Morgunblaðið - 19.03.1982, Page 10

Morgunblaðið - 19.03.1982, Page 10
42 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982 HVAD ER AD GERAST UM HELGINA? Nýstárleg sýning í gróðurhúsi Um þessa helgi verður opnuð nýstárleg skreytingasýning í gróðurhúsi Blómavals, þar sem unnið er úr fjölbreyttu úrvali alls kyns þurrkaðra plöntuhluta: blóma, blaða og jafnvel róta. Hollenskur skreytingalistamaður, Berty Mur, annast uppsetningu sýningarinnar og vinnur skreytingarnar ásamt skreytinga- fólki staðarins. Sýningin verður opnuð á morgun, laug- ardag 20. marz, og stendur til sunnudags, 28. marz. 21.00. Þetta er liður í hinni árlegu Jóhann- esarvöku sem haldin er í tengslum við árshátíð skólans. Tónleikar í Háskólabíói Hljómsveit og lúðrasveit Tónmennta- skóla Reykjavíkur ásamt unglingadeild lúðrasveitarinnar Svansins halda tónleika í Háskólabíói á morgun, laugardag 20. mars, kl. 2 e.h. Efnisskráin er fjölbreytt og er aðgangur ókeypis og öllum heimill. Listavaka Árbæjarsafnaðar Annað kvöld, laugardagskvöldið 20. mars, efnir Fjáröflunarnefnd Árbæjar- safnaðar til listavöku til ágóða fyrir vænt- anlega kirkjubyggingu í Árbæjarsókn á vori komanda. Verður listavakan haldin í hátíöarsal Árbæjarskóla og hefst kl. 20.00, húsið opnað kl. 19.30. Samkoman hefst með ávarpi sóknarprestsins sr. Guðmund- ar Þorsteinssonar. Þá mun Lúðrasveit Árbæjar og Breiðholts leika undir stjórn Ólafs L. Kristjánssonar. Skólakór Árbæj- arskóla syngur undir stjórn Jóns Stefáns- sonar og Áslaugar Bergsteinsdóttur. Ómar Ragnarsson fréttamaður flytur skemmti- þátt. Kristinn Hallsson syngur einsöng við undirleik Krystyna Cortes, Kjartan Ragn- arsson leikritaskáld les upp og Ketill Lar- sen leikari skemmtir. Kynnir á samkom- unni verður Bryndís Schram og annast hún jafnframt köku- og bögglauppboð. Málþing um notkun kvikmynda í kennslu Henrik Jul Hansen, ritstjóri danska kvikmyndatímaritsins „Levende Billeder“,i heldur fyrirlestur í Norræna húsinu á veg- um dönsku félaganna föstudaginn 19. mars kl. 20.30 og nefnist hann „Dansk TV-underholdning í dag“. Á morgun, laugardaginn 20. mars, stýrir hann málþingi í Norræna húsinu á vegum Félags dönskukennara um notkun kvik- mynda í kennslu. Hefst það kl. 9 um morg- uninn. Sunnudaginn 21. mars kl. 16.00 heldur Henrik Jul Hansen fyrirlestur í Norræna húsinu og talar um danskar kvikmyndir í dag. Þursaflokkurinn á heimavelli Þursaflokkurinn leikur á sínum eigin heimavelli í Menntaskólanum við Hamra- hlíð mánudaginn 22. mars og kynnir hina nýútkomnu plötu sína og verður hún einn- ig seld árituð og með afslætti. Tónleikarn- ir verða í hátíðarsal MH og hefjast kl. Einsöngs- og kórtónleikar Ragnheiður Guðmundsdóttir og Kór Tónlistarskólans í Njarðvík halda tónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju á morgun, laug- ardag 20. mars, kl. 16.00, i Samkomuhús- inu Sandgerði sunnudag 21. mars kl. 14.00 og í Tónlistarskólanum Seltjarnarnesi sunnudag kl. 17.30. Á söngskránni er blandað efni, íslenskt og erlent. Kórinn hefur verið virkur í vetur og er meðal annars stefnt að öðrum tón- leikum og söngferðalögum í vor. Á mynd- inni má sjá stjórnanda Kórs Tónlistar- skólans í Njarðvík, Gróu Hreinsdóttur, og er hún jafnframt undirleikari á tónleikun- um. Leikfélag Reykjavíkur: Þrjár sýningar eftir á ROMMÍ í kvöld, föstudagskvöld, er bandaríska leikritið ROMMÍ á fjölunum í Iðnó, en nú eru aðeins eftir 3 sýningar á verkinu. Þau Gísli Halldórsson og Sigríður Hagalín leika þar roskið fólk á elliheimili, sem