Morgunblaðið - 19.03.1982, Side 11

Morgunblaðið - 19.03.1982, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982 43 Tónleikar í Háteigskirkju Sunnudaginn 21. mars verða haldnir tónleikar í Háteigskirkju. Flutt verða: Rhapsodie fyrir altrödd, karlakór og hljómsveit, „Nánie“, harmljóð eftir Brahms, „Der Geist hilft unser Schwach- heit auf“, mótetta fyrir tvo fjórraddaða kóra eftir Bach. Flytjendur eru: Rut Magnússon, Kór og Hljómsveit Tónlist- arskólans í Reykjavík. Stjórnandi: Mart- einn H. Friðriksson. Tónleikarnir hefjast kl. 17 og er aðgangur ókeypis. Kynning á grafík og grafískum aöferöum Kynning Ingibergs Magnússonar á graf- ík og grafískum aðferðum sem fram fór í Gallerí Lækjartorgi síðastliðinn sunnudag verður endurtekin nk. sunnudag kl. 15.00 og um leið fest á filmu, en galleríið og Handmenntaskóli íslands vinna sameig- inlega að gerð þáttar um sýningu Ingi- bergs. Tilgangurinn er sá, að í framtíðinni verði hægt að fá þær sýningar sem haldn- ar eru í Gallerí Lækjartogri á myndbönd- um og skapa þannig aukna möguleika á kynningu þeirra listamanna sem í gallerí- inu sýna og gera landsmönnum auðveldara að fylgjast með því sem er að gerast í myndlistarlífinu hverju sinni. Sýningu Ingibergs lýkur nú um helgina, en yfir 20 myndir hafa þegar selst. Opið er virka daga kl. 10.00 til 18.00, laugard. 14.00 til 18.00 og sunnudaga 14.00 til 22.00. Fyrirlestur í guðfræðideild HÍ Mánudaginn 22. mars heldur prófessor William Swatos frá Bandaríkjunum al- mennan fyrirlestur í guðfræðideild Há- skóla Íslands. Efni fyrirlestrarins er: Sam- ræðurnar milli lúthersku kirkjunnar og biskupakirkjunnar í Bandaríkjunum. Prófessor Swatos dvelst hér á landi á vegum Fulbright-stofnunarinnar og gegn- ir kennslu við guðfræðideild þetta misseri. Hann tilheyrir amerísku biskupakirkj- unni. Fyrirlestur próf. Swatos verður í stofu V og hefst kl. 10.15. 30. sýning á Sígaunabaróninum í kvöld, föstudag 19. mars, verður 30. sýning íslensku óperunnar á Sígaunabar- óninum eftir Jóhann Strauss. Uppselt hef- ur verið á allar sýningar til þessa. Páll Pampichler Pálsson tók við hljómsveitarstjórn af Robin Stapleton á 22. sýningu. 1 aðalhlutverkum eru m.a. Anna Júlíana Sveinsdóttir, Garðar Cortes, Halldór Vilhelmsson og Ólöf Kolbrún Harðardóttir, ásmt kór og hljómsveit ís- lensku óperunnar. Sýningar nú um helgina verða: Föstudag kl. 20.00, laugardag kl. 16.00 (ath. breyttan sýningartíma) og sunnudag kl. 20.00. Kópavogsleikhúsiö: „Aldrei er friður“ í næstsíðasta sinn Á laugardagskvöld kl. 20.30 verður átt- unda sýning á „Leynimel 13“ eftir Þrí- drang, í nýrri leikgerð Guðrúnar Ás- mundsdóttur. Jón Hjartarson samdi söngtexta við stríðslög, sem Magnús Pét- ursson leikur á píanó. Á sunnudaginn kl. 15.00 sýnir Kópavogsleikhúsið „Aldrei er friður", eftir Andrés Indriðason. Fer hver að verða síðastur að sjá þetta fjölskyldu- leikrit, því það verður sýnt í næstsíðasta sinn. Miðasala er opin frá kl. 17.00 til 20.30 virka daga og frá kl. 13.00 til 15.00 sunnu- daga. Ferðafélag íslands: Skíðaganga frá Bláfjöllum í Grindaskörð Kl. 11 f.h. sunnudaginn 21. marz verður skíðaganga frá Bláfjöllum í Grindaskörð, meðfram Lönguhlíð í Vatnsskarð. Kl. 13 á sunnudaginn verður gönguferð frá Vogum um Vogastapa til Njarðvíkur. Á þessari leið er mikið um rústir frá eldri byggð, en útræði var mikið frá þessu svæði fyrr á tímum. Þetta er létt ganga fyrir alla fjölskylduna. í dag, föstudag 19. marz, kl. 20 verður farin helgarferð upp í Borgarfjörð. Gist er í Kleppjárnsreykjaskóla, þar sem er góð aðstaða. Á laugardag er fyrirhuguð skíða- ganga á OK eða annað eftir aðstæðum. Bíllinn verður til taks að aka farþegum áleiðis í skíðagönguna. Nauðsynlegt er að hafa gönguskíði og hlýjan fatnað í þesSa ferð. Þjóðleikhúsið: Uppselt á allar sýningar