Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 41

Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982 21 Arnór Guðjohnsen: „Ánægóur með síðasta keppnistímabil“ an ég gerðist atvinnumaður, og ég get því vel við unað persónulega. Nú er samningur minn við Lokeren að renna út og alveg óvist hvað tekur við. Ég hef fengið nokkur tilboð sem ég get ekki greint frá á þessu stigi máisins. Lokeren vill halda mér og eru samningaviðræður að hefjast milli okkar. En fái ég hinsvegar eitthvað gott tilboð frá góðu liði hef ég áhuga á því að skipta um félag. Sérstaklega hef ég áhuga á V-Þýskalandi. En það er allt óljóst hvað skeður í minum málum. Loker- en fer til Englands nú á næstunni og leikur þar nokkra leiki. Ég veit hinsvegar ekki hvort ég leik mikið með í þeim. Ég hef verið slæmur í hné og þarf að taka mér hvíld. Ég fer í skoðun á fimmtudag og þá fæ ég vonandi úr því skorið hvort ég þurfi að gangast undir enn frekari með- ferð eða hvort góð hvíld nægir mér. Sennilega eru þetta bara bólgur við liðmús. Verði ég góður kem ég heim og spila gegn Englendingum og von- andi lika gegn Möltu. Það verður gott að komast í sumarfrí og fá hvíld. Þetta er búið að vera mikið álag sagði Arnór. —ÞR. — Við hér í Lokeren-liðinu erum sæmilega ánægðir með árangurinn i deildinni í vetur. Við náðum Evrópu- sæti og það var það sem stefnt var að í upphafi, sagði Arnór Guðjohn- sen er Mbl. spjallaði við hann i gær- dag. — Þetta er besta tímabil mitt síð- Hrafnhildur Valbjörnsdóttir og Guðmundur Sigurðsson urðu hlutskörpust á íslandsmótinu i vaxtarrækt sem fram fór í Broadway um helgina. Þau munu taka þátt í Evrópumótinu í vaxtarrækt sem fram fer í Sviss síðar í þessum mánuði. Sjá nánar á blaðsíðum 24 og 25. Ljósm. Kmilia. I Þetta var svo sem ekki í fyrsta skipti sem Gilles Villeneuve lenti i honum kröppum og ber meðfylgjandi mynd það með sér. Hún er tekin íjapanska Grand Prix-kappakstrinum árið 1977 og eru það Villeneuve og fákur hans sem fá sér mikla flugferð. I þetta skipti sakaði Kanadamanninn ekki þótt ótrúlegt sé. Það er athyglisvert, að ökumaður bifreiðarinnar sem Villeneuve flýgur yfir á myndinni hét Ronnie Petterson og var sænskur. Hann lét lífið er bifreið hans fór margar veltur eftir ákeyrslu í Monza á Ítalíu 1978. Ekki að undra að íþrótt þessi er oft kölluð „leikurinn við dauðann“. Grand Prix-kappaksturinn: Villeneuve lést voveiflegt slys Þeir sem fylgdust með íþróttaþætti sjónvarpsins á laugardaginn muna eflaust eft- ir fréttamyndinni frá Grand Prix-kappakstrinum í Zolder í Belgíu. Þar fylgdust sjónvarps- áhorfendur með því er Ferr- ari-bifreið Kanadamannsins Gilles Villeneuve snerti aðra bifreið, þeyttist í loft upp og tættist í sundur. Þegar frétta- myndin var sýnd aftur, og þá hægt, mátti sjá hvar Villeneuve þeyttist tugi metra uns hann hafnaði á varnargirðingu. Það- an var hann fluttur í sjúkrahús þar sem hann lést skömmu síð- ar, en hann háls- og höfuðkúpu- brotnaði illa auk þess sem hann varð fyrir fleiri minni meiðslum. Síðasti Grand Prix-ökuþór- inn sem týndi lífi var Frakk- inn Patrick Depallier, en hann lést er Alfa Romeo- fákur hans fór margar veltur Gilles Villeneuve eftir í Zolder í reynsluferð í Hockenheim í Vestur-Þýskalandi 1980. Síð- asti Grand Prix-kappi sem lést í keppni var Svíinn kunni, Ronnie Petterson, en hann lét lífið á kappakst- ursbrautinni í Monza á Ítalíu árið 1978. Annars var það John Watson sem sigraði í Zolder, meðalhraði hans var 187 km á klukkustund og tíminn 1:35:41,99. Finninn Keke Rosberg varð annar, tími hans var 1:35:49,26, þannig að naumara gat það varla verið. Þriðji varð svo austuríska kempan Niki Lauda, en hann var síðan dæmdur úr leik þar sem McLaren-bifreið hans reyndist rúmum tveimur kílógrömmum of létt. Pétur Pétursson: „Ég býst fastlega við að skipta um felag“ „ÉG BÝST fastlega við því að skipta um félag. Ég hef talað við stjórn félagsins og óskað eftir því að fá sölu. Ég get ekki hugsað mér að vera hér áfram meðan þessi þjálfari er hjá lið- inu. Hann hefur reynst mér mjög illa vægast sagt. Það er að visu eitt ár enn eftir af samningi mínum hér hjá And- erlecht en vonandi næ ég fram skiptum," sagði Pétur Péturs- son í gær. „Ég fékk aðeins að leika fjóra heila leiki með And- erlecht i vetur og stóð mig vel, skoraði í öllum leikjunum en það skipti þjálfarann litlu máli. Hann var allur i því að láta liðið leika varnarkerfi, og fyrir það hefur hann verið mjög gagnrýndur í blöðum hér. Að mínu viti var það til dæmis fyrir þjálfaramistök að Aston Villa komst áfram en ekki við i úrslit í Evrópukeppni meistara- liða. Hann lét Anderleeht-liðið leika varnartaktik á heimavelli. Ég hef mjög oft fengið að koma inná í leikjum hér en það er bara ekki það sama og spila heila leiki. Til dæmis fékk ég að koma inná í öllum Evrópuleikjunum nema þeim síðasta. Anderlecht-liðið er á förum til Marokko í næstu viku og leikur þar nokkra leiki. Én síðan fá leikmenn sumarfrí. Þar sem mín mál eru mjög óljós ennþá get ég engu svarað til um það hvort ég kemst heim í landsleikina sem framundan eru. Ég hef hugsaö mér að fara með fjöl- skylduna til Grikklands í sumar og hvíla mig vel. Mál mín hjá Anderlecht munu skýrast á næstunni,“ sagði Pétur. — ÞR I

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.