Morgunblaðið - 11.05.1982, Page 1

Morgunblaðið - 11.05.1982, Page 1
48 SIÐUR 100. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Floti Breta reiðubúinn til innrásar í Falklandseyjar l/ondon, lO.maí. AP. BKEZK herskip héldu i dag uppi hörðum árásum á stöðvar umhverfis Port Stanley á Falklandseyjum, annan daginn í röð, til undirbúnings hugsanlegri innrás í eyjarnar að sögn fréttaritara Press Association um borð í flugvélamóðurskipinu „Hermes“, Peter Archer. Árásarsveitir 2.500 úrvalshermanna, búnar fimm landgönguprömmum, voru væntanlegar í kvöld til Falklandseyja-svæðisins með farþegaskipinu „Canberra“ og brezka landvarnaráðuneytið sagði að brezki flotinn verði bannsvæðið af fullum krafti. í fylgd með „Canberra“ eru freigáturnar „Ardent“ og „Argonaut", sem eru búnar Exocet-eldflaugum. Þar með hefur John Woodward aðmiráll allan nauðsynlegan útbúnað til innrásar. Landganga á Vestur-Falklandi er talin líklegasti kosturinn, en þar hafa Argentínumenn aðeins nokkur hundruð hermenn, umhverfis Fox Bay. Talið er að um 100 sérþjálfaðir landgönguliðar hafi verið á Falk- landseyjum í nokkurn tíma. Heim- ildarmaður AP sagði í kvöld: „Bret- um kann að finnast að tíminn vinni ekki lengur með þeim.“ Embættismenn láta í ljós vantrú á friðartihaunir framkvæmda- stjóra SÞ, Perez de Cuellar. Sir Anthony Parsons, aðalfulltrúi Breta, sagði að hann hefði snúið sér að „kjarna málsins" í tilraunum sínum. „Ég tel að næsti sólarhring- ur ráði úrslitum," sagði Par- sons í viðtali við ITN. ITN sagði að viðræðurnar væru að því komnar að fara út um þúfur. Heimildarmaður í brezku ríkis- stjórninni hermdi, að engin ástæða væri til að búast við skjótri lausn frá SÞ, þótt Bretar gerðu allt sem þeir gætu til að stuðla að því. Cecil Parkinson, formaður íhaldsflokks- ins, sagði í viðtali við BBC í kvöld að friðartilraunum hefði ekki verið hætt. Aðspurður hvort innrás væri á næsta leiti kvaðst hann vona að ekki þyrfti að koma til slíks. „En að því kemur að við eigum ekki ann- arra kosta völ en að grípa til hern- aðarleiðarinnar, þegar við verðum að fara inn og fleygja Argentínu- mönnum út. Ég held ekki að sú stund sé komin.“ Ian McDonald, talsmaður land- varnaráðuneytisins, sagði að brezka flotaliðið hefði átt annasaman dag í gær og tilkynnti: að brezk herskip hefðu gert fallbyssuárásir á hern- aðarskotmörk umhverfis Port Stanley, Harrier-orrustþotur hefðu barizt við argentínskar flugvélar á leið til eyjanna og neytt þær til að snúa við, Harrier-flugvélarnar hefðu staðið fyrir „áreitnis- aðgerðum“ yfir eyjunum og ráðizt á argentínskan njósnatogara undan ströndinni og að brezkt skip hefði skotið niður argentínska Puma- þyrlu. Tveggja manna áhöfn er á Puma-þyrlum, sem geta flutt 16 hermenn, en ekki er vitað um manntjón í þyrlunni. McDonald sagði, að einn áhafnarmeðlimur hefði beðið bana og 13 særzt, einn þeirra alvarlega, í togaranum „Narwal“, sem var neyddur til að gefast upp eftir árásina í gær. Tog- arinn sökk í dag að sögn brezkra fréttaritara. Útbúnaður, skjöl og vera sjóliðs- foringja um borð í „Narwal“ sýna að togarinn var njósnaskip að sögn Perez de Cuellar, framkvæmdastjóri SÞ, heilsar sendiherra Breta hjá SÞ, Sir Anthony Parsons. Pólverjar reka 2 Bandaríki amenn Varsiá. 