Morgunblaðið - 06.01.1982, Side 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
Hugvísindahús Háskóla íslands:
Um fjögur þúsund fer-
metrar á fjórum hæðum
NÍJ ERIJ hafnar framkvæmd-
ir við að steypa fyrstu hæð
nýrrar byggingar á lóð Há-
skóla Islands. Húsinu hefur
ekki verið gefið sérstakt nafn
en er nefnt „hugvísindahús“ í
áætlunum varðandi bygging-
una. I»ar verða til húsa í fram-
tíðinni félagsvísindadeild Há-
skólans, viðskiptadeild og
hluti heimspekideildar. Húsið
verður 1328 fermetrar að
grunnfleti en gólfflötur sam-
anlagt 3918 fermetrar.
Húsið verður þrjár hæðir
og kjallari að hluta. Á
hverri hæð verða 16 kenn-
araherbergi og 6 herbergi
fyrir sérfræðinga eða þá
sem að rannsóknum vinna,
eða alls 66 vinnuherbergi.
Þá eru á 1. og 2. hæð
kennslustofur en á 3. hæð
verður deiidarbókasafn og
auk þess 320 fermetra salur
sem ætlað er sem sókna-
rými og sem sýningarað-
staða fyrir Listasafn Há-
skólans. Þar er gert ráð
fyrir lausum veggjum þann-
ig að hægt verður að inn-
rétta rýmið í samræmi við
þær rannsóknir sem þar
verða stundaðar hverju
sinni.
Húsið verður byggt í
tveim áföngum. Lokið er að
steypa kjallara og grunn-
plötu undir fyrri áfanga og
byrjað að slá upp mótum
fyrir fyrstu hæð. Reiknað er
með að iokið verði við að
steypa húsið næsta sumar
Ljósm. Emilía.
Lokið hefur verið við að steypa kjallara og grunnplötu fyrsta áfanga hugvís-
indahúss Háskólans og byrjað að slá upp mótum fyrstu hæðar. Árnagarður í
baksýn.
Þannig mun hugvísindahús Háskólans líta út fullbúið.
og það tekið í notkun haust-
ið 1983. Hönnuður hússins
er Dr. Maggi Jónsson arki-
tekt, en verkfræðingar
Verkfræðistofa VST og
Rafhönnun hf. Aðalverktaki
er Reynir hf. Áætlað er að
húsið kosti um 30 millj. kr.
fullbúið og verður það að
mestu leyti byggt fyrir fé
frá Happdrætti Háskóla ís-
landg.
Athugasemd
frá Félagi húsgagna- og
innréttingaframleiðenda
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Félagi hús-
gagna- og innréttingaframleiðenda, vegna greinar Erlings Eriðrikssonar í
blaðinu 29. desember sl. um innborgunargjald á innflutt húsgögn og innrétt-
ingara:
I Morgunblaðinu þann 29. des-
ember er grein eftir Erling Frið-
riksson innflytjanda á dönskum
innréttingum. í greininni er vegið
að íslenskum húsgagna- og inn-
réttingaframleiðendum, sem
ástæða þykir að svara með nokkr-
um orðum.
Það kemur skýrt fram í um-
ræddri grein, að höfundur hennar
hefur mjög takmarkaða þekkingu
á þeim iðnaði, sem hann er að
fjalla um. Einnig virðist honum
vera ókunnugt um, að á húsgögn-
um er lögbundin hámarksálagning
7,5% í heildsölu og 15% í smásölu.
Þar af leiðandi er ekki heimilt að
velta kostnaðarauka, sem af inn-
borgunargjaldinu kann að leiða,
yfir á kaupendur. Framlenging
tímabundins vörugjalds kemur
hvorki innflutningi né innlendri
framleiðslu húsgagna og innrétt-
inga við, þar sem gjaldið er ekki
lagt á þessa vöruflokka.
Greinarhöfundur segir, að
markmiðið með innflutningi hans
á innréttingum frá Danmörku sé
að styrkja og bæta íslenskan iðn-
að. Varla verður séð að aukinn
innflutningur geti leitt til þess.
Við Félag húsgagna- og innrétt-
ingaframleiðenda hefur greinar-
höfundur aldrei talað eins og gefið
er í skyn í greininni. Ekki hvílir
leynd yfir því, hverjir það eru hér
á landi, sem framleiða innihurðir
eins og sjá má í auglýsingum, sem
þessir aðilar birta reglulega í fjöl-
miðlum. Því verður tæpast trúað,
að þær hafi allar farið fram hjá
Erlingi frekar en fjölmörgum
kaupendum hurða. Þar að auki er
ekki víst, að innlendir framleið-
endur séu sammála því, að Erling-
ur sé bjargvættur innlends iðnað-
ar og hafi þess vegna ekki kært sig
um að gera hann að umboðsmanni
sínum og er það út af fyrir sig
umhugsunarefni.
