Morgunblaðið - 13.01.1982, Síða 12

Morgunblaðið - 13.01.1982, Síða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 13. JANÚAR 1982 Hrólfur Jónsson varaslökkviliðsstjóri: „Vona starfið bara að sam- yerði gott“ HKOLFUR Jónsson, byggingatækni- Træðingur, hefur verið ráðinn vara- slökkvilidsstjóri við Slökkviliðið í Keykjavfk, en einhverrar gagnrýni hefur gætt meðal slökkviliðsmanna út af veitingu hans í embættið. Blm. Morgunblaðsins hitti Hrólf að máli í gær en hann hefur unnið við slökkvi- liðið í um eitt og hálft ár og gengt starfi varaslökkviliðsstjóra í fjögurra mánaða veikindaforróllum hans. Kinnig hefur Hrólfur farið á yfir mannanámskeið til Danmerkur sl. vetur og lokið þar prófum. „Það ætti ekki að koma neinum á óvart," sagði Hrólfur, „að ég skuli hafa fengið veitingu í þetta emb- ætti. Hér á stöðinni vissu allir að ég stefndi á það þegar ég hóf hér störf. Það segir í lögum um brunavarn- ir frá 1969 að sá sem veitir bruna- málastofnuninni forstöðu skuli annað hvort vera verkfræðingur eða tæknifræðingur. Einnig segir í brunamálasamþykkt að bæði slökkviliðsstjóri og varaslökkvi- liðsstjóri skuli hafa lokið verk- fræði- eða húsameistaranámi, en starfsheitið húsameistari er ekki lengur notað í dag. Eg tel því að það hefði þurft að fá undanþágu ef maður, sem ekki hefði þessa menntun sem kveðið er á um, hefði farið í þetta. En það er vissulega Borgarráðs að ákveða hverjir fá embættið og þróunin hefur orðið sú á undan- förnum árum að menn með lang- skólanám eru frekar ráðnir til ábyrgðarmeiri stjórnunarstarfa. Það er farið að minnka að menn gangi upp til stærri stjórnunar- starfa hjá liðinu, þ.e.a.s. að menn byrji sem brunaverðir og endi sem slökkviliðsstjórar. Auðvitað er reynsla hinna um- sækjendanna til staðar hjá liðinu og ég vænti þess að samstarfið við þá verði gott og að við bökkum hver annan upp. Ég held að það sé alls ekki verið að gera lítið úr þessari stöðu þó menn sem hafi unnið hér lengi hafi ekki verið valdir til að gegna henni. Ég hef ekki orðið var við óánægju innan liðsins þó það sé ekki þar með sagt að hún sé ekki fyrir hendi, en eins og ég segi þá vona ég bara að samstarfið hér hjá liðinu verði gott um ókomna fram- tíð,“ sagði Hrólfur Jónsson vara- slökkviliðsstjóri að lokum. Hinn nýi varaslökkvilidsstjóri Slökkviliðsins f Reykjavík, Hrólfur Jónsson. Sævar Jóhannesson slökkyilidsmaður: Oánægjan beinist frekar að Rúnari en Hrólfi „MESTA óánægjan hjá okkur slökkviliðsmönnum er nátlúrulega vegna þess, að gengið skuli fram hjá þeim sem hafa unnið mjög lengi á stöðinni og hafa öðlast þá mennt- un í starfi og reynslu sem þarf,“ sagði Sævar Jóhannesson, fulltrúi slökkviliðsmanna í fimmtu deild STRV (Starfsmannafél. Reykjavík- ur), en það er deild slökkviliðs- manna. „Við viljum taka það skýrt fram að óánægja okkar beinist alls ekki að nýráðnum vara- slökkviliðsstjóra Hrólfi Jónssyni heldur miklu frekar að Rúnari Bjarnasyni slökkviliðsstjóra, en hann byggði sín meðmæli með Hrólfi á lögum frá 1953 sem kveða á um vissa menntun í þetta embætti. Þau lög gilda bara ekki lengur því í seinni lögum frá 1969 stendur ekkert um menntun. Rúnar hundsaði algerlega menn með langa starfsreynslu og neitaði jafnvel að gefa þeim með- mæli þegar þeir báðu um þau, en gaf svo Hrólfi Jónssyni sín með- mæli,“ sagði Sævar. Hitaveita Reykjavíkur: Vatnsgeymarnir orðn- ir fullir af vatni aftur Heitavatnsgeymar Hitaveitu Reykjavíkur voru fullir af vatni á mánudagsmorgun, en þeir nánast tæmdust í kuldum þeim sem hér hafa verið undanfarið, og hætt er að kynda vatnið. Sagði Gunnar Kristinsson yfirverkfræðingur hjá hitaveitunni að veitan stæði ágætlega núna með vatni en ef yrði aftur mjög kalt og það myndi vara lengi, þá lentu þeir í sömu sporum og áður. Hjörleifur Guttormsson: Enn ekkert ákveðið með hækkunarbeiðn- ina frá hitaveitunni „ÞAD hefur ekki enn verið lagl mat á hækkunarbeiðnina frá llitaveitu Keykjavfkur, en hún er í athugun,“ sagði Hjörleifur Guttormsson iðnað- arráðherra í samtali.við Mbl. er hann var inntur eftir því hvort beiðn- in yrði veitt. Hjörleifur sagði það vera rétt- mæta gagnrýni að hitaveitan væri eini mælikvarðinn á húshitun í landinu og að vísitala stæði í vegi fyrir gjaldskrárhækkun. Það væri ekki farsælt til lengdar. Best væri ef tekin yrði upp víðtækari við- miðun á húshitun í sambandi við vísitölu og hitaveitan yrði ekki það eina sem notað yrði til viðmið- unar. Aðspurður