Morgunblaðið - 07.05.1982, Page 14

Morgunblaðið - 07.05.1982, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1982 „Skipið var hvítglóandi og málningin flagnaði af ‘ sagði skipstjórinn á Sheffield, James Salt Georce Bush Sammála um flest mikil- væg atriði — segir Bush í Kína Hangzhou, 6. maí. Al*. GEORGE Bush varaforseti Banda- ríkjanna, sem er í heimsókn í Kína, segir að í viðræðum við kinversku stjórnina hafl komið i Ijós að stjórnir ríkjanna séu sammála um flest mik- ilvæg atriði en ágreiningur sé um fáein mál. Sambúð stjórnanna í Pek- ing og Washington hefur verið stirð að undanfornu vegna Formósu og hafa Kínverjar krafizt þess að Bandaríkin tiltaki hvenær þau ætli að hætta vopnasölu þangað. Bush fer til Peking á morgun til að ræða við helztu ráðamenn og hefur hann sagt að viðræðurnar séu afar mikilvægar. Varaforset- inn mun m.a. ræða við Deng Xi- aoping, sem talinn er valdamesti maður landsins nú um stundir, og Huang Hua utanríkisráðherra. Ixindon, 6. maí. AP. „VIÐ fundum hitann vel í gegnum skósólana. Yfírbygg- ing skipsins var einn gufu- mökkur og málningin á síð- unni flagnaði af. Staðurinn þar sem eldflaugin hafnaði í skipinu var hvítglóandi," sagði James Salt, skipstjóri, á breska tundurspillinum Sheffíeld, sem sökk undan Falklandseyjum eftir að hafa orðið fyrir argentínskri eld- flaug. Fréttamenn ræddu við hann um borð í HMS Hermes en allir þeir úr áhöfn Sheffield, sem komust lífs af, voru fluttir yfir á það skip. Salt skipstjóri hældi áhöfn sinni á hvert reipi fyrir stöðugleika, sam- vinnu og rétt viðbrögð. Andrúms- loftið um borð í HMS Hermes hef- ur að sögn eins skipverjans ger- breyst við árásina á Sheffield. Menn eru nú farnir að gera sér grein fyrir því að deilan við Falk- landseyjar kunni að snúast upp í blóðuga styrjöld. Svo virðist, sem skortur á rat- sjárflugvélum sé helsti veikleiki Breta í deilunni við Falklandseyj- ar. Komið hefur í ljós að eldflaug- inni, sem grandaði Sheffield, var skotið af tiitölulega stuttu færi. Kanadíski aðmírállinn, Robert H. Falls, yfirmaður hernaðarnefndar NATO, telur líklegt að sprenging- in um borð í Sheffield hafi fyrst og fremst orsakast vegna elds- neytis í eldflauginni en ekki vegna sprengjuoddsins sjálfs. Ennfremur var þess getið, að Sheffield hefði ekki yfir að ráða eldflaugum, sem notaðar eru til þess að verjast skeytum af þeirri gerð, sem skotið var að skipinu. Hefði það getað bjargað skipinu frá örlögum sínum. Ennfremur sagði Falls að verjast hefði mátt skeytinu með stanslausri skothríð úr fallbyssum á það. Hefði hugs- anlega mátt hæfa það áður en það hafnaði í skipinu og sprakk. Ratsjárstöð Norðmanna á Svalbarða eða Bjarnarey Osló, frá Jan Krik Lauré, frétUritara Mbl., 6. maí. ÁKVEÐIÐ hefur veriö aö reisa svonefnda Loran-C-stöð á Svalbaröa eða Bjarnarey. Loran-C er mjög fullkomið ratsjárkerfi, sem nota má jafnt fyrir herskip, sem venjuleg flutningaskip. Þessi stöð verður hins vegar ekki rekin af hernum eins og aðr- ar svipaðar stöðvar í eigu Norðmanna. Ástæðan fyrir því er sú stað- reynd að Norðmenn óttast mjög að Sovétmenn mótmæli harðlega uppsetningu stöðvar í hernaðar- legum tilgangi, sem Norðmenn og bandamenn þeirra innan NATO gætu hagnýtt sér. Auk þess myndi Svalbarða-sáttmálinn trúlega standa í vegi fyrir því að herinn gæti sett upp ratsjárstöð á Sval- barða eða Bjarnarey. Herinn rek- Stórtjón í Osló er tvö tonn af dýnamíti sprungu í loft upp Osló, frá Jan Krik l^iuré, fréitarilara Mbl., 6. maí. TUGIR þúsunda Oslóarbúa vöknuðu upp i nótt við gífurlega sprengingu er um 2 tonn af dýnamíti og TNT sprungu í loft upp með tilheyrandi látum. Ekki er vitað um nein alvarleg slys af völdum sprengingarinnar er þúsundir rúða í húsum í allt að eins km fjarlægð méluðust. Sprengiefnið var geymt á lög- legan hátt í grjótmulningsnámu í Ammerud, sem er 30.000 manna hverfi í útjaðri borgarinnar. Ekki er enn vitað hvað olli sprenging- unni, sem varð rétt fyrir klukkan eitt í nótt. Eins og gefur að skilja greip um sig mikil hræðsla í norðurhluta borgarinnar og