Morgunblaðið - 07.05.1982, Síða 23

Morgunblaðið - 07.05.1982, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAt 1982 23 Tímavélin Kvíkmyndir Ólafur M. Jóhannesson TÍMAVÉLIN Nafn á frummáli: Time After Time Ilandrit og leikstjórn: Nicholas Meyer Myndatökustjóri: Paul Lohman Tónlist: Miklos Rozsa Sýningarstaður: Austurbtejarbíó Oft hljóða blaðaauglýsingar bíóhúsanna eitthvað á þessa leið: Afar spennandi ný bandarísk stórmynd. Oft rætast ekki þessi gullbrydduðu orð en þó er eitt víst að kvikmyndahúsin bjóða uppá sífellt ferskari kvikmyndir og kemur þar vafalaust til harðnandi samkeppni einkum við myndbandaleigur og Video- son. Virðast kvikmyndahúsin hafa vaknað af dvala við þessa samkeppni, þannig auglýsir Austurbæjarbíó nýjustu mynd sína „Time After Time“ eða „Kapphlaupið við tímann" á einkar hressilegan máta: „Ný, bandarísk úrvalsmynd, sem hef- ur allt til brunns að bera: hlægi- leg, spennandi, gott handrit, framúrskarandi leikur, litmynd, Panavision, dolby-stereo." I gamni bar ég saman þessa kokhraustu auglýsingu við eigin upplifun kvikmyndarinnar Time after Time og kemur hér niður- staðan. 1) Var myndin hlægileg? Hér hlýt ég að vísa til eigin kímni- gáfu sem er máski nokkuð sér- stæð. Allavega ekki það sérstæð að ég gat tekið undir með sessu- naut mínum að minnsta kosti fimm sinnum sem verður að telj- ast gott. Þá kurraði í manni hláturinn og þá stund er H.G. Wells (Malcolm McDowell) burð- aðist við í fyrrihluta myndarinn- ar að aðlaga sig 86 ára tíma- stökki. 2) Var myndin spenn- andi? Abyrgur kvikmyndagagn- rýnir segir sem minnst frá þeim atriðum í kvikmynd er vekja spennu. Ég get þó upplýst að elt- ingarleikur H.G. Wells við Kobba kviðristi vekur þó nokkur fiðrildi af svefni í mallakútnum, jafnvel þótt eltingarleikurinn eigi sér ekki stað á þokumettuð- um strætum Lundúna árið 1893 heldur í sólbökuðum lystigörðum San Francisco árið 1979. 3) Var myndin byggð á góðu handriti? Vissulega. I senn markviss upp- byggt atburðarás vafin hug- myndaríkri glettni og siðferðis- þrunginn boðskapur. Hins vegar var klippingin stundum full varfærnisleg. 4) Var í kvikmynd- inni framúrskarandi leikur? Ég held að þurfi ekki að spyrja að leikslokum þegar Malcolm McDowell og David Warner eru annarsvegar. Það þarf vart gott handrit né styrka leikstjórn til að lyfta þessum köppum í hæðir. Hinn aldagamli breski skóli og meðfæddir hæfileikar sveifla þeim yfir hverja báru. Mary Steenburger kom líka á óvart í hlutverki hinna alfrjálsu nú- tímakonu einkum sakir sinnar fágætu fegurðar sem á stundum skyggir á leik hennar. Þá mætti stúlkan gjarnan skipta um radd- bönd. 5) Var hér um að ræða litmynd? Ekki sá ég betur. 6) í Panavision? Ég býst við því. 7) En dolby-stereo? Minna mátti nú heyra. Ég held ég þurfi ekki að draga niðurstöður könnunarinn- ar saman. Háttvirtum lesanda ætti nú að vera í lófa lagið að ganga úr skugga hvort auglýsing Austurbæjarbíós á Time After Time stenst. Fhilips V2000 kerfi framtíðaríimar Nýja Philips VR 2022 myndsegulbandið slær öllum öðnun við hvað snertir myndgæði og tækni- lega fullkomnun. Við höfum líka mörg hundruð myndir fyrir V2000 kerfið í myndleigunni hjá okkur, jafnt nýju stór- myndimar sem gömlu meistaraverkin. Komdu við og fáðu þér oina góða fyrir helginal heimilistæki hf. DÆMI: Mikið úrval vegghúsgagna á ótrúlega lágu verði Bæsuð eik Lengd 2,85 cm. Dýpt 30/48 cm. Hæð 1,80 cm. Verö kr. 13.345,- Bæsaður askur Lengd 2,55 cm. Hæð 1,78 cm. Verð kr. 9.575,- Bæsaður askur Lengd 2,55 cm. Hæð 1,78 cm. Verð kr. 11.100,- Þetta verð getum við boðið vegna hagstæðra samninga og magninnkaupa.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.