Morgunblaðið - 11.05.1982, Side 26
34
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
Akranes:
Skipaskagi AK
bætist við flotann
Akranesi, 2. maí.
í GÆRMORGUN, þann 1. maí, kom
togbáturinn Skipaskagi AK 102
hingað í höfn frá Hull. Skipið er tæp-
ar 300 lestir að stærð, búið góðum
tækjun, til veiða og siglinga.
Kaupar.di og eigandi skipsins
verður Hraðfrystihúsið Heima-
skagi hf., og standa vonir til þess
að afli þess bæti úr þeim verk-
efnaskorti, sem háð hefir fram-
leiðslunni að undanförnu. —
Skipverjar prófuðu veiðarfæri
skipsins í Norðursjónum, áður en
lagt var af stað heim til íslands og
reyndist allt vel um borð. — Afl-
inn var reyndar ekki mikill í tog-
inu, einn poki blandaður fiskur,
sem bresku sjómennirnir sem með
þeim voru til aðstoðar, fengu í soð-
ið.
Skipstjóri á Skipaskaga er
Oddur Gíslason, kominn af dug-
miklum aflamönnum í ættir fram.
— Þess má geta til gamans og
fróðleiks, að langafi hans, Gísli á
Hliði, hjálpaði 5 ungum mönnum
hér á Akranesi, með því að lána
þeim peninga, þegar þeir keyptu
fyrsta þilfarsvélbátinn (mótorbát-
inn) Fram, sem kom hingað árið
1906, en hann kostaði þá kr. 8.000.
Einn þeirra ungu manna var Þórð-
ur Asmundsson, sem síðar stofn-
aði Heimaskaga hf.
Skipaskagi fer á veiðar nú
fljótlega. Július
Vertíð í meðallagi
lokið í Þorlákshöfn
l*orlákshöfn, 10. maí.
NÚ ER þessari vetrarvertíð hér lok-
ið. Hún var, að sögn Gests Ámunda-
sonar á hafnarvoginni, i meðallagi
og jafnari afli á þessa miðlungsbáta
en oft áður, t.d. í fyrra. Toppskipið
frá i fyrra, Jón á Hofi, vantar mikið
upp á sitt aflamagn, eða milli 5 og 6
hundruð tonn. Smærri bátarnir urðu
illa úti vegna ótiðar og gæftaleysis,
sem að sjálfsögðu kom verst niður á
þeim. Tíðarfarið var þó sannarlega
erfitt fyrir alla.
Bátaafli á land kominn á vertíð-
inni er sem hér segir: 28.950 tonn í
2.456 löndunum á móti 24.850
tonnum í fyrra i 2.027 löndunum.
Togaraafli nú frá áramótum eru
2.726 tonn í 24 löndunum á móti
2.594 tonnum í fyrra í 27 löndun-
um. Aflahæstu bátarnir hér nú
eru þrír Njörður, Stokkseyri, með
1.070 tonn, Arnar, Þorlákshöfn,
997 tonn og Húnaröstin, Þor-
lákshöfn, 969 tonn.
Mikil atvinna hefur verið hér í
saltfiskverkunarstöðvunum í vet-
ur og mikil vinna eftir hjá þeim
eins og venjulega, endist fram eft-
ir sumri. Jöfn og góð vinna var í
frystihúsi Meitilsins hf. á vertíð-
inni og framundan er að vinna
humar, en það hefur ekki verið
gert sl. 6 ár. Nú er sem sé annað
upp á teningnum sem betur fer,
því að sjálfsögðu er það aðalatrið-
ið að vilja taka við hráefni til
vinnslu. Þetta skapar svo góða at-
vinnu fyrir skólafólkið okkar ef
vel veiðist og að sjálfsögðu verður
togaraaflinn unninn í húsinu eins
og venjulega.
Ragnheiður
Ný sportvöruverzlun í Garðabæ
Ný sportvöruverzlun var opnuð fyrir skömmu í Garðabæ. Heitir hún
Garðasport og er til húsa í Iðnbúð 4.
