Morgunblaðið - 11.05.1982, Qupperneq 44
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1982
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
25
HSV heldur efsta sætinu
- ósannfærandi frammistaða toppliöanna
Bayern Miinchen sigraði Stuttgart með einu marki gegn engu í vestur-þýsku
deildarkeppninni í knattspyrnu. Ásgeir Sigurvinsson kom inn á hjá Bayern
undir lok leiksins í stað Paul Breitners og lék síðustu mínúturnar gegn
félaginu sem hann mun ganga til liðs við í lok þessa keppnistímabils. Þetta
var annars hörkuleikur og lið Stuttgart átti fullt eins mikið í leiknum og
heimaliðið Bayern. Það var Paul Breitner sem skoraði sigurmark Bayern á
51. mínútu leiksins. IJrslit leikja urðu annars sem hér segir:
Karlsruhe — Niirnberg 3—2
Kaiserslautern — Bochum 2—1
Arm. Bielef. — Mönc.gl.bach 5—0
Bayern — Stuttgart 1—0
Bayer Leverkusen — Duisburg 2—1
Darmstadt 98 — Hamb. SV 2—2
Werder Bremen — E. Frankf. 2—1
Fort. Diisseldorf — FC. Köln 1 — 1
Dortmund — Braunschweig 1—0
HSV heldur efsta sætinu, en
heldur var frammistaðan gegn
botnliðinu Darmstadt ósannfær-
andi. Darmstadt var lengst af
mun betra liðið þó svo að HSV
næði tvívegis forystunni í leiknum
með mörkum Jimmy Hartwigs og
Manfred Kaltz. Fyrirliði og mið-
herji Darmstadt, Cestonaro, skor-
aði bæði mörk liðsins.
Möguleikar FC Köln jukust ekki
heldur við slaka frammistöðu
gegn Fortuna Dússeldorf. 1—1
urðu lokatölurnar og með smá
heppni hefði sigurinn hafnað hjá
heimaliðinu. Pierre Littbarski
skoraði í fyrri hálfleik fyrir Köln,
en Dusend jafnaði fyrir Fortuna í
síðari hálfleik.
Borussia Dortmund var enn á
höttunum efti sæti í UEFA-
keppninni og trúlega landar félag-
ið slíku sæti. Sigur gegn
Braunschweig leit dagsins ljós á
laugardaginn og það var marka-
klóin óviðjafnanlega Manfred
Burgsmuller sem skoraði sigur-
mark liðsins tveimur mínútum
fyrir leikhlé.
Werder Bremen er að reyna við
hið sama og Dortmund og félagið
steig ákveðið skref í þá átt um
helgina með því að sigra Frank-
furt 2—1. Ekkert mark var skorað
í fyrri hálfleik, en Kóreumaðurinn
Tscha Bum náði forystunni fyrir
Frankfurt í upphafi þess síðari.
Norbert Siegman jafnaði þó metin
og finnski landsliðsmaðurinn
Rautianien skoraði síðan sigur-
markið þegar aðeins tvær mínútur
voru til leiksloka.
Kaiserslautern á enn möguleika
á UEFA-sæti og liðið náði tveimur
stigum gegn Bochum á laugardag-
inn. Patzke skoraði fyrst fyrir
Bochum, en á 61. mínútu jafnaði
Brehme og Eilenfeldt skoraði síð-
an sigurmarkið nokkrum mínút-
um síðar.
Einhver sérkennilegustu úrslit
umferðarinnar voru þó stórsigur
Armenia Bielefeldt gegn Borussia
Mönchengladback. Bielefeldt hef-
ur á þessu keppnistímabili alveg
eins og á því síðasta, átt stórgóðan
lokasprett eftir að hafa staðið í
fallbaráttu framan af. En yfir-
burðir liðsins gegn BMG voru með
mörk þeirra Hartungs og Schulers
færðu því sigurinn.
Loks sigraði Leverkusen dæmt
lið Duisburg 2—1 á heimavelli sín-
um, en hvort liðið bjargar sér frá
falli þrátt fyrir það er ekki útséð
um. Szech og Hermann skoruðu
mörk liðsins eftir að Bússers hafði
náð forystunni fyrir Duisburg.
Lítum svo að lokum á stöðuna:
■
• Manfred Kaltz, bakvörðurinn sterki hjá Hamborg, átti góðan leik og
skoraði mark.
