Morgunblaðið - 06.01.1982, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 06.01.1982, Qupperneq 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982 Sjórinn á íslandsmiðum með eindæmum kaldur MORGUNBLAÐINU hefur borizt eftirfarandi fréttatilkynning frá Mafrannsóknastofnuninni: „Ástand sjávar var að venju kannað í hafinu umhverfis Is- land í nóvember og desember sl. í leiðöngrum á rannsóknaskip- unum Bjarna Sæmundssyni og Árna Friðrikssyni. Helstu niðurstöður voru þess- ar: í heita sjónum fyrir Suður- og Vesturlandi var hiti í meðallagi eða 5—7°, og út af Vestfjörðum var hann um 4—5°. Fyrir Norð- urlandi gætti hlýsjávar ekki að neinu marki frekar en fyrr á þessu kalda ári, 1981, og var hitastig á landgrunninu þar um 3—4°, en 2—3° fyrir Austfjörð- um, hiti sem er með lægsta móti á þessum árstíma. í strandsjón- um næst landi hafði vetrarríkið í vetur víða kælt sjóinn mun meir eða allt að frostmarki sjáv- ar. Djúpt út af Norðaustur- og Austurlandi, þ.e. í Austur- íslandsstraumi, var hitastig Tuttugu þúsund hafa séð Jón Odd og Jón Bjarna YFIR tuttugu þúsund manns hafa nu séð kvikmyndina um Jón Odd og Jón Bjarna, sem Þráinn Bertelsson hefur gert eftir sögum Guðrúnar Helga- dóttur. Helgi Gestsson fram- kvæmdastjóri kvikmyndafé- lagsins sem framleiðir mynd- ina, Norðan 8 hf., sagði í sam- tali við Mbl. í gær að aðstand- endur myndarinnar væru mjög ánægðir með aðsóknina þá átta daga sem myndin hefði verið sýnt til þessa. Kvikmyndin er nú sýnd í Háskólabíói í Reykjavík, Borgarbíói á Akur- eyri og í Félagsbíói í Kefiavík. einnig lægra í vetur en á undan- förnum árum (u.þ.b. 0°) og áhrifa straumsins gætti langt austur í haf. Skilin milli kaldsjávarins og hlýsjávarins úti fyrir Suðausturlandi voru einnig óvenju sunnarlega, en við Suðurströndina frá Lónsbugt þrengdi hlýsjórinn sér allt upp að landi (hitastig tæplega 6°). Kann þetta ástand að hafa haft einhver áhrif á síldargöngur í vetur. Þessar niðurstöður sjórann- sókna í nóvember og desember í vetur eru mjög í samræmi við ástand sjávar á ísiandsmiðum allt árið 1981. Ástand sjávar á norður- og austurmiðum var 1981 reyndar mjög óvenjulegt, hvorki gætti hlýsjávar né heldur pólsjávar í miklum mæli, heldur var um að ræða mjög óvistlegan svalsjó. Svalsjórinn er lítt til þess fallinn að stuðla að lag- skiptingu og hamlar hann því bæði lífinu í sjónum og reyndar einnig nýísmyndun á land- grunnshafinu norðan og austan- lands. Kuldinn í vetur kælir samt strandsjóinn næst landi niður fyrir frostmark og eins veitir kaldur svalsjórinn litla vörn gegn rekís norðan úr hafi. Af þessu má álykta, að nýísmynd- un á fjörðum inni og við fjörur verði ærin við áframhaldandi loftkulda; að rekís gæti orðið til ama á miðunum fyrir Vestfjörð- um og vestanverðu Norðurlandi í vetur ef svo horfir með vindátt; og þá einnig að vetrarríki hald- ist næstu mánuði áfram til sjós og lands. Þetta ber ekki að skoða sem „spá“ heldur túlkun á gögn- um og horfum samkvæmt því. Um framvindu í vor í þessum efnum verður svo ekkert sagt fyrr en að loknum athugunum í febrúar. Niðurstöður sjórannsókna 1981, sem sýna með eindæmum kaldan sjó á íslandsmiðum, minna á legu landsins við mót heitra og kaldra loft- og haf- strauma eins og landsmenn hafa fundið fyrir á árinu sem er að líða. Reyndar má benda á að Nítján innbrot um og eftir áramótin INNBROTAKARALDUR reió yfir höruðborgarsvæðið um áramótin. Frá því á fimmtudaj' og fram til mánu- dags voru 19 innbrot kærð til Kann- stiknarlögreglu ríkisins. A (jamlárs- dag var brotizt inn í kjallaraíbúð í Mraunbæ og þaðan var stolið hljómplötuta'kjum, Fisher-plötuspil- ara, magnara og segulbandstæki. Á föstudag, nýársdag, var brotizt inn í verzlunina Barón, Laugavegi 90, og þaðan