Morgunblaðið - 11.05.1982, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
31
Fjölmenni í kosningakaffi Hvatar
Á SUNNUDAG bauð Sjálfstæð-
iskvennafélagið Hvöt í kosn-
ingakaffi í Valhöll. Voru þar
mættir hátt í 300 manns, og mikill
hugur í fólki. Ólafur B. Thors
borgarfulltrúi flutti skelegga
dagskrárræðu, Elín Sigurvinsdótt-
ir söng við píanóundirleik Selmu
Kaldalóns, Sigriður Hannesdóttir
söng gamanvísur og samkomunni
stjórnaði Margrét S. Einarsdóttir.
En Hvatarkonur sáu um rausnar-
legar veitingar.
Bessí Jóhannsdóttir, formaður
Hvatar, og varaformaðurinn,
Unnur Jónsdóttir, tóku á móti
gestum og buðu velkomna. En til
þessa kosningakaffis hafði verið
boðið sérstaklega Hvatarkonum
eldri en sextugum. Og létu þær sig
svo sannarlega ekki vanta. En auk
þeirra voru að sjálfsögðu fleira
sjálfstæðisfólk og núverandi og
verðandi borgarfulltrúar.
Var setið fram eftir degi og
rabbað saman, og í öðrum salnum
var opið sjónvarp meðan fram-
boðsfundur var á skjánum. Spunn-
ust af því líflegar umræður við
borðin um borgarmálefni og voru
menn mjög ánægðir með mál-
flutning og rök frambjóðenda
Sjálfstæðisflokksins.
Ólafur B. Thors, borgarfulltrúi og aðalræðumaður fundarins og Bessí Jó-
hannsdóttir, formaður Hvatar. Að baki þeim má þekkja Val Jóhannsson,
Elínu Pálmadóttur og Jóhönnu J. Einarsdóttur.
Elín Sigurvinsdóttir, óperusöngkona skemmti gestum með söng við undirleik
Selmu Kaldalóns. I baksýn má sjá yfir á annað af velbúnum kaffiborðum
Hvatarkvenna.
Spilakvöld í
Valhöll í kvöld
FÉLAG sjálfstæðismanna í Laugarness- og Háaleitis-
hverfí gengst fyrir spilakvöldi í Valhöll, Háaleitisbraut 1,
klukkan 20.30 í kvöld.
Þetta er fimmta spilakvöld
vetrarins. Hin fjögur fyrri
hafa þótt takast mjög vel og
hafa verið vel sótt. Auk spila-
mennskunnar er boðið upp á
kaffi og kökur, sem konur
stjórnarmanna hafa séð um af
miklum myndarskap.
Veitt eru verðlaun, ein fyrir
karla og ein fyrir konur, heim-
ilistæki, bækur, úttekt í verzl-
unum og fleira.
Búast má við því að ein-
hverjir frambjóðendur sjálf-
stæðismanna í komandi kosn-
ingum komi og taki þátt í
spilamennskunni.
Meðfylgjandi mynd er frá
spilakvöldinu, sem haldið var í
janúar sl.
Fjölmenni mikið var i kosningakaffi Hvatar. Þessi mynd er tekin úr öðrum salnum meðan hlýtt var á dagskrá.
”|lver
reiknaði
þad út?”
Spurði Jón Spæjó þegar hann komst að því hvað
verðið á nýja Skodanum var hlægilega lógt.
Og ekki varð hann minna hissa þegar það kom í
Ijós að ekki þyrfti að borga nema 40.000 kr. út og
afganginn á 6 mánuðum.
Þetta fannst Jóni Spæjó greiðsluskilmálar í
betra lagi.
Nybýtavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600