Morgunblaðið - 06.01.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
Spadolini forsætisráðherra Italíu:
Öryggi Doziers
á ábyrgð NATO
Knmalxirt'. 5. janúar. Al*.
GIOVANNI Spadolini forsætisrád-
hcrra Ílalíu sagði í dag, að Atlants-
hafsbandalagid væri ábyrgt fyrir ör
yggi James L. Doziers hershöfð-
ingja, sem mannræningar rændu
fyrir tæpum þremur vikum, en ekki
ríkisstjórn Ítalíu, sem gagnrýnd hef-
ur verið fyrir aö stemma ekki stigu
við hryðjuverkamönnum.
Spadolini sagði ítölsk yfirvöld
hafa varað yfirmenn Atlants-
hafsbandalagsins (NATO) við
hugsanlegum mannránum og þeir
hvattir til að gæta fyllsta öryggis.
Sagði Spadolini bandalagið með
eigin öryggisgæzlu er ekki leyfi
utanaðkomandi hlutdeild er hann
svaraði ásökunum á þingi um að
ítalska stjórnin hefði ekki tryggt
öryggi Doziers nægilega vel. Því
væru starfsmenn bandalagsins á
ábyrgð þess sjálfs en ekki ítölsku
stjórnarinnar.
Italska lögreglan sagði að tveir
vel vopnaðir menn hefðu verið
teknir fastir í Róm eftir mikinn
eltingarleik. Voru þeir með mikil
og öflug vopn í sínum fórum og
sagðir tilheyra Rauðu herdeildun-
um, og jafnvel hafa verið viðriðnir
ránið á Dozier. Frá því Dozier var
rænt hafa a.m.k. sjö félagar í
Rauðu herdeildunum verið teknir
fastir. Enginn hryðjuverkamann-
anna hefur þó verið ákærður í
sambandi við ránið.
Lögreglumenn stöðva bíla í útjaðri Verona í sambandi við leitina að James L.
Dozier hershöfðingja, sem leitað hefur verið ákaft frá því hryðjuverkasam-
tökin Rauðu herdeildarinnar, sem eru samtök vinstrimanna, rændu honum
17. desember.
Sprengjuherferð
í E1 Salvador
San Salvador,janúar. VI*.
TOLK öflugar sprengjur sprungu í höf-
uðborg Kl Salvador og næsta nágrenni
á mánudagskvöld, stórmarkaður var
lagður í rúst, heimili tveggja hæsta-
réttardómara einnig og fleiri mann-
virki urðu illa úti að sögn formælenda
lögreglu. Einn maður slasaðist i
sprengingunum.
Ein sprengjanna sprakk skammt
frá bandaríska sendiráðinu en þar
12 börn
drukkna
Manaus, Krasilíu. janúar. VI*.
ALLS tólf börn drukknuðu þegar
bát hvolfdi á ánni Negro, sem fell-
ur í Amazon-fljótið, nú um helgina.
Báturinn var 6 metra langur
og ætlaður fyrir 7 farþega. 21 var
um borð í bátnum.
Farþegarnir voru allir ættingj-
ar á skemmtisiglingu á ánni þeg-
ar veðrið versnaði skyndilega og
bátnum hvolfdi. Fjórir fullorðnir
og fimm börn gátu synt í land.
sakaði engan. Oflugur lögregluvörð-
ur umkringdi strax sendiráðið og
varnaði blaðamönnum aðkomu.
í einni sprengingunni voru há-
spennulinur eyðilagðar og varð við
það svartamyrkur í bænum Santa
Tecla, sem er skammt frá San Salv-
ador.
Vinstri sinnaðir skæruliðar eru
sagðir bera ábyrgð á sprengingun-
um, en þeir hafa barist við stjórn-
arherinn í 27 mánuði án þess að ná
völdum í sínar hendur. Aætlað er að
um 35 þúsund manns hafi týnt lífi í
bardögunum.
