Morgunblaðið - 11.05.1982, Qupperneq 36
44
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ 1982
el?g>Unr
ilCUAAllfí
iimi 11— Iriif'iTT______________________________________
„Vcasinn -Patfst flí úisoluver&l þecc«. viku
oi iSo.ooo icr.
ÍJV
ást er...
... að hjálpa honum með
skaltskýrsluna.
Til Rao. U.S. Pat. Off.—aH rlqhts ressrved
•1962 Loc Angetm Tlmm Syndlcete
Með
morgunkaffinu
HÖGNI HREKKVÍSI
.. ÓVE93AMDÍ rv\ARK • “
„Árið 999 eða 1000“
Bjartmar Kristjánsson skrifar:
„Góði Velvakandi.
Yfirskrift þessa smápistils
míns er undirfyrirsögn í kafla
um kristnitökuna, er prófessor
Sigurður Líndal skrifar í I bindi
Sögu íslands, bls. 239. Þar segir
hann svo:
„Sú skoðun er harla rótgróin,
að kristni hafi verið lögtekin ár-
ið 1000, en fjarri fer, að hún sé
óyggjandi."
Ekki er ætlun mín að rengja
þessi orð. Nokkra athugasemd
vil ég þó gera við síðari hluta
setningarinnar. Öllum er kunn-
ugt, sem eitthvað hafa lært í ís-
landssögunni, að kristnitakan
hefir verið tengd árinu 1000.
Prófessor Björn M. Ólsen skrif-
aði um síðustu aldamót mikla
ritgerð er heitir: „Um kristnitök-
una árið 1000“. Og próf. Jón Jó-
hannesson gerir enga athuga-
semd við þetta ártal í Islend-
ingasögu sinni. Þannig hafa
bæði „háir og lágir" haft fyrir
satt, eins og próf. Sigurður líka
segir, að kristnitakan hafi orðið
á þessu ofannefnda ári.
í almanakinu stóð þetta sama
einnig skrifað, þar til 1970 að svo
bregður við, að kristnitakan er
ársett 999. Almanakið er hávís-
indalegt rit og hefði maður hald-
ið, að þessu mundi ekki breytt
þar, nema óyggjandi sönnun
lægi fyrir í málinu. En nú er
mikil spurning, hvort svo sé.
Próf. Sigurður Líndal segir:
„Ólafía Einarsdóttir hefur leitt
gild rök að því, að kristni hafi
verið lögtekin árið 999.“ Og
seinna segir hann, að „sterkar
líkur mæli með því, að kristnin
hafi verið lögtekin sumarið 999“.
Ennfremur segir hann: „Fyrst er
þess að geta, að Ari fróði segir
hvergi, að kristni hafi verið lög-
tekin árið 1000, heldur einungis
þetta: „En Olafur Tryggvason féll
hið sama sumar að sögu Sæmund-
ar prests.“ Hann miðar þannig
kristnitökuna við fall Ólafs
Tryggvasonar árið 1000, sem
fræðimenn hafa talið fyrsta nokk-
urn veginn örugga ártaiið i sögu
Norðurlanda.“ (Allar lbr. B.K.).
Til þess að gera langt og flókið
mál stutt, eru rökin fyrir ártal-
inu 999 í meginatriðum þessi:
Talið er „líklegt" og jafnvel
„nokkurn veginn víst“, að Ari
hafi látið árið byrja 1. septem-
ber. Orrustan við Svoldur, þar
sem Ólafur Tryggvason féll, er
telin hafa staðið dagana 9.—12.
september árið 1000. („Þær
dagsetningar eru þó fjarri því að
vera óyggjandi“.) Kristnitakan,
sem fór fram seint í júnímánuði,
verður því árinu áður en Svold-
arorrusta, þótt samsumars sé.
Ef fall Ólafs Tryggvasonar er
rétt ársett, fer kristnitakan því
fram árið 999.
Þannig skilst mér að rökin
fyrir ártalinu 999 séu, í grófum
dráttum.
En nú ber þess að gæta, að við
erum hér með tímatal Ara fróða en
ekki núgildandi tímatal. En eins
og menn vita, eru áramótin nú
annars staðar en var á dögum
Ara fróða. Nú fylgir sumarið,
heilt og óskipt, sama árinu. Hvað
ártalið snertir, hljóta þvi kristni-
takan og Ólafur kóngur að fylgjast
að, ef það er rétt hjá „Sæmundi
presti", að þessir atburðir hafi
gerzt „hið sama sumar".
Nú veit ég ekki betur en það
standi enn óhaggað, að Ólafur
Tryggvason hafi fallið árið 1000.
Enda segir próf. Sigurður, að
„fræðimenn hafi talið það fyrsta
nokkurn veginn örugga ártalið í
sögu Norðurlanda", svo sem áður
getur.
Vegna þessa sýnist mér, að svo
lengi sem ekki er hróflað við ár-
setningu Svoldarorrustu, og svo
lengi sem við tökum þá Ara fróða
og Sæmund prest trúanlega, sé
þess einn kostur að halda sig enn
við það fornkveðna, að kristni hafi
verið lögtekin á Alþingi árið 1000.“
Hverjar eru skyld-
ur olíufélaganna?
„Reiður ökumaður" skrifar:
„Velvakandi.
Hverjar eru skyldur olíufélag-
anna í landinu? Þetta er spurning,
sem ég hef velt fyrir mér að und-
anförnu vegna slæmrar reynslu af
þjónustu þeirra.
Tvisvar með stuttu millibili hef
ég orðið fyrir þeirri leiðu reynslu
að koma að lokuðum bensínstöðv-
um þegar ég taldi alveg öruggt að
þær væru opnar, enda ekki orðið
var við auglýsingar um annað. í
fyrra tilfellinu var búið að loka
bensínstöðvum kl. 16 á sumardag-
inn fyrsta og varð ekki meira um
Fyrirspurn
til
Pósts
og síma
K.Þ.K. skrifar:
„A síðasta símareikningi,
janúar til mars, er nýr gjalda-
liður, sem kallast „talfæri/-
venjulegt... kr. 10,13“.
Nú er spurt: Á að fara að
borga sérstaklega fyrir taltæk-
ið, ofan á árvissar fjórar hækk-
anir afnotagjalda? Hver hefur
veitt heimild til gjaldtöku fyrir
þennan lið?“
akstur hjá mér þann daginn. í
seinna tilfellinu 1. maí, var alveg
lokað og ekkert bensín að fá. Þeir
góðu menn á BSR björguðu þá
deginum fyrir mig en vafalaust
hafa margir farið fýluferð á bens-
ínstöðvarnar þennan dag.
Og nú kem ég að spurningunni:
Hvers vegna geta olíufélögin þrjú,
sem hafa einokun á bensínsölu,
ekki veitt betri þjónustu en þetta?
Bensín er meiri nauðsynjavara en
flest það sem fæst í sjoppunum og
eru þær þó opnar frá morgni og
fast að miðnætti. Með von um svör
frá olíufélögunum."