Morgunblaðið - 07.05.1982, Page 24

Morgunblaðið - 07.05.1982, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982 Katrín Oddsdótt- ir - Minningarorð Fædd 17. marz 1923 Dáin 27. apríl 1982 Fyrstu minningar mínar um Katrínu Oddsdóttur eru frá árun- um í Verzlunarskóla íslands. Ég kom inn í hóp bekkjarsystkina, sem voru búin að sitja saman í stofu og kynnast heilan vetur, og mér fannst ég vera ærið utangátta og allt að því umkomulaus. Þess vegna minnist ég þess ævinlega með þakklæti, þegar hún Kata gaf sig á tal við mig í frímínútunum með því hispursleysi, sem henni var eiginlegt, og vann þar með bug á feimni sveitastúlkunnar, svo að upp frá því urðu samskipti léttari við þetta unga ágætisfólk. Það var einstaklega samstilltur, glaðvær og tápmikill hópur, sem útskrifaðist úr Verzlunarskólan- um 1940 og í mörg ár eftir það var iðulega stofnað til endurfunda með ferðalögum og ýmsum skemmtunum. Við lærðum saman nýjustu dansana hjá Rigmor Han- son, fengum okkur snúning í hlöð- unni á Hreðavatni og rerum kajak á Þingvallavatni. Þá var Kata hætt komin, er farkostinum hvolfdi undir henni á ísköldu vatninu og óttahroll setti að okkur í svip, en allt fór vel. Það er ekki út í hött, að talað er um skóla- systkin, því að samband þeirra verður einatt líkt og með systkin- um. En systkin tvístrast, er þau stofna eigin heimili, og svo fór einnig að mestu um þennan sam- rýmda árgang úr Verzlunarskólan- um. Böndin eru samt sterk, það finnum við gleggst í hvert sinn sem höggvið er skarð í okkar rað- ir. Við vorum allmargar skólasyst- ur, sem héldum hópinn áfram, höfðum raunar þegar í 3ja bekk stofnað með okkur saumaklúbb, sem hefur starfað óslitið síðan. Við höfum því átt langa samleið, sumar allt frá bernskudögum i barnaskóla. Það er einkum fyrir munn þessa hóps, sem kveðjuorð eru hér fest á blað, og þeim fylgja hlýjar hugsanir okkar allra. A meðan við vorum enn í skóla, var piltum stundum boðið á saumafundina til okkar. Þeir létu ekki á sér standa og þá auðvitað eingöngu af áhuga á faginu. Ekki man ég lengur glöggt, hverjir sóttu þá fundi, en a.m.k. einn skólabróður veit ég um, sem síðan hefur unnið margt listaverkið með nál og spotta. Sumar okkar í saumaklúbbnum hafa dvalið langdvölum erlendis, en jafnan átt afturkvæmt í hóp- inn, a.m.k. um sinn, rétt eins og þær hefðu aldrei farið neitt. Hins vegar varð okkur öllum það brátt Ijóst, að þessu mundi verða á ann- an veg farið með Kötu, eftir að veikindi hennar tóku að ágerast sl. haust. Því var okkur hver stund dýrmæt, sem hún treysti sér til að eiga með okkur í vetur, og við hlutum að dást að kjarki hennar, viljastyrk og æðruleysi. Þar komu einmitt hvað skýrast fram eigin- leikar þeir, sem svo mjög ein- kenndu skaphöfn hennar. Katrín Oddsdóttir fæddist á Heimaskaga á Akranesi 17. marz 1923, af góðum og traustum ætt- um. Foreldrar hennar voru Sigríð- ur Kristín Halldórsdóttir og Oddur Björnsson afgrm., heiðvirð og elskuleg hjón, sem lengst af bjuggu í húsinu nr. 130 við Lauga- veginn. Þar ólst Katrín upp ásamt þremur yngri systkinum sínum, Andreu Halldóru, sem starfar á skrifstofu Strætisvagna Reykja- víkur, Kristjáni, bankastjóra Verziunarbanka íslands, og Birnu, meinatækni við Rannsóknastofn- un Háskólans við Barónsstíg. Við þá stofnun starfaði Katrín