Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
5
SíÖast kosið í Dags-
brún fyrir 10 árum
Kosningar hafa ekki farið fram t.
stjórnar í Verkamannafélaginu
Dagsbrún í Keykjavík síðan árið
1972. Þar sem Eðvarð Sigurðsson
hefur ákveðið að gefa ekki kost á
sér til endurkjörs má hins vegar allt
eins gera ráð fyrir slíkum kosning-
um á næstunni. Eðvarð var kosinn
formaður í Dagsbrún árið 1961 og
hefur því verið formaður félagsins í
20 ár. f samtali við Morgunbiaðið á
sunnudag sagði Eðvarð, að hann
teldi þá Guðmund J. Guðmundsson
og Halldór Björnsson líklegustu
formannsefnin.
Síðustu árin hefur ekki verið
tekizt á um forystuna í Dagsbrún
af eins miklum krafti og hér á
árum áður. í kringum 1940 voru
oft hatrömm átök í félaginu og
stjórnarskipti voru tíð í Dags-
brún. Málfundafélagið Óðinn var
stofnað 29. marz 1938, en það var
fyrsta félag sjálfstæðisverka-
manna. í ársbyrjun 1939 buðu
Óðinsmenn fram lista í stjórnar-
kosningu í Verkamannafélaginu
Dagsbrún og hlaut hann 427 at-
kvæði, listi Alþýðuflokksins hlaut
409 atkvæði, en listi Sósíalista-
flokksins, undir forystu Héðins
Valdimarssonar, hlaut flest at-
kvæði, 660, og náði kosningu.
Árið 1940 buðu Óðinsmenn og
Alþýðuflokkurinn fram lista í
Dagsbrún gegn Sósíalistaflokkn-
um og unnu kosninguna, hlutu 717
atkvæði gegn 659 atkvæðum sósí-
alista. Árið 1941 buðu Óðinsmenn
fram með stuðningsmönnum Héð-
ins Valdimarssonar, sem þá hafði
sagt sig úr sósíalistaflokknum, og
unnu enn. Héðinn varð formaður
- Atök oft
á tíðum
fyrr á árum
Dagsbrúnar. Óðins- og Héðins-
menn hlutu 843 atkvæði, Sósíal-
istaflokkurinn hlaut 488 atkvæði,
Alþýðuflokkurinn 392 atkvæði.
Árið 1942 buðu Óðinsmenn aftur
fram með Héðinsmönnum gegn
lista Sósíalistaflokksins og Al-
þýðuflokksins sameinuðum, en
töpuðu kosningunni.
Lýðræðissinnar reyndu hvað
eftir annað að ná Dagsbrún und-
an yfirráðum Sósíalistaflokksins,
en án árangurs. Árið 1946 fékk
stjórnin 1307 atkvæði, en lýðræð-
issinnar, sem voru þá og næstu
árin einkum alþýðuflokksmenn,
364 atkvæði. Árið 1947 voru hlut-
föllin 1104 á móti 374 atkvæðum
og árið 1948 1174 gegn 512. Árið
1949 buðu lýðræðissinnar fram
saman gegn stjórninni, en hún
fékk 1317 atkvæði og þeir 602. Ár-
ið 1950 buðu sjálfstæðisverka-
menn einir fram gegn stjórninni,
en hún fékk 1300 atkvæði og þeir
425. Árið 1951 buðu lýðræðissinn-
ar fram saman gegn stjórninni,
en hún fékk 1254 atkvæði og þeir
540. Árið 1952 buðu sjálfstæðis-
verkamenn fram lista gegn
stjórninni og alþýðuflokksmenn
annan, en stjórnin fékk 1258 at-
kvæði, sjálfstæðisverkamenn 392
og Alþýðuflokkslistinn 335. Árið
1953 buðu lýðræðissinnar fram
saman gegn stjórninni, en hún
fékk 1192 atkvæði og þeir 606 at-
kvæði. Árið 1954 buðu þeir enn
fram sameinaðir gegn henni en
fengu 692 atkvæði gegn 1331 at-
kvæði.
