Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982 Fiskifræðingar á karfamiðunum „VIÐ EKl'M nú komnir hór inn á milli rússnesku logaranna og hölum séð (vo þeirra taka talsverl stór höl. Okkur viróast þeir vera í krinf>um 30, en erfitt er að ){era sér grein fyrir fjölda þeirra. Við erum að byrja að toga nú, klukkan rúmlega 18, og þangað til við höfum híft og rannsakaó aflann, get ég ekkert sagt um hvers konar karfa þeir eru að veiða,“ sagði Jakob Magnússon, fiski- fræðingur, er Morgunblaðið haföi sam- band við hann um borð í hafrann- sóknaskipinu Hafþóri í gær. Jakob sagði ennfremur að hér gæti hugsanlega verið um þrjár teg- undir af karfa að ræða, þann karfa sem Islendingar veiða mest, djúp- karfa eða úthafskarfa. Væru Rúss- arnir að veiða úthafskarfann hefði það engin áhrif á karfaveiðar íslend- inga, þar sem þeir hefðu ekki nýtt hann hingað til, öðru máli gegndi um hinar tvær tegundirnar. Sagði hann að vitað væri að á þessum slóðum væri stór karfastofn, úthafskarfinn, sem ekki hefði verið nýttur og því kæmi það ekkert á óvart að Rússar reyndu fyrir sér þarna. íslendingar hefðu gert tilraunir til að veiða hann fyrir allnokkru, en því hefði verið hætt vegna vanbúnaðar. Nú væri hins vegar möguleiki á að kanna svæðið þarna suðvestur af Reykja- nesi með tilkomu Hafþórs. Rann- sóknir á karfa stæðu nú yfir og hefði meðal annars verið ætlunin að kanna þetta svæði nú, en því verið flýtt vegna veiða Rússa. Þrír gamlir kvaddir Síðastliðinn þriðjudag voru þrír bátar brenndir í Skipasmíðastöð Njarðvíkur og varð af því mikill eldur og nokkrar minni háttar sprengingar. Svo mikill var eldurinn að enn logaði í rústum bátanna er Morgunblaðið ræddi við Óskar Guðmundsson yfirverkstjóra í gær. Sagði Óskar að vaninn væri að ónýtt skip skyldi brenna á Syðra-Hrauni á Kaxaflóa, samkvæmt fyrirskipunum siglingamálastofnunar, en vegna þess hve bátarnir voru gamlír og illa farnir var gripið til þess ráðs að brenna þá á staðnum í stað þess að leggja mikla vinnu í að þétta þá og draga á haf út. Sagði Oskar að elzti báturinn hefði verið hálfrar alda gamall og hinir nokkru yngri. Lengst til vinstri er Ingþór frá Seyðisfirði, elzti báturinn, í miðið er Ölver og loks Bjarney. I.jósmynd snorrí Snorraxon. Síðasti fundur borgarstjórnar SÍÐASTI fundur borgarstjórnar Keykjavíkur fyrir borgarstjórnarkosn- ingarnar þann 22. maí nk., var haldinn í gærkveldi. Á fundinum þakkaöi Sig- urjón l’étursson, forseti borgarstjórn- ar, borgarfulltrúum samstarfið. Sér- staklega þakkaöi hann þeim Birgi ísl. Vinstri glundroði í gjaldskrárstríði: Bótaskylda ríkissjóðs ítrekuð í borgarráði Gunnarssyni, Elínu I’álmadóttur og Ólafi B. Thors, en þau gefa ekki kost á sér til frekari setu í borgarstjórn. Davíð Oddsson þakkaði borgar- fulltrúum samstarfið fyrir hönd sjálfstæðismanna. Fyrir hönd þeirra þriggja sem hverfa úr borgarstjórn, flutti Birgir Isl. Gunnarsson þakkir. Sagði hann að þau þrjú gæfu ekki kost á sér, a.m.k. ekki að sinni! Kvaðst hann hafa átt sæti í borgarstjórn