Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
Vesturbær
Skerjafjörður sunnan
flugvallar II
AUSTURBÆR
Hverfisgata 63—120
Upplýsingar
í síma
35408
7\T
^HBBHH'T: k fl fsj
Heba heldur
vió heilsunni
Nýtt námskeið að heíjast
Dag- og kvöldtímar tvisvar eða
íjórum sinnum í viku.
Megrunarkúrar - Nuddkúrar
Leikíimi - Sauna - Ljós - Megrun
Sól-bekkir- Nudd - Hvíld - Kaffi -
o.fl.
Innritun í síma 42360 - 40935
Heilsurœktin Héba
Auðbrekku 53, Kópavogi.
Verðlækkun
... tölvan, sem allir
hafa beðið efftir,
er komin aftur
V ^3il
7 f f * i 7 e ö •
f|'u * * * m & . o
m n m * * « <*« ■
- e a
O VIC-20 er heimilistölva O VIC-20 er með 5K
meö lit bytes notendaminni
O VIC-20n tengist beint O VIC-20 býöur upp á
viö sjónvarp mikla stækkunar-
O VIC-20 er meö full- möguleika
komiö forritunarmál
(BASIC)
Reagan vill semja um
fækkun kjarnaflauga
W a-shington, 10. maí frá fréttaritara Mbl.
Önnu Kjarnadóttur
ÞESS HEFUR verið beðið með mik-
illi eftirvæntingu, að Ronald Reagan
mótaði stefnu sína í afvopnunarmál-
um og gerði þjóðinni og heiminum
öllum grein fyrir henni. Hann var
loks tilbúinn til þess á sunnudag.
Hann kaus að tala um utanríkismál í
ræðu, sem hann flutti við skólaslit
Eureka-háskólans í Illinois, sem
hann útskrifaðist sjálfur frá fyrir 50
árum.
„Við höfum unnið að undirbúningi
samningaviðræðna við Sovétríkin um
afvopnunarmál síðan á fyrstu dögum
stjórnar minnar,“ sagði Reagan
klæddur vínrauðri skikkju í iþrótta-
sal háskólans, sem er nefndur eftir
honum, „og nú erum við tilbúnir til
að hefja þær“.
Reagan vill að stórveldin semji
um að fækka verulega langdrægum
kjarnorkueldflaugum, kjarna-
oddum þeirra og draga úr styrk-
leika þeirra og eyðileggingarmætti
yfirlejtt.. Hann vonast til, að samn-
ingaviðræðurnar, sem hann kall ar
Start, geti jafnvel hafist í júní.
Hann hefir þegar skrifað Leonid
Brezhnev og falið Haig að hafa
samband við sovéska fulltrúa. Haig
sagði, að samningaviðræðurnar
myndu krefjast mikillar vinnu og
taka mörg ár. Hann leggur til, að
kjarnaoddum verði fækkað um
þriðjung og helmingur þeirra verið
í eldflaugum, sem eru staðsettar á
landi. Sovétmenn eiga nú 2350
langdrægar eldflaugar og 8000
kjarnaodda en Bandaríkjamenn
1700 eldflaugar og 9500 kjarna-
odda. Langflestar eldflaugar Sovét-
manna eru staðsettar á landi en
mikill fjöldi eldflauga Bandaríkja-
manna er um borð í kafbátum.
Kjarnorkueldflaugar Sovétmanna
eru mun kraftmeiri en Bandaríkja-
manna. Reagan leggur til, að í ann-
arri lotu samningaviðræðnanna
verði samið um jafnvægi í styrk-
leika éldflauganna fyrir neðan afl
bandarísku eldflauganna. Hann
sagði, að Bandaríkjamenn myndu
krefjast þess, að eftirlit yrði haft í
báðum löndum með því að sam-
komulagið yrði haldið.
Ræða Reagans bar keim af því,
að hún var flutt við skólaslit. Hann
talaði til unga fólksins, sem var aö
útskrifast og gerði því grein fyrir
mikilvægi samstarfs Vesturland-
anna og samninganna við Sovétrík-
in svo friður gæti haldist í heimin-
um. Hún var almenns eðlis en þó
ein af mikilvægari ræðum á for-
setaferfl Reagans. Hennar hefur
verið vænst lengi en friðarhreyf-
ingin í Bandaríkjunum og ferð
Reagans til Evrópu í byrjun júní
hafa aukið þrýsting á stjórnina að
móta stefnu sína og gera grein
fyrir henni.
