Morgunblaðið - 06.05.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1982
Megrunarnámskeið
Vegna mjög mikillar eftirspurnar hefst nýtt megr-
unarnámskeiö 13. maí (bandarískt megrunarnám-
skeið sem hefur notið mikilla vinsælda og gefiö
mjög góöan árangur). Námskeiðiö veitir alhliða
fræöslu um hollar lífsvenjur og vel samsett matar-
æði, sem getur samrýmst vel skipulögðu, venju-
legu heimilismataræöi.
Námskeiöiö er fyrir þá:
• sem vilja grennast
• sem vilja koma í veg fyrir aö vandamáliö endurtaki sig
• sem vilja foröast offitu og þaö sem henni fylgir
Upplýsingar og innritun í síma 74204.
Kristrún Jóhannsdóttir,
manneldisfræöingur.
BRASPEEÐ
Komdu fyrir kl. 10.00,
myndirnar tilbúnar
kl. 17.00.
Framköllun samdægurs
er ný þjónusta sem þú færö aöeins hjá
okkur. Komdu í einhverja afgreiösluna
milli kl. 8.30 og 10.00 aö morgni, og náöu
í tilbúnar litmyndir kl. 17.00—18.00 síö-
degis.
Aö sjálfsögöu kemur hraöinn ekki niöur á
gæöunum.
Viö reynum betur.
Hafnarstræti 17, Suðurlandsbraut 20
og hjá Magasín, Auðbrekku 44—46, Kópavogi.
„Friends in
Conflict“
- bók um landhelgismálin
eftir Hannes Jónsson
BRESKA útgáfufyrirtækið C. Hurst
mun um mánaöamótin maí/júní
gefa út bókina „Friends in Conflict"
— Vinir í átökum, eftir Hannes
Jónsson, sendiherra íslands í Genf.
í bókinni er lýst átökum Breta og
Isiendinga í landhelgismálum frá
1952 til 1976.
í kynningu á bókinni í riti út-
gáfufyrirtækisins, sem á sínum
tíma gaf út bókina Northern
Sphinx eftir Sigurð A. Magnússon,
segir, að landhelgisstríðin fjögur
síðan 1952 séu rannsökuð og þeim
lýst á efnahagslegum og lögfræði-
legum forsendum. Þá segir einnig,
að höfundur greini á milli „fram-
farasinnaðra" og „nýlendusinn-
aðra“ sjónarmiða í þróun hafrétt-
ar. Komist hann að þeirri niður-
stöðu, að Islendingar hafi með ein-
hliða aðgerðum og útfærslum og
samvinnu við aðra fylgismenn
„framfarasinnaðra" sjónarmiða
haft afgerandi áhrif á þróun haf-
réttar, sem leitt hafi til almennrar
viðurkenningar á 200 mílna efna-
hagslögsögu og 12 mílna land-
helgi. Þá hafi íslendingar einnig
sannað, þegar þeir neituðu að
mæta fyrir Alþjóðadómstólnum í
Haag og virtu ekki niðurstöðu
dómstólsins, að fullveldisréttur
ríkja megi sín meira en ákvarðan-
ir Alþjóðadómstólsins.
Al'íii.VSINOASIMINN I
22480 *
J«ar0\mbIní>it>
w
Firmakeppni Fáks
á laugardaginn
þátttaka 300 fyrirtækja
FIRMAKEPPNI Fáks fer fram að
Víðivöllum, laugardaginn 8. maí nk.
og hefst kl. 2.30. Þátttakendur mæti
með hesta sína til keppni kl. 2, segir
í frétt frá Fáki.
Þetta er 23. árið sem firmakeppni
Fáks er haldin, þar sem mikill fjöldi
Fáksfélaga tekur drjúgan þátt í fjár-
öflun fyrir félag sitt með þáttöku og
skráningu fyrirtækja til keppninnar.
Keppt verður í þremur flokkum:
karlaflokki, kvennflokki og ungl-
ingaflokki 16 ára og yngri. Sú
nýbreytni er að þessu sinni, að 10
efstu hestar í hverjum flokki
keppa til verðlauna. Gefin er út
sérstök skrá yfir öll fyrirtækin,
sem taka þátt í keppninni. Fimm
fyrirtæki í hverjum flokki vinna
til verðlauna, en öll fyrirtækin fá
sérstakar veifur sem viðurkenn-
ingu fyrir þátttöku. Skráningu er
nú lokið og hafa um 300 fyrirtæki
og einstaklingar tilkynnt þátttöku
sína.
Hornaflokkur Kópavogs leikur
frá kl. 2. Þulur er Jón Sigur-
björnsson leikari.
• Efsta hæö þessarar eignar, Grensásvegur 13, er til
sölu.
• Stærö 680 fm. Selst e.t.v. í hlutum.
• Næg bílastæði.
• Greiöar strætisvagnaferöir í öll hverfi borgarinnar.
• Mjög fallegt útsýni.
• Glæsileg eign í alfaraleiö.
• Margskonar greiðsluskilmálar. Til greina kemur
m.a. lítil útborgun og verötryggöar eftirstöövar.
• Upplýsingar hjá Lífeyrissjóöi verslunarmanna í
síma 84033.
RÝMINGARSALA - ÚTSALA
Okkar árlega rýmingarsala hefst í dag, fimmtudag 6. mai, og stendur til föstudags 14. maí.
Úrval af prjónafatnaöi á börn og fullorðna. Prjónastofan Iðunn hf.,
Opiö daglega frá 9—18, laugardaga frá 9—16. Skerjabraut 1, Seltjarnarnesi.