Morgunblaðið - 07.05.1982, Side 7

Morgunblaðið - 07.05.1982, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1982 7 Utankjörstaðakosning Utankjörstaðaskrifstofa Sjálfstæðisflokksins, Valhöll, Háaleitisbraut 1, símar 86735 — 86847 — 86747. Upplýsingar um kjörskrá o.fl. Sjálfstæöisfólk! Vinsamlegast látiö skrifstofuna vita um aila kjósendur, sem ekki veröa heima á kjördegi. Utankjörstaöakosning fer fram að Fríkirkjuvegi 11 alla virka daga kl. 10—12, 14—18 og 20—22. Sunnudaga kl. 14—18. ____ Glæsileg karlmannaföt frá cofinca nýkomin, einhneppt og tvíhneppt. 1. fl. efni. Einnig fyrirliggjandi vinsælu fötin frá kr. 998 og kr. 1.098. Terylenebuxur, flauelsbuxur, gallabuxur. Frábært verö. Andrés, Skólavörðustíg 22a. Vorkappreiðar Vorkappreiðar Fáks veröa haldnar laugardaginn 15. maí. Keppt veröur í eftirtöldum greinum: Skeiö, 150 metrar, hestar 5—7 vetra. Skeiö, 250 metrar. Stökk 250, 350 og 800 metra. Brokk, 300 og 800 metra. Skráning fer fram í dag á skrifstofu félagsins kl. 13—18 og lýkur mánudaginn 10. maí kl. 18.00. Aldur knapa miðast viö aö vera fæddir 1966 eöa fyrr. Skráningareyöublöö á skrifstofu Fáks. /Etlast er til aö greint sé frá hvaðan hesturinn sé ættaöur, einnig hver sé faðir hans og móöir. Kynbótahross sem keppa aö því aö komast á lands- mótiö í sumar mæti fimmtudaginn 20. maí. Hestamannafélagið Fákur. Úrvals kjötá góðu verði Svínakjöt Vi og 'h skrokkar af nýslátruðu t.b. i kistuna kr. 65 kr. kg. Úrvals nautakjöt, alikálfakjöt, folaldakjöt. Beikon á tilboösverði Kryddlegiö lambakjöt. Reykt folaldakjöt á góöu verði. Þykkvabæjarbjúgu. Nýju kartöflurnar úr Þykkvabænum. Allt kaffi á eldgamla verðinu. Verið velkomin. Opið föstudag til kl. 8, laugardaga til hádegis. vamsBL Þverbrekku 8, Kópavogi. Símar 42040 og 44140. EF ÞAÐER FRÉTT- NÆMT ÞÁ ER ÞAÐ í MORGUNBLAÐLNU DAVÍO ALBERT Albert og Davíð „Samstarf okkar hefur ávallt veriö gott. Á reynslu minni af því góða samstarfi byggöi ég þá tillögu mína, aö Davíð Oddsson yrði staðfestur í það forystuhlutverk, sem hann hefur nú einróma veriö valjnn-vtil að gegna. Hann er ungur, þó reynsluríkur, vel menntaður maður, sem ég treysti. Því bind ég vonir mínar viö glæsilega framtíð borgarflokksins undir hans forystu. Vona ég að þeir stuðningsmenn mínir, sem mér treysta, styöji hann og Sjálfstæðisflokkinn í borgarstjórnarkosningunum." (Albort Quömundsson í grsin í DV 5. msí sl.) Stöndum og sigrum saman Grein Alberts Guð- mundssonar er svohljóð- andi: „Dagblaðið & Vísir birti nvlega lesendabréf frá Ág- ústi Arasyni, er ræddi vandamál sitt vegna vænt- anlegra borgarstjórnar- kosninga þann 22. maí og óskaði eftir svörum frá for- sætisráðherra og mér um það, hvernig hann og fleiri ættu að greiða atkvæði til þess að styðja okkur, þann- ig að það komi okkur sem best. Forsætisráðherra hhvtur aö svara fvrir sig. Ég vil þakka það traust, sem bréfritari ber til mín. Þess vegna lcyfi ég mér að vona að hann treysti dómgreind minni og styðji dyggilega framboðslista Sjálfstæðis- flokksins og borgarstjóra- efni hans. Hvað varðar borgar- stjóraefni SjálfstæðLs- flokksins, þá bendi ég á, að Davíð Oddsson var valinn sem formaður okkar fyrir tveimur árum, og á þeirri reynslu sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefur af forustu hans, var hann staðfestur sem borgarstjóraefni okkar. Davíð Oddsson hefur víðtæka reynshi af borg- armálum, og hefur verið nánasti samstarfsmaður minn í borgarráði og i borgarstjórn, síðan Birgir ísleifur Gunnarsson lét af embætti. Samstarf okkar hefur ávallt verið gott. Á reynslu minni af því góða samstarfi byggði ég þá tillögu mína, að Davíð Oddsson yrði staðfestur í það forustu- hlutverk sem hann hefur nú einróma verið valinn til að gegna. Hann er ungur, þó reynslu- ríkur, vel menntaöur mað- ur, sem ég treysti. Því bind ég vonir mínar við glæsi- lega framtið borgarflokks- ins undir hans forustu. Vona ég að þeir stuðn- ingsmenn mínir, sem mér treysta, styðji hann og Sjálfstæðisflokkinn í borg- arstjórnarkosningunum. Við búum okkur undir erfiða baráttu fyrir framtíð Sjálfstæðisflokksins