Morgunblaðið - 13.01.1982, Síða 3

Morgunblaðið - 13.01.1982, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 3 4. sept 1978 15% V 31. mars 1980 3% GengisfefHng 1 29maí 1981 3.85% 26 ágúst 1981 4.76% 10 nóv1981 6.50% í tíð vinstri stjórna frá 1978: Dollarinn hækkað um 213,9% gagnvart ísl. kr. Á VALDATÍMA Alþýðubandalags og Kramsóknarflokks frá haustinu 1978 hcfur gengi íslcnsku krónunnar verið breytt fimm sinnum formlega og þar af nýkrónunnar þrisvar. Sérstakt markmið cfnahagsaðgerða ríkisstjórnarinnar 31. desember 1980 var þó að styrkja nýkrónuna og stöðva gengisfellingar. Nýkrónan rýrnaði um 31% á sínu fyrsta ári. l*að þýðir, að hver króna hefur fallið úr 100 aurum í 69 aura. í áliti sjálfstæðismanna í fjár- veitinganefnd Alþingis segir með- al annars: „I bréfi Seðlabanka ís- lands frá 27. nóvember sl., segir svo orðrétt: Frá 1. ágúst 1978 til 24. nóvember 1981 hafa erlendir gjaldmiðlar vegið með landavog hækkað gagnvart ísl. krónu um 191,7%. A sama tímabili hefur gengi Bandaríkjadollars hækkað gagnvart ísl. krónu um 213,9%.“ Eins og öllum er ljóst, stefnir ríkisstjórnin nú að enn einni geng- islækkuninni. Grindavík: Skreið fótbrot- inn 2ja km leið (■rindavík, 12. janúar. IIM KL. 15.25 í gærdag tilkynnti vegfarandi um l’órkötlustaðahverfi í (•rindavík lögreglunni í Grindavík, að hann hefði fundið 15 ára pilt liggjandi á götunni á gatnamótum við Stafholt. Auðséð væri að hann væri slasaður, hann virtist hafa dreg- ist þangað um alllangan veg, það sýndi blóðferillinn í förum piltsins. Sjúkrabíll var kvaddur til og flutti piltinn, sem var mikið siasaður og brotinn á vinstra fæti, í Keflavíkurspítala og síðar í Borgarspítalann í Reykjavík þar sem aðgerð fór fram. Þetta mun hafa gerst með þeim hætti, að pilturinn, sem var próf- laus á léttu vélhjóli, illa búinn til vetraraksturs, var einn að leik í hlíðum svonefnds Bæjarfells fyrir austan býlið Hraun í Grindavík. Á leiðinni niður hlíðina, sem er nokkuð brött, mun hann, hafa misst stjórn á hjólinu, vegna snjó- og svellalags, ekið yfir grjótruðn- ing og stóra staksteina og kastast á hjólinu í loftköstum og virðist hafa lent undir því með vinstri fót á stórum steini þar sem hjólið stöðvaðist. Þarna var engin umferð og pilt- 1NNLEN1T -r «* llmmerki á slysstað, en talið er að pilturinn hafi lent undir hjólinu. urinn hefur tekið það ráð eftir að hann losnaði af hjólinu að draga sig fótbrotinn eftir snjó- og svella- laginu upp á veginn og að býlinu Hrauni, þar upp háar tröppur, en þar var enginn heima og hann sneri við og skreið aftur af stað niður veginn að gatnamótum við bæinn Stafholt, alls rúma 2 km. Blóðferill úr sárum piltsins sýndi leiðina sem hann fór. Þykir með eindæmum hugrekki og þrek þessa pilts að dragast þannig slasaður alla þessa leið eftir frosinni jörð. Guðfinnur. Gjaldeyrisdeildir bank- anna lokaðar í átta daga - Gengi síðast skráð fyrir 12 dögum TOLK IIAGAK eru nú liðnir frá því gengi íslenzku krónunnar var síðast skráð hér á landi, og gjaldeyrisdeildir bankanna hafa verið lokaðar í átta daga, nema hvað nauðsynlegar yflrfærslur hafa fengizt, gegn því, að viðkomandi hafi greitt 15% aukagjald ofan á hina raunverulegu upphæð, sem síðan verður gert upp þegar nýtt gengi verður skráð. Iljá Olafi Tómassyni, hagfræðingi í Seðlabanka íslands, fengust þær upplýs- ingar, að alls ekki væri einsdæmi, að gjaldeyrisdeildir bankanna væru lokaðar einhverja daga í kringum gengisbreytingar, t.d. hefðu liðið 19 dagar frá því síðast var skráð gengi 3. febrúar 1960, þar til nýtt gengi var skráð 22. febrúar. Arið 1961 var gengi síðast skráð 2. ágúst, en nýskráning kom 4. ágúst og var gengið þá fellt um 11,6%. Árið 1967 var svo gengi íslenzku krónunn- ar fellt um 24,6% og var það síðast skráð fyrir fellingu 19. nóvember, en nýskráning kom 27. nóvember. Ári síðar var svo gengið fellt um 35,2%, en þá var gengi síðast skráð 10. nóv- ember og nýskráning kom daginn eftir, eða 11. nóvember. Árið 1972 var gengið fellt um 10,7% og var það síðast skráð 15. desember og nýskráning kom 20. desember. Gengið var svo aftur fellt ári síðar um 10%, en þá var það síð- ast skráð 9. febrúar og nýskráning kom 15. febrúar. Árið 1974 var gengi íslenzku krón- unnar tvívegis fellt, fyrst um 4%, en þá var gengi síðast skráð 17. maí og nýskráning kom reyndar sama dag og síðan um 17%, en þá var síðasta skráning 21. ágúst og nýskráning kom 2. september. Árið 1975 var gengið fellt um 20% og var það síðast skráð 11. febrúar og nýskráning kom aftur 14. febrúar. Síðan liðu þrjú ár þar til formleg gengisfelling var aftur framkvæmd, en það var árið 1978, tvívegis. í fyrra skiptið um 13%, en þá var gengi síð- ast skráð 4. febrúar og nýskráning kom 10. febrúar og aftur um 15% og var gengi þá síðast skráð 26. ágúst og nýskráning kom 6. september. Næsta gengisfelling kom svo árið 1980 og var gengið þá fellt um 3%. Síðasta skráning fór fram 31. marz og nýskráning kom reyndar sama dag. Á síðasta ári var gengi krón- unnar svo fellt í þrígang. Fyrst um 3,85% og fór síðasta skráning þá fram 27. maí, en nýskráning kom aftur 29. maí. Síðan var gengið fellt um 4,7% og þá var síðasta skráning 25. ágúst og nýskráning kom daginn eftir, eða 26. ágúst. Síðasta gengis- fellingin var svo 9. nóvember sl., en þá var gengið fellt um 6,5% og nýskráning kom 10. nóvember. I ofangreindri upptalningu hefur aðeins verið minnst á formlegar gengisfellingar, en ekki sig og aðrar breytingar, sem orðið hafa á þessu liðlega 20 ára tímabili. Lítið að gera í gjaldeyrisdeildum bankanna. i.jósm. Mbi. 1- ■ % argMi I I IVllll'15' l|l n i WBBBi ■ >1 facfe 1 li' IH ■1 k (• •• 1 11 wnnwmrm 1 1 Æ 'L‘e' i f-íH 1 4fpf

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.