Allt frá því að ísland gekk í
EFTA, eða í um 11 ár, hafa inn-
lendir framleiðendur reynt að búa
sig undir óhefta samkeppni. Þetta
hefur m.a. verið gert með því að
hagræða á verkstæðunum, koma
upp fullkomnum tækjakosti og
betra húsnæði. Hafa framleiðend-
ur á þessum árum tekið á sig
mikla áhættu og lagt í mikinn
kostnað við að mæta samkeppn-
inni, þótt að reyndar hafi nokkrir
valið auðveldari leið, og farið að
flytja inn húsgögn og innrétt-
ingar. Innflytjendur þurfa ekki að
binda mikið fjármagn í fyrirtæki
sínu, hvorki í vélum, tækjum eða
húsnæði. Þar að auki er ekkert
fjármagn bundið í birgðum, þar
sem erlendu aðilarnir sjá um þá
hliðina, oft með niðurgreiddu fjár-
magni.
Benda má á, að ýmis atriði, sem
skipta verulegu máli fyrir tilveru
innlends iðnaðar, eru ekki á færi
Félags húsgagna- og innréttinga-
framleiðenda að lagfæra. Má þar
nefna gengisskráningu og styrkt-
araðgerðir við húsgagna- og inn-
réttingaiðnað í nágrannalöndum,
sem átt hefur í erfiðleikum í sam-
keppinni, þrátt fyrir 20 ára veru í
fríverslunarbandalögum. Stór
hluti innfluttra húsgagna og inn-
réttinga kemur frá Danmörku.
Meðalgengi dönsku krónunnar
janúar-okt. 1980 og á sama tíma
1981 hefur aðeins hækkað um
20%, en á sama tímabili hefur t.d.
launakostnaður hérlendis hækkað
um 50—60%. Það eru þessi atriði
ásamt almennum starfsskilyrðum,
sem við vonumst til að verði lag-
færð á næstunni. Við förum því
ekki fram á forréttindi heldur að-
eins að fá að starfa á jafnréttis-
grunni miðað við keppinauta
okkar erlendis og aðrar atvinnu-
greinar hér á landi.
í lok greinar sinnar segir Erl-
ingur réttilega frá því, að verð
innréttinga hér á landi hafi í raun
lækkað talsvert. Það er hins vegar
vafasöm ályktun að segja að það
sé eingöngu fyrir áhrif innflutn-
ings, því eins og áður segir hafa
innlendir framleiðendur gert ým-
islegt til að lækka framleiðslu-
kostnað auk þess sem þeir eiga í
innbyrðis samkeppni. Þess má
einnig geta, að innflytjendur inn-
réttinga hafa haldið því fram, að
þeirra hlutur í markaðnum sé svo
lítill, að hann hafi lítil áhrif á
hann. Það er einnig staðreynd, að
innlend framleiðsla hefur einnig
orðið til þess að lækka verð á inn-
fluttum varningi, sem áður var
einráður hér á landi.
Fyrstu munirnir sem unnir eru úr Búðardalsleirnum.
Fyrsta prófunin gekk
framar öllum vonum
segir Kolbrún Björgólfsdóttir um
tilraunaleirvinnslu í Búðardal
FYRIRT/EKIÐ Dalaleir í Búðardal
hefur að undanfornu staðið fyrir til-
raunavinnslu með leir með það fyrir
augum að framleiða úr honum ýms-
ar byggingarvörur, t.d. flísar. Kol-
brún Björgólfsdóttir hefur veg og
vanda af tilraunavinnslu þessari og
ræddi Mbl. stuttlega við hana á dög-
unum til að forvitnast um árangur.
— Þessi tilraunavinnsla hófst
um miðjan nóvember og á að
standa í 6 mánuði. Ég er einmitt
nýbúin að taka úr ofninum fyrstu
brennsluna, en þá bjó ég m.a. til
bakka, svona til að sýna hvernig
nota má þetta hráefni og mun fólk
í Búðardal geta séð þá og kynnst
málinu. Þessi fyrsta prófun tókst
framar öllum vonum, en þetta var
algjörlega óblandaður leir. Hug-
myndir eru einnig uppi um að
blanda hann.
En þótt þarna hafi verið um
bakka að ræða er ætlunin að
kanna framleiðslumöguleika á
byggingarvörum, t.d. flísum,
hleðslusteini, múrsteini og ein-
angrunarsteini og er áhugi manna
einkum bundinn við nokkurn iðn-
að af því tagi.