helgarinnar í kvöld, föstudagskvöld, verður 5. sýning á ballettinum Giselle og er uppselt á hana og gilda blá aðgangskort. Á sunnudags- kvöldið verður 6. sýningin og er einnig uppselt á hana, en hvít aðgangskort gilda þá. 7. sýningin á Giselle verður hinsvegar kl. 14.00 síðdegis á sunnudag og gilda þá ljósbrún aðgangskort. Síðasttöldu sýning- unni var bætt á dagskrána er uppselt var orðið á hinar sýningarnar. María Gísladóttir, sem er aðaldansari við ballettinn í Wiesbaden, mun dansa tit- ilhlutverkið á þessum sýningum og Helgi Tómasson dansar hlutverk Albrechts. Áð öðru leyti er hlutverkaskipan óbreytt. Barnaleikritið Gosi verður sýnt í 25. sinn á laugardag kl. 14.00 og er aðeins þessi eina sýning á stykkinu um þessa helgi. 12.000 áhorfendur hafa þegar séð þessa sýningu og þegar er uppselt á laug- ardaginn. Amadeus eftir Peter Shaffer nýtur vin- sælda og er jafnan uppselt á sýningarnar og svo er einnig nú á laugardagskvöldið. Nokkrar breytingar eru orðnar á upphaf- legri hlutverkaskipan. Andri örn Clausen tekur nú við hlutverki „Venticelli" af Sig- urði Skúlasyni, en áður höfðu Sigríður Þorvaldsdóttir og Kristján Viggósson tek- ið við af Bryndísi Pétursdóttur og Jóni S. Gunnarssyni. Sigurður Skúlason er á för- um til frekara náms í Finnlandi, en þau Bryndís og Jón leika um þessar mundir í Kisuleik, sem gengur við miklar vinsældir á Litla sviðinu. Útivist Húsafell — Ok í kvöld klukkan 20.00 fer Útivist helgar- ferð að Húsafelli í Borgarfirði. Fyrirhugað er að ganga á Ok á skíðum. Einnig verða farnar styttri gönguferðir um nágrenni Húsafells. Á Húsafelli er eins og kunnugt er gistiaðstaða, sundlaug, hitapottur og saunabað. Kvöldvaka með Útivistartrukki. Fararstjóri Kristján M. Baldursson. Á sunnudag kl. 13.00 fer Útivist í göngu- ferð að Tröllafossi og nágrenni. Tröllafoss er nú í klakaböndum og hinn mikilúðleg- asti á að sjá. Á sunnudag kl. 13.00 fer Útivist einnig í skíðagönguferð á Mosfellsheiði. Farar- stjóri Þorleifur Guðmundsson. í Útivistarferðir eru allir velkomnir, jafnt félagar sem aðrir. í allar ferðirnar er farið frá BSÍ að vestanverðu. Þriðjudaginn 23. marz kj. 20.30 verður Útivistarmyndakvöld að Ásvallagötu 1. Sýndar verða myndir frá Útivistarsvæðinu Reykjanesfólkvangi sem félagið kynnir sérstaklega á þessu ári. Allir velkomnir. Árnesingakórinn og Samkór Selfoss Árnesingakórinn í Reykjavík og Samkór Selfoss halda sameiginlega tónleika á morgun, laugardag 20. mars. Tónleikarnir verða haldnir í sal Menntaskólans við Hamrahlíð og hefjast kl. 17.00. Samstarf þessara tveggja kóra hófst með samsöng í Reykjavík 1980, en síðan á síðasta ári á Selfossi, svo segja má, að samsöngur sé orðinn fastur liður í starf- semi kóranna. Efnisskrá verður fjölbreytt, og má þar nefna þjóðlög frá ýmsum löndum og lög eftir Árnesinga, svo sem Pálmar Þ. Eyj- ólfsson, Pál ísólfsson og Sigurð Ágústsson, og munu kórarnir flytja saman m.a. nýlegt verk eftir Sigurð Ágústsson, Jörfagleði við ljóð Davíðs Stefánssonar. Formaður Ámesingakórsins er Hjördís Geirsdóttir og Samkórs Selfoss Guðrún Guðnadóttir. Stjórnendur eru Guðmundur Ómar Óskarsson og Björgvin Valdimars- son. Einsöngvari með Samkór Selfoss er Júlíus Vífill Ingvarsson. Undirleikarar eru þær Kolbrún Oskarsdóttir og Geirþrúður Bogadóttir. Alþýðuleikhúsið: Don Kíkóti frumsýndur í dag, föstudag, kl. 14.00 verður sýnt leikritið „Súrmjólk með sultu“ í Hafnar- bíói. Þá um kvöldið kl. 20.30 verður frum- sýning á leikritinu Don Kíkóta, eða Sitt- hvað má Sánki þola. Á laugardagskvöld verður svo sýning á leikriti Vitu Andersen, „Elskaðu mig“, en það er næstsíðasta sýn- ing. Á sunnudaginn kl. 15.00 verður aftur sýnt leikritið „Súrmjólk með sultu“ og um kvöldið kl. 20.30 verður önnur sýning á Don Kíkóta. Stórgrísaveisla á Broadway Á sunnudagskvöldið