Morgunblaðið - 11.05.1982, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MAÍ1982
47
Áhorfendur ksttust mikið yfir aðfdrum Braea Guðmundssonar. Hann
hefur nú tekið þátt í öllum akstursíþróttum BIKR.
Fyrsta „rally crossu ársins:
Tilþrifamik-
ill akstur
ÞÓRÐUR Valdimarsson á VW
sigraði nokkuð örugglega í Rally
('ross-keppni sem haldin var sl.
sunnudag. í öðru sæti varð rall-
kappinn Bragi Guðmundsson á
Lancer eftir tilþrifamikinn akst-
ur. Páll Grímsson náði þriðja
sæti á VW.
Hátt í eitt þúsund áhorfendur
fylgdust með keppninni, sem fór
fram í blíðskaparveðri á Kjal-
arnesi. Þegar að úrslitum kom
hafði ýmislegt gengið á. Einn
bíll endastakkst í gryfju og valt,
annar lagðist á hliðina og þrír
bílar biluðu og hættu keppni.
Þeirra á meðal var Jón S. Hall-
dórsson á BMW sem háð hafði
harða keppni við Þórð Valdi-
marsson í fyrstu umferð. I úr-
Þórður Valdimarsson fagnar kampakátur sigri.
slitunum óku fjórir bílar og náði
Þórður Valdimarsson strax af-
gerandi forystu, sem hann hélt
til loka. Braga Guðmundssyni
tókst að tryggja sér annað sæti
með því að aka djarflega, en
honum tókst að smeygja bíl sín-
um framhá VW Páls Grímsson-
ar í byrjun. Fjórði bíllinn í úr-
slitum var Skoda Birgis Jónsson-
ar, en hann var of máttlítill til
að veita hinum bílunum keppni.
Þórður Valdimarsson var að
vonum ánægður með sigurinn,
lét hann þau orð falla að loksins
fengi eiginkona hans eitthvað
fyrir allar neglurnar.
I Lofta-
u ndirstöður
3,70- 3,60 -fe ™ Stærð:
3,50 3,40 ^ 2.10-3.75
3,30 3,20- To metra.
3,10 3,00 Þyngd að-
2,80 !zm eins 13 kg.
2,70
2,60 2,50 1325 V-þysk 1400
2,40 2,30 gæðavara.
2,20 2,10 “Verð að-
L i eins 276 ,r. m/U-járni.
J Getum út- vegað með stuttum fyrirvara margar aðrar lengdir og einnig ál og stálbita undir loft.
P allar hf.
Vesturvör 7, Kópavogi.
Sími 42322.
Kosin stjórn
kísilmálm-
verksmiðj-
unnar við
Reyðarfjörð
KOSIN var stjórn kísilmálmverk-
smiðjunnar við Reyðarfjörð á síð-
asta fundi sameinaðs Alþingis á
föstudag. Kjörin var hlutfalls-
kosningu sjö manna stjórn og sjö
til vara til eins árs.
Fram komu þrír listar með
jafnmörgum og kjósa skyldi.
Aðalstjórn skipa: Sveinn Þór-
arinsson verkfræðingur, Eg-
ilsstöðum, Axel Gíslason fram-
kvæmdastjóri, Reykjavík, Hall-
dór Árnason iðnþróunar-
fulltrúi, Fellahreppi, Hörður
Þórhallsson sveitarstjóri, Geir
Haarde hagfræðingur, Eggert
Steinsen verkfræðingur og Geir
Gunnlaugsson prófessor. Vara-
menn: Þorsteinn Ólafsson full-
trúi, Aðalsteinn Valdimarsson
forseti bæjarstjórnar, Eskif-
irði, Inger Jónsdóttir lögfræð-
ingur, Eskifirði, Theódór
Blöndal tæknifræðingur, Sverr-
ir Hermannsson alþingismað-
ur, Þráinn Jónsson fram-
kvæmdastjóri, Hlöðum, og Sig-
fús Guðlaugsson rafveitustjóri,
Reyðarfirði.
Vinnuslys í
Sundahöfn
VINNUSLYS varð í Sundahöfn
laust fyrir klukkan 14 í gær. Tæp-
lega sjötugur maður varð fyrir lyft-
ara og fótbrotnaði.
Atvikið átti sér stað á bryggj-
unni við Sundaskála og lenti
maðurinn framan á lyftaranum.
Hann var fluttur í slysadeild.
Við flytjum í Skipholt 1
Stærsta tölvubúð
á íslandi...
og þótt víðar væri leitað
I tilefni af ársafmæli Tölvubúðarinnar hf. flytjum
við nú í stórglæsilegt nýtt húsnæði aö Skipholti 1,
Reykjavík.
Einnig höfum við bætt mikiö við starfslið okkar til
að geta veitt viðskiptavinum okkar betri þjónustu
en fyrr.
Tölvuskólinn er nú undir sama þaki og Tölvubúöin
og getum við nú veitt alla kennslu og hjálp við
uppsetningu tölvukerfa á staðnum.
Okkar eigin hugbúnaður og vélbúnaðarverkstæði
með völdu starfsliöi tryggir þér öryggi í tölvukaup-
um.
Viö höldum aö sjálfsögöu áfram að selja
COMMODORE viðskiptatölvukerfi meö okkar
landsfrægu forritum sem eru sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður.
Líttu inn einhvern daginn og skoðaðu tölvulausnir
okkar, kannski hentar ein þeirra þér.
commodore
mest selda viðskiptatölva
á íslandi og í Evrópu.
TQLVUBÚEIN HF
Skipholti 1, Reykjavík. sími 25410.