Verzlunin býður upp á allan sportfatnað og sportvörur, m.a. frá Adi-
das, Henson og sundfatnað frá Speedo. Þá selur verzlunin garðáhöld,
sláttuvélar, garðhúsgögn og leikföng í garða. Ennfremur verða á boð-
stólum barnaleikföng frá Playmobil.
í framtíðinni mun Garðasport bjóða upp á útileguvörur, skíðavörur og
fleira, sem tengist útivist og tómstundaiðju.
Eigendur Garðasports eru Gunnar Einarsson og Guðmundur Jónsson
og er Guðmundur í verzluninni á meðfylgjandi mynd.
Frá einu alþjóðlega stangaveiðimótinu í Eyjum.
Ljiem. Mbl. Sigurgeir.
Hvítasunnan:
Alþjóðlegt
stangaveiði-
mót í Eyjum
Sjóstangaveiðifélag Vestmanna-
eyja mun gangast fyrir Alþjóða-
sjóstangaveiðimóti um hvítasunn-
una í vor i Vestmannaeyjum. Mótið
mun standa yfir í tvo daga, laugar-
daginn 29. og sunnudaginn 30. maí,
en mótinu verður slitið þá um
kvöldið.
Róið verður út frá Eyjum kl. 6
á morgnana og komið aftur að
landi 8 tímum seinna, eða kl. 14.
Mótið verður sett föstudaginn 28.
maí í Akoges-húsinu kl. 21. Verð-
laun verða veitt að venju og er
um að ræða mjög veglega far-
andbikara sem keppt verður um.
Einnig eru eignarverðlaun eins
og á undanförum mótum.
A undanförum hvítasunnumót-
um í Vestmannaeyjum hefur
fjöldi stangveiðimanna af fasta-
landinu tekið þátt í mótinu og
einnig útlendingar, en mjög er
vandað til allrar móttöku og
framkvæmdar mótsins. Miðað er
við að þátttakendur hafi tilkynnt
þátttöku fyrir 20. maí nk. í síma
1080 eða 1647 eða til Hjálmars
Eiðssonar í síma 1800 eða 1228.
Jarðefnaiðnaður hf. ætl-
ar að halda sínu striki
Morgunblaöinu hefur bor-
izt til birtingar eftirfarandi
bréf Jarðefnaiðnaðar hf. til
Gunnars Thoroddsen forsæt-
isráðherra, dagsett 7. maí:
Á fundi á alþingi í dag var sam-
þykkt tillaga frá Ólafi Þ. Þórðar-
syni um að vísa tillögu til þings-
ályktunar um steinullarverk-
smiðju í Þorlákshöfn til ríkis-
stjórnarinnar.
Jarðefnaiðnaður hf. hefur áður
lýst yfir vilja sínum til að safna
hlutafé til byggingar verksmiðj-
unnar án eignaraðildar ríkisins.
Sú yfirlýsing stendur enn og
stjórn Jarðefnaiðnaðar hf. mun til
hins ýtrasta vinna að því, að stein-
ullarverksmiðja rísi í Þorláks-
höfn.
Yfirboð iðnaðarráðherra með
fjármunum ríkisins og tillögu-
flutningi sínum í ríkisstjórn um
að ganga til samstarfs við Stein-
ullarfélagið hf. með 40% hluta-
fjárframlagi ríkisins, meðan Jarð-
efnaiðnaður hf. bíður næðis til að
halda áfram hlutafjársöfnun, er
bersýnilega fjandsamlegt Sunn-
lendingum og þeirri félagslegu
iðnaðaruppbyggingu, sem undir-
búin hefur verið á Suðurlandi. Það
er enn eitt skrefið í átt til þess, að
atvinnustarfsemi í iandinu færist
yfir í hendur ríkisins.
