Morgunblaðið - 30.04.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 30. APRÍL 1982
55
vÉmu&NDi
SVARAR I SIMA
10100 KL. 10—12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
jjj
WMíiHM
UAGBIAÐIDsVlSIR
" hjmlst, ahmi daghlaA
I.700 KRÓNUR
Hafa gjöreyöilagt
nokkra fólksbíla
leyti, sem sólargangur segir, að
sumarið sé í nánd. Af því hefur
þó ekki orðið enn og fyrst og
fremst vegna umrædds bílhræs
og óþrifanna frá því. Af þeim
sökum vil ég biðja eigandann að
fjarlægja það sem fyrst, ekki
bara vegna sóðaskaparins, held-
ur vegna þess, að börnum og
óvitum stafar stórhætta af
glerbrotunum og draslinu, sem
flakinu fylgja.
Ég má til með að geta þess, að
fyrir nokkru báðu íbúarnir á
Breiðvangi 24 Heilbrigðiseftir-
litið í Hafnarfirði að sjá til þess,
að bíllinn yrði fjarlægður. Nú
fyrir nokkrum dögum kom full-
trúi þess hingað og tók myndir
af bílnum og frétt hef ég, að
samdægurs hafi lögreglan verið
að spyrjast fyrir um eigandann.
Daginn eftir var hann svo mætt-
ur ásamt blaðamanni frá Dag-
blaðinu og Vísi.
Að síðustu þetta: Allmikil
umræða er nú uppi um skemmd-
arverk og ekki að ófyrirsynju
eins og alþjóð er kunnugt.
Dagblaðið og Vísir vill að sjálf-
sögðu vera með á nótunum og
með það í huga, að betra sé að
veifa röngu tré en öngu, stimpl-
ar það börn og óvita suður í
Hafnarfirði skemmdarvarga
fyrir að þyrma ekki bílflaki, sem
skilið er eftir í óreiðu í „nokkra
mánuði". Dagblöðin eru mis-
jafnlega vönd að virðingu sinni
en vafalaust hefur D&V ein-
hverja viðmiðun í þeim efnum.
Ég ætla þó að vona, þess vegna,
að umrædd frétt verði ekki sú
mælistika, sem lögð verður við
blaðið í framtíðinni.
F’yr>r hönd íbúanna á Breið-
vangi 24.
Sveinn Sigurðsson
Afmæliskveðja
til Halldórs Laxness
frá bandalagi
íslenskra listamanna
Bandalag íslenskra lisUmanna
er fjölraddaður kór. Þar er enginn
stjórnandinn, og þar syngur hver
meó sínu nefi, oftast ósamUka.
Sjaldgaeft er, aó kveóió sé upp ur
meó einsöng. og sjaldgefara, að
aórir kórfélagar beri eynin eftir
því.
Þó gerist það stundum ósjálf-
rátt.
Því að ein röddin er skærust,
og á hana er hlýtt og eftir henni
er tekið. Hún gefur og hinum
röddunum þann ljóma, er þær
skortir einar sér. Hún finnur
tóninn, sem aðrar raddir rata
ekki á. það er þín rödd, Halldór,
og við óskum þér heilla af öllum
nótum, einróma, aldrei þessu
vant . „ <,
Stjórn B.l.L.
Flatt við flötu
Fiskvinnslumaður skrifar:
„Velvakandi!
Ég er mikill aðdáandi Hall-
dórs Laxness og satt best að
segja undrandi á afmæliskveðj-
unni frá Bandalagi íslenskra
listamanna til Halldórs Laxness
er birtist i Morgunblaðinu sl.
þriðjudag. íslenskum lista-
mönnum er líkt við ramfalskan
kór, þar sem hver syngur með
sínu nefi og stjórnlaust, en uppi
yfir öllu gaulinu á svo að heyrast
skær rödd Halldórs Laxness. Ég
hef aldrei á ævi minni lesið aðra
eins flatneskju eða séð slegið
eins vel flatt við flötu og þó með
jafn litlum hvell, en þessa
ósmekklegu afmæliskveðju. Það
má nú segja að hátt sé undir
höfði hjá þeim í stjórn Banda-
lagsins, eða hitt þó heldur, ef
þetta á að heita gáfulegt ávarp
og sæmandi er einn orðhagasti
maður samtímans er ávarpað-
ur.“
Þessir hringdu . . .