einnig í nokkur ár, eða þar til 1945, að hún giftist Eiríki G. Asgeirssyni, sem síðar varð forstjóri Strætisvagna Reykjavíkur. Eiríkur er maður virtur og vel látinn af öllum sem hann þekkja, sonur Ásgeirs Guðnasonar, kaupmanns og út- gerðarmanns á Flateyri, og konu hans, Jensínu Hildar Éiríksdóttur. I ætt hans eru margir dugmiklir og landskunnir athafnamenn. Börn Katrínar og Eiríks eru: Oddur, líffræðingur, kvæntur Katrínu Finnbogadóttur ritara; Hildur, kennari, gift Magnúsi Pét- urssyni hagsýslustjóra; Halldór, landfræðingur, kvæntur Svan- laugu Vilhjálmsdóttur kennara; og Ásgeir, hagfræðingur, kvæntur Kristrúnu Davíðsdóttur lyfja- fræðingi. Katrín flíkaði ógjarna einka- málum sínum, en okkur fannst jafnan sem fáa skugga bæri á lífshamingju hennar. Af ýmsu mátti ráða, að hún hafði eignazt ástríkan mannkostamann fyrir lífsförunaut, sem hún mat afar mikils, og að þau hjónin væru samhent í flestum efnum. Einnig var okkur ljóst, að þau Eiríkur áttu miklu barnaláni að fagna. Álit þetta hefur styrkzt æ meir undanfarna mánuði, þegar fjöl- skyldan öll lagðist á eitt um að gera Katrínu lífið eins ánægjulegt og kostur var. Sjálf lét hún ekki sitt eftir liggja, umvafin ástúð sinna nánustu, og fram til hins síðasta var hún fær um að miðla öðrum af viljastyrk sínum og óbuguðu andlegu þreki. Óhætt er að fullyrða, að Katrín leit aldrei svo á, að hún gegndi ómerkara hlutverki en þær konur, sem sækja sjálfar út á frama- brautina. Á síðari árum greip hún þó iðulega í að vinna utan heimil- isins, en henni var það ekki kapps- mál. Að vísu var Katrín svo hepp- in að hafa oftast meðbyr í lífinu, en það breytti henni ekki, og ég hyKK. að það hefði í rauninni verið næstum því sama, hvernig hún hefði verið sett og hvaða erfiðleik- um hún hefði þurft að mæta, henni hefði tekizt að færa allt til betri vegar, eftir því sem aðstæður leyfðu. Hún bar sig með sömu frjálsmannlegu reisn í litla húsinu við Bræðraborgarstíg og í einbýl- ishúsinu við Selvogsgrunn, og hún gekk að öllum störfum af sömu alúð og ósérhlífni, hvort sem þau voru fólgin í því að annast heimil- ið eða yrkja jörðina, sinna börnum eða taka á móti gestum, stundum stórum hópum, innlendum og er- lendum, sem þau hjónin ræktu við gestgjafaskyldur vegna stöðu eig- inmanns hennar. Þeim hjónum var einkar lagið að skemmta gest- um og skapa notalegt andrúms- loft. „Það hefur það hver eins og honum hentar bezt,“ sagði Katrín oft, og það var einnig viðkvæði hennar, þegar rætt var um hagi náungans eða háttu, einkum það sem miður fór. Þar með var málið útrætt af hennar hálfu og talinu vikið að öðru, til dæmis nýjustu leiksýningu, því að Katrín þekkti fáar skemmtanir betri en að sækja leikhús, eða þá einhverri bók, sem hún hafði nýlega lesið. En umfram allt virtist hún leggja rækt við listina að lifa vel; og heil- brigð lífsviðhorf hennar hafa orð- ið börnum þeirra hjóna gott vega- nesti úr heimahúsum. Þegar börnin voru öll flutt að heiman, þótti hjónunum of rúmt um sig í húsinu við Selvogsgrunn, jafnvel svo, að þau gætu týnt hvort öðru nema um talstöð, eins og Katrín orðaði það. Þau fluttu sig þá umsvifalaust um set, niður að Rauðalæk. Síðasti saumafund- urinn, sem hún hélt þar, verður okkur jafnan minnisstæður. Blómstrandi og gróskumiklar St. Pálíur, sem hún hafði