Að sögn sjónarvotta voru flestar
sprengingarnar mjög öflugar og
stjórn á viðkomandi mannvirkjum
mikið. Formælendur lögreglu sögð-
ust ekki hafa spurnir af því hvort
hæstaréttardómararnir hafi slasast
í sprengjuárásunum á vistarverur
þeirra, en fyrir tveimur mánuðum
slapp forseti hæstaréttar E1 Salv-
ador naumlega er sprengja sprakk
fyrir utan byggingar dómstólsins.
Vinstri sinnaðir skæruliðar voru
sagðir bera ábyrgð á því tilræði, en
samtök þeirra lýstu hvorki ábyrgð
sinni þá, né hafa nein samtök lýst
ábyrgð sinni á sprengjuherferðinni
á mánudagskvöld.
Frá mótmælaaðgerðum í Gdansk
Þremur dögum eftir að herlög voru sett í Póllandi, en hér eru mótmælendur að velta lögreglubíl. Myndin
er ein af mörgum sem AP-fréttastofunni barst eftir leynilegum leiðum í gær, en myndirnar tók ónefndur
verkamaður á myndavél sem brezkur fréttamaður skildi eftir þegar honum var vísað úr landi.
Frakkar koma í veg fyrir
viðræður við Norðmenn
um veiðar í lögsögu EBE
Osló, 4. janúar, frá Jan Krik Ijiure,
frt llarilara Mbl.
FKAKKAK hafa komið í veg
fyrir viðræður Efnahags-
bandalagsins og Norðmanna
um fiskveiðimál og krefjast
þess að fyrst verði fundin
lausn á ýmsum ágreinings-
málum varðandi veiðar í lög-
sögu handalagsins, svo sem
við Færeyjar.
Einkum eru Frakkar því mót-
fallnir að Norðmönnum verði leyft
að veiða allt að 16 þúsund smálest-
ir af makríl vestur af Bretlands-
eyjum, eins og gert var ráð fyrir í
tillögum er undirbúnar höfðu ver-
ið fyrir viðræðurnar.
Ljóst er að þar sem viðræðurnar
munu dragast verða norskir sjó-
menn fyrir talsverðum tekjumissi
meðan þeir geta ekki stundað fisk-
veiðar í lögsögu ríkja EBE. Norsk
yfirvöld hafa mótmælt því harð-
Kúbanskur her-
maður drepinn
l’retoría, 5. janúar. Al*.
TALSMAÐUR ríkisstjórnarinnar í
Suður-Afríku sagði í dag, að örygg-
isverðir landsins á landamærum
Namibíu eða Suðvestur-Afríku og
Angóla hafi drepið einn og handtek-
ið annan Kúbumann á landamærun-
um þegar til skotbardaga kom fyrir
nokkru siðan. Ekki var tiltekið
hvoru megin við landamærin þetta
var né hvenær.
Yfirvöld í Suður-Afríku fullyrða
að sovéskir og kúbanskir hernaðar-
ráðgjafar séu við störf í Angóla og
veiti hryðjuverkasveitum í Namibtu
aðstoð.
lega við yfirvöld í París, að Frakk-
ar skyldu grípa til þessara að-
gerða á vettvangi Efnahagsbanda-
lagsins.
Seychelles:
Byltingartil-
raunarmenn
ákærðir
Victoria, Jóhannesarborg, 5. janúar. Al*.
SJ(j ÍITLENDINGAR, sem voru hand-
teknir eftir misheppnaða byltingartil-
raun á Seychelles-ejjum í nóvember
voru leiddir fyrir rétt í Victoria í dag
og ákærðir fyrir ólöglegan innflutning
á skotvopnum til eyjanna. Jafnframt
voru fjörutíu og fimm málaliðar kærð-
ir fyrir flugrán eftir byltingartilraun-
ina í Jóhannesarborg.
Mikil leynd hvíldi yfir réttarhöld-
unum á Seychelles-eyjum og örygg-
isvörður var mikill. Sex fanganna
voru ákærðir um að hafa undirbúið
tilraunina en hinn sjöundi var sagð-
ur úr hópi málaliðanna og orðið eft-
ir þegar þeir komust undan í vél frá
Air India-flugfélaginu. Hinir
ákærðu eiga yfir höfði sér allt að 20
ára fangelsisvist.