um álit hans á þeirri skoðun Sigurjóns Péturssonar, oddvita vinstri meirihlutans í borgarstjórn, að verðlagsstefna stjórnvalda væri orsökin fyrir erf- iðleikum hitaveitunnar, sagðist hann ekki vilja leggja mat á það. Færa mætti rök að því og rekja það til mismunandi ástæðna. Hann sagðist vera þeirrar skoðun- ar að ná ætti verðlaginu á orku í landinu á eðlilegan kostnaðarleg- an grundvöll, þannig að hver veita hefði upp í eðlilegan kostnað til viðhalds og endurbóta og veitunn- ar næðu eðlilegum jöfnuði á milli Hitaveita Reykjavíkur hefur nýverið sótt um 45 prósent hækkun á gjaldskrá sinni en Gunnar sagði það frekar lágt þegar á allt væri litið og þyrfti 75 til 80 prósent hækkun ef koma ætti í veg fyrir að það ástand, sem var í kuldunum, skapaðist aftur. 45 prósent hækkunarbeiðnin, sem nú ligg- ur fyrir, er ætluð til að rétta við stöðu Hitaveitu Reykjavík- ur á nokkrum árum. Megnið af þeim framkvæmdum, sem hita- veitan stendur í á þessu ári, hefði átt að vera búið að fram- kvæma í fyrra en þá var það ekki hægt vegna fjárskorts. Það eru, að sögn Gunnars Kristjánssonar, þrjú atriði sem liggur á að framkvæma svo hægt sé að starfrækja hitaveit; una með eðlilegum hætti: I fyrsta lagi að bora meira eftir heitu vatni og virkja holurnar, setja á þær dælur og byggja dæluhús og koma vatninu á markað; í öðru lagi að vinna að skynsamlegri og eðlilegri endurnýjun á dreifikerfi hita- veitunnar en kerfið er sum- staðar gamalt og úr sér gengið; í þriðja og síðasta lagi þyrfti að auka rannsóknir á hitasvæðum svo hægt sé að vita í tíma hvort borgi sig að virkja svæði sem álitleg eru, því lítið vit væri í að treysta á svæði sem lítið er vitað hvað getur gefið af sér. Gunnar sagði að það væri fyrirsjáanlegt að þau, svæði sem heitavatnið nú kemur frá, verði þurrausin eftir fimm til sjö ár en þegar vatnið þrýtur er ekki vitað hvaðan helst væri að fá heitt vatn, og er það vegna þess hve litlu hefur verið veitt til rannsókna. Davíð Qddsson, borgarstjómarfulltrúi: Sýnir hróplega eymd stjórnvalda hvernig komið er fyrir hitaveitunni „ÞAÐ sýnir hróplega eymd stjórn- valda, jafnl ríkis og borgar, að láta jafn arðsamt fyrirtæki og Hitaveita Reykja- víkur er, komast í jafn bullandi þrot,“ sagði Davíð Oddsson, borgarstjórnar- fulltrúi Sjálfstæðisflokksins og oddviti sjálf.stæðismanna í borgarstjórn er Mbl. innti hann eftir viðbrögðum Hans við þeim fjárhagskröggum sem hita- veitan hefur átt við að stríða og hefur leitt til þess að litlu munaði að taka þyrfti upp skömmtun á heitu vatni til borgarbúa. „Hitaveita Reykjavíkur er fyrir- tæki sem um langan aldur," sagði Davíð Oddsson ennfremur, „hefur skilaö þjóðarbúinu mjög miklum arði og er eitt hagkvæmasta fyrir- tæki í þeim efnum hér á landi. Ég tel að stjórnendur Reykjavíkurborgar hafi ekki sinnt sem skyldi þörfum hitaveitunnar og fylgt mjög slælega eftir beiðnum og baráttumálum hennar. Hitaveitustjóri og aðrir for- svarsmenn hitaveitunnar hafa fyrir langa löngu vakið ótæpilega athygli á því í hvert óefni stefndi með hita- veituna og það varð meðal annars til þess að við sjálfstæðismenn óskuð- um eftir því að haldinn yrði sameig- inlegur fundur þingmanna og borg- arfulltrúa Reykjavíkur þar sem gerð yrði grein fyrir vanda hitaveitunnar. A þeim fundi veittist formaður þingflokks Alþýðubandalagsins, Ólafur R. Grímsson, af mikilli hörku að hitaveitustjóra og sakaði hann um að fara með talnalegar falsanir, þegar hann væri að gera grein fyrir málefnum veitunnar. Þeir sem bera mesta ábyrgð á stjórn Reykjavíkur- borgar nú, illu heilli, flokksbræður Ólafs R., gerðu ekkert til þess að verja stjórnanda hitaveitunnar fyrir þessum óbilgjörnu árásum og hafa næsta lítið gert til þess að sjá mál- efnum veitunnar borgið. Hitaveita Reykjavíkur hefur reynt að halda í horfinu en ekki getað lagt grunn að því að sjá fyrir framtíðar- vatnsþörf Reykvíkinga vegna fjár- skorts, og því eru framtíðarhorfur eins dökkar og raun ber vitni. Það er fráleitt að heyra sjálfan viðskipta- ráðherra segja í fjölmiðlum að að- förin að Hitaveitu Reykjavíkur sé farin í þeim tilgangi einum að falsa mælistiku vísitölunnar í landinu. Ég tel fullvel koma til álita sem nauðvörn fyrir hitaveituna að hafa stjórnvaldsfyrirmælin, sem nú er viðurkennt að byggð séu á vísitölu- fölsunum, að engu og tryggja tekjur veitunnar með einhliða aðgerðum," sagði Davíð Oddsson að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.