stolið tóbaki. Þá var brotizt inn í Bæjarnesti við Miklu- braut og þaðan var einnig stolið tóbaki. Þá var brotizt inn í Snæ- landsskóla, Þorlák helga, þar sem báturinn lá við Granda, og Blóma- skálann, Kársnesbraut en engu var stolið á þessum stöðum. Á laugardag var brotizt inn í skóverzlun Þórðar Péturssonar við Laugaveg, Miðbæjarradíó, Hverf- isgötu, og þaðan var stolið útvarpi og hátalarasetti í bíL Á sunnudag var tilkynnt um innbrot í íbúð í Hamraborg en engu stolið og einn- ig var brotizt inn í kjallaraíbúð við Bergstaðastræti og peningum var stolið, en ekki vitað hve miklu. í gær voru svo tilkynnt 9 innbrot til RLR. Brotizt var inn í KR-heim- ilið og þaðan stolið sælgæti og ein- hverju af peningum í geymsluher- bergi við Meistaravelli. Brotizt var inn í Garðaborg í Garðabæ og það- án stolið um 800 krónum í skipti- mynt. Frá Gísla Ferdinandssyni, skósmið í Lækjargötu, var um 500 krónum stolið. Brotizt var inn í verzlunina Fíber, Laugavegi og þaðan stolið á milli 700 og 1000 krónum í skiptimynt og polla- buxum. Úr dagheimilinu Kópaseli var Crown-hljómflutningstækjum stolið, húsnæði Síldarútvegsnefnd- ar við Garðastræti og þaðan stolið vasatölvu, og víða farið um hús- næðið. Tveimur konfektkössum var stolið úr húsnæði ísflugs í Mos- fellssveit. Loks var brotizt inn í sumarbústað við Vatnsenda en engu stolið. Leidrétting í FRÉTT Mbl. í gær um gjafir kvenfélagsins í Grindavík slæddist meinleg villa. Hið rétta er að kven- félagið afhenti í desember sl. kirk- junni í Grindavík 40 þúsund krónur að gjöf og við sama tækifæn af- henti kvenfélagið Félagi þroska- heftra á Suðurnesjum 5 þúsund krónur að gjöf. Mbl. biðst velvirð- ingar á þessum missögnum. heiti sjórinn á norður- og aust- urmiðum hefur almennt hopað fyrir þeim kalda eftir 1964 sam- fara kólnandi veðurfari á land- inu miðað við það sem var fyrr á öldinni. Að vísu hafa orðið mikl- ar breytingar frá ári til árs eins og sést af köldu ári 1979, heitu ári 1980 og nú aftur mjög svölu ári 1981. Þannig verður enn sem komið er engu „spáð“ um næsta ár nema ef vera skyldi að það geti orðið betra en nýliðið ár.“ Framleiðsla hafin að nýiu hjá Siglósfld LAGMETISIÐJAN Siglósfld á Siglufirði hóf framleiðslu að nýju á mánudag, eftir að starf- semi fyrirtækisins hafði legið niðri frá októberlokum. Pálmi Vilhjálmsson, framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, sagði í sam- tali við MbL, að byrjað væri að framleiða gaffalbita upp í samn- ing þann er gerður var við Sov- Blönduvirkjun: Viðræður við landeigend- ur hefjast á ný 10. janúar Könnunarviðræður fulltrúa iðnað- arráðuneytis og virkjunaraðila við fulltrúa þriggja hreppa af sex sem eignaraðild eiga að landi við fyrir hugaða Blönduvirkjun fer fram 10., 11. og 12. janúar nk„ að sögn Hjör leifs Guttormssonar iðnaðar ráðherra. Hreppar þessir eru Lýtings- staða-, Svínavatns- og Seylu- hreppur. Hjörleifur sagði hreppa þessa hafa hafnað framkomnum samningsdrögum en ekki lýst sig andvíga virkjunarkosti 1, sem ráðuneytið telur einu virkjunar- leiðina sem til greina komi. Ráð- herrann var að því spurður hvort eignarnámsheimild yrði beitt ef ekki næðist samstaða með öllum landeigendum. Hann svaraði því til að það yrði ákvörðunaratriði ríkisstjórnar og ráðherra, ef að því kæmi, en reynt yrði til þrautar að ná samkomulagi. étmenn í desember sl. — Liðlega 70 starfsmenn eru komnir til vinnu og sagði Pálmi, að væntanlega yrði fullum afköstum náð innan tíðar. Samningurinn við Sov- étmenn er upp á 28 þúsund kassa af gaffalbitum og sagð- ist Pálmi reikna með að Sigló- síld myndi framleiða um 40% af því, en það mál væri þó enn- þá ekki að fullu frágengið. „Miðað við full afköst erum við um það bil þrjá mánuði að framleiða þetta