ólíkindum og mörkin hlóðust upp.
Þó var ekkert skorað í fyrri hálf-
leik, en í þeim síðari brustu flóð-
gáttirnar. Pagelsdorf braut ísinn
og Edwald Lienen, fyrrum leik-
maður BMG, bætti síðan marki
við, 2—0. Síðan fylgdu mörk frá
þeim Dronia, Schröder og Riedl.
Karlsruhe styrkti stöðu sína
nærri botninum með góðum sigri
og nauðsynlegum gegn Núrnberg,
sem hafði mark yfir í hálfleik,
Heck skoraði. Gross jafnaði í síð-
ari hálfleik, er Weyerich náði for-
ystunni fyrir Núrnberg á ný.
Heimaliðið átti þó síðasta orðið og
Hamburger 31 17 10 4 84:39 44
FC Köln 31 17 8 6 63:30 42
Bayern Miinch. 30 19 3 8 73:46 41
Bor. Dortmund 31 17 5 9 55:33 39
Bremen 30 M 8 8 50:44 36
Kaisersl. 31 13 10 8 62:56 36
Bor. Mönch. 31 13 9 9 52:50 35
VFB Stuttgart 31 12 8 11 53:46 32
Kintr. Frankfurt 31 II 2 14 73:68 :i2
Kintr. Braunsch. 31 14 3 14 55:54 31
VFL Bochum 31 II 7 13 46:46 29
Arminia Bielef. 31 12 5 14 42:43 29
Karlsruher SC 31 1 7 15 45:61 25
Diisseldorf 31 6 12 13 44:64 24
Núrnberg 31 9 S 16 45:70 24
Baver Leverk. 31 8 6 17 40:67 22
Darmstadt 98 31 4 10 17 40:73 18
Duisburg 31 7 3 21 37:69 17
Standard varð
belgískur meistari
— þrjú „íslendingalið“ í UEFA-sætum
BKLGÍSKII deildarkeppninni er nú
lokið, síðasta umferðin var háð um
hclgina og að henni lokinni stóð
Standard Liege uppi sem belgískur
meistari, meistari siðasta árs, And-
erlecht, hafnaði í 2. sæti. L’rslit
éikja urðu sem hér segir:
Winterslag — FC Liege 1—0
FG Brugge — Molenbeek 5—0
Ueringen — Ghent 1—2
Lierse — Beveren 4—2
fortryjk — Waregem 1—0
Lokeren — FC Mechlin 2—1
Tongeren — Antwerpen 1—2
Anderlecht — Cercle Brugge 3—1
Standard — Waterschei 3—1
Sem sagt, Standard meistari og
Anderlecht í 2. sæti. UEFA-sæti
hreppa einnig auk Anderlecht Ghent
og Lokeren. í 2. deild féllu FC
Mechlin, Beringen og FC Liege. En
lokastaðan varð þessi:
Standard 19 10 5 59:28 48
Anderlecht 19 8
Ghent
Lokeren
7 56:31 46
16 13 5 36:21 45
17 10 7 56:32 44
Antwerpen 17 9 8 45:23 43
Kortryjk 14 10 10 39:35 38
Beveren 14 9 11 45:33 37
Lierse 14 8 12 49:51 36
Waterschei 11 8 15 44:55 30
Tongeren II 8 15 40:54 30
RWI) Molenbeek II 7 16 41:50 29
Waregem 10 9 15 30:34 29
Winterslag 10 • 15 24:49 29
FC Brugge 10 8 16 46:46 28
SK Brugge 1(1 8 M 57:61 28
FC Liege 10 8 16 36:50 28
Beringen 9 !( 16 33:50 27
FC Mechlin 6 5 23 28:65 17
• Tveir íturvaxnir kappar. Guðmundur Sigurðsson sem sigraði í karlaflokki
og Magnús Oskarsson. Ljósm. Emilí*.
íslandsmótið í vaxtarrækt:
Sænska stúlkan Pernilla Gunnarsson vakti mikla athygli á vaxtarræktar
sýningunni en sýndi sem gestur.
