Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1982 13 Samhent átak í tómstunda- starfæskulýðsmálum eftir Ingibjörgu Rafnar Á undanförnum árum hafa æskulýðsmál verið í brennidepli, ekki síst vegna þess ástands, sem ríkir á Hallærisplaninu um helg- ar. Núverandi meirihluti borgar’- stjórnar hefur ekki tekið á því máli sem skyldi og forsvarsmenn hans jafnvel sagt, að það sé ríkis- ins en ekki borgarinnar að leysa þann hluta vandans, sem snýr að neyslu unglinga á vímugjöfum. Slíkur vandi, er náð hefur að grafa um sig í þeim mæli, er hér um ræðir, verður auðvitað ekki leyst- ur á einni nóttu. Við megum hinsvegar ekki loka augunum fyrir honum eins og gert hefur verið sl. fjögur ár, heldur leysa hann með margskonar almennum aðgerðum í æskulýðsmálum. Stirt samstarf meirihlutans í tíð núverandi borgarstjórn- armeirihluta hefur ekkert nýtt verið gert í æskulýðsmálum af hálfu borgarinnar, meirihlutinn hefur enga nýja heildarstefnu mótað. Þess var enda ekki að vænta, þar sem þeir stjórnmála- flokkar, sem hann mynda, kynntu hver sína stefnu fyrir síðustu kosningar, stefnur, sem voru ósamrýmanlegar í meginatriðum. Samstarf fulltrúa meirihlutans í ÚT ER kominn hjá Nimsgagnastofn- un námsefnisflokkur í samfélags- fræði fyrir 7. bekk, Náttúruhamfarir og landmótun, eftir Aðalstein Eiríks- son og Tryggva Jakobsson. í flokknum eru tvær nemenda- bækur, Jón Steingrímsson og móðuharðindin og Heimaeyjargos- ið 1973, sex leskaflar um landmót- un, Rek hafsbotns og meginlanda, Eldgos, Jarðskjálftar og jarðhiti, ísöld, Hringrás vatns, rof, Veðrun, sjór og stöðuvötn. Þá fylgir eining- unni Töfluhefti, Ýtarefni með ýms- um sagnfræði- og landfræðilegum fróðleik, Vinnuspjöld og kort, Flettiglæra (V-Skaftafellssýsla) og Kennsluleiðbeiningar með vinnu- blöðum. Fyrirhuguð er útgáfa skyggnuflokks með þessu efni. „Náttúruöflin hafa víðtæk áhrif á líf manna og sögu þjóða“ eru ein- kunnarorð þessa námsefnis, en því er m.a. ætlað að vekja nemendur til umhugsunar um tengsl mannsins við landið og náttúruöflin. Athygli er beint að móðuharðindunum og högum þjóðarinnar á þeim tíma. Með bókinni um Heimaeyjargosið 1973 er gefið færi á að bera saman fortíð og nútíð í þeim efnum. í bókinni Jón Steingrímsson og móðuharðindin er stuðst við Ævi- sögu og Eldrit sr. Jóns Steingríms- Listi Alþýðuflokks á Seltjarnarnesi BLAÐINU hefur borizt framboðs- listi Alþýðuflokksins til bæjarstjórn- arkosninganna á Seltjarnarnesi maí- mánuði næstkomandi. Listann skipa eftirtalin: (iunnlau^ur Árnason, verkstjóri. Krna l»or- geirsdóttir, bankastarf.smaóur. Njáll Ingjald.s- son, skrifstofu.stjóri. Kost'-Marie ('hristiansen, bankastarfsmaður. Hróðný l’álsdóttir. húsmóðir. Jón l*orsteinsson, fyrrv. alj)ingi.smaóur. Ólafur Stefánsson, lögfra*óingur. Ágúst Kinarsson, út- gerðarmaður. Sigurjón Kristinsson, fram- kvæmdastjóri. Sigurhans l»orbjörnsson, vél- stjóri. l»orsteinn llalldórsson, rakarameistari. Birgir Berndsen, vélstjóri. (>uðjón Vigfússon, skipstjóri. (iuðmundur lllugason, fyrrv. hrepp- stjóri. EFÞAÐERFRÉTT- NÆMTÞÁERÞAÐÍ MORGUNBLAÐINU æskulýðsráði hefur m.a. af þeim sökum verið mjög stirt. Það starf, sem unnið hefur verið, svo sem við uppbyggingu félagsmiðstöðva og starf í þeim, svo og tómstunda- starf í skólum auk annarrar æsku- lýðsstarfsemi, hefur verið í beinu framhaldi af því starfi, er hafið var í tíð sjálfstæðismanna. Lokið var framkvæmdum við félags- miðstöðvarnar Þróttheima og Ársel, sem voru langt komnar í maí 1978, og Tónabær var gerður upp og starfsemi þar endurskipu- lögð. Hinsvegar hafa ýmis nýmæli ekki náð fram að ganga vegna ósamkomulags meirihluta æsku- lýðsráðs. Stefna sjálfstæðismanna um samhent átak Við sjálfstæðismenn teljum, að hér þurfi að verða breyting á, og að gera þurfi samhent átak til að efla áhugavekjandi og þroskandi tómstundastarf í borginni. Hafa verður í huga að framsýnir menn hafa spáð því, að tölvubyltingin svokallaða muni hafa þau áhrif, að vinnutími styttist verulega á næstu árum og hefur sú þróun í för með sér mjög aukna þörf fyrir fjölbreytta tómstundaiðju. í stefnuskrá okkar sjálfstæð- ismanna fyrir borgarstjórnar- sonar, fjallað er um Vestur-Skafta- fellssýslu, sögu hennar og þau landmótunaröfl sem þar hafa haft áhrif á líf fólksins. Þá er lögð áhersla á tengsl mannfjölda og ár- ferðis og á samanburð milli lands- hluta. (Krétutilkynning.) lngibjörg Rafnar „Við sjálfstæðismenn teljum, að hér þurfi að verða breyting á og að gera þurfi samhent átak til að efla áhugavekjandi og þroskandi tómstunda- starf í borginni. Hafa verður í huga að framsýnir menn hafa spáð því, að tölvubyltingin svokallaða muni hafa þau áhrif, að vinnutími styttist verulega á næstu árum og hefur sú þróun í för með sér aukna þörf fyrir fjölbreytta tómstundaiðju ...