Næstu ár var sjálfkjörið í
Dagsbrún en árið 1958 var aftur
boðið fram gegn stjórninni, sem
fékk (með aðstoð framsóknar-
manna) 1291 atkvæði en lýðræðis-
sinnar, Sjálfstæðis- og Alþýðu-
flokksmenn, fengu 834 atkvæði.
Árið 1959 fékk stjórnin 1268, en
lýðræðissinnar fengu 793 atkvæði.
Arið 1960 fékk stjórnin 1369 at-
kvæði , en lýðræðissinnar 627.
Enn fóru fram kosningar í
Dagsbrún árlega fram til ársins
1965, en listi stjórnar sigraði
ævinlega í þessum kosningum.
Árið 1972 var enn kosið um stjórn
félagsins, en listi stjórnar, undir
forystu Eðvarðs Sigurðssonar,
sigraði örugglega. Árið 1978 var
gerð tilraun til mótframboðs í
Dagsbrún, en listi stjórnarand-
stæðinga í félaginu fékk ekki
nægjanlegan fjölda meðmælenda
þannig að listi stjórnar var
sjálfkjörin.
I’áll P. Pálsson
stjórnar
Sinfóníuhljómsveitinni
á „Vínarkvöldi“.
„Vmarkvöld44 hjá
Sinfóníuhljómsveit
íslands á morgun
ÁTTUNDU áskriftartónleikar Sin-
fóníuhljómsveitar íslands verða í
Háskólabíói á morgun, fimmtudag,
og hefjast kl. 20:30. Tónleikamir
bera nafnið Vínarkvöld og verður
eingöngu sungin og leikin létt óperu-
tónlist frá Vín, m.a. eftir Strauss,
Lehar o.fl.
Stjórnandi er Páll P. Pálsson,
sem fæddur er Austurríkismaður,
en hefur sem kunnugt er starfað
hérlendis að tónlistarmálum
ýmiss konar í fjölda ára. Hefur
Páll margoft áður stjórnað
Sinfóníuhljómsveitinni.
Einsöngvari er Sigrid Martikke,
sem fædd er í Þýskalandi. Hún var
fyrst ráðin að „Komische Oper“ í
Berlín og síðar starfaði hún m.a. í
5 ár við óperuhúsið í Graz. Frá
1975 hefur hún verið ein af aðal-
söngkonum Volksoper í Vín, en
hún hefur einnig sungið víða sem
gestur. Þá hefur hún farið tón-
leikaferðir til Randaríkjanna,
Hollands, Englands, ísrael og
Norðurlanda og sungið inn á
hljómplötur.
Barnalög og ný lög
um meðferð einkamála
ÝMIS lög gengu í gildi nú um áramót
og önnur féllu úr gildi og fékk Mbl. i
gær upplýsingar hjá ráðuneytum hverj-
ar væru þar helstar breytingar.
Ein af viðamestu lögin e-u barna-
lög, sem samþykkt voru á Alþ'ngi sl.
vor, en gengu í gildi nú um áramót.
Þá tóku gildi lög um meðferð einka-
mála, sem fela í sér að stuðia að
hraðari gangi dómsmála og einnig
gengu í gildi ný ákvæði laga um
horfna menn, en þar var talið að
vantaði ákvæði um ýmis atriði er
tengjast mannshvörfum. Úr gildi
féllu lög um verðlagsaðhald, en þau
voru samþykkt í maí sl. og tóku við
af bráðabirgðalögunum um efna-
hagsráðstafanir, sem sett voru um
síðustu áramót.
Þá fengust þær upplýsingar í fjár-
málaráðuneytinu, að lítið væri þar
annað á ferðinni en hefðbundin lög
og reglur, svo sem fjárlögin. Lög um
tímabundið vörugjald voru sam-
þykkt á Alþingi skömmu fyrir jól og
breytingar voru gerðar á reglugerð-
um í tollskrárlögum, má þó nefna
sem dæmi.
