Morgunblaðið - 06.01.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
23
Mótmæla kvótafyrirkomulagi á
rækjuveiðum við ísafjarðardjúp
Kækjubátur í höfn á fsafirði
Morgunbladinu hefur borist til-
kynning frá fimm rækju-
sjómönnum við ísafjardardjúp, þar
sem þeir mótmæla því að rækju-
sjómenn þar séu einróma hlvnntir
kvótafyrirkomulagi á rækjuveiðum
í Djúpinu, en samkvæmt fyrir
komulaginu fá stærstu skipin að
veiða 93 tonn, en þau minnstu 79
tonn.
„Vió, sem þessa tilkynningu
undirritum, teljum ad boíabrögð-
um hafi verið beitt og þær sam-
þykktir, sem sjávarútvegsráðu-
neytið styðst við um vilja heima-
manna, túlki alls ekki vilja mikils
hluta rækjusjómanna, þar eð
margir sjómenn áttu þess ekki
kost að vera viðstaddir á þeim
fundi, þar sem samþykkt sú var
gerð er ráðuneytið styðst við,“
segja fimmmenningarnir.
Þá segja þeir:
„í sumar sem leið var nefnd að
störfum, en í henni sátu full-
trúar tilnefndir af ráðuneytinu,
og voru þeir úr hverju hinna
þriggja byggðarlaga við ísa-
fjarðardjúp, Súðavík, Isafirði og
Bolungarvík. Af hálfu ráðuneyt-
isins mætti Jón B. Jónasson,
einnig sat sjávarútvegsráðherra
fund með nefndinni. Hlutverk
þessarar nefndar var að gera til-
lögur um fyrirkomulag veiðanna
á næstu vertíð, sem síðan skyldi
borið undir sjómenn. Alit þess-
arar nefndar var síðan borið
undir almennan fund rækjusjó-
manna og fól í sér, að kvótakerfi
skyldi komið á. Þessi tillaga að
kvótakerfi var felld. Þá gerist
næst, að fjölgað er í nefnd þeirri
sem að tillögugerð stóð og annar
fundur haldinn með rækju-
sjómönnum og kvótatillaga enn
borin fram og enn felld. Var
þetta rétt áður en vertíð hófst.
Töldu menn nú, að kvóti væri
úr sögunni þar til annað kom í
Ijós. Þeir sem undir höfðu orðið í
kvótamálinu boðuðu til fundar í
Alþýðuhúsinu á ísafirði þá menn
sem þeir vissu hliðholla kvóta-
kerfi, og gafst mönnum tækifæri
að skrifa undir blaðhaus þar sem
farið var fram á kvótakerfi og
plagg þetta síðan sent ráðuneyt-
inu sem viljayfirlýsing rækju-
sjómanna. Við viljum taka fram,
að enginn okkar, sem undir
þessa tilkynningu skrifum, var
boðaður á nefndan fund í Al-
þýðuhúsinu og mótmælum við
harðlega þessum vinnubrögðum,
en ráðuneytið virðist hafa tekið
þessa samþykkt gilda, sem að-
eins hluti sjómanna átti aðild að,
hinir fengu þar hvergi nærri að
koma. Af ástæðum sem hér er
lýst, teljum við alveg út í hött, að
sjávarútvegsráðuneytið styðjist
við álit leynifundar, sem aðeins
fáum útvöldum var boðið til og
þess vegna fáránlegt, þegar
fjölmiðlar eru að vitna til al-
mennrar ánægju rækjuveiði-
sjómanna með þá kvöð sem
kvótakerfið leggur á þá flesta
hverja."
Bíóbær, nýtt bíó í Kópavogi:
Sýna myndir í
NÝTT kvikmyndahús hefur tekið
til starfa í Kópavogi, Bíóbær, og
voru fyrstu sýningarnar hinn 1.
janúar síðastliðinn. Bíóbær er til
húsa að Smiðjuvegi 1 í Kópavogi,
þar sem Korgarbíóið var áður til
húsa. Kigandi Bíóbæjar er Björn
Traustason.
