Alþýðublaðið - 04.07.1931, Síða 4
4
ALPÝÐUBLAÐIÐ
LátlH eiíliS „I[©ilaife&&^iréIIiist fHar
stlrðna!
Vera má, að pér vinnið há verðlaun í
Kodak Stpsio samkeppnlnnfi
Á mynd, sem tekin er með „Brownie“-vél eða einföldustu „Kodak“-
vél, geta unnist alt að 2277 stpd.
Efni myndanna er hið eina, sem til greína kemur i þessari furðulegu
ljósmynda-samkeppni. Myndir rná taka af hverju sem er, en engir
nema amatörar mega keppa.
Sendið bara inn myndir yðar. Þær verða greindar sundur í flokka
eftir því, sem þær eru líklegastar til að vinna. Flokkarnir eru sex. Það
leiðir af sjálfu sér, að fyrsti vinnandinn í hverjum flokki keppír um
alþjóðaverðlaunin — stórfé, minjapeninga og fagran minjagrip úr silfri.
Á stað nú með myndavélina yðar.
, Látið Kodak-filmu í hana — filmuna, sem segir sex.
Látið þenna innritunarmiða fylgja myndum yðar og sendið þær
Prize Contest Office, Kodak Ltd. Dept, 30. Kingsway, London, W.C^
Skritið ekki nafn yðar á
myndirnar, hvorkí að
framan né aftan. Gætið
þess vandlega að geyma
frummycdirnar til þess
að geta sent þær, ef
mynd eftir yður skyldu
verða veitt verðlaun.
Fáið fieiri innritunar-
miða þar sem þér kaup-
ið Kodak-vörurnar yðar,
eða frá
Kodak Limited, Kiugsway, London, W. C. 2.
Meii&ikápMs*,
MiifkSrákkajr1
fjrrir dðaseir og herra.
dúnfsifiíkápiii*.
Pejrsufatakápnr.
ReyMlilISar, hiiíMII
«rval os BOtt
Ég hefi lesiö reglurnar um samkeppni pessa, hegðað
mér eftir peimog sampykki pœr í einu og öllu.
Nafn ..............................................
(Skrifið nieð prentietri.)
Heimiislang' ......................................
Tegund myndavélar..............................
Tegund filmit ............................
Tala mynda, sem sendar eru hér með .......
Gestir í bænum.
Bæjarstjórn ísaíjarðar sasm-
þykti fyrir liðugu ári síðan regiu-
gerð fyrir svokaiiaðan „Ferða-
sjóð barnaskólans á ísafirði".
Sjóður pessi er stofnaður með
samskotafé, er skotið \ar sam-
an til minningar um Guðjón
Baidvinsson, er var kennari við
skólann, Sjóðnum er aflað tekna
á þann hátt, að 1 dag á ári er
börnum skólans gefið frí til að
selja merki og halda skemtuo
til ágóða fyrir sjóðinn. Sjóöurinn
tekur einnig á móti samskotafé
og álieitum. Enn fremur er sjóð-
urinn sfyrktur af bæjarsjóðí með
áriegu framlagi, sem nú er 500
krónur.
I sambandi við pennarr sjóð
safna börnin svo í sérsjóð með
því að kaupa sparisjóðamerki
fyrir aura, er peim áskotnast yf-
ir veturinn.
Tilgangur sjóðsins er að standa
að nokkru feytí straum af kos'tn-
aði vegna ferðár barna úr fleiri
eða færri bekkjum skólans, sem
farnar eru að hans tilhlutun.
Ferðir þessar eru húgsaðar ýmist
tii Akuréyrar og Norðurlandáins j
eða til Reykjavíkur og Suður-
landsins, og er meiningin að
hvert barn. verði að loknu barna-
skólanámi búið að fara minst
tvær sjííkar ferðir eða aðrar til-
svarandi. „Er svo til ætlast,“ seg-
ir í reglugerð sjóðsins, „að ferð-
ir þessar verði börnunum tii lær-
dóms, hressingar og vakningar."
Ferðum þessum á að stjórna einn_
af kennurum skólans eða annar
þar til hæfur maöur. Er það hlut-
verk þess manns — leiðsögu-
ananns — á þessum ferðum „að
gera þær börnunum sem lær-
dómsríkastar og eftirminnanleg-
astar til nytsemdar og gleði,
Viekja athygli þeirra á náttúr-
unni, landimu, þjóðinni og at-
\innuvegum hermar, spa þeim
söfn, listaverk, merkar stofnan-
ir og sfarfsemi, fræga siaði, bæði
frá fortíð og nútíð, oig leitast við
að vekja þau til skynsamlegrar
ihugunar um hvað eina, sem fyr-
ir augun ber.“
Nú vili það oftast verða svo,
að þó sjó"ðir séu stofnaðir, er
hafa ýms þörf og mikilvæg verk
meö höndum; þá ver’öur oft
dráttur á aö þeir taki til starfa,
og er það því bagalegra, sem
verkið er nauðsynlegra, er þeir
eiga að inna af hendi. Sjóður
þessi er ekki einn af þeim, sem
ekkert eru í byrjun nema nafn-
ið, því hingað komu með „Brú-
arfossi“ síðast um 20 börn fyrir
tilstilli sjóðs þessa. Þau hafa
komið á og skoðað ýmsa staði
hér í bænum og nágrenni, söfn-
in, sundhöllina, nýja barnaskól-
ann og fl. Enn fremur fara þau
á nærliggjandi staði hér sunn-
anlands, alt austur í Fljótshlíð.
