Morgunblaðið - 06.01.1982, Blaðsíða 26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
26
Kommúnistasamtökin:
Hvetja til
stuðnings
við Pólverja
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Kommún-
istasamtökunum um ástandið í Pól-
landi og er hún birt hér nokkuð
stytt:
„Vegna nýsettra herlaga sem
enn á ný hafa svipt pólsku þjóðina
öllum sjálfsögðum mannréttind-
um, vilja Kommúnistasamtökin
ítreka samstöðu sína og stuðning
við pólska alþýðu og þau samtök
sem eru raunverulegur fulltrúi
fólksins, Solidarnosc.
Arangur hinnar sjálfstæðu
verkalýðshreyfingar í Póllandi
hefur vakið vonir vítt og breitt um
að þjóðum hins svonefnda sósíal-
íska heimshluta takist að brjótast
út úr þeim álagaham sem ofbeld-
is- og afturhaldsklíka sú er
drottnar yfir þjóðum Sovétríkj-
anna hefur þröngvar upp á flest
lönd A-Evrópu.
Solidarnosc gegna nú hlutverki
faglegrar og pólitískrar andstöðu
við yfirvöld og hlutverki varnar-
samtaka gegn hersveitum sem
þegar hafa myrt almenna borgara
landsins. Samtökin njóta stuðn-
ings mikils meirihluta pólsku
þjóðarinnar og þarfnast allrar að-
stoðar sem unnt er að veita. Engin
lausn er hugsanlega á vandamál-
um Póllands án þátttöku verka-
lýðshreyfingarinnar ...
Kommúnistasamtökin fordæma
harðlega valdníðslu yfirvalda í
Póllandi og krefjast þess að þegar
verði snúið við til samninga við
Solidarnosc um bráðabirgðalausn-
ir á vandamálum Póllands.
Kommúnistasamtökin hvetja alla
íslenska stjórnmálaflokka, stjórn-
málasamtök, kirkjuna og hags-
munasamtök um að víkja til hlið-
ar skoðanaágreiningi og samein-
ast um sem víðtækastan stuðning
við pólska alþýðu. Kommúnista-
samtökin minna sérstaklega á
fjársöfnunina sem nú er hafin.
Grétar Fells
Grétar Fells.
I>að er svo margt (erindasafn).
Útg. Hliðskjálf.
Þetta er sjötta og síðasta bindið
af erindum Grétars Fells. For-
mála skrifar Gunnar Dal, rith., en
eftirmála frú Svava Fells, eftirlif-
andi eiginkona Grétars. Svava
gerir hér grein fyrir útgáfunni:
Þrjú fyrstu bindin bjó höfundur
sjálfur til prentunar en Svava hin
síðari með aðstoð góðra vina. Hér
kemur og fram að í þessu bindi
eru 23 erindi, sum frá yngri árum
höf., hin frá síðustu árum hans.
En alls eru í öllum bindunum 137
erindi.
Enn má heyra fólk af eldri
kynslóð sakna hinna „góðu fyrir-
lesara" í útvarpi frá liðinni tíð.
Þar er Grétar Fells oftast nefndur
og það er engin furða. Grétar var
afburða snjall fiytjandi og hann
fjallaði jafnan um efni sem heill-
aði fólk og var því til huggunar og
leiðbeiningar í lífi þess og fram-
gangsmáta meðai annarra manna.
Guðspekin barst hingað
snemma á öldinni og var kynnt af
afburða vitru fólki sem hafði
fundið í henni andlega vegsögu.
Þjóðin var að vakna til dáða um
hag sinn og hug. Kirkjan var
frjálslynd, nýjar stefnur ruddu sér
til rúms, það var vor í lofti. Frelsið
til sjálfstæðis, sæmandi lífskjara
og andlegs víðsýnis var krafa og
henni var fylgt eftir af dirfsku.
Aldrei gleyma eldri menn ræðum
séra Jakobs Kristinssonar frá
þessum fyrstu árum guðspekinn-
ar, en hann var þar í fararbroddi.
Þessi frelsandi blær vitsmuna-
legra trúarhugleiðinga hélt áfram
að leika um hugi manna og Grétar
Fells var aflgjafi hans. Hann var
fæddur fræðari, vitur maður og
umburðarlyndur, orðs var honum
heldur ekki vant. Áhugi hans
ljómaði í dökkum augum eins og
sólskin.
