Morgunblaðið - 07.05.1982, Side 26

Morgunblaðið - 07.05.1982, Side 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 1982 Elín Einarsdótt- ir — Minningarorð Fædd 20. nóvember 1917 Dáin 28. apríl 1982 gi'stur t*r i hcimi ht*r. timinn lírtur. hoA t*i bíAur. St-nn úu hfim til ftrtra ft-rrt. (I)av.sl.) Nú er enn einni heimsókn lokið o« gesturinn hefur kvatt og farið. Þannig gengur þetta hér hjá okkur, fólk er sífellt að koma og fara. Það dvelur misiengi, það fer eftir því hversu viðamikið starf það hefur með höndum hjá höf- undi tilverunnar. Reyndar hafa allir þar mikilvægu starfi að gegna, það tekur bara mismun- andi langan tíma fyrir fólk að inna það af hendi, eins og hér. Gesturinn, sem við kveðjum í dag og kvaddi okkur hinn 28. apríl (við erum eitthvað svo svifasein, mannfólkið), var Elín Einarsdótt- ir. Með henni yfirgaf okkur kosta- kona, greind og vel menntuð, bæði úr skóla verslunarfræða og lífsins, en umfram allt vönduð kona til orðs og æðis, vinur vina sinna í þess orðs fyllstu merkingu, gjaf- mild og góð. Hún fæddist í Reykjavík hinn 20. nóvember 1917, elst af 11 börnum þeirra mætu hjóna, Ragnhildar Jónsdóttur og Einars Tómassonar, kolakaup- manns. Hún ólst upp á Bergstaða- strætinu, í húsi því sem faðir hennar byggði af mikilli framsýni á þeim erfiðu árum og hafði hún + Maöurinn minn og faöir okkar, ÁRNI BJÖRNSON, mafsvoinn, Molabraut 6, andaöist i Vífilstaöaspitala aö morgni 5. maí. Holga Holgadóttir, Sigrún Hanna Árnadóttir, Hallur Árnaaon, Björgvin Magnúason. + Konan mín, GUOBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR, Haukabergi, Voatmannaoyjum, andaöist í sjúkrahúsi Vestmannaeyja 5. maí. Fyrir mina hönd og barna hinnar látnu, Ingvi Gíslason. t Jaröarför bróöur okkar og mágs, BERGS BALDVINSSONAR, Hofsósi, er lést 27. apríl i sjúkrahúsinu á Sauðárkróki, fer fram frá Hofsós- kirkju á morgun, laugardaginn 8. mai kl. 2. Gunnar Baldvinsson, Margrét Þorgrímsdóttir, Friórika Baldvinsdóttir, Hoimir B. Jóhannsson. t Bróöir okkar. ADALSTEINN HJARTARSON frá Grjóteyri, Sandabraut 6, Akranesi, sem andaðist 4. maí, veröur jarösunginn frá Akraneskirkju, laug- ardaginn 8. maí kl. 14 15. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim. sem vildu minnast hans. er andaðist í Vifilsstaöaspítala aö morgni 5. maí. Systkinin. t Utför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður og ömmu, ADALHEIOAR VILBERGSDÓTTUR, Ásgerði 3, Reyðarfirði, fer fram fra Reyöarfjaröarkirkju, laugardaginn 8. mai kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuö, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent a Slysavarnafélagið eöa aðrar líknarstofnanir Hjalti Gunnarsson, Erla Hjaltadóttir, Gunnar Hjaltason, Alfheiður Hjaltadóttír, Vilbergur Hjaltason, Sigurbjörg Hjaltadóttir, og barnabörn. Arnþór Magnússon, Halla Einarsdóttir, Kristján Kristjánsson, Jenný Ingvarsdóttir, t Þökkum auösynda samuð og vináttuhug við andlát og útför móöur okkar. SÓLVEIGAR GUÐMUNDSDÓTTUR, Stigahlíð 42. Hólmfríóur Magnúsdóttir, Vigfús Magnússon, Guðmundur K. Magnússon. ætíð sterkar taugar til þess húss, sem ennþá er í eigu meðlima fjöl- skyldunnar. Hún var elskuð og virt af for- eldrum sínum og systkinum, enda bar hún hag þeirra mjög fyrir brjósti. Svo eignaðist hún sína eigin fjölskyldu þegar hún giftist Sigur- hans Halldórssyni og eignuðust þau soninn Einar, en nokkrum ár- um áður hafði dóttirin Ragnhildur komið. En hún Ella átti fleiri börn, eða svo sagði hún að minnsta kosti og hver efast þá um það. Það eru systursynir hennar og vegna eins þeirra kynntist ég henni. Þessir