Leiðsögumaður barnanna er nú
Gunnar Andrew kennari, ötull
rnaður og áhugasamur. Er för
jjessi undir hans leiðsögu þegar
orðin börnunum ógleymanleg.
Er hér um algert nýmæli að
ræða, sem ísfirzkir jafnaðarmenn
hafa hrint af stað og styrkja
með ríflegu framlagi úr bæjar-
sjóði.
M.
„Zeppellia - gfreif a“.
Friedrichshaven, 3.‘ júlí. U. P.
FB. Tilkynt hefir verið, að heim-
skautsflug „Zeppelins greifa“
hefjist 20. júlí. Flugstjórinn verð-
ur dr. Eckner, eins og í fslands-
ferðinni.
IJsss daglBD ©s vegimine
. liuáal -.i' ’ • i •
FUNDiR
TlLKrhftíHCAF
ST. FRAMTÍÐIN. Fundur verður
á mánudaginn á venjulegum
stað og fíma. Komið öll og
komið stundvíslega. Æt.
„ Ðagsb í úuar “-futi dur
verður í kvöld kl. 8 í templ-
.arasalnum við Bröttugötu. Fund-
arefni: Atuinnuleysismálid.
Séra Árni Sigurðsson
íer í dag með e/s Esju austur
á land í sumariieyfi, og miun
verða fjarverandi þar til seint í
ágúst. í fjarveru han.s munu
prestar dómkirkjusafnaðarins
igegna auka\erkum í fríidrkjunni,
og enn frem.ur sérá Ólafur Ólafs-
son, eftir þvi sem heilsa hans og
aðrar ástæður leyfa.
Nœturlœknir er tvær næstu
nætur Halldór Stefánsson, Lauga-
vegi 49, sími 2234.
Siinmidagslœknir verður á
morgun Óskar Þórðarson, Öldú-
götu 17, uppi, sími 2235.
Nœluruördiir er næsíu viku í
lyfjabúð Reykjavíkur og lyfjabúð-
Inni „Iðunni“.
Hjál/jrœdisherinn. Samkomur á
morgun: Helgunarsamkoma kl.
IOV2 f- h., .sunnudagaskóli kl. 2,
útisamkoma á Lækjartorgi, ef
veður leyfir, kl. 4 e. m., hjálp-
ræöissamkoma k'. 8V2 e. m. Kap-
tein og frú Olsen stjórna. Lúðra-
sveit og strengjasveit aðstoða.
,T»»
Shodim bifrsioa. Á mánudaginn
á að koma með að Arnarhvoli
tii skoðunar bifreiðar og bifhjól
nr. 1—75.
MeSvitimdarlaus fjóra daga —
og svo sektadur. Bílstjóri einn í
Nottingham ók á hesívagn og
meiddist svo mikið, að hann lá
ítíéðvitúndarlaus í fjóra daga.
Síðar var hann sektaður fyrir
ógætilegan akstur.
Til Stmndarkirkju. Áheit frá
Ó. J. 5 kr„ frá M. B. 20 kr., frá
M. 5 kr. og frá H. S. 10 kr.
Flutningur líkneskja. Nýlega
var á fundi veganefndar Reykja-
víkur lagt fram bréf frá forsætis-
ráðherra þess efnis, að hann féll-
ist á, að standmyndin af Hannesi
Hafstein verði reist fyrir- frainan
stjórnarráðshúsið, þar sem lík-
neski Jóns Sigurðssonar stendúr,
en það verði aftur flutt á Austur-
völl, en líkneskið af Alberti Thor-
valdsen verði flutt þaðan og
isett í skemtigarðinn- við tjörnina.
Samkyæmt tiilögu veganefndár
var samþykí á síðasta bæjar-
stjórnarfundi heimild til flutninga
líkrieskjanna og að bærinn kosti,
ef til kemur, fiutningin.n á lík-
neski Aiberts Thorvaldsens.
Byggingcr'.eyfi á fjórum íbúð-
arhúsum hefir byggingarnefnd
Reykjaxikur veitt síðasta hálfan
rnánuð.
Ósiður.
Algengt er, að fólk, sem ferð-
ast í“ bifreiðum gegnum 'skóg-
lendi, slíti og rífi upp skógar-
hríslur eða annan gróður, þegar
tækifæri býðst, og festi þær utan
á bifreiðarnar til prýðis sem kall-
aö er. En þetta er í rauninni ekk-
ert skraut. Eftir stutta stund eru
hrislurnar visriaðar og dauðar,
enda dæmdar til tortímingar.
Nú er bannað með lögum að rífa
upp skógarhrísiur, einnig víði,
lyng og fjalidrapa, svo að hér er
um lagabrot aö ræ’ðia. Að festa
hríslur utan á bifbeiðar er hlið-
stætt því og ef skipstjórar færu
að prýðia skip sín með því að
hiengja d.auða æöarfugla utari á
þau.
Bifreiðarstjórum ætti að refsa
með sviftingu ökuleyfis um iengri
eða skemmri tíma, sem gera sig
seka í skógaxrifi og flytja hrísl-
ur á bifreiðum sinum,, ef ekki er
hægt tmeð öðru móti að koma í
veg fyrir þenna leiðinlega ósið.
íslendingum ferst ekki að
skreyta farartæki sín með skógar-
hiíslum. Þeir hafa ekki farið svo
vel meö skóginn í landinu og
gera ekki mikið til að varðvetta
hann eða rækta .
G. D.
Ritstjóii og ábyrgðaxmaðuT:
Ólafjir Friðrikason.
- ý;—.
Alþýðuprentsmiðjan.