Morgunblaðið - 06.05.1982, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1982
Austur-evrópsku
veiðiskipi sökkt?
Bu<*nos Aires, 5. maí. AP.
ARGENTÍNSK yfirvöld sögðu í
dag, að svo kynni að vera, að
brezkar þyrlur hafi sökkt aust-
ur-evrópskum togara við Falk-
landseyjar.
Mörg blöð í höfuðborg Arg-
entínu hafa eftir embættis-
mönnum, að svo kynni að vera
að Bretar hefðu í misgáningi
sökkt pólskum togbáti. Full-
trúi sjóhers Argentínu sagði,
að báturinn kynni að hafa ver-
ið sovézkur.
Blöðin segja togarann hafa
heyrt neyðarkall frá argent-
ínskum flugmanni sem skot-
inn var niður. Báturinn hafi
farið til aðstoðar ásamt arg-
entínskum varðbáti, en bæði
skipin hefðu orðið fyrir árás
brezkra þyrla. Hefði varðbát-
urinn laskazt en hitt skipið
sokkið. Væri varðbáturinn á
leið til lands og fyrr en hann
kæmi í höfn, lægi ekki fyrir
hverrar þjóðar togbáturinn
væri.
Noregur:
Fiskiðnaðarfólk í
verkfall er flutn-
ingaverkfalli lýkur
Osló, 5. maí. Krá Jan Krik Lauré,
TrétUriUra Mbl. Al*.
ÁTJÁN þúsund fiutningaverka-
menn sneru aftur til vinnnu í dag
eftir tveggja vikna verkfall, sem
valdið hefur mikilli röskun í Nor-
egi, en á miðnætti hófst verkfall
fiskiðnaðarfólks í 75 stærstu fisk-
iðjuverum landsins.
Verkfall 3.000 starfsmanna
fiskiðjuvera mun stöðva veiðar
mikils hluta bátaflotans, einkum
stærri bátana og verksmiðjutog-
ara, eða þeirra skipa, sem einna
mestan afla bera að landi. Ýmis
minni fiskiðjuver halda áfram
rekstri, þar sem eigendur þeirra
er ekki í samtökum vinnuveit-
enda.
Til verkfalls kemur, þar sem
launaviðræður báru ekki árang-
ur. Höfnuðu samtök starfsmanna
í fiskiðjuverum (NNN) tilboði
vinnuveitenda um hækkun tíma-
kaups um tvær krónur, og um
1,80 króna láglaunauppbót eftir 1.
október, en önnur verkalýðsfélög
höfðu fallist á tilboð af þessu
tagi.
Ríkisstjórnin ákvað í gær-
kvöldi að vísa kjaradeilu flutn-
ingaverkamanna til kjaradóms,
þar sem ekkert hafði miðað í
samningaviðræðum, en verkfallið
hafði staðið yfir í tvær vikur og
valdið mikilli efnahagslegri rösk-
un. Hafði það lamað ýmsa iðnað-
arstarfsemi, með þeim afleiðing-
um að rúmlega tíu þúsund iðn-
verkamenn höfðu verið varaðir
við hugsanlegum uppsögnum.
Með því að vísa deilunni til
kjaradóms varð verkfallið
sjálfkrafa ólöglegt, og eftir
ákvörðun stjórnarinnar skipuðu
samtök flutningaverkamanna
starfsfólkinu að hverfa aftur til
fyrri starfa. Einnig var létt banni
af rúmlega fjögur þúsund bíl-
stjórum.
Myndin er tekin í Nablus, einum helzta bænum i Vesturbakkanum, en þar hefur margsinnis komið til itaka upp i
siðkastið. Ungur arabískur piltur reynir að telja tvo ísraelska hermenn i að sleppa sér eftir að hann hafði kastað
grjóti að þeim í óeirðum nýlega. sím.mynd-AP.
*
Israel:
4 Arabar látast á
V esturbakkanum
Tel Aviv, 5. maí. AP.
FJÓRIR ungir Arabar létust skammt fri bænum Ya’Bad i Vesturbakka
Jórdan í dag, er handspregnja sem þeir virðast hafa fundið eða grafið upp,
sprakk í höndum þeirra. Á Gaza-svæðinu var mjög ófriðsamt í dag og
ísraelskir hermenn særðu a.m.k. tvo Araba sem köstuðu eldsprengju að
hermönnunum. Si atburður gerðist i flóttamannabúðunum Jabaliya rétt hji
Gaza-bæ. Talsmaður ísraelshers sagði að arabískir andófsmenn hefðu byrjað
óeirðirnar með þvi að kasta grjóti og hlaða götuvígi, brennt hjólbarða og
reynt að loka vegum.
í Tel Aviv hefur gætt mikillar
reiði vegna þessara atburða og
utanríkismálanefnd Knesset í
Jerúsalem gagnrýndi Eytan yfir-
mann herráðs Israels og sagði, að
það væri kyndugt að oft og einatt
skytu ísraelskir hermann Araba
til bana þegar þeim hefði væntan-
lega verið uppálagt að skjóta í
fæturna á þeim. Eytan gaf loðin
svör við gangrýni þessari.