magn, en hvað þá tekur við vitum við enn ekki. Við gerum okkur þó von- ir um, að takast megi að ná samningum við Sovétmenn um enn frekari gaffalbitasölu í samningaviðræðum þeim er fara eiga fram í marzmánuði nk.,“ sagði Pálmi Vilhjálms- son, framkvæmdastjóri Sigló- síldar ennfremur. Störf ALFA-nefndar á ári fatlaðra: Hefur beitt sér fyrir á sjötta tug verkefna á starfstfmabilinu ALFA-nefndin, sem skipuó var til að vinna aó málefnum fatlaóra á alþjóó- legu ári fatlaóra, hefur beitt sér fyrir á sjötta tug verkefna á því tímabili sem hún hefur starfað. Þegar í upp hafi starfs síns skilgreindi nefndin markmið sín þannig: 1. Að vinna að stefnumótun til langs tíma í málefn- um fatlaóra. 2. Að einfalda, samræma og endurbæta gildandi lög og reglu- gerðir um málefni fatlaðra. 3. Að gera tillögur um fyrirbyggjandi aðgerðir með sérstöku tilliti til fötlunar sem afleiðingar af slysum. 4. Að hefja víð- tækt kynningarstarf í skólum og fjöl- miðlum um málefni fatlaðra. Á blaðamannafundi sem félags- og heilbrigðismálaráðherra, Svav- ar Gestsson, boðaði til ásamt ALFA-nefnd í lok ársins, var kynnt starfsemi nefndarinnar og árangur af starfi tengdu málefnum fatlaðra á árinu. Eitt af fyrstu verkefnum nefndarinnar var að leita eftir til- lögum frá fjölmörgum aðilum um hver ættu að vera helztu markmið og leiðir í málefnum fatlaðra. í framhaldi af þessu lét nefndin vinna verkefnalista, bæði til að skipuleggja starf sitt á ári fatlaðra og eins til að leggja ákveðinn grunn að þessari stefnumótun, en þessi verkefnalisti var byggður á sam- þykkt Sameinuðu þjóðanna um að- gerðir í öllum ríkjum heims í til- efni af ári fatlaðra. Nefndin hélt einnig fundi með sérfræðingum, hagsmunaaðilum og áhuga- mönnum um málefni fatlaðra. Þá hefur nefndin ásamt félagsmála- ráðuneyti falið félagsvísindadeild Háskólans að gera kannanir þar sem leitazt verður við að afla sem gleggstra upplýsinga um hagi og málefni fatlaðra á Stór-Reykjavík- ursvæðinu. Ennfremur er unnið að könnunum í samvinnu við svæðis- stjórnir út um landið. Niðurstöður úr þessum könnunum munu svo veita upplýsingar um hvaða ákvarðanir ber að taka á næstu ár- um í málefnum fatlaðra. Þá hefur á vegum nefndarinnar starfað starfshópur um ferlimál og hefur hann einbeitt sér að fjórum meginverkefnum. I fyrsta lagi að gera tillögu að frumvarpi til laga um breytingar á opinberum bygg- ingum í þágu fatlaðra. Félagsmála- ráðherra flutti frumvarp um þetta mál á síðasta alþingi og varð það að lögum, en það felur í sér að breytingar á opinberum bygging- um skuli fjármagna eins og um stofnkostnað væri að ræða. í öðru lagi lét starfshópurinn vinna sérstakan greiningarlykil til að nota við úttekt á opinberum byggingum með það fyrir augum að kanna hvaða breytingar þurfi að gera. Greiningalykli þessum hefur nú verið beitt á yfir 100 opinberar byggingar í 13 bæjarfélögum. Loks gerði starfshópurinn tillögur til fé- lagsmálaráðherra um valkosti við fjármögnun breytinga á opinberum b.vggingum. ALFA-nefndin setti á fót sér- stakan starfshóp undir forsæti landlæknis til að gera tillögur um slysavarnir í atvinnugreinum, í umferð og á heimilum. Trygg- ingastofnun ríkisins hefur tekið að sér gerð könnunar á slysavöldum í sjávarútvegi, fiskvinnslu, iðnaði og landbúnaði sl. áratug, með það fyrir augum að auðvelda tillögu- gerð til úrbóta. Hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofnun vinnur nú að gerð viðamikillar könnunar á slysum í heimahúsum og læknir á Borgar- spítalanum vinnur að könnun á af- leiðingum slysa 300 einstaklinga sem slösuðust mjög illa á árinu 1975, flestir í umferðinni. Niður- stöður þessara kannana munu liggja fyrir áður en langt um líður.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.