í 20 ár og kveddi hann þennan starfsvett- vang því með söknuði. Þessi 20 ár væru stór hluti af lífi hans, en ánægjulegur tími, þótt stundum hefði á móti blásið og oft hart deilt. Á þessum tíma hefði hann eignast góða vini og félaga úr hópi borgar- fulltrúa og embættismanna. Sagðist hann vonast til að sú vinátta ætti eftir að haldast með mönnum og að menn ættu eftir að lifa saman marg- ar ánægjulegar stundir þó á öðrum vettvangi yrði. BORGAKRÁÐ telur, að veitustofn- anir Keykjavíkurborgar, hitaveitan og rafmagnsveitan, eigi rétt til bóta úr ríkissjóöi fyrir tekjutap sökum þess, að rikisstjórnin synjaði stað- festingar á gjaldskrám, sem borgar- yfirvöld settu löglega að mati borg- arstjórnar Keykjavíkur. Þetta kemur fram í bókun, sem samþykkt var á fundi borgarráös sl. þriðjudag. Vinstri meirihlutinn í borgarráði klofnaði í þessu máli. — málaferli ef viðræð- ur bera ekki árangur Bókunin var samþykkt með at- kvæðum tveggja sjálfstæð- ismanna, Davíðs Oddssonar og Markúsar Arnar Antonssonar, og fulltrúa Alþýðuflokksins, Sjafnar Sigurbjörnsdóttur, fulltrúi Fram- sóknarflokksins, Kristján Bene- diktsson, sat hjá en Sigurjón Pét- Alþýðubandaiagið og launamálin: Hættan af fóstrum VORII) 1981 deildu fóstrur um laun við hið opinbera. Ilinn 14. maí það ár ritaði Þröstur Olafsson, að- stoðarmaður fjármálaráðherra og einn af hugmyndafræðingum Al- þýðubandalagsins, grein í Þjóðvilj- ann og sagði meðal annars: „Fóstrudeilan er löngu hætt að vera eingöngu deila um launakjör fóstra. Hún er orðin spurning um þróun launamarkaðarins næstu mánuði. Að vísu má segja sem svo að slysið sé þegar orðið, það hafi gerst með samningum Reykjavíkurborgar. Það má til sanns vegar færa, en launakerfi ríkisins.er miklu flóknara og við- kvæmara gegn svona hækkunum eins og þarna hafa átt sér stað en launakerfi nokkurs sveitarfélags. Fáir málaflokkar sem stjórn- málamenn þurfa að glíma við eru jafn viðkvæmir og erfiðir eins og launamál. Fóstrudeilan er speg- ilmynd þessa. Fátt er auðveldara en að réttlæta hækkun fóstra í launum. Fátt getur þó valdið rík- inu og síðan verkalýðshreyfing- unni í heild jafnmiklum erfiðleik- um og sú hækkun sem krafist er. Aðgát skal höfð.“ Þröstur Minna má á, að vegna þessara skrifa og annarra ummæla kom fram sú hugmynd, að þeir Þröst- ur Ólafsson og Ragnar Arnalds yrðu gerðir að heiðursfélögum í Vinnuveitendasambandi íslands. ursson, fulltrúi Alþýðubandalags- ins, greiddi atkvæði á móti. I samþykkt borgarráðs segir, að áður en reikningur er sendur iðn- aðarráðuneytinu á grundvelli bótaskyldu þess, verði óskað eftir viðræðum við ríkisstjórnina um gerð áætlunar til að ná viðunandi rekstrargrundvelli veitustofnan- anna í samræmi við bréf iðnaðar- ráðuneytisins frá 23. apríl sl. Tel- ur borgarráð nauðsynlegt, að niðurstaða fáist í þessum málum hið fyrsta eða áður en borgar- stjórn tekur afstöðu til þess hvort leitað verður til dómstóla, til þess að ná fram rétti Reykjavíkurborg- ar til þess að setja gjaldskrár. Þessi niðurstaða í borgarráði