Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.05.1982, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ1982 15 Eitt glæstasta farþegaskip heims notað til herflutninga FARÞEGASKIPIÐ „Queen Eiizabeth 2“ hefur verið kallað til aðstoðar breska flotanum við Falklandseyjar. Skipið er 13 ára gamalt, 67.500 tonn að stærð, og hefur skapað sér nafn sem eitthvert glæsilegasta farþegaskip heims. „Queen Elizabeth 2“ er eina farþegaskipið sem haldið hefur uppi reglubundnum siglingum á milli Ameríku og Evrópu um nokkurt skeið. Skipið státar af margs konar þægindum, sem eiga lítið skylt við nútímahernað. Fjórar sund- laugar eru í skipinu — tvær úti og tvær inni. Fjögur veitingahús eru ennfremur um borð, auk 7 bara, spilavítis og kvikmynda- salar, sem tekur 531 í sæti. Líklegt þykir að flotinn hafi meiri áhuga á sjúkrastofu skips- ins, sem er búin öllum fullkomn- ustu tækjum svo og þeirri stað- reynd að ganghraði skipsins er 28,5 hnútar. QE2 var byggt 1969 fyrir Cunard-skipafélagið í Clyde í Skotlandi. Kostaði þá 30 milljón- ir sterlingspunda. Hvorki meira né minna en 943 klefar eru um borð í skipinu, allir með síma, sturtu og salerni eða þá full- komnu baðherbergi. Alls tekur skipið um 850 farþega og 1000 manna áhöfn er á því. Gert var ráð fyrir því að koma mætti fyrir 1500 hermönnum með létt vopn í skipinu ef til þess kæmi að það yrði notað sem her- flutningaskip. Skipið lagði af stað frá Southampton í vikunni með 5. herdeild landgönguliðs- ins. Óeirðir í Belfast í minningu Bobby Sands Belfasl, 6. maí. AP. HÓPAR ungra rómversk-kaþólskra réðust að lögreglunni í Belfast í gær- kvöldi með eldsprengjum og grjótkasti í kjölfar göngu 3000 kaþólikka til að minnast þess að þá var eitt ár liðið frá dauða Bobby Sands, sem lést eftir langvarandi hungurverkfall. I árásunum slasaðist einn lög- reglumaður og hermaður, er sprengja sprakk við fætur hans. Þá slapp lögreglumaður í fiski- þorpinu Kileel naumlega undan árásarmönnum, sem réðust til inngöngu á heimili hans. Lögreglan skýrði frá því að hún hefði gert um 3000 bensínsprengj- ur upptækar í kaþólska hlutanum í Belfast. Var óttast að til stór- felldra óeirða kæmi i tilefni dags- ins. Bobby Sands JT Iranir segja íraka hafa skotiö flugvél Benyahia niöur Boirúl, 6. maí. Al'. LIK Benyahia og þrettán annarra sem létu líflð í flugslysinu á landamærum Tyrklands og Irans var flogið heim til Alsír frá Teheran í dag, en byltingar- stjórnin í íran hefur espazt mjög i garð Iraka sem hún segir að beri ábyrgð á því að flugvélin meö utanríkisráðherra Alsírs fórst. íranir halda því fram að írösk MiG-þota hafi grandað vél utanrík- isráðherrans með eldflaug og hefur það eftir yfirmanni írönsku rann- sóknarmannanna að brot úr sprung- inni eldflaug af rússneskri gerð hafi fundizt í flaki alsírsku flugvélarinn- ar. Fleiri eldflaugabrot segjast Ir- anir hafa fundið í fimm kílómetra fjarlægð frá flakinu og telja þeir það sanna enn frekar að írakar hafi verið hér að verki. Með Benyahia utanríkisráðherra Alsírs voru á ferð átta starfsmenn utanríkisráðuneytis hans, svo og alsírskur blaðamaður, en áhöfnina skipuðu fjórir menn. Benyahia, sem var fimmtugur að aldri, vakti athygli á alþjóðavett- vangi þegar hann hafði milligöngu um að bandarísku