/
Viðbrögðin í Washington hafa
yfirleitt verið jákvæð. Henry
Jackson, demókrati frá Washing-
ton, sagði, að Reagan hefði valið
rétta leið að verulegri fækkun
kjarnorkuvopna í heiminum. Gary
Hart, demókrati frá Colorado, sem
vonast til að flytjast í Hvíta húsið
einn góðan veðurdag, fagnaði einn-
ig ákvörðun Reagans en lýsti yfir
vonbrigðum með að hann lagði ekki
blessun sína yfir Salt Il-samning-
inn. Edward Kennedy, sem talar
máli friðarhreyfinga á bandaríska
þinginu, sagöist vera ánægður með
að samningaviðræður væru á
næsta leiti en var óánægður með,
að bæði stórveldin munu halda
vopnakapphlaupinu áfram meðan á
Frá höfninni í Southampton. Breskur herflutningabíll stendur á hafnarhakkanum með varning, sem fara á um borð
í Queen Elizabeth 2. Skipið flutti 5. herdeild landgönguliðsins til Falklandseyja.
Bandaríkjamenn spá
hræðilegum bardögum
Washington: Bandarískir embætt-
ismenn telja að áframhaldandi
þrjózka Argentínumanna gæti haft í
lor meö sér „nýja og hræðilega bar-
daga“ út af Falklandseyjum og þeim
muni líklega lykta með sigri Breta.
„Þrákelkni Argentinumanna hefur
valdið núverandi sjálfheldu í deilunni
um eyjarnar," sagði embættismaður,
sem vildi haida nafni sínu leyndu.
Ilann taldi ekki líklegt að áfram
mundi miða í átt að friösamlegri lausn
fyrr en Argentínustjórn félli frá kröfu
sinni um viðurkenningu á yflrráðum
Argentínu yfir eyjunum.
Hann sagði að Bretar hefðu boðið
nánast allar þær tilslakanir, sem
Beirút, 10. maí. AP.
MIKLAR óeirðir brutust út í Trípólí
í dag, fjórða daginn i röð, er átök
urðu milli stuðningsmanna og and-
stæðinga Sýrlendinga í borginni.
Alls létust a.m.k. 29 manns og 136
særðust. Hópur 40 manna lokaöist
inni i brennandi húsi og ekki var
vitað um örlög þeirra seint í dag.
þeir gætu boðið, og ekki mætti van-
meta staðfestu Breta í máli, þar
sem þeir teldu að grundvallarleik-
reglur væru í húfi. „Við teljum að
Bretar muni gera allar nauðsynleg-
ar ráðstafanir til að ná aftur eyjun-
um ef Argentínumenn hörfa ekki,“
sagði hann. „Hléið í bardögunum á
Suður-Atlantshafi gæti vikið fyrir
nýjum og hræðilegum bardögum,"
sagði hann, „og sennilegt er að
Bretar sigri að lokum vegna yfir-
burða sinna."
Embættismaðurinn sagði að
heita mætti að síðasta vonin um að
afstýra bardögum væri hin nýja
sáttatilraun framkvæmdastjóra
Allir íbúar borgarinnar hafa
haldið sig innandyra frá því átök-
in brutust út á föstudag. Skærur
þessar eru ekki nýjar af nálinni og
hafa blossað upp af og til allt frá
því 1976. Handsprengjuárásir
gengu á víxl í dag, auk þess sem
eldsprengjum var varpað og vél-
byssuskothríð bergmálaði.
SÞ, Perez de Cuellar. Bandaríkin
vona að tilraunin beri árangur og
munu veita alla þá aðstoð, sem er á
þeirra valdi að veita, sagði hann.
„En það er erfitt að vera bjartsýnn
fyrr en afstaða Argentínu verður
ljósari."
„Argentína er ennþá undirrót
vandans. Okkur finnst að lönd, sem
vilja frið, verði að gera Argentínu
ljóst að brottflutningur verður að
fara fram og semja verður um
vopnahlé án nokkurra fyrirfram
skilyrða um yfirráðarétt."
Hann sagði að friðartilraunir
Haigs og Fernando Belaunde Terry
Perúforseta hefðu farið út um þúf-
ur þar sem Argentína neitaði að
samþykkja þetta. Hann sagði að
Argentínumenn virtust telja að
tíminn ynni með þeim og þrýsting-
ur annarra landa, sem væru ugg-
andi út af nýjum bardögum, mundi
neyða Breta til að sætta sig við yf-
irráð Argentínu yfir Falklandseyj-
um.
En hið gagnstæða gæti vel gerzt
að skoðun Bandaríkjastjórnar,
sagði hann, ef Bretar neyðast til
þess vegna minnkandi birgða og
versnandi veðurs að grípa til nýrra
hernaðarlegra aðgerða fljótlega.
29 létust og 136 slösuð-
ust í átökum í Trípólí