10. maí. AP. V arsjá, 10. maí. AP. PÓLSK yfirvöld vísuðu tveimur bandarískum stjórnarerindrekum úr landi í dag, mánudag, greinilega til að leggja áherzlu á nýjar viðvaranir gegn óeirðum eins og þeim sem brutust út i Varsjá og fleiri borgum i síðustu viku. Bandarísku sendiráðsmennirnir, John W. Zerolis vísindafulltrúi og James D. Howard menningarfulltrúi, eru fvrstu bandarísku stjórnarerind- rekarnir, sem hafa verið reknir frá Póllandi siðan herlög voru sett, og ef til vill fyrstu erlendu diplómatarnir, sem hafa verið reknir siðan þá af póli- tískum ástæðum. Því er haldið fram að Ryszard nokkur Harczynski hafi verið hand- tekinn í gær þegar hann afhenti Zerolis „gögn sem stofna hagsmun- um Póllands í hættu“. Bandariska sendiráðið vísaði ásökununum gegn starfsmönnum þess afdráttarlaust á bug. Sjónvarpið hefur varað við hörð- um gagnráðstöfunum gegn „tilraun- um til að trufla lög og almanna- reglu“. Slíkar viðvaranir eru sjaldan birtar án þess að yfirvöld ætli að standa við orð sín og gefa oft til kynna að þau óttist að eitthvað sé í vændum. Pólska sjónvarpið sagði að 2.269 hefðu verið handteknir í óeirðunum í síðustu viku og 211 úrskurðaðir í varðhald. Það sagði að stúdentar, sem tóku þátt í óeirðunum, hefðu „glatað réttindum sínum" og þeir sem fundnir yrðu sekir um þátttöku í þeim yrðu reknir úr skóla um tíma. Skömmu áður skoruðu leiðtogar Samstöðu á páfann, verkalýðsfélög í heiminum og Amnesty Internation- al að veita aðstoð til að binda endi á svokölluð „sýniréttarhöld" yfir meðlimum verkalýðsfélaga, sam- kvæmt bréfi sem dreift var í dag. Varað var við að lagðar yrðu fram falsaðar sannanir og yfirlýsingar til að ásaka verkalýðsfólk og ráðgjafa Samstöðu um áform um fjöldamorð, njósnir og fleira. Askorunin var undirrituð af sex verkalýðsleiðtogum, sem enn ganga lausir, þeirra á meðal leiðtoga Sam- stöðu í Varsjá, Zbigniew Bujak, og Bogdan Lis, sem áður var þriðji valdamesti maður hreyfingarinnar, en bréfið var ódagsett. Bujak og flestir félagar hans eru meðal Samstöðuleiðtoga, sem hafa hvatt til 15 mínútna mótmælaverk- falls á fimmtudaginn og skorað á alla ökumenn og gangandi vegfar- endur að nema staðar og minnast fimm mánaða afmælis herlaganna í eina mínútu. Blöðin halda áfram að birta les- endabréf, þar sem hvatt er til endurreisnar Samstöðu. í bréfi frá „gömlum kommúnista" segir: „Við munum aldrei njóta trausts unga fólksins ef við endurvekjum ekki Samstöðu, sem var verkalýðsfélag þess.“ Breta, sem vísa á bug staðhæfing- um Argentínumanna um að Harr- ier-þotur hafi ráðizt á björgunar- báta af skipinu. Áhöfnin var flutt um borð í flugvélaskipið „Invinc- ible“ og farið er með meðlimi henn- ar sem stríðsfanga. McDonald sagði að eftir öllum sólarmerkjum að dæma hefði orðið talsvert tjón í árásunum á Falk- landseyjar og þær hefðu haft „sálfræðileg áhrif“ á argentínska setuliðið. Press Association segir að litlar flugvélar hafi getað notað 15 metra braut á flugvellinum í Port Stanley fyrir árásirnar í dag. Brezka utanríkisráðuneytið segir ekkert hæft í því að „nýr leikur" fælist í ummælum argentínska utanríkisráðherrans þess efnis, að stjórn hans krefjist þess ekki að Bretar viðurkenni yfirráð Argent- ínu yfir Falklandseyjum „í byrjun". Hann bætti því við að argentínsk yfirráð væru ekki samningsatriði. Bretar hafa beðið EBE að fram- lengja mánaðarlangt viðskiptabann á Argentínu. Francis Pym sagði eft- ir viðræður í Belgiu að ekki hefði dregið úr stuðningi EBE. Bretar hafa komið á 100 sjómílna „eftirlitslofthelgi" umhverfis Asc- ension-eyju. Þrjú brezk herskip fóru frá Bretlandi í dag. Orkusparnaður hefur