*
Lögreglan í Amessýslu:
Lýsir eftir ökumanni eftir
ofsaakstur um Hveragerði
llveragerði, 5. janúar.
UM KLUKKAN 18 í gærkvöldi, mánudaginn 4. janúar, var fólksbifreið ekið
með feiknarhraða eftir l»elamörkinni hér í Hveragerði, með þeim afleiðing-
um að bíllinn lenti á Ijósastaur og braut hann í tvennt. Þá ók hann á
girðinguna utan við garðyrkjustöð Dvalarheimilisins Áss, og klippti þar
sundur þrjá þriggja tommu járnstaura.
Kastaðist bíllinn því næst yfir
götuna, og braut þar brunahana.
Ekki linnti bílstjórinn ferðinni, en
fór sína leið, og hefur ekki gefið
sig fram ennþá.
Talið er að hér sé um bláa bif-
reið að ræða, trúlega af amerískri
gerð, og eftir verksummerkjum að
dæma hlýtur hún að vera mikið
skemmd. Lögreglan í Árnessýslu
leitar hennar nú, og heitir á alla,
sem gætu gefið upplýsingar, um
umrædda bifreið, að tilkynna það
hið bráðasta til lögregíunnar á
Selfossi.
Þelamörkin er mjög fjölfarin
gata, einkum af börnum og ungl-
ingum, þar sem hún er ein aðal-
leiðin til skólans, og liggur þvert í
gegnum allt þorpið. Þá eru þarna
oft á ferli gamalmenni og konur
með barnavagna, svo ekki þarf að
orðlengja hversu alvarlegar af-
leiðingar slíkur akstur getur haft í
för með sér.
— Sigrún
o
INNLENT
Norsk-ísl. fiskveiðinefndin:
Rætt um loðnuna við Jan
Mayen á fundi í Reykjavík
NORSK-ÍSLENZKA riskveiði-
ncfndin mun halda fund í Reykja-
vík í lok þessa mánaðar eða í byrj-
un febrúar. Að sögn Jóns Arnalds,
ráðuneytisstjóra, þá eiga hann og
Gundesen, ráðuneytisstjóri norska
sjávarútvegsráðuneytisins, sæti í
nefndinni, en á fundinum munu
þeir hafa nokkra ráðgjafa með sér.
Jón sagði, að á fundinum yrði
rætt um loðnuna við Jan Mayen
og Norðmenn myndu eflaust
skýra afstöðu sína til fiskveiða
Efnahagsbandalagslanda á
svæðinu við Jan Mayen.
Thor Listau, sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, sagði í ára-
mótaviðtali við NTB-fréttastof-
una, að viðræður Norðmanna og
íslendinga myndu fyrst og
fremst snúast um hvernig loðnu-
kvótanum við Jan Mayen yrði
skipt á milli þjóðanna, og deilur
Noregs og Danmerkur um mið-
línu milli Jan Mayen og Græn-
lands kæmu þessum viðræðum
ekkert við. í viðtalinu segir List-
au ennfremur, að væntanlega
verði teknar upp viðræður við
Efnahagsbandalag Evrópu bráð-
lega um fiskveiðistefnu þess á
miðum í nánd við Jan Mayen.
Það er ekki margt
betra fyrir börnin'
en dansinn
Barnaflokkar fyrir 4ra—12 ára.
Innritun daglega til föstudags-
kvölds frá kl. 1—7.
Simar 39551, 24959, 20345,
74444, 38126.
Kennsla hefst frá og með
mánudeginum 11. janúar.
Kennslustaðir:
Reykjavík
Brautarholt 4
Tónabær
Drafnarfell 4
Ársel
Kópavogur
Hamraborg 1,
Garðabær
Flataskóli
Hafnarfjöröur
Góötemplarahúsiö
Innritun í Keflavík fimmtu-
dag frá kl. 4—7 í Tjarnar-
Sértímar
í Rock’n Roll
I DHnSShðtl
p fyfyfy