og Reykjavíkurborgar. I>ví ríður á, að sjálfstæðisfólk standi saman, og berjist hlið við hlið, svo að saman getúm við glaðst þann 22. maí." Kauphækkun- arbann Al- þýðubanda- lagsins Svarthöfði DV fjallar i fyrradag um „kaupauka" til skrifstofufólks Bl'R og segir m.a.: „I>að er nefnilega orðið Ijóst nú nokkru fyrir kosn- ingar að kauphækkanir varða brottrekstrarsök framkvæmdastjóra borg- arfyrirtækis eigi Alþýðu- bandalagið að ráða ferð- inni. Svo vill til að fram- kvæmdastjóri BÚK og skrifstofustjórinn eiga stóra afsökun fyrir „ódæði" sínu, svo notað sé orð yfir hugarfar Alþýðu- bandalagsins til málsins. Skrifstofufólkið, sem hjá þeim vinnur, hafði uppi ýt- arlegar spurnir um vinnu- laun skrifstofufólks á vinnumarkaði almennt, og komst að raun um, að hvergi þekktust eins lág laun og hjá Bl R. Fram- kvæmdastjórinn og skrif- stofustjórinn vissu auðvit- að að þetta var satt og þess vegna töldu þeir eðlilegt að gott starfsfólk fengi þann „kaupauka", sem um ræð- ir. En þetta má ekki. Verkalýðsforusta Alþýðu- bandalagsins vill láta kjósa um 22. mai hvað fólk sem vinnur hjá borginni eigi að hafa í laun. Hún vill halda þeirri áróöursaðstöðu, sem hún telur sig hafa, með því að þvarga í launadeilu við Vinnuveitendasambandið i miðjum kosningaslagnum. Að vísu er nú ekki minnst á samningana i gildi eða timavissar vísitöluskerö- ingar, heldur sagt beinum orðum. að Alþýðubanda- lagiö verði að halda meiri- hluta í borginni eigi ein- hver árangur að nást í launaþjarkinu. Vinnuveit- endur hafa eðlilega krafist þess að samningum verði frestað fram yfir kosningar til að þessi lífsréttur laun þega, sem launin eru, verði ekki hafður aö leiksoppi í þágu Alþýöubandalagsins. En þá gera fram- kvæmdastjóri og skrif- stofustjóri Bl’R þann fjanda að veita fólki sínu 20' i „kaupauka", auövitað alveg blindir á þau áhrif sem slík greiðasemi hefur á vinnuveitendur þeirra, Alþýðubandalagið. Á tím- um vinstri stjóma hefur það nefnilega verið venjan aö Alþýðubandalagið skammtaði kaupið. I>etta kemur fram m.a. í óvenju kurteisum kröfum ASÍ sem vill aðeins 15rt hækkun á sama tíma og skrifstofu- fólk BÚR Hnnur út að þaö vinnur undir venjuiegum greiðslutöxtum skrifstofu- fólks. En Alþýðubandalag- iö er harður húsbóndi, sem semur fyrir rikisstjórnina i ár. og lætur sig litlu skipta þótt samið verði um mikið lægri laun er þegar eru greidd velflestum stéttum. Kosningabaráttan er >arla hafin. Verkalýðsfor- kólfar Alþýöubandalagsins revndu þó að láta kjósa um kauphækkanir. I’eir töldu sig hafa stór boð á hendi, en svo kom þetta blessað skrifstofufólk til sögunnar með sín 20't, og hækkun til þess verður að banna. Svarthöfði." Gáfu sjúkrabað Nýlega heimsóttu félagar í Kiwanisklúbbnum Heklu Hrafnistu í Reykjavík og færðu heimilinu að gjöf fullkomið sjúkrabað af ARJÖ-gerð. Baðið er ætlað til nota á hjúkrunardeildum Hrafn- istu og er þegar komin reynsla á það og líkar vel. Myndin er tekin af stjórn og styrktarnefnd Kiwanisklúbbsins Heklu við afhendingu á baðinu. Skólaskák- mótið um næstu helgi LANDSMÓT skólaskákar verð- ur haldið um næstu helgi í Hafralækjarskóla í Aðaldal, en það sækja þeir er orðið hafa kjördæmameistarar. Hefst mót- ið á föstudag og er teflt um titil- inn skólaskákmeistari Islands 1982. Á mótinu verður teflt í tveim- ur flokkum, eldri og yngri. Sækja það því alls 18 skákmenn, en það er nú haldið í fjórða sinn. Hefur það alltaf verið haldið úti á landi, á Kirkjubæjar- klaustri fyrst, síðan á Varma- landi, í fyrra í Varmahlíð og nú í Hafralækjarskóla. Mæðrablómið selt næstu daga MÆÐRADAGURINN er á sunnu daginn kemur. Mæörablómið verð- ur selt næstu daga á ýmsum stöð- um í borginni, m.a. í nokkrum blómabúðum og á skrifstofu Mæðrastvrksnefndar Njálsgötu 3. Tekjum Mæðrastyrksnefndar af blómasölunni er varið til sumardvalar fyrir eldri konur. Mæðrablómið hefur verið selt í áratugi til ágóða fyrir hið mikla starf, sem nefndin vinnur. En hún rekur m.a. lögfræði- ráðgjöf, sumardvöl fyrir eldri konur og styrkir þá sem með þurfa fyrir jólin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.