Því miður hefur þessi vitsmuna-
lega lífsskoðun verið lágróma nú
upp á síðkastið. Þó er Gangleri,
sem Grétar stýrði lengst, enn vak-
andi og uppbyggjandi rit sem fyrr.
Erindasafn Grétars er ómetan-
legt lesefni og hugleiðingar. Þessi
bindi Grétars þyrftu að vera til í
sem flestum húsum manna sem
mótvægi „hinnar vonarsnauðu
visku", sem nú liggur eins og móða
Skaftárelda yfir hugum margra
„andlegra" leiðtoga okkar.
í þessu síðasta bindi er hvert
erindið öðru betra. Ég nefni t.d.
Endurfundi, mjög lærdómsríkt
verk. Þá er eitt hið besta, „Heil-
brigt líf“, ómetanleg lesning. Höf-
undur bendir á nauðsyn alhliða
uppbyggingar mannsins, ekki að-
eins líkamlega, heldur sérstaklega
hinna andlegu þátta.
Geðrænn þroski er fyrsta
skylda, því vald óhaminna tilfinn-
inga getur leitt á villigötur. Þá er
stjórn hugans nauðsyn og segir
svo í því sambandi: „Sumir dul-
fræðingar ganga svo langt að
segja, að allar þær tilfinningar og
hugsanir sem þú elur með þér og
andúðarættar eru, t.d. reiði, af-
brýði og öfund, svo eitthvað sé
nefnt, eigi eftir að koma fram sem
sjúkdómur á sjálfum þér eða að
minnsta kosti að skapa jarðveg
fyrir sjúkdóma."
Þetta er mjög trúlegt og sést þá
hve hugrækt og stjórnun hugsana
er brýn. En sem betur fer eru í
þessari bók hlaðnar traustar vörð-
ur sem vegvísar fram hjá hættum.
I síðari hluta bókar er erinda-
flokkur sem höfundur kallar „Opið
bréf“. Þetta eru bréf til þín og mín
um hin ólíkustu efni en öll sögð til
leiðbeiningar í lífi og hegðan. í
fyrsta bréfinu „Guðspekilegt upp-
eldi“, segir: „Ein af fegurstu
mannlýsingum í fornsögum okkar
er á þessa leið: „Hann var vitur
maður og góðgjarn."" En Grétar
telur þó óþarft að taka fram að
„vitur“ maður sé góðgjarn, það
felist í hugtakinu „vitur".
„Greindin ein er heldur ekki viska
fyrr en hún sameinast góðvild-
inni.“
Um Grétar Fells eiga þessi
fögru orð fornsagnanna svo sann-
arlega við. Hann var vissulega vit-
ur maður og góðgjarn. Hann rækt-
aði fagran garð og opnaði hann
almenningi. Gróður þessa garðs
varð mörgum manni til blessunar
meðan Grétar lifði og enn má hafa
hans full not. Blóm hans og tré
halda áfram að anga í þessum sex
bindum: Það er svo margt. Þökk sé
þeim er gáfu þjóðinni slíkar gjaf-
ir.
Kristján frá Djúpalæk.
Allt í gamni
— leikir og
þrautir
„Allt í gamni“ heitir spilapakki,
sem inniheldur leiki eða þrautir og
leiðbeiningar með þeim, t.d. „Píra-
mídaprik“, „Gálgagetraun“, sem er
hér í nýjum búningi, „X og 0“ og
leikinn „Já eða nei“, sem er eftir
Tómas Jónsson auglýsingateiknara
og Jón son hans, sem er tólf ára
gamall, en Tómas stendur að fram-
leiðslu spilapakkans.
Spilapakkanum fylgja blýantur
og uppskriftir að svifskutlu og
vindmyllu.
Spilapakkinn „Allt í gamni„ er
fyrsta framleiðsla spilaútgáfunn-
ar Norðurljós.
Erindasafn
Grétars Fells
Ágætt í dag,
en verður vonandi betra
Ultravox.
RAGE IN EIIEN
('hrysalis cdl 1338.
Hljómsveitin Ultravox sló í
gegn með plötunni „Vienna" sem
kom út í fyrra. Þar á undan
höfðu komið út þrjár plötur en
engin þeirra hafði vakið athygli.