strákar áttu alltaf athvarf hjá Ellu og Sigga og þegar þeir voru búnir að finna sér konuefni, þá voru þau leidd til þeirra svo þau gætu lagt blessun sína yfir ráða- haginn. Og þvílíkar móttökur, þeim gleymi ég aldrei. Fyrir þetta og allt annað skal þakkað hér. Árin liðu og Ella og Siggi tóku vissan þátt í lífi okkar, í gleði okkar og sorgum. Þau voru ómiss- andi. Já, minningarnar hrannast upp og þær eigum við öll sem þekktum hana og unnum henni. Þær eru hreinar og góðar og þær tekur enginn frá okkur, þótt gesturinn kveðji. Ó, Ijiifi fartlr, lii til mín, að ég megi, ég þóu deyi, koma heim til þeirra og þín. (Dav.nl.) Henni verður vel fagnað af mörgum sem kvatt hafa á undan henni og ég veit með vissu um litla stúlku, er kölluð var til starfa ný- lega, sem kemur hlaupandi með bros í augum á móti frænku sinni og leiðir hana inn. Þær eiga eftir að skemmta sér vel saman og rifja upp ýmislegt. Elsku Siggi, Ragga, Einar og þið öll. Megi algóður guð styrkja ykk- ur og hjálpa á þessum erfiðu tíma- mótum. Minnist orða frelsarans: „Ég lifi og þið munuð lifa.“ „Litla fjölskyldan" kveður Elínu Einarsdóttur með þakklátum huga og biður henni guðs blessun- ar. K.Á. í dag, 7. maí, er Elín Einars- dóttir til moldar borin. Hún lést þann 28. apríl sl. í Landakotsspít- ala. Elín var fædd 20. nóvember 1917 hér í Reykjavík, elst af 11 börnum hjónanna Einars Tómas- sonar, kolakaupmanns, og Ragn- hildar Jónasdóttur er bjuggu að Bergstaðastræti 24b hér í bæ. Þau hjón eru látin fyrir allmörgum ár- um. Rannveig Gísla- dóttir — Minning í dag verður til moldar borin frá Fossvogskapellu hjartkær vin- kona okkar, Rannveig Gísladóttir, sem lést á Landspítalanum hinn 27. apríl síðastliðinn. Rannveig var fædd á Bíldudal 27. septemþer árið 1918, dóttir Jó- hönnu Olafsdóttur og Gísla Jóns- sonar á Bræðraminni, dugnaðar- og myndarhjóna. Rannveig var yngst sex systkina, en heimilið hafði viðurværi sitt af sókn bæði til lands og sjávar eins og þá var siður. Föður sinn missti Rannveig níu ára að aldri, og þá kom það í hlut móður hennar að sjá heimil- inu farborða, með aðstoð eldri barnanna, sem þá voru vaxin úr grasi. Hún ólst upp á Bíldudal, og vann þar við öll almenn störf er til féllu, svo sem títt var á þeim ár- um, síðar lá leiðin til Flateyrar í Önundarfirði til sumarstarfa, og þar kynntist hún eftirlifandi eig- inmanni sínum, Hálfdáni G. Vi- borg, sem hún gekk að eiga hinn 16. júní 1937. Þau hófu búskap á Flateyri, en fluttust síðan til Bíldudals og þaðan til Reykjavík- ur, þar sem þau hafa búið allar götur frá 1948. Þeim Rannveigu og Hálfdáni varð tveggja barna auð- ið; dætranna Maríu, sem býr í Kanada með fjölskyldu sinni, Olafi Friðrikssyni og börnum þeirra tveimur, og Jóhönnu Dúnu, sem býr í Reykjavík með fjöl- skyldu sinni, Höskuldi Frímanns- syni og litlum syni þeirra. María er nú komin að kveðja móður sína hinstu kveðju. Nú er við fylgjum Veigu síðasta spölinn, langar okkur að þakka áratuga langa vináttu, allt frá æskudögum til hins síðasta. Þau hjónin hafa verið okkur tryggir og ómetanlegir vinir alla tíð, og myndarlegt heimili þeirra hefur alltaf staðið okkur opið. Gestrisni þeirra og hlýhugur var alla tíð til staðar, og einkum varð vinátta okkar náin eftir að við höfðum einnig flutt suður til Reykjavíkur. Margra ógleymanlegra sam- verustunda er að minnast; á heim- ili þeirra við Hvassaleiti; er þau komu heim til okkar, og síðast en ekki síst í mörgum sumarleyfis- ferðum til fjarlægra landa. Eink- um er okkur minnisstæð ferð okkar til Kanada í fyrrasumar, þar sem við nutum gestrisni