Þökk fyrir komuna
„Hvammstangakerling" hringdi
og hafði eftirfarandi að segja: —
Kórar Rangæingafélagsins og
Skaftfellingafélagsins komu,
sungu og sigruðu hér á Hvamms-
tanga á laugardagskvöld, og átt-
um við með þeim yndislega stund.
Kórarnir sungu bæði saman og
sinn í hvoru lagi. Mig langar til að
flytja þeim hjartans þakkir fyrir
komuna.
Ekki til fyrirmyndar
Sigríður hringdi og hafði eftir-
farandi að segja: — Nú heyrir
maður mikið talað'um hreina borg
og fögur torg og svo virðist sem
fólk sé að snúast á sveif með þeim
sem vilja vernda náttúru og um-
hverfi, ekki síður í þéttbýli en
strjálbýli. Mér fannst því skjóta
skökku við að verða í tvígang vitni
að því í síðustu viku, að horfa upp
á leigubílstjóra fleygja rusli út úr
bílum sínum, í annað skiptið á
Kringlumýrarbraut og í hitt skipt-
ið á Réttarholtsvegi (þeir voru
einir í bílunum). Ég leyfði mér að
þeyta bílflautuna hressilega til
þess að láta þá vita af því, að eftir
þessu hefði verið tekið og auk þess
skrifaði ég hjá mér númerin á bíl-
um þeirra. Þessum mönnum ætti
að vera það vorkunnarlaust eins
og okkur hinum að hafa litla
sorppoka hjá sér í bílunum og
losna þannig við að vera samborg-
urum sínum til ama og sjálfum sér
til skammar. Raunar ættu þeir
sem atvinnumenn í umferðinni að
kosta kapps um að vera öðrum til
fyrirmyndar að þessu leyti.
eTSa Námskeið
PPf í hestamennsku
Kennari Eyjólfur ísólfsson.
Námskeiöin hefjast sunnudaginn 2. mai. Skráning fer fram í
dag frá kl. 10—12.
Kennsla veröur í effirtöldum flokkum, verklegf og bóklegt.
Nr. 1 byrjendur unglinga.
Nr. 2 byrjendur fullorðinna, stjórnun hests.
Nr. 3 vanir unglingar.
Nr. 4 vanir fullorönir, almenn reiöhestaþjálfun.
Nr. 5 hlýðnisæfingar, uppbygging hests fyrir vana.
Nr. 6 íþróttakeppni fyrir vana.
Nr. 7 þjálfun fyrir gæðingakeppnir, 2—3 dagar.
Nr. 8 gæðingaskeið og skeiðþjálfun, 2—3 dagar.
Námskeiðin standa í 7 daga og er aöaláherzla lögö á þjálfun
knapa og hests. 8—10 manns í hverjum hóp.
Járninganámskeið
Verklegt. Nemendur komi meö hesta til járningar. Nemendur
útvegi sér sjálfir hesta.
Kaffistofan í Selási verður opin í maí rúmhelga daga kl. 7—10
á kvöldin.
Hestamannafélagiö Fákur
sími 33679.
Nýtt Nýtt
Sumarbolir, peysur, blússur, pils. Glæsilegt úrval.
Glugginn,
Laugavegi 49.
555 Felagsmalastofnun Reykjavikurborgar
W
Félaasstarf eldri borgara í Reykjavík
Orlof að Löngumýri
sumarið 1982
Eins og undanfarin sumur veröa orlofsdvalir aö
Löngumýri í Skagafiröi í samvinnu viö Þjóökirkjuna.
Eftirfarandi tímabil hafa nú veriö ákveöin.
24. maí til 4. júní, 13. júlí til 24. júlí, 26. júlí til 6. ágúst,
23. ágúst til 3. september, 6. september til 17. sept-
ember. Verö kr. 1.800,-
Upplýsingar og pantanir á skrifstofu Félagsstarfs
eldri borgara, Noröurbrún 1, sími 86960.
Félagsmálastofnun Reykjavíkurborgar.
Þessi Chevrolet
pickup árgerö 1978 er til sölu. Bifreiöin er ekin 50
þús. mílur, í mjög góöu ásigkomulagi og meö vönd-
uöu húsi.
Nánari upplýsingar veittar á skrifstofutíma i síma 96-
22105.
Hitaveita Akureyrar.