Bíóbær tekur nú 312 manns í
sæti, en möguleiki er á að bæta
öðrum sal við í sama húsnæði,
tekur hann 100 manns í sæti og
liggja teikningar fyrir, en allt
mun þó óákveðið um hvenær af
framkvæmdum þar verður. Góð
aðstaða er í húsinu fyrir fatlað
fólk, og er meðal annars sérstök
snyrtiaðstaða fyrir fatlaða í bíó-
inu.
Mesta nýjungin í hinu nýja
kvikmyndahúsi er þó sú, að þar
verða sýndar svonefndar „þrí-
víddarmyndir", og fá
kvikmyndahússgestir sérstök
gleraugu til að horfa í gegnum,
en myndkerfi þetta veldur því að
áhorfandinn „færist inn í mynd-
ina“, en sér hana ekki eingöngu
beint framundan sér. Til þess að
sýna myndir með þessari tækni
hefur einnig verið komið upp
sérstöku sýningartjaldi með
bronzsanseraðri áferð.
I.jó.sm: KrÍNtján Kinarsson.
Kigandi og starfsmenn hins nýja kvikmyndahúss í Kópavogi, Bíóbæjar, talið
frá vinstri: Sveinbjörn Þór, Gunnar Jósefsson og Björn Traustason, eigandi.
Takið eftir hinum sérkennilegu gleraugum, er eru notuð við sýningar í
þrívídd, en Bíóbær mun einkum sýna þannig kvikmyndir.
þrívídd
Eigandi nýja kvikmyndahúss-
ins, Bíóbæjar, sagði í samtali við
blaðamann Morgunblaðsins, að
sýningar í bíóinu yrðu alla daga
vikunnar, og yrði sýnt að öllum
jafnaði klukkan 5, 7, 9 og 11 síð-
degis. Tiltölulega auðvelt sagði
hann vera að fá kvikmyndir er-
lendis frá, bandarískar, breskar
og fleiri þjóða myndir. Yrði lögð
áhersla á að hafa sem mesta
fjölbreytni í myndvali, auk þess
sem vandað yrði til vals mynd-
anna.
Stálvaskar VVJ~Lr7 ” 0g ARABIA u blöndunartæki hreinlætistæki J á AÐVÖRIIRNAR RÁ BAÐCTOFUNNI ^adstofaTR RMÚLA 23 - SlMI 31810.
Tilkynning
til félaga í Dansk kvindeklub, Foreningen Danne-
brog, Det Danske Selskab, Dansk-íslenska félaginu
og Félagí dönskukennara.
Danski rithöfundurinn Vita Andersen kemur til ís-
lands 7. jan. Sunnudaginn 10. jan. veröur sérstök
sýning í Alþýöuleikhúsinu á leikriti hennar, Elskaöu
mig.
Eftir sýninguna veröa umræöur um verkiö meö þátt-
töku höfundar. Félagsmenn ofangreindra félaga geta
fengiö miöa á sýninguna á kr. 50,- meö því aö snúa
sér til Alþýöuleikhússins eigi síöar en tveimur dögum
fyrir sýninguna.
Viö minnum einnig á dagskrá í Norræna húsinu laug-
ardaginn 9. jan. kl. 16.00.
Verslið hjá
fagmanninum
LJOSMYNDAÞJONUSTAN S.F.
LAUGAVEGI 178 SIMI 85811
Þú kemur meö filmurnar til okkar í dag
og sækir myndirnar kl. 16 á morgun.
Opið iaugardaga kl. 9—12
Rock ’n Roll
Vegna mikils áhuga Islend-
inga á Rock’n Roll-dansinum
höfum viö ákveðið aö halda
10 tíma námskeið í þessum
fjöruga dansi. Meðal kennara
verða íslandsmeistararnir Að-
alsteinn og Herborg.
Kennt verður í Brautarholti 4
og Drafnarfelli. Innritun í
símum 39551 — 24959 —
20345 — 74444 — 38126 kl.
1—7 til föstudagskvölds.
STUIUDSSPm &