Morgunblaðið - 11.05.1982, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
17
Sambærileg far-
gjöld hjá Flugleið-
um og Arnarflugi
í SUMAR þegar tvö íslenzk flugfélög, Arnarflug og Flugleið-
ir, munu halda uppi áætlunarflugi milli íslands og Mið-
Evrópu er ekki óeðlilegt, að fólk spyrji hvort einhver munur
sé á fargjöldum félaganna. Samkvæmt upplýsingum Mbl. er
svo ekki. Bæði félögin eru með svokölluð IATA-fargjöld, auk
ýmiss konar sérfargjalda.
Bæði félögin munu fljúga milli
Keflavíkur og Amsterdam í Hol-
landi og verður verð á ársmiða
beggja félaganna 8.812 krónur
báðar leiðir. Síðan verður hægt
að fá svokölluð sérfargjöld, en
ferðin fram og til baka kostar þá
6.237 krónur, en þá er viðkomandi
bundinn af því, að vera eigi skem-
ur en 6 daga og ekki lengur en 30
daga. Þá verður hægt að fá svo-
kallað Pex- eða Apex-fargjald,
sem hefur enn frekari takmark-
anir og kostar miðinn þá báðar
leiðir 4.406 krónur.
Þá fljúga bæði félögin til Dúss-
eldorf í sumar, en ársmiði þangað
kostar sömuleiðis 8.812 krónur og
er þá miðað við báðar leiðir eins
og í fyrra tilfellinu. Ef sérfar-
gjald með þess afmörkunum er
keypt kostar það 6.237 krónur og
loks er það Apex-fargjald, en það
kostar 4.472 krónur báðar leiðir.
Loks má geta þess, að nú í
sumar verður í fyrsta sinn reglu-
legt áætlunarflug milli íslands og
Sviss, eða nánar tiltekið til Zur-
ich, en það er Arnarflug, sem
þangað flýgur. Ársmiði til Zúrich
kostar 10.438 krónur og er þá átt
við báðar leiðir. Sérfargjaldið til
Sviss er 7.380 krónur og Apex-
fargjaldið verður 5.219 krónur.
Loks má geta þess, að við allar
tilgreindar upphæðir bætast 200
krónur í flugvallarskatt, en sam-
kvæmt upplýsingum Mbl. er
flugvallarskattur hvergi í veröld-
inni jafn hár og hér á landi.
Fullkomíd öryggi
fyrir þá sem þú elskar
EINKAUMBOD
JOFUR HF Nýbýlavegi 2
fire$tone
hjólbardar hjálpa
þér ad vernda þína
Firestone S-211 radial-hjólbarðar upp-
fylla ströngustu kröfur sem gerðar eru.
Þeireru sérstaklega hannaðirtil aksturs
á malarvegum. Þeir
grípa mjög vel við
erfiðaraðstæður
og auka stórlega
öryggi þitt og
þinna í
umferðinni.
Tire$tonc
Fullkomiö öryggi • alls staðar
- Kópavogi - Simi 42600
*
Æ’
Island
kynnt í
riti IBM
í MÁNAÐARLEGIJ frétUblaði Evr-
ópusvæðis IBM-fyrirtækisins, sem
gcfið er út í Paris, var ítarleg kynning
á starfsemi IBM á íslandi og almenn
kynning á landi og þjóð nú á dögun-
um.
Þar er rakin saga IBM á íslandi í
stórum dráttum og þess getið að
hún nái um þrjá áratugi aftur í tím-
ann, en um 1950 kom fyrsti tækja-
búnaðurinn af IBM-gerð hingað til
lands og átti að nota hann við gerð
þjóðskrár í tengslum við rannsókn-
arverkefni á vegum Alþjóðaheil-
brigðismálastofnunarinnar.
Þá er þess getið að IBM-tölvur og
tækjabúnaður sé nú í notkun í 45
byggðarlögum landsins.
I greininni um Island í þessu
fréttablaði IBM sem ber nafnið
EHQ NEWS er komið víða við varð-
andi sögu landsins, menningu, at-
vinnulíf og efnahagsmál og auk
þess rætt við forstjóra IBM á ís-
landi, Ottó A. Michelsen.
Frábærar niðurstöður fslonskra sérfræðinga.
Efnaverkfræðingar MÁLNINGAR h/f hafa staðið fyrir
viðtækum prófunum á STEINAKRÝLII rúmlega þrjú
ár. Niðurstöður þeirra eru m.a. þær, að STEINAKRÝL
er hægt að nota á fiestum árstfmum og STEINAKRÝL
er endingargóð úfimálning. STEINAKRÝL er þvl
einstaklega hæf fyrir fslenskar aðstæður.
Duftsmitandl ftetir valda ekkl lengur erflðlelkum.
Með STEINAKRÝLI geturöu málað beint á duftsmitandi
fleti án þess að eiga á hættu flögnun málningar, sem
er óhugsandi með hefðbundinni plastmálnlngu.
Rlgnlngarskúr er ekkert vandamál.
STEINAKRÝL er terpentlnuþynnanleg málning, sem
er óvenjulega hæf fyrir islenskar aðstæður.STEIN-
AKRÝL endist. Rigningarskúr skiptlr litlu máli, þú færð
þér bara kaffisopa á meðan rigningin gengur yfir - og
heldur svo áfram að mála; STEINAKRÝL þolir
rigningu fljótlega eftir málun.
Nú geturðu málaft f frostl.
Yfirburðakostur nýju útimálningarinnar frá MÁLNINGU
h/f er einfaldlega sá, að þú þarft ekki lengur að hafa
áhyggjur af veðrinu. STEINAKRÝL er akrýlbundin
útimálning með sléttri áferð. Þú getur málað með
STEINAKRÝLI við mjðg lágt hitastig. Jafnvel 110
gráðu frosti (celcius) ef þú endist til að mála I svo
miklum kulda. STEINAKRÝL ENDIST!
STEINAKRÝL
- mélnlngin sem andar
má!ningh/f