Morgunblaðið - 07.05.1982, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 07.05.1982, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1982 5 í DAG er síðasti dagur Stendhal-snyrtivörukynningarinnar í húsakynn- um Modelsamtakanna, Skólavöröustíg 14. Opið er kl. 14—19 og klukk- an 16 í dag verða einnig sýnd tízkuföt frá verzluninni l'rður. Meðfylgj- andi mynd var tekin í gær á snyrtivörukynningunni. í frétt í blaðinu í gær urðu þau mistök, að snyrtidaman var nefnd Erika Sigurhannesdótt- ir, en hún heitir Svanborg Daníelsdóttir. I.jnsimnd Mhl. (iurtmundur I lilmarssun.' Fyrsti farsedillinn! Fyrsti farmiðinn var keyptur á nýopnaðri söluskrifstofu Arnarflugs í vikunni, en eins og kunnugt er hefur félagið fengiö leyfi til áætlunarfíugs til þriggja borgar í Mið-Evrópu í sumar, Amsterdam, Diisseldorf og Ziirich. I‘að var Guöbjörg Jóhannsdóttir, sem keypti sér farmiöa til Ziirich i Sviss. í tilefni þess, að hún er fyrsti farþegi félagsins í áætlunarfluginu milli landa var henni afhent bréf til staðfestingar því, að næsti farmiði, sem hún kaupir hjá félaginu verður með 50% afslætti. Á myndinni sést Gunnar Þorvaldsson, framkvæmdastjóri Arnarflugs, afhenta Guðbjörgu miðann, en auk þeirra eru á myndinni starfsmenn söluskrifstofunnar. Akureyri: Skrifað und- ir sérkjara- samning Starfsmannafélag Akureyrarkaup- staðar hefur skrifað undir sérkjara- samning við vinnuveitanda sinn og gildir hann frá áramótum fram á mitt sumar. Hækka laun starfsmanna að meðaltali um 4,5%. Meðal atriða samningsins má nefna að starfsmat var endurskoðað og raðað í launaflokka í samræmi við það, ný ákvæði eru um starfsald- urshækkanir og breytingar á launa- flokkum sjúkraliða og skrifstofu- fólks sem er að hefja störf. Mæðrablómið í Kópavogi l)M LEIÐ og Mæðrastyrksnefnd Kópavogs óskar öllum Kópavogsbúum gleðilcgs sumars vill hún vekja athygli á mæðradeginum sem er 9. maí nk. Þá verður kaffisala og sýning á listvefnaði eftir Elínbjörtu Jónsdótt- ur og verða nokkur verkanna til sölu að Hamraborg 1, niðri, til styrktar bágstöddum bæjarbúum. Einnig verður mæðrablómið selt þá helgi. Þau börn er hefðu hug á að selja mæðrablómið fá þau afhent föstu- daginn 7. maí kl. 14—16 hjá Ingu H. Jónsdóttur, Hjallabrekku 7, og Guð- nýju Pálsdóttur, Álfhólsvegi 12. Þær konur er vildu gefa kökur, vinsamlegast komi þeim að Hamra- borg 1, niðri, á sunnudaginn 9. maí kl. 10-2. Við heitum á Kópavogsbúa að styrkja nefndina í starfi. Tónleikar í Hafnarfirði TÓNLEIKAR verða haldnir í Góð- templarahúsinu i llafnarfirði í dag klukkan 21. Þar munu þau syngja/- leika Margrét Pálmadóttir, sópran, Machiko Sakurai, píanóleikari og Joseph Fung, gítarleikari. Á dagskrá hljómleikanna eru verk eftir Pergolesi, Praetorius, Bach, Schubert, Haydn, Mozart, Sigvalda Kaldalóns, Pál ísólfsson, Jón Þórarinsson, Áskel Másson og fleiri. Ananda Marga mótmælir moröum FÖSTHDAGINN 7. maí munu féiagar í Ananda Marga á Islandi gangast fyrir mótma-laaðgerðum á skákborðinu á La'kjartorgi. Þetta er gert í minningu um 19 yóga kennara hreyfingarinnar, sem voru myrtir á hinn hryllilegasta hátt þann 30. apríl sl. af kommúnistum (CPM) í Indlandi. Félagarnir munu fasta þennan dag, einnig hafa nokkr- ir fastað í fimm daga í mótmæla- skyni. Dreifibréfum verður dreift til frekari útskýringa. Meðlimir munu svara fyrirspurnum frá kl. 13.15—18. Skrúðganga mun leggja af stað frá Aðalstræti 16 kl. 13. Kjörorð aðgerð- anna er: Gegn ofbeldi kúgun. „UNISEX" buxur EFNI DFNIM OG 100% GÆDA- BÖMULL. MARGIR LITIR, mimo # KARNABÆR UMBOÐSMENN UM LAND ALLT Cesar — Akureyri, Eplið — Isafirði, Eyjabær — Vestmannaeyjum, Fataval — Keflavík, Hornabær — Hornafirði, Álfhóll — Siglufirði, Óðinn — Akranesi, Ram — Húsavík, Bakhúsið — Hafnarfirði, Austurbær — Reyðarfiröi, Kaupfél. Rangæinga — Hvolsvelli, Sparta — Sauðárkróki, Skógar — Egilsstöðum, Isbjörninn — Borgarnesi, Lea — Olafsvík, Lindin — Selfossi, Paloma — Vopnafirði, Patróna — Patreksfiröi, Báran — Grindavík, Bjólfsbær — Seyöisfirði, Þórshamar — Stykkishólmi, Inga — Hellissandi, Aþena — Blönduósi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.