Morgunblaðið - 11.05.1982, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 11.05.1982, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982 39 \l (.I.VSIM, \- SIMINN FH: 22480 ingu. Hann miðlaði öllum, sem á hann vildu hlýða af reynslu sinni og þekkingu og hvatti til andlegra iðkana með orðunum: „Leitið og þér munið finna." Það var mjög runnið á æviskeið Óskars, er leiðum hans og þess, sem þetta ritar, bar saman, fyrir réttum tíu árum. Óskar var þá hættur störfum og sinnti hugðar- efnum sínum. Það þurfti ekki löng kynni af Óskari til þess að finna hvern mann hann hafði að geyma. Þar fór traustur maður, skoðana- fastur og hófsamur. Hann hafði iétta lund og frásagnarlist var honum í blóð borin. Höfuðdyggð- irnar gömlu, sem ekki eru sem vinsælastar nú á tímum, þ.e. sparsemi og nægjusemi, sátu til öndvegis í lífi hans. Hann var bæði Ijúfur og reifur gestgjafi, sem miðlaði jafnt hinu andlega og líkamlega fóðri. í eilífðarlandinu handan vídd- anna vissi hann að sín biðu ný ævintýri, miklu stórkostlegri en í landi klukkunnar. Hann var ferð- búinn. Megi Guðs blessun fylgja honum á nýjum vegum. M.S.S. Sigurður Guðbrands- - Minningarorð son Sigurður Guðbrandsson, fv. bif- reiðarstjóri, Sogavegi 138, Reykja- vík, lést í Landakotsspítala að- faranótt 29. apríl si., tæplega 68 ára að aldri. Hann var fæddur 19. maí 1914 í Reykjavík. Sigurður var sjómaður og vöru- bílstjóri að iífsstarfi og var lengi féiagsmaður í Vörubílstjórafélag- inu Þrótti. Hann var sjálfstæðismaður og einn af stofnendum málfundafé- lagsins Óðins í Reykjavík, félags sjálfstæðismanna í launþegasam- tökum, sat í fyrstu stjórn þess fé- lags og var heiðursfélagi síðustu árin. Eftirlifandi kona Sigurðar er Guðrún Olga Gilsdóttir. Þau eign- uðust einn son, Alexander Sig- urðsson, forstjóra Stálbergs. Útför Sigurðar fer fram í kyrr- þey að ósk hins látna. P.H. Minning: ^ _______ Gestur Oskar Frið- bergsson yfirvélstjóri Hinn 30. apríl sl. varð bráð- kvaddur hér í Reykjavík Gestur Óskar Friðbergsson, fv. yfirvél- stjóri hjá Eimskip. Óskar var fæddur hinn 7. okt. 1902 í húsi, sem stóð við Aðalstræti, þar sem nú gnæfir Morgunblaðshöllin. Foreldrar hans voru þau hjónin Friðberg Stefánsson (1874—1918), járnsmiður frá Auðsholti í Bisk- upstungum, og Agnes Gestsdóttir (1878-1965), frá Skúfslæk í Flóa. Þau hjónin eignuðust þrjú börn og var Óskar elstur, þá Haraidur Þór, f. 1906, sem lifir bróður sinn, og yngst var dóttir þeirra Kristín, sem lést á barnsaldri. Óskar hóf ungur nám í járn- smíði hjá föður sínum, sem hann naut skammt, því Friðberg andað- ist í spönsku veikinni 1918, og varð Óskar þá stoð móður sinnar og var svo jafnan síðan. Járnsmíðanámi lauk Óskar í Hamri og vann hann síðan í nokkur ár að því starfi, m.a. við byggingu kolakranans fræga. A þessum árum unnu menn án refja þá vinnu er bauðst og var Óskar um tíma kolamokari á tog- urum. Vildi svo til að í fyrsta túrnum sem Óskar fór, þá rak á þá fárviðri, sem síðan hefur verið kallað Halaveður, og þótti hinum unga kolamokara starfinn æði snúinn, því oft skipti milli gólfs og súðar. Hvort sem það hefur verið í Halaveðrinu eða síðar, þá upp- götvaði Óskar fljótt þau sannindi að betra var að vera vélstjóri en kolamokari. Hann hóf nám í Vélskólanum í Reykjavík og lauk þaðan prófi 30.04. 1929. Eftir það var hann vélstjóri á ýmsum togur- um og í afleysingum hjá Eimskip til 1937 er hann fastréðst til Eim- skipafélags íslands og þar starfaði hann uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir 1968. Starfsferill Óskars var giftu- drjúgur og áfallalaus og kunni hann vel að meta hamingju sína um val á Iífsstarfi. Ekki verður svo skilið við starfsferil Óskars, að ekki verði minnst þess, að hann fann upp einfalt tæki (1937) til austurs á nótabátum, sem hér voru notaðir um árabil við síld- veiðar. Á stími hélt tækið bátun- um þurrum vegna ferðar þeirra, en það sparaði tíma og erfiði, en sem meira var vert, að mannslíf- um hafði verið hætt við austur bátanna í misjöfnum veðrum. I einkalífi sínu varð Óskar ekki síður farsæll en í starfi. Hann kvæntist hinn 14. júlí 1934 önnu Maríu, f. Andreasen, frá Fugla- firði í Færeyjum, hinni mætustu dugnaðarkonu. Þau hjónin eignuð- ust fimm dætur og ólu upp að auki tvö dótturbörn sín. Einnig átti Óskar eina dóttur áður en hann kvæntist. Hafa allar dætur hans gifst og eru barnabörnin orðin 23 og barnabarnabörnin 17. Tilvera mannsins, hringrás lífs- ins og eðli guðdómsins voru þau mál, sem Óskari voru hugleiknust. Hugieiðsla og lestur um þau mál voru hans lífsfylling. Ævilangt lifði hann eftir því boðorði, að ekki dygði að iðrast eftir dauðann og að tímann hérna megin grafar skildu menn nota til að rækta sinn innri mann og til leitar á sannri lífsfyll- FALLEG HUSGO I FALLEG HEIMILI Itölsk sófasett með tau- og leðuráklæði 'í úrvali 1' a ém PREMK) LINEA D'ORO Dcsísjti& t Stvk’ \ á K Gullverðlaun fvrir « hönnun & stíl KM- HUSGOGN, Langholtsvegi 111, R. símar 37010 — 37144

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.