sendiráðsföngun- um í Teheran var sleppt. Landamæra- vörður myrðir yfirmann sinn Braunsrhwcig, V-býskalandi, fi. maí. Al\ GEFIN hefur verið út handtökuskip- un á hendur 19 ára a-þýskum landa- mæraverði, Klaus Decker að nafni. Decker flýði yfir landamærin og er sakaður um að hafa drepið yfirmann sinn til að komast undan. A-þýsk yfirvöld fóru strax fram á að Decker, sem var í einkennisbún- ingi er hann flýði, yrði framseldur. Samkvæmt v-þýskum lögum þurfa flóttamenn frá austurhluta lands- ins ekki að sækja um pólítískt hæli. Fá þeir v-þýskt vegabréf þegar í stað. ■ ■■ 1 ERLENT KYNNING Komdu og láttu Dröfn sýna þér byltingu í matreiðslu í TOSHIBA örbylgjuofnunum í verslun okkar á Bergstaöastræti 10A á morgun, laugardaginn 8. maí kl. 10—12. Sjáðu hvernig bakaö er á 1 mínútu, matur hitaöur á örskammri stund, hvernig krakkarnir geta poppað án þess aö brenna sig eöa eyðileggja pottana þína. Og sunnudagslærið stiknar á 20—30 mínútum. TOSHIBA-örbylgjuofnarnir bjóöa upp á stórkostlega möguleika fyrir fjölskyldur, sem boröa á mismunandi tíma, boröa mismunandi fæöi (megrun, magasjúkl- ingar). Toshiba ofnarnir eru svo einfaldir og öruggir í notkun, aö börn geta matreitt í þeim. Toshiba örbylgjuofn er meira en bara venjulegur örbylgju- ofn, þú getur matreitt og bakaö í honum flestar uppskrift- irnar þínar. Og síöast en ekki síst, svo þú fáir fullkomiö gagn af Toshiþa ofninum þínum, býöur Dröfn þér á mat- reiðslunámskeið án endurgjalds. Heimilisfang Stærstir í gerð örbylgjuofna Toshiba Verö frá 4.510. Vinsamlega póstsendið frekari upplýsingar. Til Drafnar H. Farestveit, hússtjórnarkennara Einar Farestveit & Co. hf. Bergstaðastræti 10A. ISLANDS Lestun í erlendum höfnum AMERÍKA PORTSMOUTH Mare Garant 17. maí Junior Lotte 27. maí Mare Garant 7. júni Junior Lotte 18. júní NEWYORK Junior Lotte 18. mai Mare Garant 28. maí Mare Garant 8. júní HALIFAX Hofsjökull 10. mai Selfoss 28. mai BRETLAND/ MEGINLAND ROTTERDAM Eyrarfoss 10. maí Alafoss 17. maí Eyrarfoss 24. mai Alafoss 31. mai ANTWERPEN Eyrarfoss 11. mai Alafoss 18. mai Eyrarfoss 25. mai Alafoss 1. júní FELIXSTOWE Eyrarfoss 12. maí Álafoss 19. mai Eyrarfoss 27. mai Alafoss 2. júni HAMBORG Eyrarfoss 13. maí Alafoss 20. maí Eyrarfoss 28. mai Alafoss 3. júni WESTON POINT Helgey 18. maí Helgey 1. júni NORÐURLÖND/ EYSTRASALT BERGEN Múlafoss 13. mai Dettifoss 24. maí Dettifoss 7. júni KRISTIANSAND Múlafoss 12. maí Mánafoss 17. mai Mánafoss 31. maí MOSS Mulafoss 11. mai Dettifoss 11. maí Manafoss 18. mai Dettifoss 26. maí TRONDHEIM Vessel 4. júni GAUTABORG Dettifoss 12. mai Mánafoss 19. mai Dettifoss 27. maí Mánafoss 2. júni KAUPMANNAHÖFN Dettifoss 13. mai Mánafoss 20. maí Dettifoss 28. maí Manafoss 3. júni HELSINGBORG Dettifoss 14. maí Manafoss 21. mai Dettifoss 29. mai Manafoss 4. júni HELSINKI írafoss 17. mai Múlafoss 2. júni Irafoss 16. júni RIGA Irafoss 14. mai Mulafoss 4. júni Irafoss 18. júni GDYNIA Irafoss 13. mai Múlafoss 5. júni irafoss 19. júni HORSENS Múlafoss 10. mai Irafoss 24. mai Múlafoss 7. júni THORSHAVN Manafoss 27. mai VIKULEGAR STRANDSIGLINGAR - framog til baka frá REYKJAVÍK alla mánudaga frá ISAFIROI alla þriðjudaga frá AKUREYRI alla fimmtudaga EIMSKIP SlMI 27100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.