóð í æð. Neysla blóðs
sem fæðu er allt annars eðlis en
læknisfræðileg notkun blóðgjaf-
ar. Við teljum það skýlausa
skyldu kristinna manna að gæta
heilsu sinnar og lífs og halda lík-
amanum í eins góðu formi og
kostur er. í 3. bréfi Jóhannesar,
2. versi, óskar kærleikspostulinn
vini sínum Gajusi þess að „þér
vegni vel í öllum hlutum og að
þú sért heill heilsu, eins og sálu
þinni vegnar vel“.
Páll postuli hvetur okkur til
að vegsama Guð með líkama
okkar: „Vitið þér ekki, að líkami
yðar er musteri heilags anda,
sem í yður er og þér hafið frá
Guði? Og ekki eruð þér yðar eig-
in. Þér eruð verði keyptir. Veg-
samið því Guð með líkama yðar.“
1. Kor. 6,19.20.
Góð heilsa er ekkert takmark í
sjálfu sér en hún auðveldar
okkur að uppfylla tilgang lífsins.
Góð líkamleg og andleg heilsa
gerir okkur hæfari til að inna af
hendi störf í þjóðfélaginu, taka
réttar ákvarðanir, greina rétt
frá röngu, þekkja Skaparann og
vilja hans og reynast honum
betri og nýtari þjónar á allan
hátt. Ef við getum bjargað lífinu
og þjónað Guði og samborgurum
okkar í mörg ár í viðbót með því
að fá blóðgjöf í æð, teljum við
það rétt og álítum að menn ættu
að þiggja hana með þakklæti.
Þegar Kristur átti í deilu við
faríseana um hvort leyfilegt
væri að lækna á hvíldardegi
sagði hann: „Mundi sá vera
nokkur á meðal yðar, er á eina
sauðkind, að hann taki ekki í
hana og dragi hana upp úr, hafi
hún á hvíldardegi fallið í gryfju?
Hve miklu er nú maðurinn meira
verður en sauðkind." (Matt.
12,11.12). „Ég spyr yður, hvort er
leyfilegt á hvíldardegi að gjöra
gott eða gjöra illt, að bjarga lífi
eða fyrirfara því? Og hann
renndi augum yfir þá alla og
sagði við manninn: Réttu fram
hönd þína. Hann gjörði svo og
hönd hans varð aftur heil.“ (Lúk.
6,9.10.)
Það er enginn vafi á því hver
kenning Biblíunnar er, kenning
Krists: Hann myndi bjarga lífi.
Blóðgjöf til að bjarga lífi og
heilsu getur með engu móti fallið
undir leiðbeiningar Biblíunnar
um fæðuval. í Biblíunni er að
finna fjölmargar leiðbeiningar
um varðveislu heilsunnar. Fólk
hefur sjálfsagt átt erfitt með að
skilja þær þegar þær voru gefn-
ar en nú á dögum hafa vísindin
sýnt fram á gagnsemi þeirra í
langflestum tilvikum. Nokkur
atriði eru enn þá ósönnuð en við
trúum því að vísindin muni
sanna að einnig þau stuðli að
bættri heilsu."
spurn til Vegagerðar ríkisins.
Fyrirspurnin er í nokkrum liðum
og ég vonast fastlega til þess að
forráðamenn þessa ríkisfyrirtækis
sjái sér fært að svara mér: 1. Hver
er áætlaður kostnaður við gerð
undirganga við Rauðavatn? En við
lagningu varanlegs slitlags á
Bláfjallaveg? 2. Hvað hefði kostað
að setja upp umferðarljós við
Rauðavatn? 3. Eru peningarnir
sem fara til þessara framkvæmda
teknir úr sama sjóði og greiðir
kostnað við lagningu varanlegs
slitlags, sem sauðsvartur almúg-
inn (þ.e. þeir sem hvorki stunda
hesta- né skíðasport) notar af illri
nauðsyn?
03^ SIGGA V/öGA fi ‘f/LVEftAU
Foreningen Dannebrog
afholder sit árlige Andespil (Bingo) i Sigtún i aften 8.
nov. Huset ábner kl. 20.00.
Bestyrelsen.
riýjung: Hraðréttir í
hádeginu
mánudaga til föstudaga.
H RADR ÉTTASEÐILL
n/ESTU VIKU:
Tómatsúpa með þeyttum rjóma Súpa fylgir með öllum réttum
Hakkað hreindýrabuff með steiktum lauk kr. 65,00
Kjómasoðinn kjúklingur með sinnepssósu kr. 79,00
Ofnsteikt rauðsprettuflök á trébretti með hvítlaukssmjöri kr. 75,00
Blandaðir fiskréttir á teini með hrísgrjónum og karrýsósu kr. 75;«)0
Gratíneraður skötuselur kr. 79,00
Léttreykt grálúðuflök með piparrótarsósu kr. 68,00
ChePs special: Svartfuglsbringa með humarsósu kr. 85,00
Þjónustugjald og söluskattur innifalið
ARMARHÓLL
Hverfisgötu 8—10, sími 18833.
LJÓSMYNDAÞJÓNUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178. REYKJAVlK SIMI85811
,ima m
'bláóh
'&Á
5A 'hfYt