dótt- ur þeirra og tengdasonar. Verður sú ferð okkur ógleymanleg. Ári áð- ur hafði Veiga kennt þess sjúk- dóms er loks hafði yfirhöndina. En á sólskinsstundum í Kanada á liðnu ári trúðum við því að él það, er um skeið hafði skyggt á tilver- Afmælis- og minningargreinar ATHYGLI skal vakin á því, að afmælis- og minn- ingargreinar verða að berast blaðinu með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í mið- vikudagsblaði, að berast í síðasta lagi fyrir hádegi á mánudag og hliðstætt með greinar aðra daga. Greinar mega ekki vera í sendibréfsformi. Þess skal einnig getið, af marggefnu tilefni, að frumort ljóð um hinn látna eru ekki birt á minningarorðasíðum Morg- unblaðsins. Handrit þurfa að vera vélrituð og með góðu línubili. Við Elín vorum systkinadætur. Var að kalla daglegur samgangur á milli heimila foreldra okkar, svo margs er að minnast frá þeim glaðværu dögum. Elín var níu ár- um eldri en ég, svo í æsku minni voru það yngri systur hennar sem voru leikfélagar mínir. Vinátta okkar hófst raunar ekki fyrr en ég var uppkomin. Eftir fermingu fór Elín í Versl- unarskóla íslands og útskrifaðist þaðan vorið 1935. Ég minnist hennar frá þeim árum, er hún ung og lagleg geislaði af lífsgleði og því hrifnæmi, sem við viljum kenna við æskufólk, en er ekki öll- um gefið. Elín vann við verslunar- og skrifstofustörf þar til hún giftist Sigurhans Halldórssyni árið 1953. Hún átti þá dótturina Ragnhildi Ásmundsdóttur er Sigurhans gekk í föðurstað. Eignuðust þau hjón soninn Einar. Hjónaband þeirra var farsælt og kom það best í ljós í veikindum Elínar undanfarna mánuði hve kærleiksríkt var á milli þeirra. Er börn hennar uxu upp, fór þún að vinna utan heimilis og síð- ustu árin við símavörslu á Landa- kotsspítala. Fáar manneskjur hef ég þekkt, sem voru eins gjafmildar og óeig- ingjarnar og Elín. Hún var vina- föst og frændrækin. Ég þakka henni sérstaklega tryggð hennar við foreldra mína og hvað heim- sóknir hennar urðu þeim til mik- illar gleði. Votta ég eiginmanni, börnum, tengdasyni og dótturbörnum mína dýpstu samúð og þakka Elínu fyrir allar ánægjustundirnar og góðvild hennar við mig og dætur mínar. Ásta Karlsdóttir una, hefði stytt upp. Er leið að hausti kom þó í ljós að sjúkdómur- inn hafði ekki sleppt taki sínu, og ekki varð undan komist. í langri baráttu sinni sýndi Veiga mikið hugrekki, og huggun og kjark fann hún í óhagganlegri trú á framhaldslíf og miskunn hins almáttuga í erfiðleikum mannanna. Þá var henni einnig mikill styrkur að eiginmanni sín- um, er stóð við hlið hennar til hinstu stundar. Síðustu mánuðina fann hún svo mikla gleði í heim- sóknum og í nálægð dóttur sinnar og vinarins hennar ömmu, sem var sannkallaður sólargeisli í lífi hennar. Læknar og annað starfs- fólk Landspítalans reyndust henni afar vel, og hún var innilega þakklát fyrir þá umönnun er henni var veitt í baráttunni við sjúkdóminn. Þar var ekki aðeins um að ræða eðlileg samskipti sjúklings og lækna, heldur vináttu er létti hina erfiðu þraut, og gerði lífið bærilegra þótt á móti blési. Um leið og við þökkum sam- fylgdina og óskum Veigu góðrar heimkomu, biðjum við góðan Guð að styrkja ástvini hennar. BiðjiA og yður mun gefaMl, leitið og þér munuð Hnna. knvið á og fyrir yður mun upp lokið verða. I*ví að sérhver sá öðla.st, er biður, og sá finnur, er leitar, og fyrir þeim mun upp lokið, er á knýr. (Matt 7, 7—H.) í slíka hugsun sótti hún styrk í erfiðleikum sínum. Guð blessi minningu Rannveigar Gísladótt- ur. Fríða Pélursdóttir og Brynjólfur Kiríksson.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.