stendur Ferða- skrifstofan Útsýn fyrir „stórgrísaveislu" á Broadway. í þessu tilefni verða sett upp langborð, svo að myndist dæmigert and- rúmsloft spánskrar grísaveislu. Húsið verður opnað kl. 19.00 og verða gestir boðnir velkomnir með fordrykk. Spánarferðir Útsýnar verða sérstaklega kynntar á þessu kvöldi, en Útsýn hefur á boðstólum ferðir til Mallorca og tveggja staða á Costa Del Sol þ.e. Torremolinos og Marbella. Framreiddur verður sérstakur grísa- veisluréttur að hætti Spánverja. Nýstofn- uð hljómsveit Örvars Kristjánssonar mun sjá um tónlistina. Á dagskrá verða síðan fjölmörg skemmtiatriði. Öllum gestum kvöldsins gefst kostur á að taka þátt í bingói, happdrætti og getraun, en vinn- ingar eru samtals sex ferðavinningar til sólarlanda sem dregið verður úr um kvöld- ið. Frá því að Útsýnarkvöld hófust á Broad- way í janúar sl. hefur fjöldi gesta verið á bilinu 800 til 1200 manns í hvers sinn. £ Ðútasaumasýning á Kjarvalsstöðum Nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum búta- saumasýning frá Bandaríkjunum á vegum verslunarinnar Virku sf. Teppin eru um 40 talsins og flest yfir 100 ára gömul og frá hinum ýmsu ríkjum Bandaríkjanna. Sýn- ingin er opin daglega frá kl. 14.00 til 22.00 m.a. gerði The Chant of Jimmy Blacksmith. Þá eru þeir Universal menn búnir aö endurgera hina frægu hrollvekju Cat People, sem leikstýrð er af Paul Schrader. Með aöalhlutverkin fara Nastassia Kinski, Malcolm McDowell og John Heard. Þá er Steven Spiel- berg aö vinna þar aö næstu vísinda- ævintýramynd sinni E.T., The Extra- terrestrial. Þau Burt Reynolds og Dolly Parton fara meö aðalhlutverkiö í kvikmyndagerö söngleiksins vin- sæla, The Best Little Whorehouse in Texas, en myndinni leikstýrir Colin Higgins (9—5). Af öörum forvitnilegum Universal- myndum komandi mánaöa má nefna framhald hinnar vinsælu The Sting, meö Jackie Gleason og Mac Davis í fornfrægum hlutverkum þeirra Paul Newman og Robert Redford. Og aö endingu er hér ánægjuleg frétt, eink- um fyir fjölmarga aödáendur drauga- sögunnar Sophie’s Choice, eftir William Styron, en Universal er nú aö láta gera kvikmynd eftir metsölubók- inni. Aöalhlutverkiö er í höndum Mer- yl Streep, Nestor Almendros sér um kvikmyndatökuna en Alan J. Pakula leikstýrir. Þau ömurlegu tíöindi bárust á Jeck Nichdeon em landamawavðrAw ( mynd Tony Richardson The Border dögunum aö hinn bráöskemmtilegi og vinsæli gamanleikari, John Bel- ushi, væri allur. Hann fannst látinn i hótelherbergi sínu í Hollywood en dánarorsökin er ókunn. Hérlendis sló Belushi í gegn i hlut- verki átvaglsins og anarkistans i myndinni Delta Klíkan (Natonal Lampoon's Animal House). Hann fór á kostum í Blues Brothers og var einn Ijósasti punkturinn í 1941, sem sýnd var á dögunum í Stjörnubíó. Belushi, sem var aöeins 33 ára er hann lést, var oröinn leiður á þeirri ímynd sem hann haföi skapað sér í ofangreindum myndum og ekki síst í sjónvarpsþáttunum .Saturday night live og í síöustu myndum sínum. Neigbours og Continental Divide lék hann ofur venjulega menn. Þaö var aöeins minnst á myndina Sting II, hér fyrir ofan, en fram- haldsmyndir og endurgeröir blómstra nú í henni Hollywood. Hjá Paramount er veriö aö vinna að Star Trek II, Grease II, Friday the 13th, Part III og Airplane II. MGM-UA eru aö framleiða The Black Stallion Re- turns, Rocky III, Trial of the Pink Panther (sú sjöunda i flokknum). Þá má nefna þriöju myndina í Star Wars flokknum, sem frumsýnd veröur 27. John Belushi í þekktasta hlutverki sínu — Bluto í Delta klfkunni mai aö ári — Revenge of the Yedi, Death Wish II, sem nú gengur fyrir fullum húsum fyrir vestan, Amityville Horror II, Mad Max II, Superman III og Octopussy, sem er 13. eöa 14. James Bond myndin. Þvílik frum- legheit!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.