Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 22
54
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
Gerðirðo \y\b> Saurnrjuélinci.
vv
Hann er miklu oftar hér heima eft-
ir að hann gerðist svona sjálfstsð-
ur atvinnurekandi!
Hann þarf alltaf að vera með ein-
hverja sta la, til að vekja á sér at-
hygli!
HÖGNI HREKKVÍSI
" HVAQ et? LAMS-rí VERBUU«AAPSe«t>-
IMCrUVA OG- e.ORBAKt-iPPÍNG-UA/A'? •*
Af „skemmdarvörg-
um“ í Hafnarfiröi
Athugasemd við forsíðufrétt Dagblaðsins og Vísis 28. apríl sl.
Litlu verður Vöggur feginn
varð mér á /orði þegar ég las
Dagblaðið og Vísi miðvikudag-
inn 28. apríl sl. Yfir meginhluta
forstðunnar er þanin frétt
ásamt mynd af manni, sem varð
fyrir þeirri dapurlegu reynslu
að koma skyndilega, að því er
skilja má, að bílnum sínum
skemmdum á bílastæði í Hafn-
arfirði. Við þennan fréttaflutn-
ing hef ég undirritaður ýmislegt
að athuga og vil þess vegna
greina frá tildrögum „atburðar-
ins“ eins og þau horfa við mér
og öðrum íbúum á Breiðvangi
24, þar sem umrætt bílastæði er.
Bíllinn, ef bíl skyldi kalla,
hefur nú í marga mánuði staðið
á bílastæðinu í óþökk allra, sem
ég þekki til. Eigandinn segir, að
bílnum hafi verið lagt þarna
vegna „smávægilegra biíana“.
Þær hafa verið þessar allan tím-
ann í mínum augum og margra
annarra: Ein eða tvær rúður
brotnar, hjólbarðar sprungnir,
önnur hurðin opin og í vetur
fauk vélarhlífin af. Auk þess
hefur kistulokið aldrei viljað
tolla aftur þótt ég hafi marg-
reynt að loka því. Innandyra
hefur bíllinn verið eins og ösku-
haugur. í þessu ástandi hefur
bíllinn verið í vetur og það er
meira en lítið undarlegt, að eig-
andinn, eða sá, sem góðfúslega
úthlutaði honum bílastæðinu,
skuli ekkert hafa gert í málinu
fyrr en nú, að það er gert með
þessum fréttaflutningi Dag-
blaðsins og Vísis.
Eigandi bílsins, Sigurgeir Sig-
mundsson, segir að „skemmd-
arvargar", „pörupiltar“ og
„þrjótar" hafi leikið bílinn
svona grálega. Við skulum huga
nánar að því hvaða voðamenn
voru hér að verki. Þeir eru fyrst
og fremst börn á aldrinum 3ja
til 10 ára. Börn, sem sækja skól-
ann skammt frá, og börn, sem
eiga heima í húsunum í kring.
Margoft hef ég stuggað börnum
frá þessum bíl. Dregið þau út úr
honum og dregið þau ofan af
honum og reynt að skorða hurð-
ina aftur svo að þau kæmust
ekki inn í hann. Það hefur þó
komið fyrir ekki, enda er það
segin saga, að þegar bílhræ er
skilið eftir umhirðulaust þá
sækja börnin í það. Því veldur
barnsleg uppátektarsemi, ekki
skemmdarfýsn.
Sigurgeir Sigmundsson, sem
býr í Kópavogi, segist hafa feng-
ið leyfi til að geyma bílinn á um-
ræddu bílastæði í Hafnarfirði.
Hvaða íbúi við Breiðvang hafði
umboð til þessarar leyfisveit-
ingar fyrir hönd allra hinna,
sem rétt eiga á þessu bílastæði?
Mér þætti gaman að vita það.
Íbúarnir á Breiðvangi 24 hafa
ekki minni áhuga á því en aðrir
að hafa snyrtilegt í kringum sig
og hafa þess vegna sópað bíla-
stæðin og þrifið lóðina um það
Eigendur húsa við Austurstræti:
Vona að þeir sjái sóma
sinn á þessum tímamótum
0545—0098 skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Hinn 27. október 1981 skrifaði
ég þér og kvartaði undan því, hve
eigendur húsanna við Austur-
stræti, og þá aðallega gömlu hús-
anna, halda framhliðum þeirra
illa við.
Hinn 2. desember s.á. svaraði
3041—7488 grein minni og ræddi
um þá sérstöku skatta á skrif-
stofu- og verslunarhúsnæði, er
bakað hafa eigendum fasteigna af
þessu tagi mikla erfiðleika. Fast-
eignaskattur af slíkum eignum
mun nú hafa verið lögbundinn.
Lítil fegrun hefur enn átt sér
stað á húseignum þeim við Aust-
urstræti, sem aðallega er um að
ræða. Ég spyr 3041—7488:
1) Verður fasteignaskatturinn
ekki frádráttarbær til skatts?
2) Er viðhald húsa við mína kæru
götu, Austurstræti, ekki frá-
dráttarbært til skatts?
3) Þurfa kaupmenn að kvarta svo
mikið undan versluninni í dag,
að þeir hafi ekki efni á að halda
húseignum sínum við? Og hvort
er dýrara, þegar allt kemur til
alls, eðlilegt viðhald eða hvim-
leið niðurníðsla?
4) Af hverju er Persil-klukkan
ekki alltaf í lagi?
5) Af hverju er það liðið, að Sölu-
turninn, gamalt tákn Reykjavík-
ur, skuli vera látinn óhreinsaður
dögum saman af óviðeigandi
kroti og slettum?
Það er komið sumar. Ég vona að
eigendur húsa við Austurstræti,
einu göngugötu borgarinnar, sjái
á þessum tímamótum sóma sinn
og hefjist handa nú þegar um
fegrun húsanna, sem ekki ætti að
vera þeim kostnaðarlega ofviða, ef
sparneytni og hófsemi er gætt.
Málninguna geta þeir fengið á
heildsöluverði og málarar eru
röskir iðnaðarmenn.
Að öðru leyti er ég sammála
3041—7488 um að þingmenn
Reykjavíkurborgar hafa ekki stað-
ið vörð um nauðsynleg hagsmuna-
mál Reykvíkinga í þessu tilliti.
Gleðilegt sumar."