Kolbrún Björgólfsdóttir nam
við Myndlista- og handíðaskólann
og síðar stundaði hún framhalds-
nám í Danmörku. Eftir það rak
hún um skeið eigið verkstæði í
Reykjavík og kenndi.
— Þetta er algjörlega nýtt fyrir
mér og mjög spennandi ef hægt
verður að vinna hluti úr íslenskum
lefr, en það hefur aldrei verið gert
áður. Við höfum nóg hráefni
þarna fyrir vestan því alls staðar
er leir og fólk verður jafnvel að
skipta alveg um jarðveg í görðum
sínum ef takast á að rækta eitt-
hvað. Hráefnið er því við húsvegg-
inn og hefur áhugi Dalamanna á
þessu verið fyrir hendi allt frá ár-
inu 1957. Nú hefur verið veitt fjár-
hæð til að stunda þessa tilrauna-
vinnslu og heimamenn hafa mik-
inn áhuga á að halda áfram, en af
þessu geta þeir hugsanlega haft
nokkra atvinnu. Mætti hugsa sér
að stjórnendur fyrirtækisins
hefðu menntun í svona leir-
vinnslu, en síðan þyrfti að þjálfa
fleiri menn til starfa.
Kolbrún sagðist vera ráðin í sex
mánuði til þessarar tilrauna-
vinnslu og kvað hún óráðið með
framhaidið, það kæmi í ljós þegar
niðurstöður lægju fyrir.
Þorlákshöfn:
Velheppnaðir jólatón-
leikar Söngfélagsins
l»»»rlákshofn, 4. janúar.
SÖNGFÉLAG Þorlákshafnar hélt jólatónleika hér í félagsheimilinu dagana
27. desember og 30. desember sl., svo og í Hveragerðiskirkju þann 27.
desember sl. Söngstjóri er Ingimundur Guðjónsson, og einsöngvarar með
kórnum voru Guðrún Tómasdóttir og Helga Björk Grétudóttir. Undirleik
önnuðust Jónas Ingimundarson, píanóleikari, og Sigurður Bogason og Rób-
ert Ingimundarson, sem léku á trompet.
Efnisskráin var fjölbreytt og
falleg og var kórnum mjög vel tek-
ið og þá ekki síður hinu ágæta
listafólki, sem studdi hann með
ómetanlegu framlagi sínu til tón-
leikanna.
Söngfélag Þorlákshafnar hefur
ennþá einu sinni iyft kyndli menn-
ingar og gleði hér í heimabyggð
sinni um þessi jól, en á þeim
kyndli hefur félagið haldið í meira
en 20 ár og notið til þess stuðnings
margra velþekktra listamanna á
stórum stundum, svo og hand-
leiðslu sama söngstjóra frá upp-
hafi. Það var skemmtilegt á þess-
um tónleikum, að þar voru feðgar
þrír að verki, söngstjórinn, píanó-
leikarinn og annar trompetleikar-
inn. Þá má geta þess, að hinn
trompetleikarinn, Sigurður Boga-
son, er aðeins 9 ára gamall. Efni-
legur ungur maður það.
Okkur, sem nutum þessara tón-
leika, duldist ekki, að mikill dugn-
aður og ströng vinna lá hér að
baki hjá fólkinu, mitt í undirbún-
ingi jólanna. Þorlákshafnarbúar
erit.aý. _sjálfsögðu þakkláti/
fyrir það fórnfúsa starf, sem söng-
félagið hefur með glæsibrag innt
af hendi í þágu okkar hinna, fyrr
og síðar.
Á aðfangadag jóla, klukkan
18.00, var aftansöngur í Grunn-
skóla Þorlákshafnar. Sóknarprest-
urinn Tómas Guðmundsson pre-
dikaði. Húsið var fullsetið eins og
venjulega á þessu kvöldi. Hátíð-
armessa var í Strandarkirkju í
Selvogi klukkan 14.00 á annan dag
jóla. Sóknarpresturinn, séra Tóm-
as Guðmundsson predikaði. Veður
var þá mjög vont og eðlilega fátt
fólk í kirkju. Á nýjársdag klukkan
14.00 var svo hátíðarguðsþjónusta
í Strandarkirkju og predikaði
sóknarpresturinn, séra Tómas
Guðmundsson. Söngfélag Þorláks-
hafnar söng, undir stjórn Ingi-
mundar Guðjónssonar, við allar
guðsþjónustur hátíðanna.
Kvenfélag Þorlákshafnar sá um
jólatrésskemmtun barnanna nú
eins og endranær. Áramótadans-
leikir voru haldnir og fóru vel
fram.
...........T. Rpuo bgiðu t...