Morgunblaðið - 06.01.1982, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
, Hvafc d \>(xb cxb þý&a. c\Á sogja. Konunní
rninni cxb Þ'& seob búm cxb kóuapcx. ykkur
uppPvottavél P"
ást er...
TM R*o U.S Pat OH.-aN rigfits resarvad
• 1981 Los Angetes Times Syndtcate
, O “ W
... að leyfa henni að
Ijanya með hattinn.
Hvern heldurðu að þeir hafi beðið
að gefa Ijóninu vítamínin í dag?
Kf þú ert að eltast við stelpur, þá
er áhættuminna fyrir þig að hlaupa
undan brekku!
HÖGNI HREKKVISI
I Velvakanda
fyrir 30 árum
Vísur kveðnar á íslenzku
„SVINGGÆI", sem sig kallar svo,
settist við skriftir hérna einn da-
«inn (því ástæða til að efast um, að
hann beri nafn með réttu) og sendi
mér svofelldan pistil.
„Heill og sæll Velvakandi. Oss
svinggæjum er um margt annað
sýnna en glíma við orðlistina, en
samt munum vér nú gerast svo frak-
kir að senda þér línu, enda liggur
mikið við.
Hlustaðirðu á óskaþáttinn á sun-
nudagskvöldið? — Það bar til ný-
lundu, að verulegur litur var sýndur
á því, að íslenzkir textar væru sung-
nir með danslögunum. Gröndal
sagði það gert að ósk hlustendanna,
heyrðist oss.
Fátt er svo illt,
að einungi dugi
ÞAÐ ER einkum þetta, sem vér vil-
dum vekja þína athygli og svo an-
narra á, að nokkur hluti, oss er næst
að segja betri hluti, svinggæja-
stéttarinnar, óskar eftir meiru af ís-
lenzkum textum. Vér viljum í því
sambandi vitna í ummæli eins vors
vinar, þótt langt sé sótt, að það væri
lakur skúti, sem ekki væri skárri en
úti.
Með þessu viljum vér þó ekki
drótta því að dægurskáldunum, að
illa hafi verið ort, heldur benda
þeim á, að þeim sé óhætt að syndga
þó nokkuð upp á náðina.
Ævinlega blessaður.
Svinggæi."
Frá Hrauneyjafossvirkjun
Barnabækur Sigurð-
ar Gunnarssonar
Gamall skólastjóri skrifar:
Sigurður Gunnarsson fyrrve-
randi skólastjóri hefur þýtt fjölda
erlendra barnabóka á vandað ís-
lenskt mál. En auk þess hefur
hann frumsamið tvær athyglisve-
rðar barnasögur, sem ísafoldar-
prentsmiðja hefur nýlega gefið út.
Fyrri bókin,-Ævintýrin allt um
kring, kom út árið 1979, en hin
síðari nú fyrir jólin 1981 og heitir
hún Ævintýraheimar.
I þessum bókum fjallar Sigu-
rður um ævintýri íslenskrar nát-
túru. Fyrri bókin er einkum um
fuglana okkar, en hin síðari um
villtu spendýrin á heimasióðum
höfundar og ýmislegt fleira áhu-
gavert.
I báðum þessum bókum er
frændi í sveitinni látinn segja
tveimur systkinum í borginni
skemmtilegar ævintýrasögur úr
ríki náttúrunnar. Þessu lýsir
höfundur á svo eftirminnilegan
hátt, að bækurnar veita tvennt í
senn: yndi og fróðleik sem öll börn
hafa gott af.
Hér er rétt að vitna í fáein orð
úr ritdómi Steindórs Steindórs-
sonar, hins ágæta skólamanns og
Sigurður Gunnarsson
gagnrýnanda, um fyrri bók Sigu-
rðar, Ævintýrin allt um kring. En
hann segir meðal annars svo í tí-
maritinu Heima er best, 3. tbl.
1979:
„Frásögnin er létt og tær, málið
gott og frændinn skýrir ýmis
gömul orð sveitamálsins fyrir
börnunum ... Bókin er vissulega
góð lesning, sem á skilið að vera
lesin af ungum og gömlum."
Þessi orð Steindórs Steindórs-
sonar eru skýr og ótvíræð, eins og
vænta mátti, og leyfi ég mér hér
með að gera þau að mtnum eigin
orðum. En um leið vil ég eindregið
mæla með bókum Sigurðar við
foreldra og kennara grunnskó-
lanna og hvetja þá til að kynna sér
bækurnar og nota þær sem eins
konar viðbótarlesbækur og um-
ræðuefni við hið lögboðna nátt-
úrufræðinám.
Ég er þess fullviss, að þetta
mundi veita skemmtilega fræðslu
og vekja áhuga á náttúru landsins
okkar. Einnig er hið kjarngóða
mál Sigurðar líklegt til að vekja
áhuga barnanna og leiða til spurn-
inga og svara jafnt á heimilum og
í skólum.
Að lokum vil ég taka fram, að
þetta er ekki ritdómur. Miklu fre-
mur hef ég leitast við að vekja
athygli á góðum og nokkuð sérs-
tæðum barnabókum Sigurðar
Gunnarssonar ... Rétt er að geta
þess, að báðar bækurnar eru fal-
lega myndskreyttar.
ttgttiililfifrft fyrir 50 árum
Innflutningshöftin. Lítið
dæmi um það hvernig inn-
flutningshöft stjórnarinnar
hafa reynst: — í tilkynn-
ingunni, sem stjórnin gaf
út um innflutningshöftin
var bannað að flytja inn
jólatrje. Tilkynningin kom
svo snemma, að engum
kaupmanni mun þá hafa
verið farið að detta í hug að
panta þessa vöru. En samt
sem áður kom hingað nóg
af jólatrjám. Og þegar allir
bæjarbúar, sem jólatrje
ætluðu að hafa, höfðu
keypt þau, varð mikill af-
gangur, sumir segja 300,
aðrir 600 jólatrje, sem voru
umfram eftirspurn bæj-
arbúa. Mörgum af þessum
grenitrjám verður brent í
bálkestinum á Iþróttavell-
inum í kvöld. Væri vel, ef
hægt væri að leiða öll af-
glöp stjórnarinnar á það
bál.