ræktað sjálf í ýmsum litum, prýddu stofuna, en þegar við fórum, leysti hún hverja okkar út með ungri jurt af þessu yndislega blómi, sem hún hafði komið til nokkurs þroska í glugga- kistunni hjá sér. Það var sem hún væri að gefa okkur einhvern hluta af sjálfri sér, en við áttuðum okkur ekki fyllilega á þessum for- boða fyrr en síðar. Hverri tómstund sem gafst að sumrinu hin síðari ár, eyddu Katr- ín og Eiríkur í sumarbústað sínum við Hafravatn. Þar hefur þeim tekizt að koma upp myndarlegum skógarreit, sem húsbóndinn hefur sjálfur sáð til að mestu. Þangað leituðu hjónin sl. sumar eins oft og Katrín treysti sér til, og þangað mun Eiríkur væntanlega leita eft- ir hretviðri vorsins til að hlúa að nýgræðingnum, sem ber í sér frjómagn lífsins. Ásdís Arnalds Þegar góðir vinir og jafnaldrar deyja fer einhverskonar stingur í gegnum hjartað. Þó var vitað að hverju fór síðustu mánuði en allt- af kemur kallið að óvörum. Katrín var af sterkum stofni, ól manni sínum fjögur myndarbörn og hélt um þau vörð eins og æður sem breiðir vængin^ yfir hreiður sitt. Gekk jafnan ótrauð að öllum störfum og gaf aldrei eftir. Hún var líka hraust, verklagin og smekkleg. Ótal ánægjustundir áttum við saman bæði á heimilum okkar, í vinahópi eða í sumarleyfum er- lendis. Katrín var væn kona, skemmtileg og glaðvær á góðum stundum, og einstakur félagi. Við ætluðum líka að eyða ellinni sam- an ásamt öðru vinafólki í fjölbýl- ishúsi, sem þegar er byrjað að byggja. Eiríkur er framkvæmda- stjóri fyrir því. En ýmislegt fer öðruvísi en ætlað er og hafa nú þegar nokkrir félaganna fallið. Að þeim er líka mikill söknuður. Með Katrínu Oddsdóttur er farin frá okkur fágæt kona. Börnin hafa misst umhyggjusama móður og Eiríkur sína stoð og styttu um ald- ur fram. Það er mikil þolraun. Eina huggunin er hlýjan, sem minningarnar geyma. Með samúðarkveðju. Björg og Páll Ásgeir Þegar ég frétti að Kata frænka væri dáin, var það á vissan hátt léttir. Loksins var baráttunni við erfiðan sjúkdóm lokið. En Katrín var ekki auðunnin, það var ekki fyrr en á síðustu dögum hinnar miklu rimmu, að hún varð að láta undan síga. Ekki hafa allir slíkt baráttu- þrek, og fáir jafn fjarri sjálfsvor- kunn og Katrín. Samt vantaði ekkert á hlýju í garð annarra. Alltaf sóttist maður eftir að heim- sækja Katrínu og Eirík. Ég minn- ist þeirra tíma meðan lífið var okkur frændunum ennþá leikur. Við bræðurnir og yngri synir þeirra hjóna allir á sama aldri. Alltaf var Katrín frænka tilbúin að sýna okkur betri aðferðir við föndrið okkar, hræra ískalt kókó- malt, baka vöfflur eða elda ofan í okkur. Ófáar ferðir fórum við uppí sumarbústaðinn þeirra við Hafra- vatn, til að húkka fisk eða sigla á sumrin og í berjamó á haustin. En kærum minningum fylgir mikill harmur. Ég votta Eiríki, börnum hans og fjölskyldum þeirra einlæga samúð mína. Bjössi Nú hefur enn einn kær vinur okkar hjónanna lokið sinni jarð- lífsgöngu. Katrín Oddsdóttir and- aðist hinn 27. þ.m. Kynni okkar af Katrínu eru nú orðin meira en 30 ára gömul, en við kynntumst henni fyrst er þær Þórunn unnu saman ungar stúlkur á Rannsókn- arstofu Háskólans og höfum við haldið kunningsskap síðan. Nánari varð þó vináttan eftir að hún giftist eftirlifandi eiginmanni sínum, Eiríki Ásgeirssyni for- stjóra, og um skeið var samgangur