Morgunblaðið - 06.01.1982, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1982
Kawasaki-mótið í badminton fór fram á Akranesi um síðustu helgi. Helstu
úrslit urðu þau, að Kristín Magnúsdóttir og Kristín Kristjánsdóttir sigruðu í
tvfliðaleik kvenna, Guðmundur Adolfsson og Broddi Kristjánsson sigruðu í
tvfliðaleik karla og þau Kristín Magg og Broddi sigruðu i tvenndarleik. Á
meðfylgjandi myndum má sjá sigurvegarana í tvfliðaleiknum.
IBK sigraði í
hraðmóti 4. flokks
SIJNNUDAGINN 3. jan. gekkst UMFG fyrir körfuknattleikshraðmóti fyrir
leikmenn 4. flokks í íþróttahúsinu í Keflavík. Hófst mótið kl. 10 um morgun-
inn og stóð til kl. 18.30. í hádeginu heiðraði landsliðshópurinn, sem nú lcikur
við Portúgali, drengina með nærveru sinni og hafði klukkutíma æfingu sem
allir fengu að fylgjast með. Kinnig var unglingalandsliðsnefndin mætt á
staðinn til þess að fylgjast með drengjunurn og velja í drengjalandsliðið sem
væntanlega tekur þátt í Kvrópukeppninni 1983.
Leikið var í tveim riðlum, A og B og vann lið IBK A-riðilinn eftir
mikla baráttu en lið UMFG vann alla sína leiki í B-riðli nokkuð auð-
veldlega. Þessi tvö lið léku því til úrslita og náði IBK þá strax góðri
forustu sem Grindvíkingum tókst ekki að jafna og sigraði með 30 stigum
gegn 27. Einar Bollason afhenti sigurvegurunum verðlaun, boðsmiða á
leik íslands gegn Portúgal í Njarðvík 4. jan.
Að loknum úrslitaleiknum tilkynnti U-landsliðsnefndin um val
tveggja úrvalsliða sem hún hafði valið þ.e. Reykjavíkurúrval og Suður-
nesjaúrval. Leikmönnum þessara liða voru veitt verðlaun sem Henson
gaf til keppninnar. Einnig gaf Henson verðlaun til fimm bestu leik-
manna mótsins. Var nú komið að hápunkti mótsins þ.e. leik þessara
úrvalsliða og er þar skemmst frá að segja að Reykvíkingarnir sáu aldrei
neina glætu gegn góðu liði Suðurnesjamanna sem sigruðu með 30 stigum
gegn 25.
Að öðru leyti urðu úrslit í mótinu þessi:
A-riðill: B-riðill
UMFN - KR 28:25 Haukar - - ÍR 20:22
ÍBK - Vaiur 22:24 UMFG - Reynir 32:16
ÍBK - UMFN 24:17 UMFG - Haukar 22:19
UMFN - Valur 24:23 Reynir — ÍR 20:31
ÍBK - KR 28:10 Reynir — Haukar 18:35
Valur - KR 21:12 UMFG - ÍR 28:26
Stigahæstu leikmenn mótsins:
Hjálmar Hallgrímsson UMFG
Jóhannes Sveinsson UMFG 38 stig.
Hópferð á heimsmeistara-
keppnina í handknattleik
Ferðaskrifstofan IJrval mun efna til hópferðar á HM-keppnina í hand-
knattleik sem fram fer í VesturÞýskalandi í febr./mars. Dagana 2. til 9.
mars verður um vikuferð að ræða til Dortmund og þar verður fylgst með
undanúrslitunum og jafnframt úrslitum heimsmeistarakeppninnar. Úrval
hefur nú þegar tryggt farþegum sínum í hópferðinni miða á eftirtalda leiki:
2. mars kl. 19.00 Westfalenhalle Dortmund
kl. 20.45 Westfalenhalle Dortmund
4. mars kl. 19.00 Westfalenhalle Dortmund
kl. 20.45 Westfalenhalle Dortmund
6. mars kl. 15.30 Westfalenhalle Dortmund
kl. 18.30 Westfalenhalle Dortmund
7. mars kl. 16.00 Westfalenhalle Dortmund
kl. 18.00 Westfalenhalle Dortmund
lið 1 í hóp A og lið 2 í hóp C
lið 2 í hóp A og lið I í hóp C
lið 1 í hóp A og lið 1 í hóp C
lið 2 í hóp A og lið 2 í hóp C
leikur um 5/6 sæti
leikur um 3/4 sæti
leikur um 7/8 sæti
heimsmeistaratitill
Hópur A
A1 Rússland
A2 V-Þýskal.