byggist á áliti tveggja lögfræð- inga, en þeir telja, að lagaákvæði um verðstöðvun hafi fallið niður um síðustu áramót og þess vegna sé borgarráði frjálst að setja hita- veitunni og rafmagnsveitunni gjaldskrár að því tilskildu, að iðn- aðarráðherra staðfesti þær lögum samkvæmt. Þessi staðfesting ráð- herra sé hins vegar frekar forms- atriði en efnis, ráðherra eigi að- eins að gæta þess, að rétt sé að hækkun staðið. Sérstök ráðherra- nefnd úrskurðaði gjaldskrárhækk- anir veitustofnananna undir lok apríl og tók þar efnislega afstöðu til tilkynninga Reykjavíkurborgar um gjaldskrárhækkanirnar. Að fengnum þeim úrskurði telur borgarráð nauðsynlegt að sækja málið áfram á grundvelli þeirrar ályktúnar, sem gerð var á fundi þess á þriðjudag. Spurt og svarað um garðyrkju Athygli er vakin á því, að lesendur geta haft samband við ritstjórn Morgunblaðsins í síma 10100 á milli kl. 11 og 12 á morgnana og komið á fram- færi fyrirspurnum um garð- yrkjumál. Morgunblaðið hefur fengið Hafliða Jónsson, garðyrkju- stjóra, til að svara spurning- um lesenda. Verkamannasambandið ígrundar nýja kröfugerð í dag: Telur þróun kjarnasamn- ings VMSÍ mjög í óhag FRAMKVÆMDASTJÓRN og sambandsstjórn Verkamannasambands ís- lands kemur í dag saman til fundar, þar sem tekin verður afstaða til endurskoðunar krafna VMSI í Ijósi breytinga, sem forysta sambandsins telur að orðið hafi á kjarnasamningi frá því er upphaflega var frá honum gengið. Hefur nefnd innan sarnbandsins unnið að endurskoðun krafnanna og mun hún skila áliti á fundinum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins, gerði formaður VMSÍ, Guðmundur J. Guðmundsson, fyrir röskum mánuði athugasemd við þá þróun, sem orðið hefði á kjarna- samningnum, en forysta VMSI telur að aðilar innan Verkamannasam- bandsins hafi dregizt verulega aftur úr í launaþróun sérstaklega síðast- liðið ár. Telur hún að á þeim tíma, sem liðinn er frá gerð samningsins, hafi orðið æði mikil riðlun á upp- itmiMiiMtmmninMaa byggingu kjarnasamningsins VMSÍ í óhag. Félagar VMSI eru nú bundn- ir í launaflokkum 7 til 15 og telja aðra launþega hafa ýtzt ofar í flokkastigann. Á þessum fundi fyrir rúmum mánuði gerði Guðmundur grein fyrir því að VMSI myndi endurskoða kröfugerð sína í ljósi þessa. Geri VMSÍ einhverjar ákveðnar tillögur, eftir fundinn í dag, hljóta þær að miða að því að minnka það bil, sem forysta VMSÍ telur að hafi myndazt milli umbjóð- enda sinna og annarra launþega. í upphaflegum kröfum VMSÍ var gert ráð fyrir að allir félgar innan sambandsins færu upp um einn flokk og yrðu þar af leiðandi í launaflokkum 8 til 16. Þá má geta þess, að fulltrúar Verkamannasamhandsins í 72ja manna nefnd ASI sóttu ekki síðasta fund nefndarinnar, m.a. vegna þess að þeir telja hann hafa verið ótíma- bæran. Ljóst væri að öll sambönd innan ASI, nema Samband bygg- ingamanna, biðu eftir VMSÍ og á meðan slíkt ástand væri, kvað heim- ildarmaður Mbl. ótímabært að halda fund í nefndinni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.