Guðmundur og Hrafnhildur sigruðu
ÞAU HRAFNHILDUR Valbjörnsdóttir og Guðmundur Sigurðsson urðu
hlutskörpust i fyrsta íslandsmótinu i vaxtarrækt sem fram fór i veitingahús-
inu Broadway um helgina. Hrafnhildur hlaut titilinn vaxtarræktarkona ís-
lands 1982 og Guðmundur titilinn vaxtarræktarmaður íslands 1982. Bæði
hljóta þau í sigurlaun ferð og keppnisrétt á Evrópumótið í vaxtarrækt sem
fram fer i Sviss dagana 20.—23. mai nk.
Alls var keppt i átta flokkum á
þessu fyrsta Islandsmóti í vaxt-
arrækt. Keppnin fór mjög vel
fram, var mikill áhugi fyrir
keppninni. Fullt var út úr dyrum í
Broadway og vaxtarræktarfólkinu
hvað eftir annað klappað lof í lófa
fyrir sýningu sína. Mikill fjöldi
keppenda tók þátt í þessu fyrsta
íslandsmóti og er með ólíkindum
hversu góðum árangri keppendur
virðast hafa náð á skömmum
tíma, en vaxtarrækt er ung
íþróttagrein hér á landi.
Það sem lagt er til grundvallar í
svona keppni eru vöðvar, vöxtur.
hlutföll, framkoma, þokki og
íþróttamannsleg reisn, vöðvaskil,
samræmi í líkamshluta, jafnvægi
og húðfegurð.
Tveir Svíar voru gestir þessa
fyrsta íslandsmóts. Andrés Ca-
hling og Pernilla Gunnarsson og
vöktu þau mikla athygli fyrir itur-
vaxna líkama sina svo og
skemmtilega sviðsframkomu.
— ÞR
• Viðar Guðjohnsen, fyrr-
um judó- kappi, hefur
hellt sér út í vaxtarrækt-
ina og er orðjnn vel vöðv-
aður eins og sjá má.
Margar stúlkurnar sem sýndu voru Töngulegar eins og
sja
ma.
• Hrafnhildur Valbjörnsdóttir fagnar sigri sinum i kvenna-
flokki.
Cruyff og félaga
vantar eitt stig
AJAX verður enn að biða eftir því að
titillinn sigli endanlega í höfn, fyrst
liðið gat ekki herjað út sigur gegn
Roda JC Kerkrade. Peter Boeve
náði snemma forystunni fyrir Ajax,
en Rene Hofman jafnaði áður en
hálftími var liðinn af leiknum og
fleiri urðu mörkin ekki í leiknum.
Möguleikar PSV eru ekki um-
talsverðir, en meðan þeir eru þó
fyrir hendi ber að útiloka ekkert.
Liðið hélt enn í vonina með 2—1
sigri gegn Spörtu frá Rotterdam.
Jurrie Koolhof og Hallvar Thore-
sen skoruðu mörk PSV, en Jan
Tiktak svaraði fyrir Spörtu. Huub
Stevens hjá PSV og David Loggie
hjá Spörtu voru reknir af leikvelli
fyrir slagsmál. Þriðji brottrekstur
Englendingsins á keppnistímabil-
inu.
Hinum toppliðunum gekk vel,
Alkmaar sigraði De Graafchap
4—0 með mörkum Pier Tol (2),
Kees Kist og John Metgod og
Haarlem vann FC Tvente 3—0
með mörkum Jo Bockling (2) og
Ruud Gullit.
Ajax hefur forystu, 52 stig eftir
32 leiki, PSV hefur 49 stig og Alk-
maar 45 stig. Ajax nægir eitt stig
út úr tveimur síðustu leikjum sín-
um til að hreppa titilinn.
mm
• Johan Cruyff í búningi Ajax fyrir nokkrum árum, er hann lék kveðjuleik
sinn með Ajax gegn Bayern Miinchen. Kveðjuleikurinn reyndist svo ekki
vera neinn kveðjuleikur, því kerapan hóf að leika með liðinu á nýjan leik í
vetur og er Ajax nú aðeins millimetra frá því að næla í hollensku meistara-
tignina undir stjórn hans. Fyrir aftan Cruyff grillir í kunnan kappa, Simon
Tahamata, sem leikur nú með Standard Liege.
Gtúlkurnar settu
Islandsmet
Þ/ER Guðrún Ingólfsdóttir og fris
Grönfeldt stóðu í metaslætti um
helgina og er óhætt að spá frekari
afrekum á næstunni, enda báðar
greinilega sterkar um þessar mund-
Ir.