verið fyrir- skipaður í Argentínu, þar sem beðið er hermanna og óbreyttra borgara, sem Bretar tóku til fanga og ákváðu að skila. Argentínsk blöð birta svæsnar árásir á Breta vegna árás- arinnar á „Nerwal". Hún er kölluð „sviksamleg" og Bretar eru sagðir „verri glæpamenn en nazistar“. Marcos setur hæstarétt af Manila, 5. maí. AP. FERDINAND MARCOS, forseti Filippseyja, hefur samþykkt lausn- arbeióni allra 14 dómara Hæsta- réttar landsins, þar sem álít réttar- ins hafi beðið hnekki, og hyggst skipa nýjan hæstarétt. Ástæðan er hneyksli vegna þess að hagrætt var úrlausnum sonar eins af dómurunum svo að hann stæðist próf í lögfræði. Forseti Hæstaréttar, Enrique Fernando, og fjórir af dómurum hans voru viðriðnir svindlið. Fernando viðurkenndi að ein- kunnum Gustavo, sonar Vicente Ericta dómara, hefði verið breytt, en neitaði því að það hefði verið óheiðarlegt, þar sem prófdómaranum hefðu orðið á mistök. Hinir dómararnir annað hvort neituðu að hafa verið viðriðnir málið, eða sögðu að ekkert væri athugavert við það sem þeir gerðu. Marcos forseti sagði í bréfi til forseta Hæstaréttar, að hann hefði ákveðið að reka dómarana til að endurreisa það góða orð, sem hefði farið af Hæstarétti og til þess að heiðarleiki fengi að sitja í öndvegi. Marcos skipaði alla hæstarétt- ardómarana 14 á sínum tíma. íraksher hefur mikla gagnárás Beirút, 10. maí. AP. ÍKAKAK héldu því fram í kvöld að þeir hefðu hafið gífurlega gagnárás á íranska herliðið sem sækir til hafnar- borgarinnar Khorramshahr sem hefur verið á valdi íraka í 19 mánuði. íranir segjast nánast hafa umkringt íraska herliðið i Khorramshahr og til- kynntu að þeir hefðu náð á sitt vald íröskum moldarvirkjum og varðstöðv- um í útjaðri borgarinnar. Samkvæmt tilkynningum íraka virðast þeir hins vegar hafa hafið tangarsókn gegn írönum og sækja fram á tveimur vígstöðvum — vest- an Karun-fljóts og norðan Khorr- amshahr. Iranir segja að herlið þeirra sæki suður eftir 120 km þjóðvegi frá Ahvaz, höfuðborg Khuzistans, til Khorramshahr. Karun-fljót rennur í suður frá Ahvaz og nokkurn veg- inn samhliða þjóðveginum, sem ír- anir hafa notað í sókninni síðan hún hófst fyrir 11 dögum. í tilkynningu íraka sagði að her- lið þeirra ætti í hörðum bardögum á báðum vígstöðvum gagnárásar- innar. Talsmaður þeirra sagði að tilraun írana til að ná Khorram- shahr hefði algerlega verið brotin á bak aftur og nokkur þúsund írana hefðu fallið. Vígvöllurinn væri þak- inn líkum íranskra hermanna og mikill fjöldi Írana hefði verið tek- inn til fanga. Teheran-útvarpið segir hins veg- ar að sókn írana haldi áfram. íranir og írakar segjast hafa skotið niður eina óvinaflugvél hvor í dag. íranir segjast hafa eyðilagt rúmlega 100 íraska skriðdreka og brynvagna, en írakar segja að sprengjuþotur þeirra og fallbyssu- þyrlur hafi eyðilagt 23 íranska skriðdreka og sjö brynvagna. Áður sagði íranski herinn í til- kynningu að sóknin niður eftir Ahvaz-Khorramshahr-veginum héldi áfram og íranska herliðið væri nú á suðurhluta þjóðvegarins. Steyptist í sjóinn Adon, 10. maí. Al*. ÞKJÁTÍl' biðu bana og 19 var bjarg- að þegar suður-jemensk farþegaflug- vél hrapaði í sjóinn þegar hún reyndi að lenda í Aden í mikilli rigningu og hvassviðri. Flugvélin var af gerðinni Dash- 7 og var í innanlandsflugi, frá nýj- um flugvelli í Mukalla til Aden, þegar hún steyptist allt í einu í Aden-flóa og brotnaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.