Bæjarstjóri Gaza, Rashid
a-Shawa, sagði í dag, að bæjar-
starfsmenn myndu sýna gremju
sína vegna framkomu ísraelsku
hermannanna með því að fara i
verkfall. Hann sagði að mikil
spenna væri á Gaza-svæðinu og
þar gæti allt farið i bál og brand
ef ísraelskir hermenn sýndu ekki
meiri stillingu. Shawa og 23
bæjarstjórar í þorpum og bæjum
á Vesturbakkanum sendu bréf til
Sharons varnarmálaráðherra þar
sem þeir kröfðust þess að ísraelar
settu aftur í embætti fjóra löglega
kjörna bæjarstjóra sem voru
reknir úr störfum sínum fyrir
nokkrum vikum eins og fram hef-
ur komið í fréttum. Var tekið fram
að mikillar og vaxandi reiði gætti
einnig með nýja stjórnskipan
ísraela á hernumdu svæðunum.
Eldflaugin sem
sökkti Sheffield
íbúar Stanley flún-
ir til fjalla
Vancouver, 5. maí. AP.
Argentínumenn grönduðu brezka
tundurspillinum Sheffield við Falk-
landseyjar í fyrrakvöld með því að
skjóta að skipinu tveimur Exocet-
eldflaugum. Flaugunum var skotið
frá Super Etenard-orrustuþotum.
Hvort tveggja, flaugarnar og flugvél-
in, er smíðað í Frakklandi.
Exocet-flaugarnar eru 4,7 metr-
ar að lengd og í sprengioddi
þeirra,. sem er sams konar og
sprengioddur tundurskeytis, eru
talin vera um 160 kíló af sprengi-
efni. Þær voru upphaflega hann-
aðar fyrir skip, en eru nær ein-
göngu hafðar í Super Frelon-
þyrlum, Atlantic-skrúfuþotum,
Super Etenard- eða Mirage Fl-
orrustuþotum. Tilraunir hófust
1973 og framleiðsla 1977.
Þegar flauginni hefur verið
skotið, er henni til að byrja með
stýrt frá radar um borð í flugvél-
inni, en þegar hún er í um tíu kíló-
metra fjarlægð frá skotmarkinu
tekur innbyggður radar við og
stýrir flauginni á skotmarkið.
Eftir að flauginni hefur verið
skotið af stað leitar hún niður að
sjávarmáli og sér hljóðbylgjuhæð-
armælir um að halda flauginni í
2—3 metra hæð yfir haffletinum
meðan hún leitar skotmarkið uppi.
Drægni flauganna, sem fljúga
næstum með hljóðhraða (Mach
0,93), er mismunandi eftir því úr
hvaða hæð þeim er skotið. Super
Etenard-þota getur skotið flaug-
inni úr allt að 33 þúsund feta hæð
og er drægni flaugarinnar þá
tæplega 70 kílómetrar, en ef henni
er skotið úr Super Frelon-þyrlu í
100 metra hæð er drægnin 52 kíló-
metrar.
Veður
Akureyri +2 lóttskýjaó
Amaterdam 13 skýjaó
Aþena 23 heíóskirt
Barcelona 16 hálfskýjaó
Berlín 18 heióskírt
BrUssel 11 heiðskírt
Buenos Aires vantar
Chicago 28 rigning
Dyflinni 11 rigning
Feneyjar 12 alskýjaó
Frankfurt 13 rigning
Færeyjar vantar
Genf 13 rigning
Helsinki 11 heióakirt
Jerúsalem 20 heióskírt
Jóhannesarborg 19 hoióskírt
Kairó 27 rigning
Kaupmannahöfn 13 rigning
Las Palmas 22 léttskýjaó
Lissabon 18 heióskirt
London 12 heióskírt
Los Angeles 19 heióskírt
Madrid 21 heiðskírt
Mallorca 21 léttskýjaó
Malaga 24 léttskýjaó
Mexicoborg 23 heióskírt
Miami 25 skýjaó
Moskva 14 heióskirt
Nýja Delhi 38 heióskírt
New York 21 heiðskirt
Osló 10 skýjaó
París 14 heióskfrt
Perth 15 skýjaó
Reykjavík 0 skýjaö
Rio de Janeiro 25 rigning
Róm 20 heiðskirt
San Francisco 23 heióskirt
Stokkhólmur 8 skýjaó
Sydoey 26 heióskírt
Tel Aviv 23 heiðskírt
Tókýó 24 heióskfrt
Vancouver 13 skýjaó
Vínarborg 22 heióskírt
FAÐIR eins Falklendings sagði í
dag, aö hundruð Falklendinga heföu
flúið höfuðborgina, Stanley, og leit-
að skjóls í búðum smalamanna til
fjalla. Hann sagði Falklendinga vel
haldna og þeir hefðu nóg matar.
„Hann var borubrattur, það
kom mér á óvart," sagði Jim Curt-
is, faðir 37 ára Falklendings, sem
sagði aðeins 500 íbúa eftir í Stan-
ley. Flestir hefðust við í afskekkt-
um búðum hjarðmanna í hálendi
Austur- og Vestur-Falklands.
Talið er, að í mesta lagi eitt-
hundrað manns hafi yfirgefið eyj-
arnar eftir að Argentínumenn
réðust þar á land, en alls eru Falk-
lendingar um 1800 talsins.
Super-Frelon þyrla vopnuð tveimur Exocet-eldflaugum. sím*mynd ap.
Falklendingar á götu i Stanley. Hundruð íbúa í Stanley eru nú flúin til fjalla.