mikill og náinn milli heimila okkar þótt vik hafi verið milli vina hin síðari árin. Frá samverustundum okkar með þeim hjónum eigum við margar ánægjulegar minningar en eigi skulu þær allar raktar hér. Þó get ég ekki stillt mig um að geta sérstaklega um ferðalag okkar þriggja hjóna um Vestfirði fyrir 12 árum síðan. Er það ein- hver ánægjulegasta ferð sem við höfum farið og hjálpaðist þar allt að, góðir samferðamenn, fagurt umhverfi, veðurblíða og frábærar móttökur þess fólks er við heim- sóttum og nutum við þar auðvitað þess hversu gagnkunnugur og vinsæll Eiríkur er á þessum slóð- um. En fleiri ferðir fórum við sem einnig er gott að rifja upp við þessi þáttaskil. Katrín var frábærlega myndar- leg húsmóðir og var heimili þeirra bæði fagurt og aðlaðandi svo unun var þar að dvelja. Þó var það eigi hinn ytri búnaður, þótt glæsilegur væri, sem dró okkur vinina þang- að, heldur viðmót og alúð húsráð- enda beggja. Vildu þau hvers manns vand- kvæði leysa og voru samhent í því sem öðru. Glaðværð og góðvild einkenndi allt þeirra dagfar svo og barna þeirra fjögurra, er öll eru prýdd þessum frábæru eiginleik- um. Söngur og önnur hljómlist var þar í hávegum höfð og var sam- eign fjölskyldunnar allrar, en við þau hæfileikaminni fengum líka að vera með og ekki látin finna til þess hversu langt við stóðum hin- um að baki. Þetta er meðal annars vitnisburður hinnar eðlislægu kurteisi er einnig á svo fjölmörg- um öðrum sviðum kom fram í við- móti Katrínar heitinnar. Hún var fríð kona og gjörfuleg. Hún var og drengur góður, Eiríki vini okkar sendum við einlægar samúðarkveðjur svo og börnum þeirra, tengdabörnum og barnabörnum. Það er bjart yfir minningu Katrínar Oddsdóttur. Megi sú birta lýsa fjölskyldunni fram á veginn. Kaupmannahöfn, 29. apríl 1982, Einar Ágústsson. „Iég nú bæéi líf og önd Ijúfi Jcsús í þína hönd, síöast þcgar ég sofna fer silji (>uös englar yfir mér.“ (II. I'élursson) Katrín Oddsdóttir er látin, 59 ára að aldri. Að henni er mikill sjónarsviptir því að hún var sönn heiðurskona í sjón og reynd. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar Kvenfélag Ásprestakalls var stofnað og störfuðum við þar saman um árabil. Samstarfið við Katrínu er mér ógleymanlegt og á ég dýrmætar minningar um það, því áð allt dagfar hennar ein- kenndist af sérstakri góðvild og háttvísi. Frá henni andaði jafnan svo mikilli hlýju og velvild, að okkur sem fengum að njóta sam- funda við hana, fannst við vera betri manneskjur eftir. Katrín sat í stjórn kvenfélags- ins um nokkurra ára skeið og alla tíð var hún boðin og búin til starfa þar. Þegar ég hugsa til þessara ára, horfi um öxl, finnst mér að alltaf hafi verið sólskin og heið- ríkja þar sem Katrín var, og tryggð hennar við mig og vinátta var mér og verður alltaf mikils virði. V Aldrei heyrði ég Katrínu hall- mæla nokkurri manneskju eða niðrandi orð frá henni um sam- ferðamennina — jákvæð persónu- gerð hennar leyfði það ekki. Þessi háttvísa kona var svo stór í snið- um, svo mikið umburðarlyndi hennar og lítillæti hjartans. Allt lék í höndum Katrínar. Mér er hún minnisstæð er hún um tíma var við afgreiðslu í verslun. Það var svo gott að koma í búðina til hennar, hjálpsemi naut sín þar í ríkum mæli. Á heimiii hennar sat gestrisnin í öndvegi, þar sem eðlislæg