Nú, þegar þetta mál er aftur
komið til ríkisstjórnarinnar að
lokinni umfjöllun Alþingis, gerir
Jarðefnaiðnaður hf. þá kröfu, að
félaginu gefist ráðrúm til að
fylgja eftir samþykkt sinni um
söfnun hlutafjár til stofnsetn-
ingar steinullarverksmiðju án
eignaraðildar ríkisins og að það
njóti ákvæða 2. og 3. töluliðar 2.
gr. laga nr. 61/1981. Einnig gerir
félagið þá kröfu, að engin ákvörð-
un verði tekin í ríkisstjórninni um
staðsetningu steinullarverk-
smiðju, meðan niðurstaða um
árangur félagsins til hlutafjár-
söfnunar liggur ekki fyrir.
Jarðefnaiðnaður hf. stefnir af
fullri einurð að því, að fram-
kvæma fyrirætlun sína og mun
leita allra leiða, hvenær sem færi
gefst, til að reisa steinullarverk-
smiðju í Þorlákshöfn.
Virðingarfyllst,
Stjórn Jarðefnaiðnaðar hf.
Bíóhöllin sýnir
BÍÓHÖLLIN byrjar í dag gýningar á
bandarískri bardagamynd sem ber
heitið ÁUhyrningurinn. í aðalhlutverki
er karatemeistarinn Chuck Norris, en
af öðrum leikurum má nefna Karen
Calson og Lee Van Cleef. Leikstjóri er
Eric Karson.
Efnisþráður myndarinnar verður
ekki rakinn hér, enda væri það of
langt mál að telja upp, en í efnisyf-
irliti segir svo í upphafi:
„Scott James (Chuck Norris),
fyrrverandi meistari í bardagalist-
inni karate, dregst inn í hættulegt
alþjóða ævintýri þegar Nancy (Kim
Atthyrninginn
Lankford), stúikan sem hann er með,
er drepin af hópi hinna hræðilegu
drápsmanna „Ninja". James slær af
sér árásarmennina en uppgötvar að
öll fjölskylda Nancy hefur verið
myrt af þessum drápsmönnum, sem
eru þjálfaðir í að drepa á hljóðlátan
hátt.
James hefur samband við McCarn
(Lee Van Cleef), þaulvanan leigu-
morðingja, sem gæti vitað eitthvað
um hina illræmdu Ninja. McCarn
kemst fljótlega að því, að það er ekk-
ert löglegt sem getur nálgast þessa
illræmdu drápsmenn og enginn virð-
ist vita neitt um þá.“
raðauglýsingar — raðauglýsingar — raðauglýsingar \
Grindavík Kosningaskrifstofa Kosningaskritstofa sjálfstæöismanna i Grindavík er að Austurvegi 14. Fyrst um sinn veröur opið fra kl. 17—19, simi er 8351. Siglufjörður Frambjóöendur D-listans halda fundi i hádeginu á hverjum miöviku- degi aö Hótel Höfn. Stuöningsfólk er hvatt til aö mæta. Frambjóóendur. Seltjarnarnes Frambjóöendur Sjálfstæöisflokksins veröa til vlötals i kosningaskrif- stofunni Melabraut 78, mánudaga/föstudaga kl. 20—21, laugar- daga/sunnudaga kl. 15—16. . Nánari upplýsingar í síma skrifstofunnar 25240. D-llstlnn.
Siglufjörður Kosningaskrifstofa Sjálfstæöisflokksins er opin frá 13—19 og 20—22 alla daga. Simi 71154 og 71893. Heimasími hjá Gunnari Ásgeirssyni er 71177. Eskifjörður Kosningaskrifstofa Sjálfstæöisflokksins er aö Strandgötu 1b. Opiö frá kl. 20—22 alla daga, sími 6406. Umboösmaöur Georg Halldórs- son, heimasími 6269. Siglufjörður Happdrættismiöar SjálfstaBÖisflokksins eru seldir í Versluninni Tröö, Siglufiröi Dregiö veröur 15. maí nk.
j