allar símalinur til lögreglustöðva i grendinni voru rauðglóandi. Eitt dagblað segist hafa fengið um 300 símhringingar á um 10 mínútum. Hélt fólk að styrjöld hefði brotist út. Ekki er talið loku fyrir það skot- ið að „sprengjumaðurinn", en svo hefur sá verið nefndur, sem kom fyrir sprengju undir bifreið fyrir utan stórþingið, hafi verið hér á ferð. Sprakk sú sprengja með lát- um, gereyðilagði bílinn og braut rúður í næsta nágrenni. Undan- farið hafa þrjár sprengingar orðið í borginni og almennur ótti ríkir nú um að fleiri kunni að fylgja í kjölfarið. STALHF SINDRA Fyrirliggjandi í birgðastöð STANGAJÁRN Fjölbreyttar stæröir og þykktir SIVALT JÁRN FLATJÁRN VINKILJARN L FERKANTAÐ JÁRN □ Borgartúni31 sími27222 m m ur í dag ratsjárstöðvar í norður- hluta Noregs svo og á Jan Mayen. Uppsetning slíkrar stöðvar á norðlægum fiskimiðum hefur mik- ilvæga þýðingu fyrir norska sjó- menn. Mun auðveldara verður að sigla um Barentshafið fyrir togara og um leið hættuminna. Það eina, sem í raun mælir á móti slíkri stöð, er hvernig fjármagna á rekstur hennar. Það er nefnilega ekki víst að stöðvarhúsið komist inn á fjárlög næsta árs. „Fannst ég ekki lengur eiga heima í þessu landi“ — segir fyrrverandi eiginkona Rakowskis Frankfurl, *». maí. Al*. WANIÍA Wilkomirska, fyrrverandi eiginkona Kakowskis, varaforsætis- ráóherra í l’óllandi, segir að hún hafi farið frá Bóllandi fýrir tveimur mánuðum af því að hún hafi ekki getað hugsað sér að búa við herlög. „Mér fannst ég ekki lengur eiga heima i þessu landi ... ekkert efnahagsástand hefði megnað að flæma mig úr landi mínu, engar biðraðir við verzlanir og yfirleitt ekkert annað en þetta.“ Wilkomirska, sem er hljóð- færaleikari, kom heim úr tón- leikaferð til Parísar daginn áður en herlögin voru sett 13. desem- ber sl. Kveðst hún þá ekki hafa verið mönnum sinnandi í margar vikur, eða þar til hún tók ákvörð- un um að hverfa úr landi. Hún er nú búsett í Wiesbaden. Rakowski-hjónin skildu í fyrra. Um eiginmanninn fyrrverandi segir Wilkomirska að hann hafi einstaka hæfileika til að aðlagast aðstæðum sem séu honum sjálf- um í hag og þar af leiðandi sé hann fljótur að afla sér nýrra vina og snúa baki við gömlum. Wilkomirska kveðst fús til að snúa aftur til Póllands ef tryggt sé að hún fái að fara aftur til Vesturlanda en alfarin muni hún ekki fara aftur til Póllands nema líkur séu á því að þjóðskipulagið breytist. „Ég veit ekki hvort lýð- ræði er hugsanlegur möguleiki í Póllandi. Ég held að mín kynslóð eigi ekki eftir að lifa það.“ Hóta að myrða Hosni Mubarak Nikósíu, 6. maí. AP. LEYNISAMTÖKIN, sem stóðu á bak við morðið á Sadat, Egyptalandsfor- seta, hafa hótað að ráða eftirmann hans, Hosni Mubarak, af dögum. AP-fréttastofunni í Nikósíu á Kýpur barst orðsending frá AI-Aksa-samtök- unum í dag, en orðsendingin er dag- sett 16. apríl og póstlögð á Kýpur. „Niðurstaðan er endanleg," segir í orðsendingunni. „Dómnum verður fullnægt af foringjum samtak- anna.“ Orðsendingin er undirrituð af „Hernaðardómstól Al-Aksa- samtakanna. I tilskrifinu stendur að eftir morðið á Sadat hafi Mubarak verið varaður vjð og látinn vita að ef hann fylgdi svikastefnu Sadats, þá hlyti hann sömu örlög. Nú sé komið á daginn að Mubarak kæri sig koll- óttan. Hann haldi áfram á sömu braut og Sadat og því hafi hann verið dæmdur til að falla fyrir byssukúlu. Pólskur flugmaður fær þungan dóm - er óhultur í Vestur-Berlín Varsjá, 6. maí. Al*. PÓGSKUR herdómstoll hefur dæmt í máli flugmannsins, sem flaug flugvél pólska flugfélagsins LOT til Vestur-Berlínar. Fékk hann 12—15 ára fangelsisdóm. Var réttað i málinu í fjarveru hans. Þá var hann sviptur almennum borgararéttindum í 6 ár, eignir hans gerðar upptækar og að auki var hon- um bannaö að vinna við starf sitt í heilan áratug. Ennfremur báru pólsk yfirvöld til baka þær fregnir um að pólskt skip hafi farist við Falklandseyjar. Yfir- völd í Buenos Aires hafa skýrt frá því að pólskt fiskiskip gæti hafa sokkið eftir tundurskeytaárás fyrir slysni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.