Morgunblaðið - 11.05.1982, Síða 42
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
1
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu
Luis Arconada þykir n«sta öruggur i markið.
Frá Holgu Jónsdóttur,
fróttaritara Mbl. í Burjros, Spáni.
ENDA þótt aðeins séu eftir 2 mán-
uðir að setningu heimsmeistara-
keppninnar í knattspyrnu á Spáni er
endanlegt val leikmanna spænska
landsliðsins enn ekki ráðið. Þar sem
Spánn er það land er sér um undir-
búning og skipulag HM í þetta sinn,
leikur spænska landsliðið í loka-
áfanga keppninnar án þess að hafa
þurft að taka þátt í undankeppni.
Fyrir nokkrar þjóðir, og þá sérstak-
lega þær sem hafa náð að komast
áfram í keppninni, er Spánn einmitt
það land sem mesta möguleika hef-
ur til sigurs fyrir að vera gestgjafí.
Enda hefur reynslan sýnt sig að sú
þjóð er hefur skipulag HM hverju
sinni er skeinuhætt á heimavelli.
Stuðningur frá áhorfendum hefur
alltaf geysimikið að segja og getur
verið hvati að sigri hvaða félags sem
er. Síðasta dæmið af þessu er Arg-
entína. Vissulega var það allri arg-
entínsku þjóðinni að þakka að
landslið hennar í knattspyrnu sigr-
aði á heimavelli á HM árið 1978. Ef
keppnin hefði ekki verið haldin í
Argentínu er ómögulegt að vita
hvaða þjóð hefði borið sigur úr být-
um. Af þessum sökum telja margir
líklegt að Spánn verði sigurvegari á
HM í sumar.
Samt sem áður eru stuðnings-
menn spænska landsliðsins ekki á
eitt sáttir með lið sitt; ef til vill
vegna sífelldra breytinga í liðinu,
ef til vill vegna mjög misjafns
árangurs þess. Líklega verður sig-
ur eða tap liðsins að miklu leyti
háð þeirri hvatningu og þeim
styrk er liðið mun fá frá áhorf-
endapöllum Luis Casanova-
leikvangsins þar sem lið José Em-
ilio Santamaría leikur fyrstu leiki
sína á HM.
Eins og áður segir eru Spánverj-
ar ekki alls kostar ánægðir með
spænska landsliðið í knattspyrnu;
val landsliðseinvaldsins Santa-
maría og árangur liðsins síðan
hann tók við stjórn þess. Þótt sig-
ur hafi unnist í ýmsum leikjum
hefur leikur liðsins ekki alltaf ver-
ið sannfærandi.
Santamaría hefur notað 55
leikmenn til undirbúnings lands-
liðsins, og hefur hann skipt þeim í
A- og B-úrval. Allmargir þessara
leikmanna voru aðeins einu sinni
kallaðir á æfingu hjá Santamaría.
Hann þurfti ekki meira til að sjá
að þeir voru ekki það sem hann
leitaði að. Aðrir hafa orðið fastir á
æfingum; eru stoð og stytta í
landsliðinu og nokkrir þeirra
munu verða í úrvalinu er leikur
fyrir hönd Spánar á HM í sumar
ef ekkert verður því til fyrirstöðu.
Tveir fræknir sigrar
Miklar og óreglulegar breyt-
ingar á spænska landsliðinu hafa
haft þær afleiðingar í för með sér
að árangur þess í landsleikjum
hefur verið mjög misjafn. Fyrsti
leikur liðsins undir stjórn Santa-
maría var á móti Ungverjum.
Leikurinn fór fram í Búdapest
þann 24.9.1980. Jafntefli varð 2—2
og voru Spánverjar mjög ánægðir
með þau úrslit. Þann 15.10 sama
ár gerðu Spánverjar aftur jafn-
tefli í landsleik og þá gegn Þjóð-
verjum er fram fór í Leipzig.
Fyrsta tap spænska landsliðsins
var í leik þess við pólska landslið-
ið, þann 12.11. 1980 í Barceiona;
2—1 fyrir Pólverja urðu úrslit
leiksins. Spænska landsliðið hefur
leikið yfir 25 landsleiki á einu og
hálfu ári. Það á eftir að leika einn
vinnáttulandsleik við Svisslend-
inga fyrir heimsmeistarakeppn-
ina.
Fræknasti sigur liðsins til þessa
er tvímælalaust sigur þess yfir
enska landsliðinu. Liðin mættust
á hinum fræga Wembley-leik-
vangi í marz í fyrra. Spánverjar
sigruðu 2—1. Menn Santamaría
áttu fyllilega skilið að sigra og á
sama tíma byrjaði slæmt tímabil
enska landsliðsins, sem nærri
missti af farseðlinum á HM.
• Spánska landsliðið í knattspyrnu. Kemur það á óvart ! HM-keppninni á
Spáni? Margir telja að hróp áhorfenda geti fleytt liðinu yfír erfíðustu fíúðirn-
ar. Heimaliðum hefur líka allaf gengið vel í heimsmeistarakeppninni á
undanförnum árum.
mikil og góð samstaða meðal
þeirra.
Santamaría leitaði lengi að
þeim manni er gæti stýrt liðinu.
Kannske er Zamora rétti maður-
inn, en mörgum þykir hann vanta
ýmislegt til að gegna starfi fyrir-
liða. Þrátt fyrir það er Zamora í
þessu hlutverki. Santamaría hefur
stillt upp Víctor, Alonso og Zam-
ora á miðjuna í mörgum leikjum.
