Morgunblaðið - 19.03.1982, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 19.03.1982, Blaðsíða 22
54 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 19. MARZ 1982 0 ...að bjóða henni út að borða. TM Ftog. U.S. Pit Off.-ll rtgtm rMrnd •1963 Lm Angatas Tkiw* SyndlcaM U> C u> ^ í Ég legg til að við hættum að hu(rsa um boltann, og höldum áfram og Ijúkum hringnum! HÖGNI HREKKVÍSI S'Ss'.----------r-Vy-. lí t)™is uBxœmxmB, „ Répisr RisAKföAeBi ’a \>i& ?!" Arnfríður Guðmundsdóttir skrifar: Eflum verdskyn neytenda Til Velvakanda. í blaðinu „Norðurljósið" sem hóf göngu sína á Akureyri 10.8. 1886, birtist í öðru tölublaði 1887, grein sem nefndist „Kaup- félag Þingeyinga". í greininni er gerður samanburður á verslun- arkjörum hjá Kaupfélagi Þing- eyinga og Húsavíkurverslunar. Höfundur greinarinnar lætur kaupfélagsmann kaupa tíu vöru- tegundir í pöntun fyrir verð væns sauðar, sem gerði kr. 16.75 og ber saman við verð varanna hjá Húsavíkurverslun. Sennilega mun þetta vera fyrsta verðkönnun sem kemur fyrir almenningssjónir á íslandi. Niðurtöður verðkönnunarinnar fyrir 95 árum voru þessar. 50 pund rúgmjöl 25 pund overheadin 15 pund bankabygg 10 pund baunir 10 pund flúrmjöl 4 pund kaffi 10 pund sykur 1 pund munntóbak 15 ptind steinolía 4 pund fatasápa Samtals Mismunur kr. Sennilega mun verðkönnunin 1887 hafa átt stóran þátt í hin- um geysilega áhuga Þingeyinga fyrir bættum verslunarkjörum, og jafnframt lyftistöng fyrsta kaupfélagsins á íslandi. Neytendasamtökin, sem í dag gegna sama hlutverki og braut- ryðjendur samvinnustefnunnar gegndu á sínum tíma, hafa und- anfarin ár birt athyglisverðar verðkannanir er vakið hafa verðskuldaða athygli almenn- ings. Þá mun Verðlagsstofnun einnig á allra siðustu misserum hafa birt verðkannanir. Astæðan fyrir því að ég sendi frá mér þessar línur er sú að ég Kaupfélagsv. Verslunarv. 3.56 4.25 1.75 2.50 1.40 1.88 1.05 1.25 1.35 2.50 1.88 2.40 2.25 3.50 1.33 2.00 1.12 3.00 1.06 2.00 16.75 25.28 -16.75 8.53 vil beina þeim eindregnu tilmæl- um til stjórnar Neytendasam- takanna að þau auki tiðni verð- kannana. Mér er kunnugt um að almenningur er farinn í æ ríkara mæli að notfæra sér þær. Með því að afla sér upplýsinga og bera saman vöruverð, þá gerir maður betri kaup og eflir verð- skyn. Nýlega sagði viðskiptaráð- herra á Alþingi: „Það þarf mik- inn fjölda, allt að því herskara eftirlitsmanna, til að tryggja að hinni opinberu álagningu sé fylgt." Ráðherrann lagði áherzlu á að fyrirhugaðar breytingar á verðlagslöggjöfinni leggi auknar skyldur á herðar neytendum. Þarna gefur viðskiptaráðherra óbeint í skyn að starfsemi Verð- lagsstofnunnar verði harla létt- væg eftir breytingar á verðlags- löggjöfinni. Húsmæður, ungar sem aldnar! Eg skora á ykkur að taka nú höndum saman og stórefla þann eina virka aðila í landinu sem vill og reynir að standa gegn og sporna við þessu andstyggilega, síhækkandi vöruverði — öllum landslýð til óheilla. Þetta eina afl eru Neytendasamtökin. Arnfríður Guðmundsdóttir Magnús Skarphéðinsson skrifar: Greiða Seltirningar SVR- gjöld sín, eða önnur gjöld samneyslunnar sem þeim ber — athugasemdir við fyrirspurn „ReykvíkingsM og svar forstjóra SVR Því er best og styst svarað strax neil Seltirningar greiða alls ekki þann hiuta SVR-kostnaðar sem þeim ber, miðað við þjónustuna sem þeir fá frá okkur Reykvíkingum. Né heldur nokkra þá þjónustu að fullu er þeir njóta við ná- býlið frá okkur, a.m.k. ekki stóra pósta félagslegu samneyslunnar sem mér er kunnugt um. Á ég þar við m.a. þjónustu heilbrigðismála, skólamála, íþrótta- mála, menningarmála, öryggismála o.fl. o.fl. Rétt er það hjá Eiríki Ásgeirssyni, forstjóra SVR, að Seltirningar greiða 3,18% af árlegum rekstrarhalla SVR, í hlutfalli við ekna kílómetratölu SVR á Seltjarnarnesinu o.fl. En samt er það ekki sá heildarkostnaður sem við Reykvíkingar höfum af SVR. Ég vil benda m.a. á það atriði í rekstri allra þessara fyrirtækja og stofnana s.s. SVR, Slökkviliðs Reykjavíkur, Borg- arspítalans og fleiri slíkra að alls ekki er raunvenilegur fjárfestingarkostnaður inni í rekstrarhalla hvers árs. Þó að ein- hverjar málamyndaafskriftir séu við- hafðar i reikningum þessara stofnana um afskriftir er það alls ekki hinn raunverulegi afskriftarkostnaður sem borgaður er af okkur Reykvikingum. Ég vil taka þekkt dæmi sem sýnir þetta nokkuð vel. Strætisvagnar Reykjavíkur