Ultravox var stofnuð á Englandi
1974 og einu mannabreytingarn-
ar sem hafa orðið eru þær að í
stað John Fox og Simons kom
Midge Ure. Hljómsveitin hélt af
stað í hljómleikaferðalag til Am-
eríku skipuð þeim: Chris Cross,
Midge Ure, Warren Cann og
Billy Currie. Þegar þeir svo
sneru til Englands aftur, í byrj-
un 1980, fengu þeir öllu betri við-
tökur en þeir áttu að venjast,
„Vienna" var búin að slá í gegn.
Nú rúmu ári seinna eru dreng-
irnir í Ultravox búnir að senda
frá sér nýja plötu sem þeir kalla
„Rage in Eden“. Á þeirri plötu er
að finna 9 ný lög, öll eftir þá
félaga. Tónlistarlega er þessi
plata beint framhald af „Vi-
enna“, en ferskleikinn er ekki sá
sami og hún er öllu þyngri.
Heildarsvipurinn er líka mun
rólegri og það kann að valda því
hve þung hún er áheyrnar. Þó
bregður fyrir léttum og vel gerð-
um hlutum eins og til að mynda
Hljóm-
plotur
Finnbogi Marinósson
„The Voice", en það lag er eitt
þeirra betri á plötunni. Ekki er
hægt að setja út á hljóðfæraleik-
inn því hann er í höndum manna
sem á sitt dót kunna. Platan
vinnur á við frekari hlustun en
nær því samt ekki að vera eins
góð og „Vienna".
Ætla má að „Rage in Eden“ sé
bara millibilsástand og fróðlegt
verður að vita hvernig næsta
hljómplata Ultravox verður.
Bestu lög plötunnar eru „The
Voice" og „The Thin Wall“.
Að lokum: Sem nýrómantísk
hljómplata er „Rage in Eden“ al-
veg ágæt þó hún færi Ultravox
nær öllum hinum „futurista"-
hljómsveitunum.
DEVö
„NEW TRADITIONALISTS“
Virgin V—2191.
Hljómsveitin DEVO vakti
fyrst á sér athygli árið 1977.
Beindist hún aðallega að furðu-
legri framkomu, sem var vélræn
og skemmtileg. Engu minni at-
hygli vakti klæðaburður þeirra
en hann undirstrikaði boðskap
DEVO sem var, að allt yrði
tölvuvætt og að mannsins yrði
varla þörf. Árið 1978 sendu þeir
frá sér sína fyrstu stóru plötu.
Hún hét „Q: Are we not men? A:
No we are DEVO“ og vakti hún
almenna athygli. Á henni voru
lög sem urðu vinsæl, eins og
„Jocko Horno" og síðast en ekki
síst gamla Rolling Stones-lagið
„Satisfaction", sem var í mjög
góðri útsetningu. Næsta plata
var “Duty now for the Future",
en hún náði ekki sömu vinsæld-
um og sú fyrsta. Þriðja plata
DEVO var svo „Freedom of
Choice". Lagið „Whipit" af þeirri
plötu minnti almenning á að
DEVO var enn til. Lagið náði
töluverðum vinsældum og platan
gerði það sæmilega gott. Síðast-
liðið sumar kom svo út tólf-
tommu „live“-plata, en hún gerði
lítið annað en að koma út. Þá er
á henni að finna lög sem áður
höfðu komið út í stúdíó-útgáfum,
en þegar á hana er hlustað, fer
ekki á milli mála, að DEVO er
svolítið meira en einhver tísku-
bóla.
Þótt dofnað hafi yfir vinsæld-
um DEVO þá hafa þeir ekki lagt
árar í bát og ekki alls fyrir löngu
sendu þeir frá sér sina fjórðu
stóru piötu, „New Traditional-
ists“. Á henni er að finna 10 ný
lög, sem öll eru eftir þá félaga M.
Mothersbaugh og G.V. Casale.
Eins og fyrr fara þeir ekki troðn-
ar slóðir í lagasmíðum sínum, þó
frumlegheitin séu ekki eins mik-
il og áður. Samt er ekki hægt að
segja að DEVO séu farnir að
staðna, heldur er um hæga, mjög
hæga þróun að ræða. Það sem
DEVO er að fást við í dag er til
að mynda ekki eins vélrænt og
t.d. fyrsta platan. Tónlistin hef-
ur tekið á sig þægilegri og af-
slappaðri mynd. Þetta hefur þó
gerst án þess að tónlistin hafi á
nokkurn hátt misst þá sérstöðu,
sem hún hafði. Sérlega er gaman
að hlusta á hvernig þeir blanda
saman rokki, nýbylgju, og hinni
svokölluðu nýrómantísku stefnu,
án þess að hægt sé að bendla þá
við neina af þessum stefnum.