Tveir „mótorar" og einn „heili"
sem hafa mikla reynslu í að spila
saman og virðist sem Santamaría
hafi valið vel.
Að áliti Santamaría er framlína
liðsins mikilvægast. Hann hefur
enn ekki valið leikmenn. Quini
hefur fengið tækifæri til að sýna
hvað í honum býr, en hann olli
Santamaría vonbrigðum, lék ekki
eins og hans er vani með liði sínu
FC Barcelona. Sá eini er virðist
koma til greina er Satrústegui,
sem hefur sýnt og sannað oftar en
einu sinni að hann er besti mið-
framherji Spánar.
Þrátt fyrir fá tækifæri sem
Santamaría hefur gefið López Uf-
arte hefur leikmaðurinn sýnt
Santamaria að hann er mikils
virði og það er hugsanlegt að
þjálfarinn reikni með honum.
Ekki má heldur gleyma hinum
snjalla Juanito, né leikmönnum
eins og Saura, Marcos, Esteban,
Santillana, Quini o.fl.
Spænska landsliðið verður stóra
spurningin á HM. Hvenær verður
endanlega valið í liðið? Hugsan-
lega munu leikmenn þess ekki
leika neina glæsiknattspyrnu, eins
og áður hefur verið minnst á. Aft-
ur á móti gæti gæfan orðið þeim
hliðholl, sérstaklega ef allir
Spánverjar munu standa með liði
sínu. Hróp þeirra á áhorfendapöll-
um gætu ráðið úrslitum.
Satrustegui er almennt talinn besti miðherji Spánverja.
Áform Santamaría reyndust full-
komin, eins og í flest skipti þegar
liðið lék á útivelli. Spænska lands-
liðið kom öllum á óvart; vörn þess
var eins og múrveggur, miðjan
barðist eins og ljón og sókn liðsins
var illstöðvandi. Hún kom boltan-
um tvisvar sinnum í mark and-
stæðinganna.
í Lodz (Póllandi) gerðu Spán-
verjar garðinn aftur frægan og
sigruðu heimamenn 3—2. Leikur-
inn fór fram þann 18.11. 1981 þeg-
ar Pólverjar höfðu stuttu áður
sigrað Þjóðverja í Leipzig og Arg-
entínumenn í Buenos Aires. Það
sem gerðist á Wembley og í Lodz
eru tveir sögulegir leikir á tima-
bili umróta í spænska landsliðinu.
Spænska landsliðið getur sem sé
komið á óvart; unnið bestu lið á
útivelli eða tapað fyrir lélegum
liðum á heimavelli og þótt það
beri sigur úr býtum þá fer yfirleitt
lítið fyrir glæsileika í leikjum
þess.
Varnarleikur
of algengur
Þrátt fyrir allt á J.E. Santa-
maría ekki alla sök á þeim lélega
sóknarleik er einkennir spænska
landsliðið. Landsliðseinvaldurinn
takmarkar sig við, — í þau fáu
skipti sem hann starfar með
leikmönnunum — að kalla þá
saman til að leika fyrir hönd
Spánar þegar þess þarf. Liðið er
spegilmynd þeirrar knattspyrnu
sem leikmennirnir leika með sín-
um eigin félagsliðum i deildar-
keppninni. Og þannig er mál með
vexti að spönsk knattspyrna er fá-
tæk af nýjum hugmyndum og er
byggö á þeirri staðhæfingu að
mikilvægasti liðurinn sé vörnin.
Það fara fáir knattspyrnu-
áhugamenn á Spáni á völlinn með
það i huga að sjá fallega leikna
knattspyrnu, stöðuga sókn liðanna
og mörg mörk. Leikmenn lands-
liðsins sýna sama varnarleik með
liðinu í landsleikjum og þeir gera
með þeirra eigin félögum. Þar af
leiðandi er líklegt að á HM í
sumar muni menn sjá liðið ein-
göngu sýna daufa knattspyrnu;
aðallega varnarleik með fáeinum
hraðaupphlaupum. Fá mörk verða
því skoruð, þ.e.a.s. í heild léleg
knattspyrna byggð á spörkum til
og frá og ætli árangur verði ekki
eftir því.
Það er bót í máli fyrir Spán-
verja að aðrar þjóðir leika svipaða
knattspyrnu. Þeir eru ekki einir á
báti hvað varðar að spila varnar-
leik og krydda hann örlítið með
skyndisókn við og við. Það er
næstum óhætt að fullyrða að flest
liðin er leika munu á HM í sumar
munu sýna þess konar knatt-
spyrnu.
Enda þótt spænska landsliðið sé
ekki endanlega ákveðið, þá er það
víst að Santamaría hefur þegar
ákveðið nokkrar stöður í liðinu.
Markmaður verður Arconada.
(Hann hefur leikið nær 20 lands-
leiki.) Vörn liðsins verður mjög
líklega skipuð eftirtöldum leik-
mönnum: Camacho, Tendillo, Ale-
sanco og Gordillo. Gagnrýnendur
hafa verið harðorðir við landsliðs-
þjálfara fyrir að setja Camacho
sem hægri útherja þar sem leik-
maðurinn sparkar með vinstri
fæti, en Santamaria er ákveðinn
að nota Camacho í þessa stöðu
enda hefur hann sýnt að hann er
fær í flestan sjó. Varnarlína liðs-
ins hefur sannað ágæti sitt; ef til
vill vegna langs tíma sem leik-
mennirnir hafa spilað saman; er
Spænska landsliðið
stóra spurningin