Morgunblaðið - 11.05.1982, Blaðsíða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
Davíð
Oddsson
svarar
spurningum
lesenda
Spurt og svarað
um borgarmál
LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS
Davíð Oddsson, efsti maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins og borgar-
stjóraefni sjálfstæðismanna, svarar spurningum í Morgunblaöinu um borgar-
mál fram aö kjördegi 22. maí. Lesendur Morgunblaðsins geta hringt til ritstjórn-
ar Morgunblaðsins í síma 10100 á milli klukkan 10 og 12 árdegis, frá mánudegi
til föstudags, og mun blaöiö koma spurningunum til Davíðs. Svör Davíðs
Oddssonar munu birtast skömmu eftir að spurningar berast. Einnig má senda
spurningar i bréfi til blaösins. Utan á bréf skal rita: Spurt og svaraö um
borgarmál, ritstjórn Morgunblaösins, pósthólf 200, 101 Reykjavík. Nauðsynlegt
er að nafn og heimilisfang spyrjanda komi fram.
Lagfæringar
hafnar
Elín Sigþórsdóttir, Ljárskógum 17,
spyr:
Róluvöllurinn á milli Hléskóga
og Bláskóga er í óreiðu og þannig
á sig kominn að fólk sem um hann
gengur er í vandræðum vegna
aurs og grjóts. Hvenær má vænta
lagfæringar á vellinum?
Svar:
Eftir því sem ég best veit, þá eru
lagfæringar hafnar þessa dagana
og ég vænti þess að völlurinn verði
kominn í nokkuð sæmilegt stand
með sumrinu.
Verslun ekki
úthlutað enn
María Sigurðardóttir, Klyfjaseli 6,
spyr:
Hvenær er von á að verslun og
róluvöllur rísi suð-austan Selja-
skóla, en á skipulagi er gert ráð
fyrir starfsemi þessari?
Svar:
Þessari verslun mun enn ekki
hafa verið úthlutað og róluvöllur-
inn suð-austan Seljaskóla er ekki
á fjárhagsáætlun borgarinnar
fyrir næsta ár, þannig að enn er
óráðið hvenær hann kemur.
Nauðsynlegt að
taka mið af vilja
íbúanna
Ellen Sætre, Prestbakka 13, spyr:
Getum við íbúar í Breiðholti
fengið að greiða atkvæði um hvort
áfengisútsala verður sett á fót í
Mjóddinni? Margir í Breiðholti
kvíða því að þarna verði sett niður
áfengisútsala.
Svar:
Miðað við áfengislöggjöfina, er
ekki gert ráð fyrir því að greidd
séu atkvæði í einstökum borgar-
hverfum eða einstökum hverfum
sveitarfélaga um það hvort áfeng-
isútsala verður opnuð eða ekki.
Hins vegar finnst mér að nauð-
synlegt sé að yfirvöld taki mið af
því, hver vilji íbúanna er til slíkra
útibúa og gangi úr skugga um
hann með eins tryggilegum hætti
og fært er.
Aukin lánafyrir-
greiðsla brýnasta
verkefnið
Halldór S. Gröndal, Bólstaðarhlið
56, spyr:
Hvað hyggst Sjálfstæðisflokk-
urinn gera til þess að stöðva þá
þróun í Reykjavík að íbúum fækk-
ar stöðugt í eldri hverfum en ný
hverfi eru byggð á sama tíma og
ibúum borgarinnar fjölgar sama
og ekkert.