standa nú í 5 ára áætlun við endurnýj- un 60% vagnaflota síns og ca. 10% aukningu, sem nemur rúmlega 40 strætisvögnum. Kostnaður þessara vagnakaupa er ca. 50 milljónir nýkr. eða 5.000 miltjónir gamlar. Sem sagt allmiklir peningar. Hér á ég að visu við alvöru strætisvagna frá vesturlöndum sem kosta töluverða fjármuni, en ekki hægfara endingarlítil austantjalds landbúnaðartæki sem kölluð eru Ikarus strætisvagnar (?). En hvaðan koma þessar 50 millj. nýkr.? Jú, beint úr Borgarsjóði Reykjavíkur og hvergi annars staðar frá! Ekki úr Bæjarsjóði Seltjarnarness eða öðrum afætum Reykjavíkurborgar (fyrirgefið orð- bragðið, en ég fann ekkert hentugra). Að visu er um einhverja máttlitla og óraunhæfa verðbólgna afskriftarliði hjá SVR í 10—15 ár á eftir af þessum vöngum að ræða, en allir sem vit hafa á sjá að þessi fjármagnskostnaður er greiddur af Borgarsjóði fyrst og síðast. Og sama er að segja t.d. um öll mann- virki SVR að Kirkjusandi og á Hlemmi og víðar, sem í liggur gífurlegt fjár- magn, að allt kom og kemur það frá Borgarsjóði Reykjavíkur sem viðbótar- eða aukaframlög til SVR. Þetta getur hver maður lesið í reikningum Reykja- vikurborgar. Og öll ganga þessi mann- virki úr sér og úreldast með tímanum. Og sama er að segja um öll þessi fyrirtæki sem þjóna meira og minna öllum nágrannasveitarfélögunum hér í kring jafnt og okkur Reykvíkingum. Raunverulegur rekstrarkostnaður er hærri en opinberar greiðslur eru mið- aðar við. Og samt njóta þeir næstum alveg sömu eða sums staðar alveg sömu þjónustu og við Reykvíkingar þar. Og enn eitt, sem er enn augljósara, hvað sem Sigurgeir bæjarstjóri Sel- tjarnarness segir um aukna nýtingu o.s.frv. Stofnanir s.s. Sundlaug Vestur- bæjar þjóna Seltirningum jafn vel og Reykvíkingum, ef ekki hlutfallslega betur miðað við íbúatölu. Hún er sem kunnugt er rekin með halla eins og nær öll þjónustufyrirtæki Reykjavíkurborg- ar. En þar eru engar greiðslur til Reykjavíkur frá Bæjarsjóðnum. Og tapið þarf að greiða samt hvað sem framtíðarsundlaug á Seltjarnarnesinu líður, og hefur þurft að greiða sl. 20 ár. Svona mætti lengi telja en það er ekki staður til þess hér. Ég vildi nú aðeins benda á þessi tvö dæmi máli mínu til stuðnings. Margfalt fleiri slík er hægt að drepa á. Og óupptalin eru öll útgjöldin er fara til lista og menningarmála hér í Reykjavík. Að vísu vildu sumir að þau væru miklu mun meiri, en það er önnur og óskyld saga. Ég vil rétt nefna þar að Sinfóníuhljómsveitin nýtur fjárhags- fyrirgreiðslu Reykjavíkurborgar, sem allir höfuðborgarbúar njóta saman. Og ekkert greiðir Bæjarsjóður Seltjarn- arness né aðrir bæjarsjóðir hér í kring til alls rekstrar Leikfélags Reykjavíkur eða hinnar veglegu leikhúsbyggingar er nú er í byggingu því til handa. Fleira má telja upp á menningarsviðinu en sleppi ég því hér einnig. Svo sammála er ég Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, borgar- fulltrúa Reykjavíkur og fleirum að Magnús H. Skarphéðinsson sjálfsagt, og reyndar meira en sjálf- sagt, er nauðsynlegt að hafa sem nán- asta samvinnu milli allra sveitarfélag- anna á höfuðborgarsvæðinu í sem flest- um málum. En hver á að greiða til hennar jafnt og hann nýtur af sann- girni og réttsýni. Annað gengur ekki til lengdar. Ég er sannfærður um að æskilegast væri að öll sveitarfélögin sameinuðust um flest alla almenningsþjónustu. Slíkt væri hlutfallslega ódýrast. Og vel mætti velferð einstaklingsins vera borgið í slíku Golíatkerfi ef þess er gætt að hafa félagslegu einingarnar ekki of stórar hverja fyrir sig. Hafa t.d. töluvert sjálfstæðar hverfastjórnir sem sæju um vissan hluta félagsmálanna, s.s. tómstundastörf og umsjón kynslóð- anna, yngstu og elstu. En rétta leiðin er ekki að eitt sveitarfélagið standi ávallt undir mestum hluta þessara útgjalda falið og Ijóst. Og ódýrar finnast mér þær rósir í hnappagötum Sigurgeirs bæjarstjóra og félaga, þegar þeir hrósa sér af því að vera með miklu lægri opinber gjöld hjá sér en t.d. hér hjá okkur Reykvíkingum. Þetta er hægt með ódýrum hugsunarhætti og ódýrum málstað. En ekki fljúga hugsjónirnar hátt þar. En þetta heitir víst sums staðar á fagmáli „frelsi einstaklings- ins“. Og sumum gengur ennþá vel að kalla það „hagkvæmni og útsjónarsemi í rekstri sveitarfélaga". Lifið heii. Magnús H. Skarphéóinsson, vagnstjóri hjá SVR nr. 99.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.