A3 Tékkar
A4 Asía II
Hópur B
Bl Ungverjar
B2 Spánn
B3 Svíþjóð
B4 Afríka
Hópur C
C1 A-Þýskal.
C2 l’ólland
C3 Asía I
C4 Sviss
Hópur D
D1 Rúmenía
D2 Júgóslavía
D3 Danmörk
D4 Ameríka
Verð á ferðinni er 5.800 krónur innifalið í því verði er: Flugferðir Reykja-
vík — Dússeldorf — Reykjavík, flutningur frá flugvelli í Diisseldorf á hótel
í Dortmund og til haka, gisting á hótel DRKKS í Dortmund í tveggja manna
herbergjum með baði og morgunverði, aðgöngumiðar í sæti á ofantalda leiki
og fararstjórn.
Fararstjórar: Jóhann Ingi Gunnarsson, Olafur H. Jónsson.
Lokakaflinn færði Þrótti sigur
MJÖG góður lokakafli færði Þrótti góðan sigur yfir Val í gærkvöldi er liðin
léku í I. deildarkeppninni í handknattleik. Þróttur sigraði 24—18, eftir að
staðan í hálfleik hafði verið 12—10 fyrir Þrótt. Leikurinn var lengst af mjög
jafn og oftast voru það aðeins tvö mörk sem skildu liðin að. Þróttarar höfðu
frumkvæðið og voru mun ákveðnari í öllum leik sínum. Þegar 46 mínútur
voru liðnar af leiknum náðu þó Valsmenn að jafna leikinn og staðan var
17—17. Kn þá náðu leikmenn Þróttar mjög góðum leikkafla og kafsigldu
Valsmenn. Breyttu stöðunni úr 17—17 í 23—17. Valsmenn skoruðu aðeins
eitt mark síðustu 14. mínútur ieiksins.
Ólafur H. Jónsson, þjálfari
Þróttar, sagði eftir leikinn að
hann hefði ekki búist við sigri í
leiknum. Ólafur Benediktsson
markvörður var veikur og Páll
Ólafsson meiddur og vegna þess
var útlitið ekki bjart. En með bar-
áttu'og samstöðu tókst okkur að
sigra og við höfum að sjálfsögðu
sett stefnuna á titilinn sagði Ólaf-
ur. Ólafur taldi lið Þróttar eiga
góða möguieika á honum. En leik-
ur FH og Þróttar sem verður í lok
þessa mánaðar mun ráða miklu
um úrslit sagði Ólafur.
Jón Karlsson liðsstjóri Vals
sagði að þegar staðan hefði verið
jöfn í leiknum, 17—17, hefðu
Valsmenn misst tök á sóknar-
leiknum. Leikið stjórnlaust og
mjög illa, en bætti svo við að það
væri fjarlægur draumur núna að
vinna mótið. En Valur hefði áður
tapað sjö stigum í móti og unnið
samt. Þeir hefðu ekki gefið upp
alla von.
Lið Þróttar lék leikinn allvel.
Allir leikmenn voru vel virkir í
spilinu og í varnarleiknum. Ólafur
H. Jónsson var sterkur í vörninni
og Sigurður Sveinsson að venju
mjög ógnandi í sóknarleiknum
þrátt fyrir að hann væri tekinn úr
umferð lengst af í síðari hálfleik.
Lið Valsmanna var hinsvegar
rekar slakt. Það hélt í við Þrótt
fram í miðjan síðari hálfleik en
síðan ekki söguna meir. Og nú á
liðið litla möguleika á að vera í
efstu sætum í mótinu. Allavega ef
Þróttur — Valur
24—18
það leikur ekki betur en það gerði
í gærkvöldi. Þorbjörn Jensson var
skástur Valsmanna í vörn og sókn.
í stuttu máli: íslandsmótið 1.
deild, Þróttur — Valur 24—18
(12-10)
Mörk Þróttar: Sigurður Sveins-
son 9 (2v), Gunnar Gunnarsson 6,
Ólafur H. Jónsson 4, Jón Viðar 3,
Jens Jensson 1 og Lárus Lárusson
1.
Mörk Vals: Þorbjörn Jensson 5,
Brynjar Harðarson 5 (2v), Jón
Pétur Jónsson 4, Friðrik Guð-
mundsson 2, Gunnar Lúðvíksson
1, og Steindór Gunnarsson 1.