Svar:
í því aðalskipulagi sem sam-
þykkt var 1977 af Sjálfstæðis-
flokki, Alþýðuflokki og Framsókn-
arflokki, en Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn hurfu því
miður frá, til þess að geta farið í
Rauðavatnsskipulagið, var gert
ráð fyrir að gamli bærinn yrði
tekinn til endurmats. Honum var
skipt í þrjá þætti: verndunar-
svæði, athugunarsvæði og upp-
byggingarsvæði. I því sambandi
var gert ráð fyrir að inní gömlu
hverfunum gæti orðið um veru-
lega uppbyggingu að ræða í því
skyni að nýta þá þjónustu sem
fyrir hendi er í hverfunum. En
jafnframt gera menn sér grein
fyrir því, að í ýmsum eldri hverf-
unum er ekki fyrir að finna þá
þjónustu sem gert er ráð fyrir í
nýrri hverfum, því er nauðsynlegt
að jafnhliða uppbyggingu gömlu
hverfanna verði hugað að því að
koma slíkri þjónustu fyrir. Mesta
vandamálið sem snýr að því að
byggja upp eldri borgarhverfin og
fá yngra fólk til að flytjast þangað
lýtur að lánafyrirgreiðslu hins
opinbera. Við sjálfstæðismenn
beittum okkur fyrir því á sínum
tíma að hafnar voru viðræður við
yfirvöld húsnæðismála um það að
lán væru aukin verulega til þeirra
sem keyptu eldra húsnæði. Nokk-
ur árangur náðist þá en síðan hef-
ur enn sigið á ógæfuhliðina. Menn
verða að horfast í augu við það, að
á meðan lánafyrirkomulag er með
þeim hætti sem nú er, er ekki
veruleg von til þess að úr þessu
verði bætt og þarna er því um
brýnasta verkefnið að ræða.
Lóðaframboð
í samræmi viö
eftirspurn
Magnús H. Skarphéðinsson, Grettis-
götu 40, spyr:
Nú hefur Sjálfstæðisflokkurinn
lýst því yfir að hann muni leggja
niður punktakerfið er notað hefur
verið við lóðaúthlutanir við miklu
meiri ánægju borgarbúa og meiri
sanngirni en tíðkaðist við úthlut-
un lóða í tíð Sjálfstæðisflokksins.
Því spyr ég:
1. Hvað sér Sjálfstæðisflokkur-
inn nákvæmlega að þessu kerfi?
2. Hvaða reglur eru enn betri
við þessar úthlutanir sem Sjálf-
stæðisflokkurinn ætlar nákvæm-
lega að innleiða, sitji hann við
stjórn borgarinnar næstu 4 árin.
Svar:
í spurningum þínum Magnús,
eru ýmsar fullyrðingar, sem ég tel
að vart fái staðist. Eg efast t.d. um
að það sé rétt hjá þér, að meiri-
hluti borgarbúa telji að punkta-
kerfið sé til bóta. Ég er ekki held-
ur viss um að /nenn telji það sann-
gjarnara helaúr en annað fyrir-
komulag þegar þeir hafa kynnt sér
það. Þær fullyrðingar þínar í
spurningunni orka því mjög tví-
mælis svo ekki sé meira sagt. Það
er ekki sanngjarnt að menn geti
búið sér til rétt til lóðaúthlutunar
með brögðum, t.d. með því að
sækja um lóðir, þegar þeir þurfa
alls ekki á þeim að halda, ein-
göngu til þess að búa sér til stig til
að standa betur að vígi síðar við
lóðarumsókn heldur en aðrir. Það
Stúdentasamband VI
Aðalfundur Stúdentasambands VÍ
veröur haldinn þriöjudaginn 11. maí kl. 17.30 í Versl-
unarskóla íslands viö Grundarstíg.
Venjuleg aöalfundarstörf. fulltrúar afmælisárgangs
eru sérstaklega hvattir til aö mæta á fundinn.
Stúdentshóf VÍ veröur haldiö föstudaginn 28. maí í
Víkingasal Hótels Loftleiöa.
Stjórnin.
STYRKTARFÉLAG
LAMAÐRAOG FATLAÐRA
Aóalfundur
Styrktarfélags lamaðra og fatlaöra veröur haldinn
fimmtudaginn 13. maí nk. aö Háaleitisbraut 11 —13
og hefst kl. 17.30.
Dagskrá:
1. Skýrsla stjórnar og reikningar ársins 1981.
2. Ákvöröun um félagsgjöld.
3. Kjör fulltrúa í Framkvæmdaráö SLF.
4. Kjör fulltrúa og varafulltrúa á þing Öryrkjabanda-
lags íslands.
5. Skiþulagsskrá fyrir Ferilsjóö SLF.
6. Önnur mál.
Reykjavík, 5. maí 1982.
Stjórn Styrktarfélage lamaðra og fatlaöra.
EF ÞAÐERFRÉTT-
NÆMTÞÁERÞAÐÍ
MORGUNBLAÐINU