smekkvísi og hjartahlýja settu svip sinn á umhverfi friðar og sátta. Katrín verður ávallt minn- isstæð þeim sem kynntust henni og fengu notið óvenjulegra mannkosta hennar. Hvað er það sem er og verður einna eftirsóknarverðast í lífinu? Þegar ég lít yfir farinn veg er mér ljóst að ekkert mun nokkru sinni jafnast á við þá gæfu að hafa þekkt og umgengist góðar mann- eskjur. Þær minningar eru gullið sem ekkert fær grandað og enginn getur frá manni tekið. Þakkir eru hér fluttar fyrir dýrmætar minningar um trygg- lyndi og góðvild þeirrar mætu konu, sem nú er kvödd hinstu kveðju. Við hjónin sendum Eiríki og börnunum innilegustu samúð- arkveðjur okkar. Guðrún S. Jónsdóttir Dauðinn er það sem koma skal. Það er aðeins spurningin hvenær? Sumir deyja á sóttarsæng, en aðrir skyndilega af slysförum. Að sætta sig við dauðann af okkur sem enn eftir lifum getur verið erfitt, sérstaklega eftir að barist hefur verið við að fá að lifa og allt gert af læknum til að komast fyrir sjúkdóminn. Þeir sem þjást óska eftir hvíld, en oft er sú hvíld fólgin í meðulum eða Ijúka þessu lífi hér á jörðinni. Von okkar var að læknavísindin væru komin það langt að meðul og aðgerðir gætu unnið á sjúkdómn- um svo við fengjum að búa og lifa lengur saman í okkar sterku fjöl- skyldutengslum. „Einhvern tímann allir munu deyja“ stendur einhvers staðar. Við verðum að sætta okkur við það. Katrín Oddsdóttir mágkona mín, kölluð Kata meðal vina og fjölskyldu, giftist Eiríki bróður mínum 8. september 1945. Hún var dóttir sæmdarhjónanna Sig- ríðar Halldórsdóttur og Odds Björnssonar stýrimanns, síðar af- greiðslumanns um árabil í bóka- forlagi Isafoldarprentsmiðju og jafnframt bókaútgefandi. Heimili þeirra hjóna var lengst af á Laugavegi 130. Kata útskrifaðist úr Verslun- arskóla íslands 1940 og hóf þá störf á Rannsóknarstofu Háskói- ans við Barónstíg, þar sem hún vann þar til húsmóðurstörfin tóku við. Fljótlega fluttu þau í lítið hús á Bræðraborgarstíg 10 og mynduðu þar sitt eigið heimili. Þegar fjöl- skyldan stækkaði byggðu þau sér einbýlishús að Selvogsgrunn 23. Fyrir nokkrum árum seldu þau það hús og fluttu í íbúð að Rauða- læk 73, sem þeim fannst henta sér betur, þegar öll börnin voru flogin að heiman. Þau byggðu sér einnig sumar- bústað við Hafravatn fyrir mörg- um árum, þar áttu þau sæluríkar stundir vetur sem sumar og má sjá verksummerkin, gróðurinn sprettur þar upp alls staðar, enda voru þau bæði önnum kafin við gróðursetningu og ræktuðu jafn- vel sínar plöntur sjálf í sínu eigin gróðurhúsi. Kata og Eiríkur, eiga miklu barnaláni að fagna. Börn þeirra eru Oddur, líffræðingur, fram- leiðslustjóri Loðskinns á Sauðár- króki, kvæntur Katrínu Finnboga- dóttur og eiga þau eina dóttur. Hildur, gift Magnúsi Péturssyni, eiga þau tvo syni og eina dóttur. Halldór, landfræðingur og kenn- ari við Valhúsaskóla, kvæntur Svanlaugu Vilhjálmsdóttur og eiga þau einn son. Ásgeir, rekstr- arhagfræðingur, fulltrúi í Vöru- markaðnum hf., kvæntur Krist- rúnu Davíðsdóttur og eiga þau einn son. Það er mikill styrkur fyrir Eirík bróðir, þegar hans ástkæra eiginkona er nú kölluð frá honum, að börnin, tengdabörnin og barnabörnin standa við hlið hans. Seinustu mánuðir hafa verið erfiðir fyrir fjölskylduna þar sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.