styttir sér stundir við að spila rommí og kynnist þannig æ betur. Leikritið hefur verið sýnt yfir 130 sinnum. Leikstjóri er Jón Sigurbjörnsson. Annað kvöld, laugardagskvöld, er 53. sýning á JÓA Kjartans Ragnarssonar. Jó- hann Sigurðarson fer með titilhlutverkið, en með önnur stærstu hlutverk fara Sig- urður Karlsson og Hanna María Karls- dóttir. í Austurbæjarbíói er miðnætursýning á revíunni SKORNUM SKOMMTUM annað kvöld, laugardagskvöld, og mun það næst- síðasta sýning. Revían hefur nú verið sýnd 55 sinnum og hafa yfir 20 þúsund manns séð sýninguna. Þeir Jón Hjartarson og Þórarinn Eldjárn eru höfundar, en mikill fjöldi söngva er í sýningunni, bæði ný og gömul lög. í hlutverkunum eru flestir helstu leikarar Leikfélagsins. Á sunnudagskvöld er 17. sýning á SÖLKU VÖLKU Halldórs Laxness og hef- ur verið uppselt á allar sýningar til þessa. í hlutverkum mæðgnanna Sölku og Sigur- línu eru Guðrún Gísladóttir og Margrét Helga Jóhannsdóttir. Leikstjóri er Stefán Baldursson, leikmynd eftir Þórunni S. Þorgrímsdóttur og tónlist samdi Áskell Másson. Textílsýning á Akranesi Sýning á vegum Textílfélagsins verður opnuð sunnudaginn 21. marz kl. 15 i Fjöl- brautaskólanum á Akranesi. Þær sem taka þátt í þessari sýningu eru Auður Vé- steinsdóttir, Hólmfríður Bjartmarsdóttir, Guðrún Auðunsdóttir, Guðrún Gunnars- dóttir og Sigrún Guðmundsdóttir. Við opnun sýningarinnar mun skólakór Fjölbrautaskólans syngja undir stjórn Jensínu Waage og sjá um kaffiveitingar til ágóða ferðasjóði kórsins, en kórinn mun halda í sína fyrstu utanlandsferð til Nor- egs í sumar. Sýning Textílfélagsins er opin á skóla- tíma, en laugardag og sunnudag frá kl. 16—20. Sýningunni lýkur sunnudaginn 28. marz. Háskólafyrirlestrar Dr. Z.A. Pelczynski, kennari í stjórn- málafræði í Oxford-háskóla, flytur tvo opinbera fyrirlestra í boði heimspekideild- ar Háskóla íslands nú um helgina. Fyrri fyrirlesturinn fjallar um frelsishugtakið í heimspeki Hegels og nefnist: „Freedom and Community in Hegel’s Political Philo- sophy“. Verður hann fluttur á morgun, laugardag 20. mars, kl. 15.00 í stofu 101 í Lögbergi. I siðari fyrirlestrinum fjallar dr. Pelczynski um aðdragandann að setningu herlaga í Póllandi. Nefnist hann: „What went wrong in Poland?" og verður fluttur á sunnudag, 21. mars, kl. 14.00 í hátíðasal háskólans. Dr. Pelczynski er af pólskum uppruna, en hann hefur einkum fengist við þýska hugmyndasögu og er vel þekktur fyrir rit- gerðir um stjórnmálaheimspeki Hegels. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku. Öllum er heimill aðgangur. „Skýin“ frumsýnd á Akureyri Sunnudaginn 21. mars kl. 20.30 frum- sýnir LMA gamanleikinn „Skýin" eftir Ar- istofanes í Samkomuhúsinu á Akureyri. Þetta er í fyrsta sinn sem þetta verk er sýnt á Íslandi, þó rúm 2000 ár séu liðin síðan Grikkinn samdi það. Karl Guðmundsson leikari er þýðandi, en hann hefur m.a. þýtt „Don Kíkóte" og „Sköllóttu söngkonuna". Andrés Sigur- vinsson er leikstjóri, en þetta er fjórða menntaskólasýningin sem hann leikstýrir. Áður hjá MH „Sköllótta söngkonan", „Vatzlav" og hjá Herranótt í fyrra „Ys og þys“ Shakespeares. Gerð leikmynda, búninga, leikhljóöa auk tónhljóða er verk hópsins sem telur um 40 manns. Lýsingu hannar Lárus Björnsson. „Skýin“ snúast um brölt bónda karlsins Strepsiadesar og sonar hans að leit „pat- ent“ lausnar, gegn blankheitum. Þeir fara báðir í nám hjá froðusnakknum Sókratesi sem ásamt lærisveinum sínum rekur hug- arvinnustöð. Misvel gengur þeim að temja sér „gaparabbs" hugarþel og visku meist- arans. Þeir komast í kynni við hinn nýja hugsunarhátt og hinn gamla — Órétt og Rétt, kóraský sem reynast vera hinar mestu þokkagyðjur og Hermes, sendiboða guðanna, en hann hefur ákveðin fyrirmæli bónda til handa. Sýningar geta aðeins staðið í eina viku á Akureyri og verða auk frumsýningar 23., 24., 25. og 26. mars, en föstudaginn 26. mars verða tvær sýningar, hin fyrri hefst kl. 20.30 eins og allar hinar, en hin síðari, miðnætursýning, hefst kl. 23.30. LMA hyggst sýna í Kópavogi 28. og 29. mars nk. kl. 20.30. Einnig er fyrirhugað að sýna á Húsavík eftir mánaðamót. Þess má geta til gamans, að „Lýsistrata" sem Brynja Benediktsdóttir setti upp fyrir nokkrum árum, er einnig eftir Aristofanes og að „Skýin" er ein þriggja heimilda, sem til eru um karlinn Sókrates. V ítt og breitt Sæbjörn Valdimarsson Sú mynd sem hvað mesta athygli og aðsókn hefur vakið á nýbyrjuöu ári er tvimælalaust Quest for Fire — Leitin að eldinum sem til stóð aö yrði tekin hérlendis að hluta, á sínum tíma. Þessi ævintýramynd sem á að gerast fyrir örófi alda, mætti flokkast undir vísinda-fantasíu. Quest for Fire þykir með þeim frumlegri sem sést hefur lengi og að auki hefur ekkert verið til hennar sparað, tæknileg gæði lofuð uppí há- stert. Tónlistin þykir afar áhrifamikil í vandaöri Dolby upptöku. Mér er það því sönn ánægja að upplýsa lesendur um að þessi umtal- aða mynd verður frumsýnd hérlendis 10. næsta mánaöar í Háskólabíó, sem státar nú af mjög svo endur- bættum Dolby-tækjum sem jafnast á við það besta erlendis. í batnandi hemi er best aö lifa. Fyrir áratug eöa svo, hefði það þótt óhugsandi aö mynd af þessari stærðargráðu yrði frumsýnd á sama degi hér og í West End og að öllum líkindum skýtur Háskólabíó öörum kvikmyndahúsum á Norðurlöndum ref fyrir rass. Universal-kvikmyndaverið (umboð hérlendis hefur Laugarásbíó), kynnti fyrir skömmu þær myndir sem það frumsýnir á þessu ári. Kennir þar að sjálfsögöu margra, góðra grasa. Fyrst skal fræga nefna nýjustu mynd Costa-Gavras, Missing, sem jafn- framt er fyrsta kvikmyndln sem hinn kunni, gríski leikstjóri gerir vestan hafs. Myndin er hápólitísk, líkt og margar fyrri myndir leikstjórans (Z, The Confession, State of Siege), hér fjallar hann um íhlutun Ðanda- rikjamanna í málefni Chile. Myndin er byggö á sannsögulegum heimildum. Sissy Spaceck og einkum Jack Schwarzenegger ásamt frföu föruneyti í Conan Villimaöur Lemmon, hafa hlotiö geysilegt lof fyrir frammistööu þeirra í aöalhlut- verkum myndarinnar. Míssing var frumsýnd i síðasta mánuöi í New York. Jack Nicholson er sagöur í topp- formi í nýfrumsýndri mynd geröri af Tony Richardson, er nefnist The Border. Nicholson fer hór með hlut- verk varöar á landamærum USA og Mexico og með önnur meginhlut- verkin fara Harvey Keitel, Valerie Perrine og Warren Oates. Góökunningi okkar Morgunblaðs- lesenda, Conan Villimaður, hefur nú verið festur á filmu með miklum til- þrifum og fjármagni. Með hlutverk svaðamennisins fer enginn annar en vöövafjalliö Arnold Schwarzenegger en honum til fulltingis eru m.a. James Earl Jones og Max Von Sydow. Myndin, sem frumsýnd verður í sumar, er leikstýrð af John Milius sem jafnframt skrifaði handritiö. Willie kempan Nelson og Gary (Buddy Holly) Busey, eru sagöir fara á kostum í vestranum Barbarossa, sem þykir bæði óvenjulegur og vel geröur enda er leikstjórnin í höndum eins hins kunnasta af Áströlsku ný- bylgjumönnunum, Fred Schepsi, sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.