Brottrekstur af velli: Ólafur H.
Jónsson í 4 mín., Jón Pétur í 2
mín., og Þorbjörn Jensson í 2 mín.
Brynjari Harðarsyni mistókst
vítakast á 46. mín., skaut í stöng.
— ÞR.
Jens Jensson, Þrótti, brýst í gegn úr horninu og skorar.
Ljósm. Emilía.
Hrottaskapur Islendinga:
Flísaðist úr tönn eins Danans
Sjálfsagt verða Danir lengi að
gleyma 21—32 rassskellinum sem
handknattleikslandslið þeirra hlaut
hér á landi rétt fyrir áramótin. í
hlaðinu í gær var greint frá ýmsum
viðbrögðum danskra blaða. Síðast
barst Mbl. nýlegt eintak af danska
blaðinu BT. Þar er að flnna mikinn
grát og gnístran tanna.
í 4ra dálka yfirfyrirsögn yfir
frásögn blaðsins af leiknum stend-
ur: „Dómararnir leyfðu allt.“ Að-
alfyrirsögnin segir síðan: „Hatte-
sen úr leik eftir hrottaleik“.
Blaðamaður BT byggir mikið á
samtali sínu við Leif Mikkelsen,
landsliðsþjálfara Dana. Mikkelsen
segir strax í upphafi samtalsins,
að sigur íslenska liðsins hafi verið
gott dæmi um hversu langt sé
hægt að ná með réttum liðsanda,
en íslenska liðið hafi leikið með
smitandi eldmóði. Þá úthúðar
Mikkelsen liði sínu fyrir ömurlega
sóknarnýtingu og hræðilegan
varnarleik. Mikklesen getur þess,
að danska liðið hafi átt 16 stang-
arskot í leiknum.
Loks minnist Mikklesen á þýsku
dómarana og segir: „Mig hryllti
við dómgæzlu þeirra, þeir leyfðu
svo ótrúlega mikla hörku að það
væri grunnt í árinni tekið að segja
að leikurinn hafi verið hrotta-
legur. Leikmenn komust upp með
miklu grófari leik heldur en áður,
er gömlu reglurnar voru við lýði.“
Sem dæmi um ruddaskap íslensku
leikmannanna getur BT þess, að
flísast hafi úr tönn einni í munni
Hans Henrik Hattesens!
Landskeppni í borðtennis við Færeyinga
ÍSLENDINGAR og Færeyingar
leika landsleik í borðtennis þann 10.
janúar og fer hann fram í nýju og
glæsilegu íþróttahúsi í Færeyjum,
Tvöreyri á Suðurey. I>eir, sem munu
spila fyrir íslands hönd eru:
Karlar: A landsl. I landsl.
Bjarni Kristjánsson UMFK 7 7
Tomas Sölvason KR 1 5
Kristján Jónasson Víkingi 0 5
Inglingar 17 ára og yngri:
Björ^vin BjörKvinsson KR 1 4
Friörik Berndsen Víkingi 0 0
Kristján V. Haraldss. HSÞ 0 0
íslendingar og Færeyingar hafa
leikið 8 A-landsleiki í borðtennis
og hafa íslendingar sigrað 7 sinn-
um en Færeyingar 1 sinni, árið
1973. íslendingar hafa sigrað í.
samtals 113 leikjum en Færey-
ingar í 40. Síðast léku liðin saman
á Evrópumeistaramótinu í Bern
árið 1980 og sigruðu íslendingar
þá 6—2.
í unglingaflokki hefur yfirleitt
verið leikið í tveimur flokkum, það
er í flokki eldri og yngri unglinga.
Nú verður hins vegar aðeins leikið
í einum flokki. í flokki eldri ungl-
inga hafa verið leiknir 6 leikir og
hafa íslendingar sigrað í þeim öll-
um og unnið 64 leiki en tapað 5. í
flokki yngri unglinga hafa íslend-
ingar sigrað þrisvar en Færey-
ingar einu sinni, en það var ein-
mitt þegar síðast var leikið, árið
1979 hér í Mosfellssveit, þá sigr-
uðu Færeyingar með 6—3. Má því
búast við góðu unglingaliði hjá
Færeyingum og spennandi leik.
Fram að þessu hafa Islendingar
unnið í 20 leikjum en Færeyingar í
13 leikjum.
Fararstjóri í ferðinni verður
Birkir Þór Gunnarsson og mun
liðið koma heim þann 13. janúar.