Allur hljóðfæraleikur er góður,
söngurinn er eins og fyrr flatur
og tilþrifalítill en passar þó eins
og flís við rass. Ekki er hægt að
taka neitt lag fram yfir annað á
plötunni, því öll eru þau svipuð
að gæðum, en þó hafa heyrst
betri lög frá DEVO. í heildina
mynda þau ágæta plötu sem þó
er ekki eins góð og þær fyrri.
Þeir sem hafa áhuga á að kynna
sér DEVO geta byrjað á þessari,
hinar koma örugglega í kjölfar-
ið.
Hljóm-
plotur
ÁrniJohnsen
START
á fullri
ferð
Start var hleypt af stokkunum
fyrir um þad bil tveimur árum og
hefur verið ein vinsælasta rokk-
hljómsveit landsins síðan, enda
vaskir strákar sem hafa ekkert
gefið eftir í hljómlistinni og allt
vanir menn, eins og sagt er til sjós.
Strákarnir hafa nú gefið út
sína fyrstu breiðskífu en síðast-
liðið vor gaf Start út tveggja
laga plötu með lögunum Seinna
meir og Stína fína, en bæði nutu
þau mikilla vinsælda í sumar á
dansleikjum Start víða um land
og einnig hafa þau verið spiluð
nokkuð í útvarpinu.
Breiðskífa Start er hressileg
rokkplata, spiiuð af leikni og lík-
lega hefur engin hljómsveit á
landinu eins marga góða söngv-
ara um borð. Pétur Kristjánsson
er löngu þekktur fyrir hæfni
sína, þá syngur Eiríkur Hauks-
son og Jón Ólafsson, allt prýðis-
söngvarar. Þeir syngja þrír af
sex á þessari plötu og skila vel
hver sínum hlut. Start skipa
söngvararnir Pétur Kristjánsson
og Eiríkur Hauksson sem einnig
leikur á gítar, Kristján Edel-
stein er aðalgitarleikari, Jón
Ólafsson leikur á bassa, Davíð
Karlsson er trymbill og Nikulás
Róbertsson leikur á hljómborð.
Að undanförnu hefur Start
verið að kynna nýju plötuna í
félagsmiðstöðvum í Reykjavík
og auk þess hefur hún leikið á
tónleikum NEFS og víðar.
Það er þéttur taktur og hljóm-
ur í Start-plötunni og ljómandi
góð iög. Sérstaklega vil ég nefna
Tilveruna og lífið, Hjónalíf, sem
mér finnst bezta lagið á plöt-
unni, Þorgerði þreknu, Hvað
viltu mér? og Örvænting, sem er
gott lag og sérstaklega vel leikið.
Textarnir á plötunni eru eftir
Kristján Hreinsmögur, Eirík
Hauksson, Þorstein Eggertsson
og Brynjar Ö. Gunnarsson.
Mér finnst galli á annars líf-
legri plötu að það er svolítið
þreytulegur tónn í textunum,
einhver lífsleiði sem þó er reynt
að gera gott úr, en lífsglaðir
textar myndu styrkja Start enn
betur í sessi, því það er eiginlega
nóg komið af yfirheyrslustílnum
þar sem vandamál eru við hvert
fótmál.
Það eru Steinar hf. sem gefa
plötuna út, en hljóðritun fór
fram í Hafnarfirði og var Jónas
R. Jónsson aðalupptökumaður,
en einnig kom Sigurður Bjóla við
sögu, Eðvarð Marx og Sigurður
Árnason. Umslagið gerði Aug-
lýsingastofan Ernst J. Bach-
mann og er það smekklegt eins
og mörg umslög sem stofan hef-
ur séð um. Prentun fór fram í
Hafnarfirði.
Start er ekki lengur í starthol-
unum, þeir eru komnir á skrið
eins og heyra má á ágætri plötu
þeirra í heild, en ég er viss um að
þeir ættu auðvelt með að víkka
út efnisval og skapa meiri breidd
í dugmiklu starfi sínu. Start á
fullri ferð er dúndur hljómsveit.