Að minnsta kosti fimm málalið-
anna í Suður-Afríku var sleppt gegn
5000 dollara tryggingu og búist er
við að jafn há trygging verði sett
fyrir lausn hinna. Akvörðun stjórn-
valda að ákæra þá kom eftir harða
gagnrýni víða um heim en 40 var
sleppt strax og vélin lenti í Durban.
Fimm leiðtogar sveitarinnar voru
þá ákærðir fyrir mannrán en látnir
lausir gegn tryggingu. Þar á meðal
var hinn velkunni Kongó-málaliði
„Mad Mike“.
Baskar ræna
þýzkum iðnjöfri
Bilbao, 5. janúar. Al*.
HRYÐJUVERKAMENN úr aðskiln-
aðarsamtökum baska (ETA) rændu í
dag vesturþýzka iðnjöfrinum Josef
Lipperheide, er vopnuð víkingasveit
réðst inn á heimili hans á norður-
hluta Spánar.
Formælandi fjölskyldu Lipper-
heide sagði að ræningjarnir hefðu
krafizt hárrar fjárhæðar í lausn-
argjald fyrir iðjöfurinn, sem er
vellríkur.
Fjölskylda Lipperheide hefur
skorað á ræningjana að láta hann
strax lausan á þeirri forsendu að
hann eigi við heilsufarsörðugleika
að stríða og hafi verið undir lækn-
ishendi upp á síðkastið.
ETA hótaði Lipperheide lífláti
fyrir fimm árum er samtökin
reyndu að kúga af honum fé. Sam-
tökin hafa haft hljótt um sig und-
anfarna mánuði, en þau eru sögð
ábyrg fyrir 39 mannránum frá
1970.
Clark og Reagan eru gamlir samsta
Wa.shini'fon, 5. janúar. Al*.
WILLIAM P. CLARK, sem Ronald
Reagan hefur nú valið sem helsta
ráðgjafa sinn í utanrfkismálum í
stað Richard Allens, hafði enga
reynslu og litla þekkingu á utanrík-
ismálum þegar hann var skipaður
aðstoðarutanríkisráðherra fyrir einu
ári. Clark viðurkenndi þekkingar
leysi sitt fúslega og margir gagn-
rýndu skipun hans í embættið. En
hann þykir hafa staðið sig framar
vonum og lært margt á þessum tíma.
Starf öryggismálaráðgjafa for-
seta mótast eftir geðþótta hvers
forseta og manngerð ráðgjafans.
Zbigniew Brzezinski og Henry
Kissinger þóttu heldur umsvifa-
miklir í embættinu og oft grípa
fram fyrir hendur utanríkisráð-
herra. Reagan skar niður starfslið
ráðgjafans þegar hann tók við
völdum og Allen voru settar
strangar reglur um ræðuhöld og
yfirlýsingar.
Clark starfaði fyrir Reagan þeg-
ar hann var ríkisstjóri Kaliforníu
og var þá þekktur fyrir að vera
skýr og stuttorður í útskýringum
sínum. Hann er manngerð sem
Reagan kann vel við en það var
aldrei sagt um Allen. Þegar Reag-
an*skipaði Clark í embættið í
utanríkisráðuneytinu var sagt, að
það væri gert svo að hann gæti
fylgst með Alexander Haig utan-
ríkisráðherra sem Reagan þekkti
lítið. Gott samstarf tókst með
þeim Clark og Haig og Clark
stjórnaði ráðuneytinu á meðan
Haig mótaði utanríkisstefnu
stjórnar Reagans.
í yfirheyrslunum í þinginu fyrir
ári vissi Clark ekki hvað forsæt-
isráðherra Suður-Afríku hét og
hann sagðist þurfa að hugsa málið
áður en hann gæti sagt skoðun
sína á aðstoð Bandaríkjanna við *
þróunarlöndin eða á banni við út-
breið^Ju kjarnorkuvopnafram-
leiðslu. Á mánudag þegar hann
var spurður hvort honum þætti