Guðrún sneri sér að kringlukast-
inu á fostudagskvöldið og nýtt ís-
landsmet leit dagsins Ijós, kastaði
hún kringlunni 53,86 metra, meira
en metra íengra en gamla metið sem
hún átti sjálf. Reyndar er hæpið að
tala um gömul met í þessu sam-
bandi, þvi metið sem hún sló setti
hún sjálf aðeins fáeinum dögum áð-
ur.
íris var hins vegar að keppa í
Borgarnesi og náði hún þeim stór-
góða árangri að kasta spjóti 51.58
metra. Er það íslandsmet og íris
varð þar með fyrsta íslenska stúlkan
sem kastar spjóti yfir 50 metra.
Sigurvegararnir i Finlux-mótinu með verðlaun sín.
Ljósm. Osksr Sjpm.
Hörður sigraði á
Finlux-mótinu
FYRSTA meiri háttar golfmót
Golfklúbbsins Keilis á þessu sumri,
Finlux-mótið árlcga, var haldið um
helgina á Hvaleyrarholtsvellinum.
Var hér um punktamót að ræða og
keppendur rétt tæplega 100 talsins.
Hörður Morthens úr GR sigraði
á 70 punktum og Sigurður Pét-
ursson, einnig úr GR, varð annar á
68 punktum. Páll Ketilsson GS lék
einnig á 68 punktum, en hann tap-
aði í bráðabana fyrir Sigurði.
Sama sagan var í 4.-5. sætunum,
Gylfi Kristinsson GS og Jóhannes
Gunnarsson NK voru báðir með 67
punkta, en Gylfi nældi í efra sæt-
ið. Gísli Sigurðsson GK varð sjötti
á 65 punktum, Arnar M. ólafsson
GK sjöundi á 64, Baldvin Jóhanns-
son GK áttundi á 63 og síðan voru
þrír keppendur jafnir í 9,—11.
sætunum. Þar af var ein af þrem-
ur kvenkeppendum mótsins,
Kristín Þorvaldsdóttir GK sem
lék á 63 punktum. Óskar Sæ-
mundsson GR og Tryggvi Trausta-
son GK léku einnig á 62 punktum.
Mótið fór fram við sæmilegar
aðstæður ef á heildina er litið og
þótti spilamennska keppenda
mjög góð miðað við árstíma.
— gg-
IA vann
litlu
bikarkeppnina
AKRANES varð meistari í Litlu
bikarkeppninni um helgina. er
liðið hreppti eitt stig gegn ÍBK
er liðin áttust við á Skaganum.
Ekkcrt mark var skorað í
leiknum. UBK og FH mættust
einnig í sömu keppni og loka-
tölur þess leiks urðu 1 — 1. Sem
fyrr segir bar ÍA sigur úr být-
um, liðið fékk 6 stig. ÍBK fékk
einnig 6 stig, en markatala liðs-
ins var mun lakari en hjá ÍA,
8-3 á móti 12—1. UBK fékk 5
stig, FH 3 stig og liaukar ráku
lestina með ekkert stig.
Ballesteros
hreppti hnossið
SPÆNSKl golfsnillingurinn Sevri-
ano Ballesteros bar sigur úr býtum á
opna franska golfmótinu sem haldiö
var í Saint Nom La Breteche um
helgina. Hann lék síðasta hringinn á
7 höggum undir pari, 65 höggum og
tryggði sér þannig sigur, en par vall-
arins er 72 högg. Ballesteros varð
þar með 4 höggum á undan sigurveg-
ara mótsins 1981, Sandy Lyle frá
Skotlandi, sem lék samtals á 282
höggum og síðustu umferðina á 67
höggum. Samanlagt lék sá spænski á
278 höggum. Ballesteros fékk í sinn
hlut 12.700 dollara fyrir sigurinn, en
verðlaunaféð nam 76.000 dollurum.
Lokastaða nokkurra efstu keppend-
anna varð þessi:
1. S. Ballesteros 278 (71-70-72-65)
2. Sandy Lyle 282 (72-64-79-67)
3. Juan Anglada 287 (73-73-71-68)
4. MarkJames 287 (68-73-75-71)
5. T. Horton 287 (73-69-73-72)
* fur *