“ segir Ingibjörg Rafnar í þessari grein, en Ingibjörg er fimmti maður á fram- boðslista sjálfstæð- ismanna við borgarstjórn- arkosningarnar í Reykja- vík nú í maí. kosningamar í vor leggjum við áherslu á eftirfarandi atriði við skipulagningu og framkvæmd æskulýðs- og tómstundamála í borginni: Háfa ber að leiðarljósi, að ein- staklingurinn fái sem best notið hæfileika sinna, sköpunargleði og atorku. Frjáls félagasamtök verði studd með aðstöðu til starfsemi sinnar og styrkveitingum, enda verði settar ákveðnar reglur um úthlut- un slíkra styrkja. Efla þarf sam- starf og samvinnu borgaryfir- valda, almennings og félagasam- taka m.a. með því að fjölga fræðslu- og leiðbeinendanám- skeiðum fyrir almenning og þá, sem starfa að æskulýðs-, íþrótta- og félagsmálum. Jafnframt þarf að tryggja ófé- lagsbundinni æsku aðstöðu til þroskandi tómstundaiðju í félags- miðstöðvum og skóium borgarinn- ar. Fyrirbyggjandi starf hvers kon- ar þarf að auka að mun, einkum með tvennum hætti: Efla þarf starf Útideildar og auka á ný tengsl deildarinnar við æskulýðs- ráð, félagsmiðstöðvarnar og frjáls félagasamtök, sem vinna að mál- efnum unglinga. 1 annan stað verður að auka fræðslu í skólum og fjölmiðlum um áfengis- og fikniefnamál. Leysa verður mál fólks undir tvítugu varðandi dansleikjahald, t.d. í samvinnu við skóla, foreldra- og nemendafélög skóla og frjáls félagasamtök. Einnig er vert að kanna, hvort unnt sé að fá sér- stakt húsnæði til slíks og þá í samvinnu við unglingana sjálfa og aðra. Fjölskyldunni allri verður að skapa möguleika til að stunda sameiginlega tómstundaiðju, m.a. á útivistarsvæðum og í félagsmið- stöðvum borgarinnar. Við skipu- lagningu nýrra hverfa verði hugað að.tómstunda- og útivistarmáium allra aldurshópa og slík aldurs- blöndun höfð í huga við hönnun og byggingu mannvirkja. Þannig myndu mannvirki nýtast betur, framkvæmdakostnaður minnka og rekstrargjöld lækka. Jafnframt verði áhugamannafélögum, íbúum hverfa eða öðrum gefinn kostur á að sjá um rekstur slíkra mann- virkja að hluta í samvinnu við borgaryfirvöld. Kanna verður möguleika í eldri hverfum á samnýtingu húsnæðis, sem fyrir er til tómstundastarfa, svo sem skóla, aðstöðu félaga, íþróttahúsa o.s.frv. Þar sem slík aðstaða er ekki fyrir hendi, verði byggðar upp félagsmiðstöðvar í samvinnu við aðra aðila, enda verði gætt sjónarmiða þeirra, er um getur hér að framan. Starfsemi Vinnuskólans ber að efla og endurskipuleggja, m.a. með það í huga að starf skólans verði um leið kynning og þjálfun í und- irstöðuatriðum atvinnuvega þjóð- arinnar. Auka þarf tengsl og skilning reykvískra barna og unglinga á lífi og starfi í sveitum landsins, m.a. með skiptiferðum þeirra og barna og unglinga af landsbyggð- inni. Síðast en ekki síst þarf að efla aðstöðu til hollrar tómstundaiðju úti við, svo sem siglingaklúbbsins í Nauthólsvík. Einnig þarf að fá hentugt útivistarsvæði í stað Saltvíkur, sem er of fjarri borg- inni, niðurnídd og að öðru leyti óhentug til slíks. Benda má á svæði eins og Elliðavatn og Heiðmörk auk Bláfjallasvæðisins. Þar mætti skapa aðstöðu til fjöl- breyttrar útivistar, svo sem gönguferða, reiðmennsku, sigl- inga, silungsveiða, náttúruskoðun- ar hverskonar og fræðslu um jarðfræði og flóru svæðisins, berjatínslu og svo mætti lengi telja. Með það í huga að æskan í dag er þjóðin á morgun telja sjálf- stæðismenn, að leggja beri ríka áherslu á þróttmikið og þroskandi æskulýðs- og tómstundastarf eins og framangreind samantekt úr stefnuskrá okkar sjálfstæð- ismanna ber vitni um. Radial með Superfiller Bridgestone Radial hjólbaróar meö sérstyrktum hliöum veita auk- iö öryggi viö akstur á malarvegum. Hjólbaröakaupendur.... Þegar þiö kaupió radial hjólabaróa, þá athugió hvort þeir eru merktir S/F, því þaö táknar aö þeir eru meö Superfiller styrkingu íhlióunum. BRIDQE STONE á íslandi BlLABORG HF Smiðshöföa 23, sími 812 99. Námsefni um Náttúru- hamfarir og landmótun

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.